Morgunblaðið - 11.05.2018, Síða 22

Morgunblaðið - 11.05.2018, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2018 ✝ Sigríður Ein-arsdóttir fæddist í Reykja- vík 7. júní 1943. Hún varð bráð- kvödd á heimili sínu 29. apríl 2018. Foreldrar Sig- ríðar voru Kristín Pálsdóttir, f. 8.1. 1917, d. 2.5. 2006, og Einar Baldvin Pálsson verkfræð- ingur, f. 29.2. 1912, d. 28.10. 2011. Bræður Sigríðar eru Páll jarðeðlisfræðingur, f. 1947, Baldvin verkfræðingur, f. 1950, og Árni líffræðingur, f. 1954. Hinn 9. október 1965 giftist Sigríður Gunnari Sigurðssyni, lækni, f. 17.9. 1942, hann varð síðar yfirlæknir við Borgar- spítalann og Landspítala og prófessor við læknadeild Há- skóla Íslands. Foreldrar hans voru Ragnheiður Einarsdóttir, f. 1900, og Sigurður Magnús- son, f. 1901. Börn Sigríðar og Gunnars eru: a) Kristín Ragna, f. 1968, rithöfundur og teiknari, maki Gunnlaugur Torfi Stefánsson kontrabassaleikari, f. 1967. Dóttir Kristínar af fyrra hjóna- í Reykjavík átta ára gömul og stundaði nám við skólann í meira en tíu ár. Meðal kennara hennar þar voru Hermína S. Kristjánsson, Árni Kristjánsson og Jón Nordal. Sigríður innrit- aðist í píanókennaradeild Tón- listarskólans þegar deildin var stofnuð 1963 og brautskráðist í hópi fyrstu þriggja nemenda þaðan vorið 1965. Framhalds- nám stundaði hún við Guildhall School of Music and Drama í Lundúnum 1970-74. Hjónin komu til Íslands aftur 1977 eft- ir tveggja ára dvöl í Kaliforníu. Sama ár hóf Sigríður kennslu við Tónmenntaskóla Reykja- víkur og Píanókennaradeild Tónlistarskólans í Reykjavík. Hún kenndi við Tónmennta- skóla Reykjavíkur í nær þrjá áratugi. Við píanókennaradeild Tónlistarskólans starfaði hún óslitið til 2003 með Halldóri Haraldssyni. Á þeim tíma út- skrifuðust 74 píanókennarar frá deildinni. Sigríður hélt síð- an áfram að kenna við Tónlist- arskólann til 2011. Hún kenndi nemendum heima frá 1965 til dauðadags. Sigríður var ötull tónlistarunnandi alla tíð og tók m.a. þátt í kórstarfi Söngsveit- arinnar Fílharmóníu í mörg ár. Eftir miðjan aldur byrjaði hún að stunda golf af miklum áhuga. Sigríður verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag,11. maí 2018, og hefst athöfnin kl. 15. bandi er Snæfríður Gunnarsdóttir, f. 1999. Börn Gunn- laugs af fyrra hjónabandi eru Gylfi Þorsteinn, f. 1997, og Eyja Sig- ríður, f. 2000. b) Sigurður Bjarki, f. 1975, sellóleikari, maki Þórunn Ósk Marinósdóttir víóluleikari, f. 1971. Börn þeirra eru Gunnar Örn, f. 2005, Einar Valur, f. 2007 og Þór, f. 2011. Dóttir Þórunnar af fyrra sambandi er Arna Marín Thorarensen, f. 2000. c) Ragnheiður hjúkr- unarfræðingur, f. 1977, maki Martin Nagstrup viðskipta- fræðingur, f. 1979. Börn þeirra eru Astrid María, f. 2006, og Daníel, f. 2011. Sigríður var fædd og uppalin í Vesturbæ Reykjavíkur. Hún stundaði nám við Melaskólann og Gagnfræðaskóla Vestur- bæjar og lauk landsprófi frá Gagnfræðaskólanum í Von- arstræti. Stúdentsprófi lauk hún frá Menntaskólanum í Reykjavík 1963. Sigríður hóf píanónám við Tónlistarskólann Fyrir utan það að eiga góða foreldra þá er það eitt mesta lán hvers manns að eiga góða eldri systur. Sigga systir mín tók þetta hlutverk alvarlega og var okkur bræðrum sínum