Morgunblaðið - 11.05.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2018
Helga Mogensen
Kristin Sigfríður Garðarsdóttir
Vagg og velta
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
„Ég og konan mín erum í miklum
vandræðum því dóttir okkar fær
hvergi leikskólapláss í Reykjavík,“
segir ungur faðir í samtali við Morg-
unblaðið, en hann kýs að koma fram
nafnlaust. Maðurinn segir þau hjón-
in mjög reið yfir „falsfréttum“ um
leikskólamál Reykjavíkurborgar og
vísar til gamalla og nýrra loforða
meirihluta borgarstjórnar um næg
leikskólapláss, sem höfð hafa verið
eftir fulltrúum hans í fjölmiðlum.
Sóttu um mánuði eftir fæðingu
„Dóttir okkar verður 18 mánaða í
haust og okkur bjóðast engin úr-
ræði. Við höfum reynt allt,“ segir
hann og bætir við að fjölmargir aðrir
séu í svipaðri stöðu.
Hann segir þau hjónin hafa byrjað
að sækja um leikskólapláss fyrir
dóttur sína mánuði eftir að hún
fæddist. Þau búi miðsvæðis í
Reykjavík og sóttu um á nokkrum
leikskólum borgarinnar í nágrenn-
inu.
„Svo eftir að í ljós kom að við
fengjum ekki pláss á leikskóla fyrir
hana í allri borginni reyndum við að
sækja um hjá einkareknum leik-
skólum, en þar er líka allt fullt. Það
er hvergi pláss hjá dagmæðrum
heldur og búið er að afleggja „ömm-
ustyrkinn“ sem fólk gat fengið fyrir
að sjá um barnabörnin.“
Fátt um svör vegna loforða
Í samskiptum sínum við leik-
skólastjóra segist maðurinn alls
staðar hafa fengið sama svarið. Á
biðlista leikskólans séu yfir 50 börn
og ekki standi til að taka börn fædd
á árinu 2017 inn í haust. Segja þeir
ekki útlit fyrir að dóttir hans fái leik-
skólapláss fyrr en haustið 2019. Þá
spurði maðurinn um viðbótarbygg-
ingar sem meirihluti borgarstjórnar
lofaði til að fjölga leikskólaplássum í
haust. Fátt hafi verið um svör hjá
leikskólastjórunum við spurning-
unni.
„Einn þeirra sagði mér þó að enn
ætti eftir að teikna þessi hús, fara í
grenndarkynningu og byggja þau
áður en hún gæti tekið við fleiri
börnum eða ungbörnum.“
Hjónin ungu eru að koma sér upp
heimili og keyptu íbúð í Reykjavík
árið 2016, sem maðurinn segir þau
nú sjá eftir að hafa gert og séu að
horfa til annarra sveitarfélaga þar
sem „hlutirnir ganga upp“.
Varasjóðurinn uppurinn
„Við þurfum á launum okkar
beggja að halda til að standa undir
húsnæðiskaupunum ásamt rekstri
heimilisins. Fæðingarorlofssjóður
brúaði fyrstu níu mánuðina eftir að
stelpan fæddist eða þar til í desem-
ber sl. Síðan þá höfum við þurft að
reiða okkur á eina framfærslu. Við
áttum sjóð í upphafi árs til að mæta
óvæntum áföllum sem kláraðist nú í
apríl og við þurftum að taka lán til að
láta enda ná saman um síðustu mán-
aðamót. Ef ekkert breytist verðum
við að reyna að taka lán út á fast-
eignina okkar, en við höfum áhyggj-
ur af greiðslumatinu þar sem við er-
um bara með eina framfærslu.“
Foreldrar reiðir vegna
„falsfrétta“ af ástandinu
Fá ekki leikskólapláss í Reykjavík fyrr en haustið 2019
Ung hjón reyndu allt Íhuga að flytja úr sveitarfélaginu
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Vandamál Það getur reynst erfitt að fá leikskólapláss í Reykjavík.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri Hafnar-
fjarðarbæjar, og Kjartan Már Kjartansson, bæj-
arstjóri Reykjanesbæjar, sendu í gær frá sér
sameiginlega tilkynningu þar
sem gerðar eru athugasemdir
við framsetningu Samtaka at-
vinnulífsins (SA) á fjárhags-
stöðu 12 stærstu sveitarfélag-
anna. „Það vekur athygli að
þegar rekstrarframmistaða er
skoðuð er stuðst við fjóra
mælikvarða af níu sem tengj-
ast skuldum beint. Af eðlileg-
um ástæðum raðast þau sveit-
arfélög best í þeim
samanburði sem skulda
minnst og fá þar af leiðandi hæstu stigin. Eins
og stigagjöfin er vegur það nokkuð þungt og því
spurt hvort það sé rétt nálgun þegar er verið að
skoða rekstrarframmistöðu í dag að skuldir for-
tíðar vegi svo þungt?“ segir í tilkynningunni.
Benda þeir á að ef sveitarfélögunum er raðað
upp án skuldatengdu mælikvarðanna breytist
röð þeirra. Í hreinum rekstrarsamburði er
Reykjanesbær í efsta sæti og Hafnarfjörður í því
sjöunda.
