Morgunblaðið - 11.05.2018, Side 10

Morgunblaðið - 11.05.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2018 GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Eru sparifötin hrein? Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Cuero Mariposa Hannaður árið 1938 af: Bonet, Kurchan & Ferrari Leður verð 149.000,- Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Ég kynntist Barnaloppunni í Dan- mörku og heillaðist af hugmynda- fræðinni,“ segir Guðríður Gunn- laugsdóttir, framkvæmdastjóri og einn af fjórum eigendum Barna- loppunnar, sem verður opnuð í Skeifunni 11D á laugardaginn. Guðríður, sem bjó í sjö ár í Dan- mörku, kynntist vel flóamarkaða- menningu Dana sem þeir kalla loppumarkaði. „Ég kynntist Barna- loppunni rétt áður en ég flutti heim til Íslands í desember sl. en það voru tvær mæður sem opnuðu markað þar sem bæði var hægt að kaupa og selja notaða barnavöru. Það er ekki fyrir alla að standa og selja vörur en í Barnaloppumark- aðnum sjáum við alfarið um söl- una,“ segir Guðríður og bætir við að seljendur leigi sér bása í húsnæði Barnaloppunnar. Básarnir eru metri á lengd og 1,8 metrar á hæð. Lágmarksleigutími er ein vika, sem kostar 5.990 kr., en hægt er að leigja bás til lengri tíma og allt upp í ár. Allt sem snýr að barnavörum er hægt að selja í Barnaloppunni; föt, leikföng, barnavagna, bílstóla o.fl. Rafrænt eftirlit með sölunni „Við sjáum um að selja vörurnar og þeir sem vilja fá bás panta hann á netinu. Þeir verðleggja og merkja söluvöruna að heiman í gegnum kerfið okkar, loppubokun.is, og koma svo með vörurnar til okkar annaðhvort rétt fyrir lokun daginn áður en þeir taka básinn á leigu eða klukkan 10 sama dag,“ segir Guð- ríður og bætir við að seljendur geti fylgst með því rafrænt hvernig sala á hlutum þeirra gengur. „Verðlagning er alfarið í höndum eigenda vörunnar en við veitum góð ráð og ráðleggjum fólki að setja frekar lægra verð þar sem ekki er hægt að prútta um vöruna á staðn- um. Ef varan selst ekki eru allar líkur á að hún sé of dýr og þá er hægt að setja afslátt á básinn eða endurverðleggja vöruna. Það má segja að viðskiptavinurinn ráði verðlagningunni, “ segir Guðríður. Hún segir margt ávinnast með markaði eins og Barnaloppunni. „Þetta er umhverfisvænt og mik- ilvægt fyrir Móður jörð að nýta hluti í stað þess að henda og kaupa nýtt. Það segir kannski eitthvað að Sorpa deildi á Facebook bókunum um bása hjá Barnaloppunni. Það eru margir sem ekki nenna að selja í gegnum sölusíður með því áreiti sem þeim fylgir og það er ekki á mörgum stöðum sem hægt er að selja og kaupa vöru á sama stað,“ segir Guðríður og bætir við að Barnaloppan leggi sitt af mörkum til umhverfismála; verði með um- hverfisvæna poka fyrir viðskiptavini og vandi sig í allri flokkun á rusli. „Fyrir þjónustuna greiðir selj- andi 15% af sölunni auk þess að leigja bás. Erlendis eru tekin allt að 50% í sölulaun. Við reynum að halda öllum kostnaði í lágmarki og byrjum á opnunartilboði þar sem hægt er að kaupa tvær flíkur á verði einnar. Barnaloppan fær fljúgandi start. Við erum í mjög góðu húsnæði með 207 bása og það eru einungis 20 básar lausir daginn áður en við opn- um markaðinn,“ segir Guðríður bjartsýn á framhaldið. Barnaloppan er í eigu Guðríðar og eiginmanns hennar, Andra Jóns- sonar, og vinafólks þeirra sem bú- sett er á Ítalíu, Emils Hallfreðs- sonar og Ásu Regins. Loppumarkaðurinn verður opinn alla daga frá 11 til 18 og um helgar frá 11 til 17. Umhverfisvæn „barnaloppa“ opnuð  Hugmyndin kemur frá Danmörku  Umhverfisvænt að endurnýta barnavörur  Kaup og sala á sama stað  Hægt að leigja eins metra bás í eina viku eða fleiri  Viðskiptavinurinn ræður verðinu Morgunblaðið/Eggert Endurnýting Seljendur koma vörum sínum fyrir í húsnæði Barnaloppunnar sem sér um að koma vörunum til nýrra eigenda á sanngjörnu verði. Umhverfisvænt Guðríður Gunnlaugsdóttir, einn eigenda Barnaloppunnar. Félag kennara og stjórnenda í tón- listarskólum (FT) skrifaði undir samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi við Samband íslenskra sveitarfélaga, með fyrirvara um samþykki félags- manna. Samningurinn gildir út mars 2019. Samningurinn verður kynntur félagsmönnum í næstu viku og í framhaldinu fer fram allsherjar- atkvæðagreiðsla meðal félags- manna um samninginn. Niðurstaða þarf að liggja fyrir 28. maí. „Samninganefnd félagsins er ánægð með framvindu þeirrar vinnu samningsaðila sem staðið hefur yfir síðastliðið ár,“ segir í til- kynningu frá Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum. Tónlistarkennarar skrifa undir samning

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.