Morgunblaðið - 11.05.2018, Síða 2

Morgunblaðið - 11.05.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2018 Renndu við hjá okkur í Tangarhöfða 13 Sími 577 1313 kistufell.com TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ Allar almennar bílaviðgerðir Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Hluta af þeirri atburðarás sem nú á sér stað í gosinu í Kilauea-eldstöð- inni á Havaí svipar til þess sem gerðist í eldgosinu í Holuhrauni, en það stóð frá ágúst 2014 fram í febr- úar árið eftir. Þetta er mat Páls Ein- arssonar jarðeðlisfræðings. Gosið í Kilauea hefur staðið yfir frá 1983 en raunar hafa verið eldsumbrot á Havaí mjög lengi. „Atburðarásin á Havaí nú er flókin og lærdómsrík,“ sagði Páll í samtali við Morgun- blaðið í gær. Öflugur jarðskjálfti Ferlið á Kyrrahafseyjunum hófst 30. apríl með því að kvika tók að leita eftir sprungusveim eldstöðvar- innar út frá eldstöðinni sem hefur verið virkust síðustu áratugi, gígn- um Puu O-o. Í honum var virk hrauntjörn og undir honum kviku- geymir. Þegar kvikan leitaði burt þornaði tjörnin og gígurinn hrundi saman. Þessu fylgdi talsverð sprengivirkni og öskufall. Kvikan ferðaðist eftir sprungusveimnum um 15 km leið og tók að brjóta sér leið til yfirborðs og þar hófst rólegt hraungos inni í íbúðarhverfinu Leil- ani Estates. Þar hafa opnast 14 stuttar sprungur og upp úr þeim vellur hraunið. Sveimurinn gliðnaði svo í sundur vegna kvikuinnskotsins og auka- þrýstingurinn sem þetta olli gerði suðurhlíðar eldfjallsins óstöðugar. Hluti fjallsins skreið fram um hálfan metra í stórum skjálfta, 6,9 að stærð, síðastliðið föstudagskvöld, öflugasta skjálfta á Havaí síðan 1975. Þessar hreyfingar hafa síðan leitt til þrýstingsbreytinga í öllu kvikukerfi Kilauea-eldfjallsins. Kvika í sprungusveim „Öskjusvæði þess hefur sigið og þar hefur annar stór gígur, Hale- maumau, hrunið saman. Því hafa fylgt sprengingar og öskufall. At- burðarásin er því enn í fullum gangi og ekki víst hvaða stefnu hún tekur. Það er einkum sprengivirknin sem kemur á óvart. Hraungos eru tíð á Havaí,“ sagði Páll Einarsson. Eldgosið á Havaí hefur þegar eyðilagt 36 hús og um 2.000 manns hafa flúið heimili sín. Að því leyti má jafna þessum hamförum við Vest- mannaeyjagosið árið 1973. Hlið- stæðan við Holuhraun og Bárðar- bungu af sjónarhóli jarðfræðinnar er aftur á móti sú að kvikan leitar eftir sprungusveim og hrun verður á upprunastað hennar. Á Havaí ferð- aðist kvikan sem fyrr segir um 15 km eftir sprungusveimnum áður en hún kom á yfirborðið, í Bárðar- bungukerfinu ferðaðist hún 48 km áður en gos hófst í Holuhrauni. „Jarðvísindamenn á Íslandi hafa lengi fylgst með Kilaue og um- brotum þar. Reynslan og þekking þaðan gátu oft gefið okkur svör í Holuhraunsgosinu,“ segir Páll. Endurtekning á Havaí  Eldgosum á eyjum Kyrrahafs svipar til umbrota í Bárðar- bungu og Holuhrauni  Íslenskir vísindamenn fylgjast með AFP Havaí Kraftur í Kilauea í gær. Morgunblaðið/Árni Sæberg Holuhraun Elfurin rennur fram. Undirbúningur hvalveiðivertíðar er nú hafinn og á mið- vikudaginn var Hvalur 8 dreginn upp í dráttarbrautina í Slippnum í Reykjavík. Starfsmenn Stálsmiðjunnar Framtaks eru nú að yfirfara bátinn og innan tíðar verður Hvalur 9 svo tekinn upp í brautina. Fyrir vertíðina þarf að þvo, mála, yfirfara skrúfu, stýri og annað svo bátarnir verði sjóklárir. Því á að vera lokið um mánaðamótin, en vertíðin hefst sunnudaginn 10. júní og löng hefð er fyrir því að hvalbátarnir fari á miðin á þeim degi vikunnar. Hvalur 8 er sjötíu ára gamalt skip, en í góðu ástandi, enda hafa þessir bátar fengið gott viðhald í tímans rás. Þeir eru knúnir gufuvélum, sem gerir þá afar hljóðláta á hafi úti, sem þykir mikilvægt þannig að bráðin styggist ekki. Veiðikvótinn í ár er 161 langreyður og er hann sam- kvæmt viðmiðum