Morgunblaðið - 11.05.2018, Síða 12

Morgunblaðið - 11.05.2018, Síða 12
Þriggja stiga kennsluaðferð „Kennslan er á þremur stigum og byggist á því að barn fái aukinn stuðning og fleiri tækifæri til þess að æfa sig, stig af stigi. Kennslan fer eins fram á öllum stigum, fyrst er færnin skilgreind, síðan er sýni- kennsla þar sem kennarinn leikur færnina, þá er farið í hlutverkaleik og börnunum gefið tækifæri til þess að æfa sig með kennaranum og loks fá þau umsögn og hrós. Ef barn sýnir rétta færni þá hrósar kennarinn því. Ef barn sýnir hins vegar ekki rétta hegðun þá leið- réttir kennarinn og gefur því strax annað tækifæri til þess að æfa sig. Fyrsta stigið er hópkennsla í um það bil korter til tuttugu mínútur, en eftir kennsluna er hlutverk kennarans að setja upp átta að- stæður fyrir hvert barn til þess að æfa sig í færni. Þetta er gert á tveimur til þremur dögum og ár- angurinn skráður niður. Börn sem sýna færni í 80% til- vika teljast hafa náð góðum ár- angri, en þau sem eru undir þeim viðmiðum fara á annað stig þar sem kennt er í minni hóp. Ef þau eru enn undir 80% viðmiðunar- mörkunum fá þau einstaklings- kennslu.“ Bára Fanney segir að margt af því sem hún hafi verið að kenna sé vissulega engin nýlunda fyrir leikskólakennara, aðferðin sé ein- ungis öðruvísi og ætlað að vera markvissari en áður hefur tíðkast. Skráning á færni og framförum barnanna sé því afar mikilvæg. Niðurstöðurnar lofa góðu „Við ákváðum að leggja áherslu á sex æfingar; að kenna börnunum að svara nafni á viðeig- andi hátt, fara eftir einföldum fyr- irmælum og síðan aðeins flóknari, segja nafn kennarans bara einu Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Leikskólabörn eru býsnamisjafnlega á vegi stöddhvað félagsfærni áhrærirog því eru þeim efalítið misþung fyrstu skrefin inn í grunn- skólana. Enda mikil viðbrigði að setjast á skólabekk með um tutt- ugu öðrum nemendum og hafa að- eins einn kennara í stað margra í leikskólanum. En lífið er ekki bara leikur og efalítið finna fyrsta árs grunnskólanemendur að til þeirra eru smám saman gerðar auknar kröfur í leik og starfi. Þá kemur sér vel að hafa feng- ið þjálfun í félagsfærni, líkt og Bára Fanney Hálfdanardóttir, meistaranemi í sálfræði við Háskól- ann í Reykjavík, hefur sinnt í vetur í tengslum við útskriftarverkefni sitt og í samvinnu við leikskóla- kennarana í Sjálands leikskóla í Garðabæ. Heillaðist af hugmyndinni „Verkefnið nefnist Grunn- skólafærni: Markviss kennsla í leik- skóla, og byggist á svokallaðri PLS, eða Preschool Life Skills, kennsluaðferð sem hefur verið prófuð í Bandaríkjunum á börnum með og án greiningar í meira en áratug og reynst árangursrík til að draga úr hegðunarvanda og auka líkurnar á félagsfærni. Fyrir rúmu ári benti leiðbeinandi minn, Berg- lind Sveinbjörnsdóttir, mér á að lesa grein um aðferðafræðina, sem hún hafði mikinn áhuga á að yfirfæra hér á Íslandi. Ég heillaðist af hug- myndinni og hóf strax að undirbúa rannsókn í tengslum við lokaverkefnið. Fyrsta skrefið var að senda rafræna könnun til leik- og grunnskólakennara með spurn- ingum um hegðunarvanda og mik- ilvæga grunnskólafærni, en könn- unina vann ég með Dagnýju Hermannsdóttur, Bsc-nema í sál- fræði.