Morgunblaðið - 11.05.2018, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2018
❁ Auðveldara að þrífa penslana
❁Gufar ekki upp
❁Má margnota sama löginn
❁Notendur anda ekki að sér eiturefnum
❁ Bjargar hörðnuðum olíumálningarpenslum
❁UNDRI brotnar hratt niður í náttúrunn
Hágæða umhverfisvæn hreinsivara
Fást í betri byggingavöruverslunum og matvöruverslunum
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
Ánægjulegt er að
lesa í sáttmála ríkis-
stjórnarinnar að hún
vill treysta betur flutn-
ings- og dreifikerfi raf-
orku í landinu, tengja
betur lykilsvæði og
tryggja afhendingarör-
yggi raforku um allt
land. Nýverið var stofn-
aður starfshópur með
aðkomu allra þing-
flokka til að vinna orku-
stefnu fyrir Ísland og er vænst að til-
laga hópsins verði lögð fram til
umræðu á Alþingi í ársbyrjun 2020.
Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar
hefur í mörg ár bent á hversu mik-
ilvægt þetta verkefni er og að hefjast
skuli handa strax enda ástandið á
Eyjafjarðarsvæðinu ekki boðlegt,
hvorki íbúum né fyrirtækjum.
Byggðalínan, sem flytur raforku milli
landshluta og landsmanna, er orðin
gömul og ótrygg. Elsti hluti hennar,
sem liggur frá Skagafirði til Akureyr-
ar, er frá árinu 1974, það eru 44 ár
síðan. Endar byggðalín-
unnar náðu saman árið
1984 og var hún þá orð-
in tæplega 1.100 kíló-
metra löng. Byggða-
línan tengdi saman
landshluta og var mikið
framfaraskref í raf-
orkumálum landsins.
Hún opnaði líka fyrir
möguleika á að virkja
víða um land og nýta
orkuna hvar sem er á
landinu. Á þeim tíma
sem liðinn er frá því
byggðalínan var reist
hefur raforkumarkaðurinn vaxið
jafnt og þétt. Allir eru sammála um
að hann eigi eftir vaxa enn meira á
komandi árum, m.a. með innleiðingu
orkuskipta. Nútímasamfélag án raf-
magns er óhugsandi og samfélag
framtíðarinnar mun treysta ennþá
meira á það.
Auglýst eftir pólitískum kjarki
Flutningsgeta byggðalínunnar er
takmörkuð og hefur álag á hana vaxið
samfara aukinni raforkunotkun. Er
nú svo komið að hún er fullnýtt.
Virkjanir landsins geta framleitt
meiri orku en veikt flutningskerfi
takmarkar framleiðsluna með þeim
afleiðingum að orka tapast, hún
kemst ekki til raforkunotenda. Sam-
kvæmt nýlegri skýrslu Samtaka iðn-
aðarins um innviði á Íslandi þarf að
leggja að lágmarki 55 milljarða króna
í uppbyggingu kerfisins svo það geti
sinnt hlutverki sínu á viðeigandi hátt.
„Flutningskerfið stendur uppbygg-
ingu atvinnulífs fyrir þrifum og þarf
stórátak til að koma því í almennilegt
horf,“ sagði Sigurður Hannesson,
framkvæmdastjóri samtakanna, í
blaðaviðtali í tilefni af útgáfu skýrsl-
unnar. Í mörg ár hefur legið ljóst fyr-
ir að fara þurfi í átak til styrkingu raf-
orkuflutningakerfisins, sambærilegt
og átti sér stað við gerð byggðalín-
unnar fyrir rúmlega 40 árum. Um
það eru allir sammála en lítið sem
ekkert hefur þokast í þeim málum
vegna þess að menn eru ekki sam-
mála um hvernig það skuli gert. Póli-
tískan vilja og kjark skortir. Á meðan
versnar ástandið ár frá ári og dýr-
mætur tími fer til spillis því fram-
kvæmdatíminn er langur.
Fjárhagslegt tjón mikið
Tjónum vegna rekstrarerfiðleika í
raforkuflutningakerfinu hefur fjölgað
jafnt og þétt á síðustu árum. Orku-
skortur er að verða reglulegur við-
burður víða um land og þá sérstak-
lega á Akureyri og í Eyjafirðinum
öllum. Útsláttur er algengur og þurfa
íbúar og fyrirtæki að sætta sig við
skerta raforku og sveiflur í raforku-
flutningi. Tjón vegna þessa hleypur á
hundruðum milljóna króna og fer
vaxandi. Rafmagnstæki skemmast og
fyrirtæki verða fyrir beinu tjóni
vegna stöðvunar framleiðslu og tjóns
á búnaði. Í mörgum tilfellum þurfa
þau að draga úr starfsemi eða koma
sér upp varaafli með dísilvélum eða
olíukötlum.
Samfélagslegt tjón gríðarlegt
Ótrygg raforka á Eyjafjarðar-
svæðinu stendur atvinnuþróun og
uppbyggingu nýrra fyrirtækja fyrir
þrifum. Flutningsgeta byggðalín-
unnar á Norðurlandi er 100 megavött
sem er það sama og núverandi álag í
Eyjafirði. Það er því ekkert svigrúm
fyrir aukna rafmagnsnotkun og óör-
yggið verður meira og meira sem árin
líða. Orkuskorturinn hefur marg-
vísleg neikvæð samfélagsleg áhrif.
