Morgunblaðið - 11.05.2018, Page 11

Morgunblaðið - 11.05.2018, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2018 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Borgarráð hefur samþykkt verk- lýsingu vegna breytinga á aðal- skipulagi Reykjavíkur fyrir KR- svæðið í Vesturbæ Reykjavíkur. Þar með er tekið fyrsta skrefið að uppbyggingu á svæðinu við Frosta- skjól í samræmi við viljayfirlýsingu borgarinnar og KR frá nóvember 2017. Frekari uppbygging á íþrótta- og tómstundastarfi KR stendur fyrir dyrum á svæði félagsins. Frum- kvæðið kemur frá KR en stjórn- endur þess telja að tími sé kominn til að hefja uppbyggingu þar. KR eignaðist landið árið 1939. Frum- teikningar af mögulegri uppbygg- ingu hafa þegar verið kynntar og ræddar á íbúafundum í hverfinu. Ekki hefur verið tekið ákvörðun um samsetningu byggingarmagns- ins né endanlegt magn þess, en það verður metið í aðalskipulagsferlinu, þar sem áhrif uppbyggingar verða metin á umferðarsköpun og núver- andi kjarna innan hverfisins, auk umhverfisáhrifa sem skoðuð verða í deiliskipulagi, segir í verklýsing- unni. Stefnt er að því að á svæðinu verði blanda íbúða, atvinnustarf- semi, samfélagsþjónustu auk al- mennrar verslunar og þjónustu. Í frumtillögum var gert ráð fyrir um 32 þúsund fermetra aukningu á byggingamagni þar sem heildar- aukning á aðstöðu KR nemur allt að 12.000 fermetrum og 4.200 sæt- um í stúkum umhverfis aðalleik- vang. Tæpir 10.000 fermetrar verða til fyrir litlar íbúðir og um 10.000 fermetrar undir þjónustu. Arkitektarnir Páll Gunnlaugsson og Bjarni Snæbjörnsson hafa unnið verkefnið með KR. Umsagnar- og samráðsaðilar vegna aðalskipulagsbreytingar verða a.m.k. eftirtaldir: Hverfisráð Vesturbæjar, Íbúasamtök Vestur- bæjar, svæðisskipulagsnefnd höf- uðborgarsvæðisins, nágrannasveit- arfélög, skóla- og frístundaráð/svið, Knattspyrnufélagið - Íþróttafélagið KR og Skipulagsstofnun. Lokaafgreiðsla í haust Lokaafgreiðsla tillögu að lokinni auglýsingu er áætluð í september- október 2018. Hún verður aðgengi- leg á vef borgarinnar. „Fáist aðalskipulagi breytt og nýtt deiliskipulag verður samþykkt er gert ráð fyrir því að gengið verði frá formlegum samningi milli Reykjavíkurborgar og KR um framkvæmdir þar sem fram komi áætlaður stofnkostnaður mann- virkja KR, forgangsröðun þeirra og frekari útfærsla, virðisauki vegna aukins byggingarréttar, tímaáætl- un verkefnisins og leigusamningur við Reykjavíkurborg á viðkomandi mannvirkjum vegna hverfistengdr- ar þjónustu,“ segir í bókun meiri- hlutaflokkanna í borgarráði. Frostaskjól Samkvæmt frumhugmyndum mun svæði KR líta svona út í framtíðinni. Fyrsta skrefið í átt að breyttu KR-svæði  Borgarráð samþykkir verklýsingu fyrir KR-inga í Vesturbæ Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is Margar gerðir af innihurðum Hjá Parka færðu gullfallegar innihurðir frá Grauthoff. Mikið úrval, sjón er sögu ríkari! Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! Margar gerðir af innihurðum Kringlunni 4c – Sími 568 4900 JAKKI Dökkblár og svartur S-XXL 10.990,- Glæsilegur fatnaður á allar konur Stefán Einar Stefánsson ses@mbl.is Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís- lands, flutti opnunarerindi á fundi sem Amerísk-íslenska viðskiptaráð- ið í Bandaríkjunum og aðalræðis- skrifstofa Íslands í New York stóðu fyrir í gær og fjallar um framtíð ís- lenskunnar. Fundurinn er haldinn í tilefni 100 ára fullveldis Íslands. Í erindi sínu fjallaði Guðni um stöðu íslenskunnar og hvaða ógnum hún stæði frammi fyrir á tækniöld. Sagðist hann ekki taka undir þá skoðun sem stundum heyrðist að framtíð íslenskunnar væri svört og fátt gæti komið í veg fyrir að hún viki úr vegi fyrir enskunni, eina tungu- málinu sem raunverulega gerði til- kall til þess að teljast alheims- tungumál. Sagði hann að það væri mjög nauðsynlegt að koma íslenskunni að í flestum gerðum tæknibúnaðar. Máli sínu til stuðnings tók hann far- síma úr vasa sínum og beindi orðum sínum að honum: „Segðu mér, Sig- ríður?“ og benti á að síminn brygðist ekki við slíkri fyrirspurn. Öðru máli gegndi þegar orðum væri beint að tækjabúnaði og spurt á ensku. Þá væri hægt að fá svör við ýmsum spurningum. Þessu þyrfti að breyta og gera fólki kleift að nýta tæknina með íslenskuna á vörum sér í stað ensku. „Við þurfum að koma íslenskunni inn í farsímana, bílana, ísskápana og brauðristarnar,“ sagði Guðni og hlaut jákvæð viðbrögð fundargesta við þeirri áeggjan. Fleira þarf að koma til Hann benti þó á að það væri ekki aðeins undir tækniframförum komið hvernig íslenskunni reiddi af. Það væri einnig undir Íslendingum sjálf- um komið sem þyrftu að halda við þeirri hefð að móta ný orð um hlut- ina, leggja áherslu á að vanda ís- lenskukennslu og gera hana að- gengilega þeim sem vildu læra íslensku sem sitt annað tungumál. Þá þyrftu Íslendingar að sýna að- fluttu fólki umburðarlyndi og skiln- ing þegar það fetaði sig áfram eftir hálum brautum málfræði, orðaforða og framburðar. Á sama tíma ættu Ís- lendingar að taka tökuorðum vel sem féllu vel að íslenskunni, það ætti meðal annars við um orðið að „gúgla“. Þá ættu Íslendingar að halda vöku sinni fyrir áhrifum er- lendra tungumála í tengslum við aukinn ferðamannastraum til lands- ins. Þá sagði Guðni einnig að ef ís- lenskan glataðist væri það ekki að- eins missir fyrir Ísland og Íslend- inga heldur aðrar þjóðir um leið. Allir munu tapa ef íslenskan glatast

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.