“ Samkvæmt könnuninni voru hagnýt samskipti og hæfni barnanna til að fara eftir fyrir- mælum meðal þeirra þátta sem kennurum þóttu hvað mikilvæg- astir að börnin næðu tökum á áður en þau hefja nám í grunnskóla. „Niðurstöðurnar úr könnuninni voru síðan nýttar þegar við vorum að þýða PLS á íslensku, en aðal- markmiðið rannsóknarinnar var að innleiða PLS með þriggja stiga kennsluaðferð í leikskóla á höfuð- borgarsvæðinu. Sjálfa rannsóknina vann ég síðan í ein- staklega góðu sam- starfi við kennara í Sjálands leikskóla, en hún náði til átta barna á aldrinum fjögurra til fimm ára,“ segir Bára Fanney. Reyndar fékk annar jafnstór hópur þar á bæ sömu kennslu, en hann var ekki hluti af rannsóknarverk- efninu og er enn í gangi. Bára Fanney segir að hlutverk kenn- arans hafi verið að setja upp að- stæður fyrir börnin yfir skóladag- inn til þess að gefa þeim tækifæri til að æfa sig í færni en sjálf hafi hún mætt tvisvar í viku í leikskól- ann til að sjá um kennsluna. Þjálfun í félagsfærni gott veganesti í skóla Grunnurinn að félagslegri velgengni og góðum námsárangri skólagönguna á enda kann að vera lagður í leikskólanum. Meistaraverkefni Báru Fanneyjar Hálfdanar- dóttur í sálfræði við Háskólann í Reykjavík hverfist um markvissa kennslu í félags- færni í leikskólum samkvæmt nokkuð þekktri bandarískri kennsluaðferð. Morgunblaðið/Ómar „Eftir kennsluna er hlutverk kenn- arans að setja upp átta aðstæður fyrir hvert barn til þess að æfa sig í færni.“ 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2018 Glæsilegur veitingastaður á Hótel Örk. Vandaður matseðill og hlýlegt umhverfi. Pantaðu borð í síma 483 4700 eða á hverrestaurant.is Það er löng hefð á mínu heimili að horfa á Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, en það er kannski tilvikið á mörgum íslenskum heim- ilum. Ef ég er alveg heiðarlegur þá er áhugi minn á keppninni hugsan- lega nokkuð meiri en það sem tíðk- ast meðal flestra. Hvers vegna veit ég ekki, en maður hefur verið sokk- inn í þetta á hverju ári. Fyrir nokkru var ég viðstaddur einskonar spurningakeppni og spurt var fyrir hverjum Selma tap- aði árið 1999. Það svaraði enginn. Spyrillinn sagði það væri ekkert furðulegt því það veit enginn hver þetta er. Hneykslaður á vanþekk- ingunni stóðst ég ekki freistinguna og hrópaði úr sal: „Charlotte Nils- son!“ Já svona gagnlausar upplýs- ingar virðast viðhaldast í heilanum með óútskýranlegum hætti. Það þykir vissulega ekki „kúl“ að fylgjast grannt með keppn- inni sem fáir segjast hafa áhuga á en allir horfa á. Það geta ver- ið ýmsar skýringar á því. Kannski eru það lög sem gefa fólki kjánahroll eins og framlag Króatíu í ár þar sem annars ágætis söngkona hreyfði sig eins og vélmenni með hroll, eða hallærisleg sigurlög eins og „Rock me“ frá Júgóslavíu sem sigraði 1989, en lagið var álíka rokkað og biðstofan á heilsugæslunni. Eðlilega hef ég reynt að vekja áhuga á keppninni hjá dóttur minni. „Nú er júróvisjon- kvöld og við ætlum að halda með ís- lenska stráknum,“ sagði ég og reyndi hvað ég gat að gera þetta spennandi. Ekki var mikill áhugi fyrir þessu fyrr en þessi þriggja ára snót upp- götvaði kjólanna sem kynnarnir voru í. „Pabbi, ég ætla að fá mér svona kjól þegar ég verð fullorðin,“ sagði hún. Stelpan sat síðan kyrr með galopinn munninn og starði á hvert lag á fætur öðru. Sér- staka lukku vakti þó „skrýtna konan“ frá Ísrael. Eftir því sem leið á keppn- ina spurði sú stutta hver þessi Gísli Marteinn væri. Snöggur fletti ég honum upp í símanum. „Þetta er Gísli Mar- teinn.“ Hún hló og sagði „Nei pabbi. Þetta ert þú.“ Við 14. framlagið var þolin- mæðin á þrotum og þetta var komið gott. „Pabbi. Hvenær kemur Kúst og fæjó?“ »Svona gagnlausarupplýsingar virðast viðhaldast í heilanum með óútskýranlegum hætti. Heimur Gunnlaugs Snæs Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.