Morgunblaðið - 08.05.2018, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 08.05.2018, Qupperneq 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2018 Kvennakórinn íslenski, Gra-duale Nobili, hefur all-lengi sungið undir radar,eða kannski réttara sagt, ofan radars hér heima. Upphefðin og athyglin hefur komið meira utan- lands, þ.á m. eftir hljómleikaferð Bi- ophiliu Bjarkar Guðmundsdóttur umhverfis hnöttinn í upphafi áratug- arins. Þá hefur kórinn margsinnis unnið til verðlauna, t.a.m. í kóra- keppni í Olomouc í Tékklandi í flokki kirkjutónlistar. Nú síðast starfaði Nobili, eins og kórinn er oft kallaður, með Fleet Foxes-indieþjóðlagaband- inu frá Seattle. Kórinn á tónleik- unum 1. maí taldi 23 raddir, þ.e. um það bil sá fjöldi sem hefur haldist allt frá stofnun kórsins árið 2000. Af tónleikunum að dæma er fal- legur hjónasvipur með Nobilidöm- unum og nýja kórstjóranum þeirra, Þorvaldi Erni Davíðssyni. Þorvaldur Örn er einn þeirra ungu bráð- efnilegu nýju íslensku tónlistar- manna sem vert er að fylgjast með, en þrátt fyrir að hafa stigið fram í fyrrahaust sem kórstjóri á þessu merka Nobilifleyi stundar hann kantorsnám og er meistaranemi í tónsmíðum. Dagskráin hinn 1. maí var hag- anlega sett saman og af hæfilegri lengd, klasi af lögum og verkum par- að saman, trúarleg jafnt sem alþýð- leg sumar- og ættjarðarlög – tæpur klukkutími. Uppklappslagið, The International eða Nallinn, í útsetn- ingu Þorvaldar fyrir þríradda kvennakór var bæði hressandi ágjöf og innlegg í kjarabaráttuna. Það er oftast áhugavert þegar kórar leggja sig fram við að kanna rýmið, syngja inn í það, dreifa sér um og umlykja áheyrendur. Svo var gert í fyrsta verkinu, Allelujah su- per-round er kórinn söng út við norðurgluggann líkt og til að særa fram vorið með birtu og hlýu í stór- skalaorgíu. Ave Maria söng kórinn blandaður framan við áheyrendur af birtu og fegurð með þessum flotta klang eða hljómi þar sem allir sérhljóðar raða sér saman á góðum stað og er líklega helsta kennimerki Nobili. Guðs al- máttugs dóttir dýr var því næst sungin af hlýju og einlægni. Þá tók við Duruflé af glæsileika og krafti, Tormis hljómaði glaðlega á skjön, tengdi hið trúarlega við hátimbraða íslensku ættjarðarsöngvana seinna á dagskránni. Eistar hafa ekki aðeins ríka kórahefð heldur geta einnig val- ið úr ríku úrvali kórverka, smærri ópusum jafnt sem stærri sem hafa stundum yfir sér heiðbláan einfaldan þjóðlagablæ líkt og atmóið í Lauliku lapsepõli – mikill litur og leikur raddanna – langir tónar hjá kór en þrír einsöngvarar sungu versin. Næstu tvö verk voru tileinkuð Jóni Stefánssyni er stofnaði Nobili- kórinn og leiddi starfið í Langholts- kirkju í áratugi; A solis ortus car- dine, og því næst Ó undur lífs, sá hægi fallegi sálmur, fullur af trega og samúð, hljómaði nú eftir feimil- birtustugi kvennakórsins. Næstu tvö lög voru af róm- antískum þjóðlagatrega. Hver á sér fegra föðurland og Þó þú langförull legðir, ósvikin sveitastemning líkt og Jónsi elskaði, Úr Íslendingadags- ræðu og seinna Skólaljóðunum. Enginn grætur Íslending og Stóð ég við Öxará hljómaði í kröftugum útsetningum Þorvaldar Arnar í anda Kaldalóns með alvöru hvössu sópr- anvíbratói. Tónleikunum lauk í anda dagsins með kjarabaráttu, Maístjörnunni, í samsöng allra viðstaddra. Textinn hefði mátt fylgja með í dagskrá, já Nallinn líka, en þá hefðu gestir ef til vill kvatt Nobilildömurnar fullvíg- reifir. Nú verður spennandi að fylgj- ast með Þorvaldi Erni og Nobilidöm- unum næstu misseri og ár! Ljósmynd/Atli Arnarsson Spenna „Nú verður spennandi að fylgjast með Þorvaldi Erni og Nobilidömunum næstu misseri og ár!