og ráðleggingum sem Hafrannsókna- stofnun hefur gefið út. Að auki hefur Hvalur hf. heimild til að nýta 20% af ónýttum kvóta frá fyrri tíð. Veiðarnar voru síðast stundaðar árið 2015 en þá voru veidd og unn- in alls 155 dýr og það ár komu 150 manns að veiðum, vinnslu og öðru sem þeim fylgdi. Við hvalveiðarnar nú verður sérstaklega horft til þess að nýta langreyðarkjöt í járnríkt fæðubótarefni fyrir fólk sem þjáist af blóðleysi. Ljóst er þó að veiðarnar nú verða umdeildar eins og jafn- an áður. Koma þar til bæði sjónarmið verndarsinna og eins fólks í ferðaþjónustu, sem telur veiðarnar fæla frá og skaða ímynd Íslands þannig að ferðamenn forðist landið. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Slippurinn Hvalur 8 í dráttarbrautinni og að ýmsu þarf að dytta og lagfæra. Fjær er Breiðafjarðarferjan Baldur. Hvalbátarnir gerðir sjóklárir  Hvalur 8 og 9 í yfirferð  Annað skipið er 70 ára gamalt  Veiðar hefjast 10. júní  Kvóti ársins er 161 langreyður Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Óttari Guðjónssyni, íbúa í Heiðar- gerði í Reykjavík, brá heldur í brún síðdegis í gær þegar við honum blasti skilti um lokun götunnar vegna framkvæmda sem hefjast í dag. Óttar er ósáttur við stuttan frest sem gefinn er til þess að fjar- lægja bíla vegna fræsingar á göt- unni. „Klukkan fjögur [í gær] var sett upp skilti sem á stóð að vegna vinnu við malbiksviðgerðir þyrftu íbúar að vera búnir að fjarlægja alla bíla af götunni klukkan átta um morguninn daginn eftir. Þeir bílar sem eigendur ekki færðu í burtu yrðu fjarlægðir og geymdir í Vöku,“ segir Óttar og bendir á að margir taki sér langa frí- helgi í kjölfar frídags á fimmtudegi. Hann segir að engin tilkynning um að fjarlægja bíla af götunni hafi bor- ist fyrr en klukkan fjögur í gær, uppstigningardag. „Það gæti komið upp skrýtin staða hjá fólki sem kemur heim úr fríi á sunnudag og ætlar á heimilisbílnum í vinnu á mánudag. Það gæti gripið í tómt þar sem bíllinn væri kominn í Vöku,“ segir Óttar. Málið verður skoðað Ámundi V. Brynjólfsson, skrif- stofustjóri framkvæmda og viðhalds hjá Reykjavíkurborg, segir alveg klárt að venjan sé sú að veita viðráð- anlegan tíma til þess að fjarlægja bíla af götum sem vinna þarf við. Hann þekki ekki af hverju lengri frestur var ekki veittur vegna fræs- ingar í Heiðargerði en það verði hans fyrsta verk í dag að skoða málið og unnið verði að því að íbúar verði ekki fyrir vandræðum vegna of stutts fyrirvara. Hann segir að það komi jafnvel til greina að fresta framkvæmdum ef þurfa þykir. Ósáttur við stutt- an frest til þess að fjarlægja bíla  Fyrsta tilkynning í gær  Allt gert til þess að forða íbúum frá vandræðum Rauða spjaldið Skiltið var fyrst sett upp um fjögurleytið í gær. Hiti á landinu í gær fór hæst í 13,7 stig á Bakkafirði. Fátítt er að hlýj- ast verði á landinu einmitt þar, en hér veldur að austur með landinu hafa með SA-átt borist hlýir vindar úr suðri. Þeir strukust í gær með austurströndinni, svo hlýtt var þar yfir miðjan daginn. Andstæðurnar á landinu voru hins vegar mjög skarpar, því klukkan 15 í gær var aðeins eins stigs hiti í Bolungarvík og gekk á með slydduéljum. „Núna vokir yfir landinu djúp og hægfara lægð. Loftþrýstingur hef- ur nú mælst lægri en verið hefur í maímánuði síðastliðin þrjú ár. Loft- þrýstingur er aldrei hærri en í maí og lægðir fátíðari en á öðrum árs- tíma, en slíku getur fylgt að sólar- laust sé og dumbungur eins og við höfum séð síðustu sólarhringa,“ segir Einar Sveinbjörnsson veður- fræðingur. Um helgina segir hann að búast megi við fremur hægu og aðgerðalitlu veðri, en þó sé spáð rigningu um austanvert landið á sunnudag. Sólar sé helst að vænta við Eyjafjörð. sbs@mbl.is Lágþrýstingi og aðgerðalitlu veðri spáð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.