Morgunblaðið - 08.05.2018, Blaðsíða 27
fór beint í Búnaðarskólann á
Hvanneyri eftir stúdentspróf. Síð-
an hefur líf mitt og starf snúist
mikið um íslenska hestinn.“
Hróðmar lauk landsprófi frá
Gagnfræðaskólanum í Hveragerði,
stúdentsprófi frá MS 1978,
búnaðarprófi frá Bændaskólanum
á Hvanneyri 1979, BA-prófi í sagn-
fræði og völdum hagfræðikúrsum
1983, fil.kand.-prófi í hagsögu og
hagfræði við Háskólann í Stokk-
hólmi 1989, síðan fil.lic.-gráðu í
þjóðhagfræði frá sama skóla.
Hróðmar starfaði mikið við
tamningar og þjálfun hrossa í
Reykjavík með námi á árunum
1980-86. Hann lauk reiðkenn-
araprófi í Svíþjóð 1989 og starfaði
við reiðkennslu um helgar á náms-
árunum í Svíþjóð og fram til árs-
ins 2015, einkum erlendis. Hann
kenndi við Laugaskóla í Sælings-
dal 1979-80 og við Grunnskólann í
Þorlákshöfn 1984-85.
Hróðmar starfaði á Þjóðhags-
stofnun 1997-2002. Hann vann hjá
Eldhestum sem fararstjóri og
nokkurs konar framkvæmdastjóri
á sumrin á árunum 1991-2002 og
hefur verið framkvæmdastjóri
Eldhesta ehf. í fullu starfi frá
2002.
Hróðmar var í framboði fyrir
framboð félagshyggjuafla i Ölfusi
árin 2006 og 2010. Hann sat í
skipulags-, byggingar- og um-
hverfisnefnd Ölfuss á árunum
2006-2010 og aftur 2014-2018 og í
bæjarstjórn Ölfuss 2010-2014.
Hróðmar hlaut Morgunblaðs-
skeifuna og ásetuverðlaun FT (Fé-
lags tamningamanna) á Hvanneyri
1979.
Helstu áhugamál Hróðmars eru
hestamennska, ferðalög, umhverf-
isvernd, skák, lestur góðra bóka
og síðast en ekki síst ræktun
hestsins.
„Ég hef alltaf haft gaman af því
að ferðast, og þá ekki síst í aðrar
heimsálfur, hef komið til Norður-
Ameríku, Afríku, Kína og Ástralíu.
Ég tefldi mikið á yngri árum og
hef alla tíð fylgst með stærri skák-
mótum hér á landi og skákum
helstu meistaranna. Ég les líka
töluvert mikið, einkum bókmenntir
og sagnfræði.“
Fjölskylda
Kona Hróðmars er Brigitte
Baumgartner Basel, f. í Sviss 21.6.
1965, fjármálastjóri og myndlistar-
maður.
Synir Hróðmars eru Hafþór
Brynjar, f. 21.5. 1979, húsasmiður
og verktaki á Selfossi, en kona
hans er Katrín Kristjónsdóttir
leikskólakennari og börn þeirra
eru Kristjón Máni, f. 2009, og Kar-
en Elly, f. 2016, og Ívar Hólm, f.
18.5. 1982, kennari við Melaskól-
ann í Reykjavík.
Bræður Hróðmars eru Sigurjón,
f. 17.9. 1959, skólastjóri við Lauga-
landsskóla í Holtum; Bjarni, f.
14.10. 1965, sálfræðingur, búsettur
í Ásgarði við Hvolsvöll, og Daði, f.
29.8. 1974, lögfræðingur í Reykja-
vík.
Foreldrar Hróðmars eru Bjarni
Eiríkur Sigurðsson, f. 27.6. 1935,
kennari og fyrrv. skólastjóri í Þor-
lákshöfn, og Kristín Björg Jóns-
dóttir, f. 22.11. 1936, fyrrv. loft-
skeytafræðingur og starfsmaður
við Landssíma Íslands.
Hróðmar Bjarnason
Alexandra Alexandersdóttir
húsfr. í Bjargholti á Seyðisfirði
Sigurjón Sigurðarson
sjóm. í Eyjum og á
Þórshöfn á Langanesi
Sigurlaug Sigurjónsdóttir
húsfr. í Eyjum
Jón Magnússon
verkam. í Eyjum
Kristín Björg Jónsdóttir
loftskeytafræðingur hjá Landsímanum
Hildur Ólafsdóttir
húsfr. á Seyðisfirði
og síðar í Eyjum
Magnús Jónsson
skipstj. og ritstj.Víðis og hagyrðingur
í Eyjum, af Deildartunguætt
Margrét Sigurðardóttir
húsfr. á Hólmi á Mýrum
í Hornafirði
Magnús Guðjóðnsson
ferðaþjónustubóndi á
Hólmi
Ari Vésteinssonar
rafmagnsverkfr.