Hann hefur áhrif á alla framþróun og
virkar letjandi á fólk og fyrirtæki sem
hafa áhuga á að flytja til svæðisins. Í
þessu ástandi er t.d. alvörurafbíla-
væðing ómöguleg og útilokað er að
raftengja skip í höfninni á Akureyri.
Engir möguleikar eru til að ráðast í
ný verkefni, stór eða smá, þar sem
orkan er ekki til staðar. Afleiðing-
arnar verða færri atvinnutækifæri
sem leiða mun til fólksflótta frá svæð-
inu. Samfélagslegt tjón verður gríð-
arlegt. Hver ætlar að bera ábyrgð á
því?
Eyfirðingar auglýsa eftir kjarki
Eftir Sigmund
Einar Ófeigsson » Pólitískan vilja og
kjark skortir. Á
meðan versnar ástandið
ár frá ári og dýrmætur
tími fer til spillis því
framkvæmdatíminn er
langur.
Sigmundur Einar
Ófeigsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar.
Þegar fólk er spurt
hvað knýi efnahagsbat-
ann á Íslandi síðustu ár
er svarið jafnan:
„Ferðaþjónustan“.
Gróskan í ferðaþjón-
ustu er orðin styrkasta
stoð íslensks efnahags-
lífs, enn stærri en sjáv-
arútvegur og orkusæk-
inn iðnaður, og eykur á
nauðsynlega fjöl-
breytni atvinnulífs. Með sama hætti
er mikilvægt að næg fjölbreytni sé
innan ferðaþjónustunnar sjálfrar.
Þegar talað er um fjölbreytni inn-
an ferðaþjónustu er ekki einungis átt
við margbreytilegt framboð á afþrey-
ingu og þjónustu við ferðalanga.
Miklu skiptir líka fjölbreytni þeirra
hópa gesta sem hingað sækja. Engu
að síður koma annað veifið fram
gagnrýnisraddir sem reyna að gera
lítið úr sumum hópum ferðafólks,
rétt eins og stýrð einsleitni sé lausn-
arorð til framtíðar. Hér má nefna
gagnrýni á bakpokaferðalanga sem
gangi eða hjóli um landið og fari
sparlega með peningana sína og á
farþega skemmtiferðaskipa sem séu
„fyrir öðrum ferðamönnum!“.
Einn besti mælikvarðinn á vel-
gengni fyrirtækja er ánægja við-
skiptavina, sem mæla gjarnan með
þjónustu viðkomandi fyrirtækis við
aðra. Sama lögmál gild-
ir um ánægju við-
skiptavina með áfanga-
staði á borð við Ísland
og íslenska ferðaþjón-
ustu. Bakpokaferða-
langarnir, sem landið
okkar laðar til sín, eru
margir hverjir efnalitlir
námsmenn er að loknu
námi komast í meiri áln-
ir og sækja okkur aftur
heim sem slíkir. Far-
þegar skemmtiferða-
skipa eru andstæða við
fátæka bakpokaferðalanga að því
leyti að þeir eru yfirleitt vel stæðir.
Líkt og bakpokaferðalangarnir koma
þeir gjarnan aftur til lengri dvalar á
öðrum forsendum sem „hefðbundn-
ari ferðamenn“. Gríðarmiklu skiptir
líka gott umtal þessara ólíku hópa
um landið eftir góð kynni. Gott orð-
spor er viðvarandi verkefni innan
ferðaþjónustunnar sem alltaf þarf að
hlúa að og þar þurfum við að eiga
sem flesta og fjölbreyttasta meðmæl-
endur.
Reynsla annarra þjóða sýnir að
ferðaþjónusta getur verið afar við-
kvæm fyrir ytri áhrifum. Hér heima
er skemmst að minnast gossins í
Eyjafjallajökli og áhrifa þess á flug-
samgöngur, afbókanir og fækkun
ferðamanna á þeim tíma. Alkunna er
að ferðaþjónustan gæti átt undir
högg að sækja ef hér yrði stórgos á
næstu árum sem jafnvel hamlaði
flugi til og frá landinu um lengri tíma.
Í því sambandi er vert að benda á að
skemmtiferðaskip eru ekki nándar
nærri eins viðkvæm fyrir slíkum
náttúrhamförum. Þannig hafði gosið
í Eyjafjallajökli lítil sem engin áhrif á
komu skemmtiferðaskipa hingað til
lands. Við slíkar aðstæður getur því
verið gott að hafa ekki öll eggin í
sömu körfu!
Til fróðleiks
Komur skemmtiferðaskipa skiluðu
þjóðarbúinu á áttunda milljarð króna
í tekjur árið 2017 og sköpuðu um 300
heilsársstörf, mörg hver á lands-
byggðinni þar sem ferðaþjónustan á
undir högg að sækja. Þetta gerðist
þrátt fyrir að farþegar skemmti-
ferðaskipa væru einungis um 6%
ferðmanna hér á landi.
Mikilvægi fjölbreytni
í ferðaþjónustu
Eftir Pétur
Ólafsson
Pétur Ólafsson
» Gott orðspor er við-
varandi verkefni
innan ferðaþjónust-
unnar sem alltaf þarf
að hlúa að og þar
þurfum við að eiga sem
flesta og fjölbreyttasta
meðmælendur.
Höfundur er hafnarstjóri
Hafnasamlags Norðurlands
og formaður Cruise Iceland.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU
UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?