Morgunblaðið - 11.05.2018, Side 4

Morgunblaðið - 11.05.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2018 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratuga reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta er allt þyngra fyrir fæti en menn áttu von á. Vonir voru bundnar við að þróunin myndi snú- ast við á þessu ári. Kaupendur tóku til dæmis skinnin hratt til sín eftir marsuppboðið. En þegar á reynir eru þeir ekki tilbúnir að kaupa. Skinnin lækka áfram í verði í erlendri mynt,“ segir Einar E. Einarsson, minkabóndi á Syðra- Skörðugili í Skagafirði og formað- ur Sambands íslenskra loðdýra- bænda. Um 5% verðlækkun varð á maí- uppboði uppboðshússins Kopen- hagen Fur en þar selja íslenskir loðdýrabændur afurðir búa sinna. Þá var salan dræm því aðeins um 80% framboðinna skinna seldust. Menn voru uggandi í upphafi upp- boðsins því ekkert hreyfðist en að- eins rættist úr þegar á leið. Enn umframbirgðir á markaði Á vef uppboðshússins eru þær skýringar gefnar að enn séu um- frambirgðir á helstu markaðssvæð- um, ekki síst Kínamarkaði, vegna offramleiðslu síðustu ára. „Birgðir hafa augljóslega verið meiri og meiri framleiðsla verið í pípunum en markaðsfólkið taldi. Í kringum árið 2010 var heimsfram- boð af minkaskinnum um 50 millj- ónir og fór yfir 80 milljónir skinna á fjórum eða fimm árum. Það hefur valdið meiri uppsöfnun en menn töldu,“ segir Einar. Talið er að heimsframleiðslan sé aftur komin niður í um 50 milljónir skinna, eða nálægt jafnvægi, en birgðirnar valda enn vandræðum. „Ástandið er orðið mjög alvar- legt í þessum rekstri. Ef fram heldur sem horfir verður þetta þriðja árið sem skinnaverðið er verulega undir framleiðslukostn- aði. Eins og útlitið er nú verður þetta ár sýnu verst,“ segir Einar um áhrifin á rekstur minkabúanna. Hann segir að það hafi ekki gerst undanfarin tuttugu ár, að minnsta kosti, að þrjú léleg ár hafi komið í röð. Minkabændur nutu góðs af góð- æri á heimsmarkaði fyrir minka- skinn á árunum 2008 til 2013. Þeir notuðu fjármagnið til að fjárfesta og afganginn til að reka búin og lifa þegar harðna fór á dalnum. Sá tími er löngu liðinn og fjárhags- staðan orðin erfið. Við lágt verð bætist hátt gengi íslensku krón- unnar sem veldur því að bændur fá minna verð fyrir skinnin en þeir hefðu gert í eðlilegu ástandi. Nokkrir bændur hættu sl. haust. „Það er farið að verða mjög þungt hljóðið í þeim bændum sem eru í þessu í dag. Þeir sjá ekki hvernig þeir geti troðið marvaðann áfram,“ segir Einar. Geta enn keypt Jákvæðu punktarnir eru þeir að íslensku skinnin koma vel út í sam- anburðinum við skinn frá helstu samanburðarlöndum á uppboðum. Tvö uppboð af fimm eru eftir, í júní og september. Danska upp- boðshúsið bendir á það í frétt á vef sínum að viðskiptavinirnir hafi ver- ið að fresta innkaupum sínum sem mest og þeir hafi ennþá tækifæri til að kaupa skinn á þeim upp- boðum sem eftir eru. Útlit fyrir versta árið í minkaræktinni  Verð á minkaskinnum lækkar á heimsmarkaði þótt sérfræðingar hafi spáð umskiptum  Staðan orðin alvarleg hjá framleiðendum  Vonast var til þess að þróunin myndi snúast við á þessu ári Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Gæði Kaupandi kannar gæði minkaskinna í danska uppboðshúsinu Kopenhagen Fur. Íslensku skinnin koma vel út. