Morgunblaðið - 08.05.2018, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 08.05.2018, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2018 SMÁRALIND www.skornirthinir.is Leðursandalar í úrvali Ver . Stærðir 36-42 Mjúkur sandali úr leðri Riflás yfir tá og rist Mjúkt og þægilegt laust innlegg Einnig til svartur ð 9 995 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Núna er stjórn á tíma og peningum eitt og hið sama. Endurskoðaðu afstöðu þína til þess hvers þú þarfnast og þess sem þú getur verið án. 20. apríl - 20. maí  Naut Vertu viðbúin/n því að þurfa að verja mál þitt fyrir háttsettum aðilum. Þetta er kjörinn dagur til þess að þiggja aðstoð annarra. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Láttu ekki ýta þér út í verk, sem þú veist að er ekki á þínu færi. Hugsaðu þig tvisv- ar um áður en þú grípur til aðgerða og teldu upp á þremur áður en þú opnar munninn. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Nú ríður á að vera vel undirbúin/n til þess að leysa verkefni dagsins. Leitaðu til ein- hvers sem getur hjálpað þér með því að miðla af reynslu sinni. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er nauðsynlegt að hugsa um eigin hag um þessar mundir enda tækifærið til að hlaða orkugeymana. Skipuleggðu tíma þinn eins vel og kostur er. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er eitt og annað sem sækir á þig og veldur þér hugarangri. Um leið og þú hættir að reyna að sanna mál þitt mun fólk átta sig á að þú hafðir rétt fyrir þér. 23. sept. - 22. okt.  Vog Gerðu ráðstafanir til þess að fækka streituvöldum í kringum þig, áhrifin eru töfrum líkust. Þú munt koma öðrum á óvart í dag og sýna ákveðni og festu eins og þér er einni/ einum lagið. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Miklar líkur eru á því að atburðir dagsins verði mistúlkaðir, en til allrar hamingju er jafnvel hægt að leiðrétta hinn argasta mis- skilning. Þér er óhætt að treysta á innsæi þitt. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Láttu ekki minniháttar persónuleg vandamál byrgja þér sýn. Raunverulegir vinir vilja að maður finni stuðning og hamingju, þó að það sé hjá einhverjum öðrum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Nú er hart sótt að starfsemi þinni svo þú þarft að verja hana með kjafti og klóm. Leyfðu hlutunum að gerjast og taktu svo málið skipulega fyrir. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Nú er komið að því eftir langa mæðu að menn sjá hve mjög þú hefur lagt þig fram um lausn ákveðins verkefnis. Mundu að hver er sinnar gæfu smiður. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú stendur andspænis uppgjöri við gamlan vin en einhver náinn gæti veitt þér góð ráð um sambönd. Eitthvað á eftir að koma þér á óvart en láttu það ekki trufla þig. Það var vel kveðið og urðu skemmtileg orðaskipti á Leir á laugardag og hófust með þessum vísum Helga Zimsen sem hann kall- ar „Af svikasumri“: Vorsins laukar kíkja á kreik kappsamir að spretta. Spói, lóa og kría keik koma hér en frétta að veðurguðir glettnir spotta og pretta. Brostna von og vetur fá vorboðar í rugli. Innan tíðar ylnum ná einna helst á Bugli. Sturlar tíð er furður veitir fugli. Í léttum jakka á mannamót mætti – enda sumar. Það ég hélt uns hart sem grjót haglið flúðu gumar. Fagurt ský á fólsku stundum lumar. Hunangsfluga fer á ról flögrar kát með mýi. Lofar henni háfleyg sól héðan vetur flýi, en allt er það nú bölvað bull og lygi Árni Björnsson brást hratt og vel við: „Hvaða nöldur er þetta eig- inlega í mörgu fólki? Þetta er bara eðlilegt krossmessukast. Og nokk- ur vorhret eiga trúlega eftir að fylgja. Þetta er hið blessaða til- breytingasama Ísland.