fyrirmynd, stoð og stytta í gegnum þykkt og þunnt. Siggu varð snemma eig- inlegt að miðla reynslu sinni og þekkingu til yngri bræðra, kenndi mér til dæmis að lesa án þess að foreldrarnir vissu af því. Hún sýndi snemma ótvíræða hæfileika í tónlist og var því sett í tónlistarnám. Það þótti sjálfsagt að við bræðurnir fylgdum eftir þegar aldur og þroski leyfði. Það var því oft tónlistarkliður á heim- ilinu þegar margir þurftu að æfa sig. Í mínu tónlistarnámi var ég öfundaður af því að hafa píanó- leikara á heimilinu sem var alltaf til í að spila með mér. Á þessu sviði var hún enginn venjulegur meðleikari. Á löngum ferli hef ég hitt aðeins örfáa píanóleikara sem stóðust henni snúning í þeirri list að leika beint af blaði. Slíkur nótnalestur á píanó finnst mér alltaf jaðra við töfrabrögð. Sigga var eftirsóttur meðleikari á tímabili, en henni féll ekki vel hinn óhjákvæmilegi fylgifiskur, sem sé að leika á tónleikum þar sem athygli beindist að henni sjálfri. Hún gerðist því tónlistar- kennari og þar var hún í essinu sínu. Hún var vinsæll kennari og á löngum ferli kenndi hún fjölda fólks að spila á píanó og þjálfaði marga píanókennara. Í tónlistar- uppeldinu naut ég þess auðvitað ríkulega að Sigga var skrefinu á undan mér og gat stutt mig og leitt. Ég man hvað ég varð ótrú- lega stoltur þegar hlutverkin snerust við og hún leitaði í fyrsta skipti til mín um aðstoð við nám- ið. Hún átti að leysa verkefni í hljómfræði en þar hafði ég sigið fram úr henni. Ég man að vísu ekki um hvað verkefnið var en til- finninguna man ég vel. Á uppvaxtarárum mínum voru flestir Reykvíkingar aðkomufólk og áttu heilu frændgarðana úti á landsbyggðinni. Mínir foreldrar voru svo miklir Reykvíkingar að við þekktum nánast enga utan Reykjavíkur. Þetta var vandamál því öll börn urðu náttúrlega að fara í sveit á sumrin. Okkur systkinunum var vorkennt fyrir þetta. Þegar Sigga komst á þann aldur gekk því maður undir manns hönd að finna stað þar sem hún gæti lært bústörf eins og önnur börn. Tengdafaðir föð- urbróður okkar átti fjölda vina í Hornafirði og fyrir hans tilstilli var Sigga send til sumardvalar á Stapa þar í sveit, hjá valinkunnu sómafólki. Þetta var mikið gæfu- spor. Eftir fyrsta sumarið kom hún til baka, lífsreynd og alsæl, þekkti öll fjölskyldutengsl í sveit- inni og talaði hornfirsku. Við bræðurnir fylgdum að sjálfsögðu í fótspor hennar, og síðan hafa verið ómetanleg vinatengsl milli fjölskyldunnar og Stapafólksins. Hornafjörður hefur gegnt hlut- verki heimasveitar í huga okkar. Ketillaugarfjall er okkar önnur Esja. Hið óvænta fráfall Siggu syst- ur minnar skilur eftir stórt skarð í fjölskyldunni. Hún stjórnaði flestum fjölskyldusamkomum og ræktaði tengslin milli ættkvísla og kynslóða. Mestur er að sjálf- sögðu missir hennar nánustu. Þau hafa misst eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, sem var best allra. Páll Einarsson Þegar foreldrar Siggu lögðu land undir fót fékk hún að gista hjá okkur frændfólkinu á Sjafn- argötu 11. Það var alltaf tilhlökk- unarefni að fá hana í heimsókn og við frænkurnar gátum endalaust leikið okkur í ímyndunarheimi barnsins. Við höfðum ekkert fyr- ir því að stofna skóla fyrir litlu börnin í hverfinu, opna