Morgunblaðið - 08.05.2018, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 08.05.2018, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2018 Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC Við erum stödd á Tenerife, ég og frúin, og erum að klára að farahringinn í kringum eyjuna,“ segir Atli Már Ágústsson raf-magnstæknifræðingur, en hann á 40 ára afmæli í dag. „Í dag ætlum við að hafa það huggulegt, fara út að borða og njóta lífsins. Seinna í sumar ætlum við að fara til Danmerkur og vera í Óðinsvéum en við bjuggum þar í sjö ár.“ Atli Már er verkefnastjóri hjá Mannverki, en hann hóf störf þar fyr- ir þremur árum. Sjálft fyrirtækið var stofnað 2012. „Við erum alltaf að stækka. Ég hef síðustu tvö ár verið að byggja gagnaver fyrir Verne Global á Reykjanesi, en nú er ég kominn í fjölbýlishúsaverk- efni.“ Áhugamál Atla Más eru skotveiði og útivist og hefur hann farið á hreindýraveiðar undanfarin ár með bræðrum sínum og föður. „Það hefur alltaf einn af okkur verið dreginn út í happdrættinu. Við höfum verið á svæði 7, sem er Berufjörður og Fossárdalur, en við ákváðum að breyta til núna og verðum á svæði 2 í sumar. Við frúin vorum dug- leg að ganga á fjöll og fórum á Hvannadalshnúk fyrir tveimur árum og þurfum að fara að rífa okkur upp aftur. Síðustu árin höfum við verið í viðhaldi við húsið okkar og það er búið að taka smátíma.“ Eiginkona Atla Más er Hjördís Elva Valdimarsdóttir heimilis- læknir. Dætur þeirra eru Hanna Sædís 8 ára og Margrét Klara 5 ára. Hjónin Atli Már og Hjördís stödd í Masca-gilinu á Tenerife. Hefur það huggu- legt á Tenerife Atli Már Ágústsson er fertugur í dag H róðmar Bjarnason fæddist í Reykjavík 8.5. 1958 en ólst upp í Hveragerði fram til 13 ára aldurs. Þá flutti fjölskyldan að Hvoli í Ölfusi: „Faðir minn var alltaf í hesta- mennsku og ég fékk auðvitað áhugann frá honum. En þegar við fluttum að Hvoli jókst þessi áhugi minn til muna. Þar var fjölskyldan með um 200 fjár og fjölda hesta. Þar var stunduð hrossarækt og tamningar og ég var á kafi í hesta- mennskunni. Ég hafði æft og keppt í knatt- spyrnu í Hveragerði á mínum yngri árum en unglingsárin á Hvoli urðu líklega til þess að ég Hróðmar Bjarnason, framkvæmdastjóri Eldhesta – 60 ára Ljósmynd/Hróðmar Bjarnason Hestaferð á Kili Hróðmar hefur verið fararstjóri í fjölda hestaferða um árabil. Þessa mynd tók hann á Kili 2016. Með hugann við hesta, sagnfræði og skák Afmælisbarnið Hróðmar hefur unnið hjá Eldhestum frá 1991 og hefur ver- ið framkvæmdastjóri fyrirtækisins í fullu starfi frá árinu 2002. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl. is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á „Íslendinga“ síðum Morgunblaðsins er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.