Morgunblaðið - 11.05.2018, Page 9

Morgunblaðið - 11.05.2018, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2018 GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Sparneytnir sportjeppar Renault Captur, verð frá: 2.750.000 kr. Renault Kadjar, verð frá: 3.550.000 kr. Renault Koleos, verð frá: 5.490.000 kr. KADJAR, KOLEOS & CAPTUR E N N E M M / S ÍA / N M 8 8 0 8 4 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Icelandic Open – Íslandsmótið í skák fer fram dagana 1.-9. júní nk. Teflt verður Valsheimilinu á Hlíð- arenda í Reykjavík. Þetta verður jafnframt minningarmót um fjöl- miðlamanninn, skemmtikraftinn, Valsmanninn og skákáhugamann- inn Hermann Gunnarsson. Mótið í ár verður með sama fyrir- komulagi og Íslandsmótið 2013 sem var jafnframt 100 ára afmælismót Skákþings Íslands. Þá sigraði Hannes Hlífar Stefánsson eftir að hafa lagt Björn Þorfinnsson að velli í úrslitaeinvígi. Björn krækti sér hins vegar í stórmeistaraáfanga á mótinu. Mótið er opið öllum íslenskum sem og erlendum skákmönnum. Tefldar verða 10 umferðir. Aðeins Íslendingar geta orðið Íslands- meistarar. Mótið er jafnframt Ís- landsmót kvenna og Unglinga- meistaramót Íslands (u22). Icelandic Open – Íslandsmótið 2013 þótti takast með fádæmum vel og því verður sama fyrirkomulag nú, segir Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands. Mótið var haldið í Turninum við Borgartún á 20. hæðinni og þátttakendur voru 69 talsins. „Mótið núna er opið fyrir alla rétt eins og 2013. Ég á reyndar ekki von á neinni flóðbylgju af erlendum keppendum og væri sáttur við 5-10. Við borgum ekki erlendum kepp- endum neina þóknun fyrir að tefla heldur koma þá allir á eigin veg- um,“ segir Gunnar. Nú þegar er 41 keppandi skráður til leiks og þar af eru sex erlendir. Gunnar á von á að þátttakan verði svipuð og árið 2013, þ.e. þátttak- endur verði einhvers staðar á milli 60 og 70. Nú þegar eru þrír stórmeistarar skráðir til leiks og einn stórmeist- ari kvenna. Það eru Hannes Hlífar Stefánsson, Bragi Þorfinnsson, Þröstur Þórhallsson og Lenka Ptácníková. Fimm alþjóðlegir meistarar hafa skráð sig, tveir er- lendir og svo Jón Viktor Gunnars- son, sem varð Íslandsmeistari í skák árið 2002, Björn Þorfinnsson og Einar Hjalti Jensson. Morgunblaðið/Eggert Alltaf í stuði Hemmi Gunn á sviði. Teflt til minningar um Hemma Gunn  Íslandsmótið í skák í Valsheimilinu Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Fjölmargar íslenskar bílaleigur leigja út bifreiðar á nagladekkjum þrátt fyrir að frestur til þess að skipta yfir á naglalaus dekk sé lið- inn. Sigfús Sigfússon, framkvæmda- stjóri og eigandi Hertz á Íslandi, segir að í flestum tilvikum séu bif- reiðar komnar á sumardekk fyrir tilskilinn frest. Fyrirtækið meti þó aðstæður á vegum landsins ár hvert og taki í kjölfarið ákvörðun um hvenær skipta eigi um dekkin. „Í ár erum við búnir að skipta um á flestum bílum í Reykjavík. Við er- um samt alltaf með bíla á nagla- dekkjum til taks eitthvað lengur ef fólk óskar eftir því og allt þar til við teljum að það sé óhætt að vera á sumardekkjum á öllum stöðum landsins,“ segir Sigfús og bætir við að aðstæður geti verið mjög mis- munandi eftir því hvaðan Hertz leig- ir bifreiðar sínar út. Fer eftir færðinni hverju sinni „Aðstæður á Ísafirði eru til dæm- is allt öðruvísi en í borginni og yf- irleitt eru bílarnir þar á nagladekkj- um talsvert fram yfir þann frest sem gefinn hefur verið. Það fer samt auðvitað eftir færðinni hverju sinni.“ Spurður hvort fyrirtækið verði við beiðnum fólks sem óskar eftir því að leigja bifreiðar á nagladekkj- um eftir að tilskilinn frestur er lið- inn kveður hann já við. „Við gerum það ef fólk óskar sérstaklega eftir því til að keyra í verri færð, til dæm- is á landsbyggðinni. Sé færð á veg- um landsins orðin góð munum við þó ekki verða við slíkum beiðnum,“ segir Sigfús. Bergþór Karlsson, framkvæmda- stjóri bílaleigunnar Hölds, tekur í svipaðan streng og bætir við að hann telji að það sé nauðsynlegt fyr- ir bílaleigur að vera með lítinn hluta bílaflotans á nagladekkjum eitthvað fram eftir sumri. Sektin lendir á bílaleigunni Bergþór segir óskir stundum ber- ast þess efnis að fá leigða bíla á nagladekkjum í byrjun sumars og reyni þá fyrirtækið að verða við slík- um beiðnum. Þá segir hann bílaleig- una hingað til ekki hafa fengið at- hugasemdir eða sektir frá lögreglu vegna þessa. „Við höfum ekki fengið sekt. Hún myndi þó lenda á okkur en ég held að þeir geri sér grein fyr- ir því að við skiptum yfir á sum- ardekk um leið og mögulegt er.“ Leigja út bifreiðar á nöglum þrátt fyrir bann  Flestar bílaleigur með lítinn hluta flotans á nagladekkjum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Bílafloti Lítill hluti bílaflotans hjá bílaleigum hérlendis er á nagladekkjum. Sumardekkin undir » Lögreglan mun byrja að sekta þá ökumenn sem enn keyra um á nöglum frá og með 15. maí næstkomandi. » Sekt fyrir hvert neglt dekk hefur verið hækkuð og nemur nú 20 þúsund krónum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.