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Þetta gekk ótrúlega vel. Það mættu um 200 börn og 150 fullorðnir í göngu á Úlfarsfell í gærmorgun til stuðnings ENG-samtökunum (e. Empower Nepali Girls), sem hafa það markmið að mennta fátækar ungar Nepalstúlkur og koma þannig í veg fyrir að þær lendi í mansali,“ segir Vilborg Arna Gissurardóttir pólfari, sem fór fyrir fjall- göngumönnunum á Úlfarsfelli. Hún segir að margir hafi verið að takast á við sína fyrstu áskorun á fjalli og stemningin hafi verið falleg. „Það má segja að kærleikurinn hafi svifið yfir vötnum og margir stoltir þegar þeir náðu á toppinn þar sem þeir fengu verðlaunapening,“ segir Vilborg „Ég var bara aðstoðarmaður, en þær Guðrún Ragna Hreinsdóttir og Guðrún Harpa Bjarnadóttir eru í for- svari fyrir viðburðinum. Það veitir vellíðan að takast á við sjálfan sig og sérstaklega í hópi með öðrum. Ég er viss um að það voru margir brosandi langt fram eftir degi í gær,“ segir Vilborg. Eins og í alvörufjallaferðum voru settar upp grunn- búðir á planinu við Úlfarsfell þar sem boðið var upp á kaffi og hægt að kaupa nepalskan varning. Vilborg segir að veðrið hafi verið gott en hellidemba komið þegar öft- ustu göngumennirnir komust á toppinn. „Það lét enginn dembuna á sig fá og við erum stolt af öllum sem tóku þátt í þessu með okkur.“ Vilborg, sem er þakklát fyrir það fé sem safnaðist, segir að hún hafi farið með Guðrúnu Hörpu og Guðrúnu Rögnu til Nepals í haust og heimsótt ENG-samtökin og hitt stelpurnar sem samtökin mennta. „Það var ótrúlega gefandi og mögnuð lífsreynsla og við getum nú fylgst með lífi stelpnanna í gegnum Face- book,“ segir Vilborg og bætir við að allir geti gengið á fjöll, líka þeir lofthræddu. Morgunblaðið/Eggert Fjallgöngumenn Vilborg Arna Gissurardóttir pólfari fór fyrir hópi barna og fullorðinna á Úlfarsfellið í gærmorg- un. Göngumenn létu smádembu ekki hafa áhrif á góða skapið og tóku börnin stolt við verðlaunapeningi. Falleg stemning í fjáröfl- unargöngu á Úlfarsfelli  Verðlaunapeningur á toppnum  Allir geta gengið á fjöll „Það er að mínu mati ekki komin marktæk reynsla á þetta. Sumir vita ekki einu sinni að sektir hafi verið hækkaðar jafnmikið og raun ber vitni,“ segir Runólfur Ólafsson, for- maður FÍB, um hækkun sekta vegna umferðarlagabrota. Í grein Morgun- blaðsins í gær kom fram að lögreglan hefði ekki orðið vör við neina breyt- ingu á hegðun ökumanna eftir að sektir hækkuðu talsvert um nýliðin mánaðamót. Nú eru sektir allt frá 20.000 krónum, fyrir akstur án ör- yggisbeltis, til 320.000 króna fyrir al- varlegustu umferðarlagabrot. Runólfur segir ýmsu ábótavant í kynningu stjórnvalda á hækkun sekta og töluverður fjöldi fólks viti ekki af hækkununum. „Kynningin á þessu mætti vera miklu ríkulegri auk þess sem ég hef ástæðu til að ætla að fjöldi fólks hafi ekki enn fengið spurn- ir af þessu,“ segir Runólfur, en bæt- ir þó við að hann sé fremur hlynnt- ur hækkun sekta vegna umferðar- lagabrota. „Félagið hefur ekki mótað sér neina stefnu í þessum málum ennþá, en persónulega geri ég engar alvar- legar athugasemdir við þessar breytingar. Markmiðið með þessu er auðvitað að auka öryggi á hættuleg- asta vettvangi nútímans; umferð- inni,“ segir Runólfur. Fjöldi ökumanna veit ekki af hækkun  Kynningin mætti vera talsvert betri Runólfur Ólafsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.