í Rvík
UnnurAlexandra Jónsdóttir
framhaldsskólakennari í Rvík
Úlfar Daníelsson
kennari í Hafnarfirði
Hildur Jónsdóttir
kennari í Hafnarfirði
Magnús Jónsson
iðursuðufræðingur
Eyjum og í Keflavík
n
í
Jón Magnússon
útgerðarm. í Reykjanesbæ
Sigurjón Jónsson fyrrv.
pótekari í Rvík og í Eyjuma
Stefán Sigurjónsson
kennari í Rvík
Gunnar
Bene-
diktsson
pr. og rit-
höfundur
í Hvera-
gerði
Benedikt Gunnars-
son verkfr. og
framkvstj. í Rvík
Halldór Gunnars-
son fyrrv. form.
Þroskahjálpar
Margrét Benediktsdóttir
húsfr. á Hólabrekku
Bjarni Eyjólfsson
b. á Hólabrekku í
Skaftafellssýslu
Sigurður Eiríksson
verkm. á Seyðisfirði
Björg Benjamínsdóttir
húsfr. á Seyðisfirði
Eiríkur Einarsson
þurrabúðarm. á Seyðisfirði
og verkam. í Rvík
Úr frændgarði Hróðmars Bjarnasonar
Bjarni Eiríkur Sigurðsson
kennari og skólastj. í Þorlákshöfn
Hróðmar Ingi
Sigurbjörnsson
tónskáld
Anna Sigríður
Hróðmarsdóttir húsfr. í
Rvík og við Varmahlíð í
Skagafirði
Hallgrímur Hróðmarsson
framhaldsskólakennari í Hveragerði
Óttar Hróðmarsson garðyrkjufr. í Hollandi
Stefán Þórhallsson
trommari í
hljómsveitinni Á
móti sól
Þórhallur Hróðmarsson,
lengst af kennari við
Garðyrkjuskóla ríkisins
Ingunn Bjarnadóttir
húsfr. í Hveragerði
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2018
Hannes Finnsson fæddist íReykholti í Borgarfirði, 8.5.1739, sonur Finns Jóns-
sonar Skálholtsbiskups og Guðríðar
Gísladóttur úr Mávahlíð.
Hannes lauk stúdentsprófi í Skál-
holti, heimspekiprófi við Kaup-
mannahafnarháskóla og varð bacca-
laureus, lauk guðfræðiprófi og hlaut
doktorsnafnbót í guðfræði 1790.
Hannes stundaði kennslu og forn-
fræðistörf í Kaupmannahöfn til
1767, og 1770-77. Hann hafnaði há-
launuðu starfi sem þýðandi nor-
rænna rita við konunglega bókasafn-
ið í París, var boðið kennarastarf í
stærðfræði við hirð Soffiu Magda-
lenu ekkjudrottningar, var skrifari
Árnasafnsnefndar frá 1772, var boð-
in prófessorsstaða við Kaup-
mannahafnarháskóla
1775 en vígðist dómkirkjuprestur
í Skálholti 1776, var skipaður eft-
irmaður föður síns 1777, tók bisk-
upsvígslu það ár og var Skálholts-
biskup eftir föður sinn 1785 til
dauðadags.
Íslendingar áttu marga afburða-
fræði- og gáfumenn á 18. öld. Hann-
es fór framarlega í þeim hópi. Hann
var einn merkasti lærdómsmaður
þjóðarinnar á 18. öld og einn ástsæl-
asti biskup hennar. Hann var í hópi
virtustu handrita- og fornfræðinga
Norðurlanda, afburðaguðfræðingur,
einn lögvísasti maður landsins, las
og ritaði hebresku, grísku og latínu
og skrifaði og talaði dönsku, sænsku,
þýsku og frönsku eins og innfæddur.
Hann hlaut fjölda lærdómsverð-
launa og var m.a. heiðursfélagi Kon-
unglega fornfræðafélagsins í
London.