“ segir í dómi. Skrautfjaðrir Langholtskirkju Langholtskirkja Vortónleikar Graduale Nobili bbbbn Graduale Nobile í Langholtskirkju, stjórnandi: Þorvaldur Örn Davíðsson. Efnisskrá: Allelujah super-round e. Willi- am Ale; Ave Maria e. Francis Poulenc; Ave verum corpus e. Francis Poulenc; Guðs almáttugs dóttir dýr, íslenskt þjóðlag, úts. Svanfríður Hlín Gunnarsdóttir; Tota Pulchra es e. Maurice Duruflé; Lauliku lapsepõli, eistnesk þjóðvísa e. Veljo Tormis; A solis ortus cardine e. Hreiðar Ingi Þorsteinsson; Ó, undur lífs e. Þor- stein Valdimarsson og Jakob Hall- grímsson; Þó þú langförull legðir e. Stephan G. Stephansson og Sigvalda Kaldalóns. Úts. Hildigunnur Rúnars- dóttir; Hver á sér fegra föðurland e. Huldu, Emil Thoroddsen; Enginn grætur Íslending e. Jónas Hallgrímsson og Hróð- mar Inga Sigurbjörnsson. Úts. Þorvaldur Örn Davíðsson; Stóð ég við Öxará e. Hall- dór Kiljan Laxness, úts. Þorvaldur Örn Davíðsson; Maístjarnan e. Halldór Kiljan Laxness og Jón Ásgeirsson. Langholts- kirkja 1. maí 2018. INGVAR BATES TÓNLIST „Sú ósk barst frá akademíunni að ég myndi endurskoða ákvörðun mína enn á ný, sem ég hef gert, en til- kynni nú að ég ítreka beiðni mína um að stíga alfarið til hliðar,“ segir skáldkonan Lotta Lotass í skriflegu svari til Dagens Nyheter sem birtist í fyrradag, tveimur dögum eftir að Sænska akademían (SA) tilkynnti að engin Nóbelsverðlaun í bók- menntum yrðu veitt í ár, en tvenn á því næsta. Lotass var valin inn í SA 2009, en dró sig út úr störfum hennar 2015. Í viðtali við Borås Tidning undir lok síðasta árs lýsti Lotass því aðkasti sem hún varð fyrir við skipunina, en löng hefð er fyrir því að lögfræð- ingur vermi stól nr. 1 sem hún sett- ist í. „Ég passaði mjög illa inn í hóp- inn,“ segir Lotass og rifjar upp að aðrir meðlimir SA hafi hnýtt í hana fyrir að sinna ekki veisluhöldum á vegum SA. „Ég hef aldrei tekið þátt í Nóbelsveislunni eða mætt í mat hjá kónginum og það varð vandamál.“ Í framhaldi af ásökunum á hend- ur Jean-Claude Arnault, sem hefur lengi haft sterk tengsl við SA, um kynferðislegt ofbeldi, fjármála- óreiðu og að hafa lekið nöfnum væntanlegra vinningshafa hafa sex af 18 meðlimum hennar, sem allir eru skipaðir til æviloka, hætt störf- um, en áður höfðu hætt Lotass og Kerstin Ekman, sem dró sig út úr störfum SA árið 1989. Klas Öster- gren og Sara Stridsberg, sem hættu bæði í apríl, hafa alfarið útilokað að þau snúi aftur til starfa. Anders Olsson, starfandi ritari SA, hefur síðustu daga rætt þann möguleika að þeir sem stigið hafi til hliðar snúi aftur til starfa til að gera SA starfhæfa, en alls þarf 12 at- kvæði til að taka allar meiriháttar ákvarðanir s.s. að velja nýjan Nób- elsverðlaunahafa. Ítalska dagblaðið La Repubblica hafði á laugardag eftir Per Wästberg, sem setið hefur í SA frá 1997, að fyrir mánaðamót yrði búið að skipa þrjá nýja með- limi. Slíkt myndi krefjast konung- legrar tilskipunar sem gerði núver- andi meðlimum það kleift að hætta störfum. Sara Danius, Kjell Espmark, Pet- er Englund og Klas Östergren, sem öll stigu til hliðar í apríl, krefjast þess að skipuð verði óháð nefnd til að fara ofan í saumana á starfsemi SA. Frá þessu greinir Sænska út- varpið (SVT). „Slík úttekt er bráð- nauðsynleg,“ segir Espmark í við- tali við Dagens Nyheter og leggur til að Inga-Britt Ahlenius, fyrrver- andi forstjóri Ríkisendurskoðunar Svíþjóðar og aðstoðaraðalritari Sameinuðu þjóðanna, verði fengin til verksins. Karin Olsson, menningarritstjóri Expressen, gagnrýndi fyrir helgi þá ákvörðun að fresta Nóbelsverð- launum ársins í bókmenntum til næsta árs og sagði það engan vanda leysa, aðeins væri verið að draga vandann á langinn. silja@mbl.is Útilokar að snúa aftur Skáldið Lotta Lotass þvertekur fyrir að snúa aftur til starfa hjá SA. Á annað hundrað mynd- listarmanna sendu inn til- lögur í sam- keppni um úti- listaverk í Vogabyggð í Reykjavík, en