„Þau sveitarfélög sem skulda lítið skora mjög
hátt í þessum skuldatengdu mælikvörðum,“ segir
Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri Hafnar-
fjarðar, við Morgunblaðið. „Þegar þú endurraðar
þessu og lítur bara á reksturinn færðu allt aðra
mynd en þetta gefur til kynna. Þetta segir ekk-
ert til um hver rekstrarstjórnunin er í dag.“
Hann bætir við að rekstrarstaða Hafnarfjarðar
sé góð um þessar mundir þrátt fyrir lélaga ein-
kunn vegna skulda í samanburði SA. „Ég tel að
staða Hafnarfjarðarbæjar sé nokkuð góð rekstr-
arlega og við erum að skila tæpum 15% af veltu-
fé sem hlutfalli af tekjum og um 1.300 milljónum
í tekjuafgang á árinu 2017.“ Halldór Benjamín
Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, segir sam-
tökin hafa lagt gríðarmikla vinnu í greiningu á
fjárhagsstöðu sveitarfélaganna. „Það er frábært
að það hafi tekist að koma umræðu um fjármál
sveitarfélaganna í forgrunn í aðdraganda sveit-
arstjórnarkosninga og það er gott að heyra að
sveitarstjórnarmenn um allt land eru að vakna
til lífsins,“ segir Halldór og bætir við að það sé
mikilvægt að hafa í huga að verið sé að skoða
sveitarfélögin sjálf yfir langt tímabil en ekki ein-
staka bæjarstjórnir. Hann segir mikilvægt að
skoða skuldastöðu sveitarfélaganna til að fá
heildarmynd. „Við megum aldrei gleyma því að
skuldir sveitarfélaganna eru á endanum á
ábyrgð íbúa sem munu greiða þær og rekstur
sveitarfélaga getur verið í járnum ef þau eru of
skuldsett. Skuldir í dag eru ávísun á aukna
skattheimtu og lakari þjónustu í framtíð.“
Bæjarstjórar ósáttir
við framsetningu SA
Bæjarstjórar Hafnarfjarðar og Reykjaness segja of mikla áherslu á skuldir
Morgunblaðið/Hanna
Hafnarfjörður Bæjarstjóri Hafnarfjarðar segir SA hafa lagt of mikla áherslu á skuldir bæjarfélagsins.
Haraldur L.
Haraldsson
Greining SA á fjármálum
sveitarfélaganna
» Akranes, Seltjarnes og Garðabær fengu
flest stig.
» Öll þrjú lítið skuldsett með sterka eigin-
fjárstöðu.
» Reykjanes, Reykjavík og Hafnarfjörður
fengu fæst stig.
» Skuldastaða sveitarfélaganna þriggja lék
þar stórt hlutverk.
Hjálmar Sveinsson, formaður um-
hverfis- og skipulagsráðs Reykjavík-
urborgar, segir að það verði haft
samband við íbúa í hverfinu áður en
farið verði í framkvæmdir við bygg-
ingu íbúða á Sjómannaskólareitnum.
Sóknarnefnd Háteigskirkju hefur
gefið út að hún sé alfarið á móti
íbúðauppbyggingu á svæðinu eftir
að breytingar á aðalskipulagi voru
tilkynntar. „Það er búið að gera
breytingu á aðalskipulagi svo hægt
sé að gera breytingar á deiluskipu-
lagi sem heimilar slíka uppbyggingu
þannig að þetta er fyrsta skref í
löngu ferli og í því ferli verður auð-
vitað skoðað heildstætt þetta svæði
og með tilliti til áhrifa á umhverfið
og menningarminjar. Það verður
haft samband við Minjastofnun Ís-
lands og örugglega Borgarsögu-
safn,“ segir Hjálmar. Hann segir að
lóðin hjá Stýrimannaskólanum sé
ein af fjölmörgum lóðum sem ákveð-
ið hafi verið að skoða til uppbygg-
ingar í borginni. „Ríki og borg gerðu
samning um að það færu nokkrar
ríkislóðir í húsnæðisuppbyggingu
því bæði ríki og borg eru sammála
um að það þurfi að gera stórátak í
þeim málum,“ segir hann.
Morgunblaðið/Ómar
Stýrimannaskólinn Borgaryfirvöld
íhuga að byggja íbúðir á lóðinni.
Íbúar fá
að tjá sig
um reitinn
Meðal kosningaloforða Sjálfstæðis-
flokksins í Hafnarfirði er að endur-
byggja Suðurbæjarlaugina í bænum.
„Það er uppsöfnuð viðhaldsþörf í
Suðurbæjarlauginni, sem er eina úti-
laugin í Hafnarfirði og mjög vinsæl,“
segir Rósa Guðbjartsdóttir, oddviti
Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði.
„Það þarf miklar endurbætur til að
gera aðstöðuna enn skemmtilegri og
betri þannig að við sáum fram á að
það væri tilvalið tækifæri að byrja á
næsta kjörtímabili að láta endur-
hanna laugina og útisvæðið.“ Hún
segir möguleika á að stækka úti-
svæðið. Aðspurð segir hún eftir að
áætla kostnað við framkvæmdirnar
en ráðist yrði í greiningu á næsta
kjörtímabili í samræmi við hug-
myndavinnu. mhj@mbl.is
Vilja endurbyggja Suður-
bæjarlaug í Hafnarfirði
Möguleiki að
stækka útisvæðið
Ljósmynd/Hafnarfjörður
Sund Suðurbæjarlaugin í Hafnar-
firði hefur lengi verið vinsæl.