Afkomendur Finns, föður Hann-
esar, nefndu sig Finsena og komu
víða við sögu fræða og hárra emb-
ætta í Danaríki. Hannes biskup var
t.d. afi Steingríms Thorsteinssonar
skálds og bróður hans Árna Thor-
steinssonar landfógeta, sem og
Hilmars Finsen landshöfðingja og
langafi Níelsar Finsen, nóbels-
verðlaunahafa í læknisfræði.
Hannes lést 4.8. 1796.
Merkir Íslendingar
Hannes
Finnsson
85 ára
Hreiðar Ólafur Guðjónsson
Sigríður Guðjónsdóttir
Tryggvi Gestsson
80 ára
Jan Jansen
Steinar Freysson
Sævar Þorbjörn
Jóhannesson
75 ára
Bergsteinn Bergmann
Þorleifsson
Hulda Sigurðardóttir
Jón Matthíasson
Kolbrún Karlsdóttir
María Snorradóttir
Ragnhildur Benediktsdóttir
Valgerður Hjaltested
Örn Kristinsson
70 ára
Birgir Guðjónsson
Egill H. Bjarnason
Gunnþór Gíslason
Helgi Kristinn
Aðalsteinsson
Leifur Bárðarson
Ólafur Ólafsson
60 ára
Guðrún Þóra
Guðmundsdóttir
Hróðmar Bjarnason
Ingibjörg Viggósdóttir
Maria Stanislawa Bienia
Ólöf Jóna Sigurjónsd.
Fjeldsted
Sigríður Erlingsdóttir
Sigríður Hjörleifsdóttir
Victoria Enclonar Dicdican
Þorsteinn Bragason
50 ára
Ágúst Pedersen
Brynja Hauksdóttir
Gregg Thomas Batson
Guðbjörg Ósk
Kjartansdóttir
Jóhann M. Jóhannsson
Steinunn Ósk Indriðadóttir
Svanbjörg Ólafsdóttir
40 ára
Artur Robert Borowski
Atli Már Ágústsson
Björk Haraldsdóttir
Elísabet Dögg Sveinsdóttir
Elmar Þór Erlendsson
Friðrik Klingbeil
Gunnarsson
Jan Merenda
Kantawan Boonlert
Kristín Sesselja
Richardsdóttir
Szymon Jaworski
Tatsiana Yuranets
Þórarinn Ásgeir Ólafsson
Ægir Sigurðsson
30 ára
Atli Steinn Stefánsson
Ei Kywet
Hermann Guðmundsson
Hermína Erla Haraldsdóttir
Hildur Þórlindsdóttir
Hólmfríður Guðrún
Magnúsdóttir
Karolina Suska
Kristín Jónsdóttir
Matthildur Bjarnadóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Ægir lauk prófi í
viðskiptafræði frá HÍ, er
kennari við FSU og bóndi í
Krákumýri.
Maki: Íris Grétarsdóttir, f.
1978, kennari, bóndi og
brátt garðyrkjufræðingur..
Börn: Arnór Ingi, f. 1996;
Katla Sif, f. 2000; Sara, f.
2003; Guðrun Ásta, f.
2005, og Rán, f. 2010.
Foreldrar: Sigurður I.
Grímsson, f. 1951, og
Jóna Ingvarsdóttir, f.
1952.
Ægir
Sigurðsson
40 ára Elmar Þór ólst
upp í Reykjavík, býr í
Kópavogi, lauk prófi í
byggingafræði frá Háskól-
anum í Óðinsvéum og
starfar við það.
Synir: Jökull Elí, f. 2003;
Dagur Ari, f. 2004, og
Máni Lár, f .2008.
Foreldrar: Oddbjörg Frið-
riksdóttir, f. 1953, skrif-
stofumaður, og Erlendur
Borgþórsson, f. 1951,
flugmaður og heildsali,
búsett í Reykjavík.
Elmar Þór
Erlendsson
40 ára Elísabet ólst upp
á Indriðastöðum í Skorra-
dal í Borgarfirði syðri, býr
á Borgafirði eystra, lauk
BA-prófi í mannfræði frá
HÍ og er rekstrarstjóri
gistiheimilins Blábjörg.
Unnusti: Kjartan Ólafs-
son, f. 1956, hrepps-
starfsmaður.
Foreldrar: Inge Helga-
dóttir, f. 1951, fram-
kvæmdastjóri á Bifröst,
og Sveinn Sigurðsson, f.
1946, fyrrv. bóndi..
Elísabet Dögg
Sveinsdóttir
Hægt er að
sendamynd og texta
af nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is