Morgunblaðið - 11.05.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2018
Amino bitar
Í 30 g pokanumer
passlegur skammur af
próteini (26,4 g í poka).
Inniheldur 88%prótei
og engin aukaefni.
88% prótein
100% ánægja
Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is
Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur
Einfaldle a hollt
og gott
snakk
Andrés Magnússon, fjölmiðlarýn-ir Viðskiptablaðsins, fjallar í
nýjasta pistli sínum um dularfullt
leynisamkomulag sem Ríkis-
útvarpið gerði við Guðmund
Spartakus Ómars-
son í framhaldi af
umfjöllun Rúv. um
hann. Tilefnið er að
Guðmundur Sparta-
kus hafði farið í mál
við Sigmund Erni
Rúnarsson vegna
umfjöllunar um
hann á Hringbraut.
Sigmundur var sýknaður í Hæsta-
rétti.
Rúv. greiddi Guðmundi Sparta-kusi 2,5 milljónir króna vegna
umfjöllunarinnar um hann, en í
samkomulaginu mun þó hafa falist
að Rúv. játaði ekki sök í málinu. Og
Rúv. neitaði að upplýsa nánar um
samkomulagið vegna meints trún-
aðar við Guðmund Spartakus.
Samkomulagið leit illa út á sínumtíma og enn verr eftir dóm
Hæstaréttar. Rúv. átti í raun tvo
kosti; að standa við fréttina hafi
hún verið rétt, eða draga hana til
baka hafi hún verið röng. En Rúv.
valdi þriðja kostinn, sem ekki var
með réttu fær, gerði leyni-
samkomulag og greiddi bætur.
Fjölmiðlarýnirinn segir aðábyrgð stjórnenda Rúv. hljóti
að koma til tals í þessu og segir svo:
„Um þátt þeirra í málinu er þó flest
á huldu enn. Ætli Ríkisútvarpið
áfram að sveipa sig þagnarhjúpi
mun það þó aðeins gera illt verra
og gera inngrip ráðuneytisins (og
síðar Alþingis) óhjákvæmileg. – Svo
óvenjuleg fjárútlát kalla á skýr-
ingar hjá hvaða fyrirtæki sem væri
og þær eiga beint og milliliðalaust
erindi við eigendurna, almenning.“
Ljóst er að málinu er ekki lokið.
Andrés
Magnússon
Leynimakk
Ríkisútvarpsins
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 10.5., kl. 18.00
Reykjavík 6 rigning
Bolungarvík 2 skýjað
Akureyri 7 rigning
Nuuk -5 snjókoma
Þórshöfn 8 léttskýjað
Ósló 24 léttskýjað
Kaupmannahöfn 21 heiðskírt
Stokkhólmur 18 heiðskírt
Helsinki 17 heiðskírt
Lúxemborg 15 alskýjað
Brussel 14 skúrir
Dublin 13 skýjað
Glasgow 12 skýjað
London 15 skýjað
París 16 heiðskírt
Amsterdam 12 skýjað
Hamborg 15 þoka
Berlín 25 skúrir
Vín 23 skýjað
Moskva 14 heiðskírt
Algarve 19 heiðskírt
Madríd 22 léttskýjað
Barcelona 19 skýjað
Mallorca 19 alskýjað
Róm 20 þrumuveður
Aþena 20 þrumuveður
Winnipeg 7 léttskýjað
Montreal 18 alskýjað
New York 17 þoka
Chicago 18 alskýjað
Orlando 28 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
11. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:26 22:24
ÍSAFJÖRÐUR 4:08 22:51
SIGLUFJÖRÐUR 3:51 22:34
DJÚPIVOGUR 3:50 21:59
„Þetta er nokkuð sem menn hafa lát-
ið sig dreyma um að verði að veru-
leika einn daginn,“ segir Bjarni Már
Gylfason, upplýsingafulltrúi Rio
Tinto á Íslandi, í samtali við Morgun-
blaðið og vísar til verkefnis sem Al-
coa, ríkisstjórn Kanada, Rio Tinto og
Apple standa að baki. Verkefnið
snýr að því að losna alfarið við út-
blástur gróðurhúsalofttegunda í ál-
framleiðslu. Fram kemur í tilkynn-
ingu sem Alcoa sendi frá sér að stórt
skref hafi verið stigið í ferlinu og
stefnt sé að því að verkefninu ljúki
og sala á tækninni hefjist árið 2024.
Bjarni Már segir að langt sé síðan
menn hófu rannsóknir sem miðuðu
að því að minnka losun gróðurhúsa-
lofttegunda við álframleiðslu. „Það
eru tugir ára síðan menn byrjuðu að
reyna að finna leiðir til að minnka
eða losna alfarið við mengun í fram-
leiðslu áls. Það væri auðvitað frá-
bært ef það yrði einhvern tímann
hægt að framleiða ál með endurnýj-
anlegum orkugjöfum,“ segir Bjarni
Már sem telur þó að enn sé langt þar
til slík tækni muni standa til boða
hérlendis. „Þetta getur auðvitað
gjörbreytt framleiðslunni en það er
enn talsverður tími þar til þetta
kemur til Íslands.“
aronthordur@mbl.is
Gæti valdið straumhvörfum
Stefnt að álframleiðslu án gróðurhúsalofttegunda Tæknin í sölu á næstu árum
Morgunblaðið/Ómar
Álver Rio Tinto er í Straumsvík.
Embætti héraðssaksóknara hefur
gefið út ákæru á hendur karlmanni
sem grunaður er um að hafa brotið
kynferðislega á dótturdóttur sinni
á átta mánaða tímabili í fyrra. Var
stúlkan þá níu ára gömul.
Meint brot áttu sér stað frá jan-
úar til ágúst á síðasta ári og eru
þau sögð hafa farið fram á heimili
mannsins. Eru brotin talin varða
við 1. mgr. 194. gr. og 1. og 2. mgr.
202. gr. almennra hegningarlaga.
Nær 194. greinin til nauðgunar og
202. greinin til kynferðisbrota og
kynferðislegrar áreitni gegn börn-
um. Varða slík brot allt að 16 ára
fangelsi. Fyrir hönd dóttur sinnar
fara foreldrar stúlkunnar fram á
tvær milljónir króna í miskabætur.
Málið hefur verið þingfest fyrir
héraðsdómi og var það gert í síð-
ustu viku.
Ákærður
fyrir
barnaníð
Sagður hafa brot-
ið á barnabarni sínu