“ Helgi tekur athugasemdinni vel: – „Satt segir þú, Árni, við ættum bara að vera fegin að búa í landi sem rís undir nafni sínu. Umhleyp- ingum fylgja tækifæri og læt ég nú kveða við annan tón“ Og fylgir þessum orðum eftir með tveim stökum, – „Það sem úti frýs“: Vorsins hreti hrósað get haglið ber á lóum. Aðeins ét nú ódýrt kjet engu hérna sóum. Þó að gerist vonin veik um vor, það besta úr gjöri Spóalegg og lóusteik lauk- ég -steiki í smjöri. Árni biður menn muna hvað sagt var um hinn sæla Þorlák biskup: Hann lastaði aldrei veður. Helgi kvað mjög svo gott að hafa þvílíkan fróðleiksbrunn um forna hætti hér á Leir sem annars staðar: Áður heyrði og enn um sinn Árna í brunni rausa. Fróðleik allan þakka þinn þar má lengi ausa. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af svikasumri eða krossmessukasti „BÍDDU ÞAR TIL VIÐ NÁUM LANDI. ÞÚ ERT BYRJAÐUR AÐ BERA BÁTINN OF SNEMMA.“ „OG HVAÐ GERIR ÞÚ Í FRÍTÍMA ÞÍNUM?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vita að hann mun ná því á endanum. ÉG… EL… UM… Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG ER GLORHUNGRAÐUR! ER ÞESSI SÚPA TILBÚIN? HÖGG! EKKI ENN! ÞEIR SEGJA AÐ HÚSVERKIN GETI VEITT MANNI GÓÐA HREYFINGU JÓN! EN FRÁBÆR HUGMYND! ÉG SKAL HREINSA ÍSSKÁPINN! Óumdeilt hlýtur að vera að pítsa erbesti matur í heimi. Þunnur brauðbotn, sósa gerð úr alvöru tóm- ötum og álegg að eigin vali er upp- skrift að himneskri upplifun. Það besta við pítsuna er að maður fær aldrei leiða á henni því endalaust er hægt að prófa sig áfram með sam- setningu áleggstegunda. Flestir vita þó að fegurðin felst í einfaldleikanum. x x x Þar sem þetta eru nokkuð einföldvísindi; þunnur botn, alvöru sósa og gott álegg, þá furðar Víkverji sig á því hvernig veitingahúsum tekst að klúðra málum eins oft og raun ber vitni. Hverjum dettur í hug að það geti talist boðlegt að hafa botninn álíka þykkan og á brauðhleif? Hverj- um dettur í hug að það sé í lagi að sós- an bragðist eins og hún hafi verið kreist úr túpu af tómatpúrru hálftíma fyrr? Og hverjum í ósköpunum dett- ur í hug að það sé eitthvert norm að setja beikon á pítsu? x x x Víkverji var á ferð í höfuðstaðNorðurlands fyrir skemmstu og snæddi pítsu á tveimur vinsælum veitingastöðum þar. Báðir féllu í þessa gildru og hefði Víkverji helst þurft að leggjast inn á heilsuhæli eftir þessar máltíðir, slíkt var magnið af geri og salti sem innbyrt var. Bestu pítsustaðirnir eru þeir sem leggja upp með einfaldleikann að vopni og eru ekki að flækja hlutina mikið. Í þessu tilliti er rétt að mæla með Flat- ey úti á Granda og Eldofninum í Grímsbæ við Bústaðaveg. x x x Heimsókn til Akureyrar er alltafánægjuleg, þó pítsugerðarmenn bæjarins mættu hugsa sinn gang. Sundlaug Akureyrar er orðin ein sú allra besta á landinu eftir end- urbætur og von er á meiru. Á næst- unni verða teknir í notkun nýir pottar sem munu enn auka á ánægjuna við að koma í þessa frábæru laug. Af öðr- um ómissandi þáttum í brag bæjarins má nefna bókabúð og kaffihús Ey- mundsson og Kristjánsbakarí. Vík- verji saknaði reyndar Aleppo kebab sem opnað var í göngugötunni í fyrra- sumar. Hvað varð um þá ágætu stofn- un? vikverji@mbl.is Víkverji Ég er dyrnar. Sá sem kemur inn um mig mun frelsast og hann mun ganga inn og út og finna haga. (Jóh: 10.9)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.