samkeppninni hleypti Reykja- víkurborg af stokkunum í apríl. Í tilkynn- ingu segir að alls hafi 165 myndlist- armenn lýst yf- ir áhuga á því að vinna útilistaverk í hverfinu sem hefur verið endur- skipulagt. Samkeppnin var auglýst al- þjóðlega og eru sjötíu prósent um- sóknanna frá listamönnum búsett- um erlendis. Forvalsnefnd fer nú með það verkefni að velja úr innsendum um- sóknum allt að átta listamenn eða hópa til þess að vinna að tillögum að listaverkum. Nefndin stefnir að því að hafa lokið störfum 28. maí. Lista- mennirnir/hóparnir sem verða fyr- ir valinu fá greiddar 600.000 kr. hver fyrir tillögugerðina. Samkeppnin er haldin samkvæmt samkeppnisreglum Sambands ís- lenskra myndlistarmanna (SÍM). Forvalsnefnd er skipuð þremur fulltrúum: Frá menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkurborgar, innkaupanefnd Listasafns Reykja- víkur og frá SÍM. Margir vilja gera listaverk í Vogabyggð Í skipulagi Horft yfir Vogabyggð eins og hún mun líta út. Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Þri 8/5 kl. 20:00 31. s Mið 23/5 kl. 20:00 aukas. Lau 2/6 kl. 20:00 47. s Mið 9/5 kl. 20:00 32. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Sun 3/6 kl. 20:00 48. s Fös 11/5 kl. 20:00 33. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Mið 6/6 kl. 20:00 49. s Lau 12/5 kl. 16:00 34. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Fim 7/6 kl. 20:00 50. s Þri 15/5 kl. 20:00 aukas. Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Fös 8/6 kl. 20:00 51. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas. Lau 9/6 kl. 20:00 52. s Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Fim 31/5 kl. 20:00 41. s Sun 10/6 kl. 20:00 53. s Lau 19/5 kl. 20:00 37. s Fös 1/6 kl. 20:00 46. s Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa. Elly (Stóra sviðið) Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s Sýningar haustið 2018 komnar í sölu. Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið) Fim 10/5 kl. 20:00 29. s Fim 17/5 kl. 20:00 31. s Lau 19/5 kl. 20:00 33. s Fös 11/5 kl. 20:00 30. s Fös 18/5 kl. 20:00 32. s Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis! Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Mið 9/5 kl. 20:30 15. s Sun 13/5 kl. 20:30 22. s Fös 18/5 kl. 20:30 24. s Fim 10/5 kl. 20:30 aukas. Mið 16/5 kl. 20:30 aukas. Lau 19/5 kl. 20:30 aukas. Fös 11/5 kl. 20:30 16. s Fim 17/5 kl. 20:30 23. s Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi? Hin lánsömu (Stóra sviðið) Sun 13/5 kl. 20:00 3. s Mið 16/5 kl. 20:00 4. s Kraftmikil og kómísk saga 8 systkina sem lifa velmegunarlífi Slá í gegn (Stóra sviðið) Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn Fim 14/6 kl. 19:30 35.sýn Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn Sun 10/6 kl. 19:30 34.sýn Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Svartalogn (Stóra sviðið) Fös 11/5 kl. 19:30 5.sýn Fös 25/5 kl. 19:30 7.sýn Fim 31/5 kl. 19:30 9.sýn Lau 12/5 kl. 19:30 6.sýn Lau 26/5 kl. 19:30 8.sýn Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu Stríð (Stóra sviðið) Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l Faðirinn (Kassinn) Sun 13/5 kl. 19:30 50.sýn Síðustu sýningar komnar í sölu Aðfaranótt (Kassinn) Fös 11/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 4.sýn Fim 24/5 kl. 19:30 8.sýn Lau 12/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 5.sýn Fös 25/5 kl. 19:30 9.sýn Mið 16/5 kl. 19:30 3.sýn Mið 23/5 kl. 19:30 7.sýn Lokaverkefni leikarabrautar sviðslistadeildar LHÍ Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 9/5 kl. 20:00 Mið 16/5 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Oddur og Siggi (Á flakki um landið) Þri 15/5 kl. 11:00 Vestm.eyjar Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.