Morgunblaðið - 11.05.2018, Side 1
F Ö S T U D A G U R 1 1. M A Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 110. tölublað 106. árgangur
HEIMA
ER STAÐUR
FYRIR ÁST
Á VISSAN
HÁTT Í LEIT AÐ
UPPRUNANUM
SÉRBLAÐ UM HEIMILI SÝNING KATRÍNAR 30
Graffarar fá nú frítt spil og geta skapað sína eig-
in veröld í litum og myndum á vegg sem komið
hefur verið upp við nýbyggingarsvæði við
Laugaveginn í Reykjavík. Listamennirnir sem
þarna voru að störfum í gær kölluðu verkið sitt
Allra veðra von og verður hver að ráða í þá nafn-
gift eftir sínu höfði. Það er líka eðli og inntak
listanna að fá fólk til þess að hugsa og velta mál-
unum fyrir sér í nýju samhengi og skálda í
skörðin eins og við á hverju sinni.
Raunar má segja að miðborgin í Reykjavík sé
öll yfir sumartímann stór iðandi pottur alls kon-
ar stefna og strauma í listum og menningu þar
sem ýmsir viðburðir og sjálfsprottin götulist eru
áberandi. Má þar nefna atburði á Listahátíð í
Reykjavík sem nú stendur fyrir dyrum. Stærsta
listaverkið er þó auðvitað iðandi mannlífið þar
sem fólk mætir til að sýna sig og sjá aðra og taka
þannig þátt í að móta borgarlífið, sem er í sí-
felldri þróun þar sem gætir ólíkra áhrifa úr öll-
um áttum.
Listin dafnar í miðborginni og mannlífið er iðandi og áhugavert
Morgunblaðið/Eggert
Ný veröld lita og mynd sköpuð við Laugaveg
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, mun á næstu dögum gefa út
formlega vantraustsyfirlýsingu á
hendur Gylfa Arnbjörnssyni, forseta
Alþýðusambands Íslands (ASÍ), eftir
að ASÍ neitaði að taka niður auglýs-
ingu um kaupmáttaraukningu.
„Ég get fullyrt að ég mun lýsa yfir
vantrausti á forsetann – eftir höfðinu
dansa limirnir og hann er forseti ASÍ.
Ég hef lýst yfir vantrausti á hann áð-
ur en mun gera það með formlegum
hætti á næstu dögum, öðruhvorum
megin við helgina,“ segir Ragnar Þór
í samtali við Morgunblaðið í gær.
Hann sendi tölvupóst á félags-
menn ASÍ í vikunni þar sem hann
óskaði eftir því að auglýsing á face-
booksíðu ASÍ yrði tekin niður, ann-
ars myndi hann ásamt öðrum for-
mönnum aðilarfélaga ASÍ lýsa yfir
vantrausti á forsetann. Hann segir að
VR muni benda á það eftir helgi hvað
kaupmáttarvísitalan kemur rangt
fram í myndbandinu en annars er
hann ósáttur við að skautað sé
framhjá efnahagshruninu í tímalínu
ASÍ. „Það er alveg skautað framhjá
því að hér varð hrun og þúsundir
misstu aleiguna og tugir þúsunda
misstu heimilið og enduðu á leigu-
markaði sem er drifinn áfram af
stjórnlausri græðgi.“ Spurður hvort
nauðsynlegt sé að nefna hrunið sér-
staklega þegar fjallað er um töluleg-
ur upplýsingar um kaupmátt segir
hann svo vera. „Að sjálfsögðu verður
maður að gera það. Það er alveg
sama með kaupmáttinn. Við getum
leikið okkur með alls kyns tölur og
leikið okkur að því að setja fram með-
altöl en slíkri framsetningu fylgir
ákveðin ábyrgð eins og að halda því
fram að hér sé fordæmalaus kaup-
máttur.“ Aðspurður segist hann hafa
verið í sambandi við formenn annarra
aðildarfélaga. „Það eina sem ég get
sagt er að það ætla fleiri að vera
með,“ segir Ragnar.
Vill vantraust á Gylfa
Formaður VR mun lýsa formlega yfir vantrausti á forseta
ASÍ á næstu dögum Ósáttur við framsetningu kaupmáttar
Morgunblaðið/Hari
VR Ragnar er ósáttur við auglýs-
ingu ASÍ um kaupmáttaraukningu.
Brýnt er að ís-
lenskir bændur
nýti ræktunar-
land sitt betur og
fóðri gripi sína
sem mest á
heimafengnu
fóðri. Þetta segir
Jóhann Nikulás-
son, bóndi í Aust-
ur-Landeyjum.
„Sú staðreynd
að nú um stundir er rösklega helm-
ingur hérlendrar mjólkurfram-
leiðslu framleiddur einvörðungu
með innfluttu kjarnfóðri, sem á
uppruna sinn á ökrum bænda í fjar-
lægum löndum, getur fyrr eða síðar
grafið mjög undan þeim velvilja og
stuðningi sem greinin nýtur í sam-
félaginu,“ segir Jóhann. Mikilvægt
sé að þetta breytist og þar geti nýj-
ar áherslur í stuðningskerfi mjólk-
urframleiðslu gegnt lykilhlutverki.
Fjallað er um staðhætti og mann-
líf í Landeyjum í Rangárþingi
eystra í Morgunblaðinu í dag. »14
Bændur nýti heima-
fengið fóður meira
Jóhann
Nikulásson
Um 5% verð-
lækkun varð á
minkaskinnum á
maíuppboði upp-
boðshússins Kop-
enhagen Fur þar
sem íslenskir loð-
dýrabændur
selja afurðir búa
sinna. „Vonir
voru bundnar við
að þetta myndi
snúast við á þessu ári, en svo virðist
sem umframbirgðir síðustu ára séu
meiri en menn töldu í upphafi,“ seg-
ir Einar E. Einarsson, minkabóndi
á Syðra-Skörðugili í Skagafirði og
formaður Sambands íslenskra loð-
dýrabænda. »4
Verð minkaskinna
lækkar enn frekar
Minkur Minkaskinn
hefur verið vinsælt.
að prútta á staðnum en eigendur
hlutanna geti endurverðlagt þá eða
sett afslátt á allan básinn. Það séu
því í raun viðskiptavinirnir sem stýri
verðlaginu. »10
„Það er umhverfisvænt og mikil-
vægt fyrir Móður jörð að nýta hluti í
stað þess að henda og kaupa nýtt,“
segir Guðríður Gunnlaugsdóttir,
einn fjögurra eigenda Barnalopp-
unnar, sem opnuð verður á laugar-
daginn í Skeifunni 11d. Fyrirmynd-
ina að starfseminni fékk Guðríður í
Danmörku þegar hún bjó þar.
Mikil hefð er fyrir því í Danmörku
að versla á loppumörkuðum eða flóa-
mörkuðum. Guðríður segir að mörg-
um hugnist ekki að selja vörur á net-
inu en með tilkomu Barnaloppunnar
geti fólk leigt sér bása, komið vör-
unni fyrir og verðlagt hana en salan
sé í höndum Barnaloppunnar. Hún
segir að seljendur geti fylgst raf-
rænt með því hvernig salan gengur
og ef hægt gengur að selja séu líkur
á að verðið sé of hátt. Ekki sé hægt
Barnavörur endur-
nýttar í Skeifunni
Barnaloppan er nýjung á markaði
Morgunblaðið/Eggert
Úrval Allt tilbúið fyrir opnunina.