leikhús og ferðuðumst víða um heim. Þetta voru gleðidagar af því að Sigga var svo skemmtileg og hláturmild og þrátt fyrir tveggja ára aldursmun áttum við margt sameiginlegt, t.d. það að vilja endilega láta ferma okkur þrátt fyrir lítinn fögnuð foreldranna. Við vorum báðar óskírðar og þegar Sigga var komin á ferm- ingaraldur fórum við saman á fund prestsins í Neskirkju og það varð úr að 12 og 14 ára frænkur urðu skírnarsystur. Rúmum tíu árum síðar vorum við báðar við nám í Bretlandi. Hún með Gunnari sínum í Lond- on og við Helga systir í Man- chester. Okkur systur dreymdi um að fara suður til London til að skoða stórborgina og það varð okkur til happs að Sigga og Gunnar skutu yfir okkur skjóls- húsi. Þetta voru dýrðardagar í menningarborginni, en okkur systrum hefur orðið það enn minnisstæðara hvað morgun- verðirnir með Siggu voru frá- bærir, því þá gafst góður tími til að spjalla saman um allt milli himins og jarðar og rifja upp gamla daga. Næsta tækifæri sem mér gafst til að gista undir sama þaki og Sigga var á hóteli í Bretlandi síð- astliðið haust. Við fórum í vel heppnaða golfferð með hópi vin- kvenna. Veðrið var einstaklega gott og félagsskapurinn eftir því. Þegar búið var að spila golfhring var slakað á, skálað fyrir góðum degi og hitað upp fyrir kvöld- verðinn með söng og gamansög- um. Á síðasta degi ferðarinnar voru margar okkar farnar að skipuleggja í huganum næstu ferð. Ég hafði þá orð á því við Siggu að ég mundi gjarnan vilja hafa næstu ferð svolítið lengri, en hún var fljót til svars og sagði að hún mundi ekki vilja fara í lengri ferð án Gunnars. Því miður fékk hún ekki ráðið þeirri för sem hún hefur nú lagt í, en við sem þekktum Siggu og mannkosti hennar munum sakna hennar sárt. Minningarnar lifa og sá góði tími sem við áttum saman er gulli dýrmætari. Hugur minn er hjá skírnar- systur minni, Gunnari manni hennar, börnunum og fjölskyld- um þeirra og einnig bræðrum Siggu og fjölskyldum þeirra. Þau hafa öll misst mikið. Við á Sjafnargötunni þökkum Siggu samfylgdina og vináttuna. Edda Þórarinsdóttir. Okkar kæra æskuvinkona Sig- ríður Einarsdóttir er fallin frá. Við kynntumst henni þegar við hófum nám í menntaskóla og þau kynni urðu fljótt að náinni og ein- lægri vináttu. Við þrjár ásamt Hildigunni Halldórsdóttur vor- um bekkjarsystur og sessunaut- ar síðustu þrjá vetur okkar í skól- anum og þá hnýttust vináttubönd sem hafa ríghaldið í tæp sextíu ár. Vinkvennahópurinn frá menntaskólaárunum er mun fjöl- mennari og sérstaklega samheld- inn, en við fjórar lítum á okkur sem einskonar deild í hópnum; „setuliðið“ með vísan til þess að við vorum í Z-bekk. Síðastliðin tíu ár hefur setuliðið hist í hverj- um mánuði yfir veturinn, farið í röska morgungöngu og síðan sest yfir góðgæti og þá leyst lífs- gátuna svona í framhjáhlaupi. Tengingarnar eru af ýmsum toga og meira að segja Hafnar- fjörður kemur við sögu. Við þrjár, Anna, Kristín og Sigríður, gómuðum allar hafnfirska eigin- menn (sem hafa reynst svona ljómandi vel) og Hildigunnur telst hafa gjaldgenga tengingu því hún bjó í Firðinum sem barn. Allar fjórar stunduðum við kennslu sem ævistarf, ein okkar sérkennslu, tvær stærðfræði- kennslu og Sigríður kenndi á pí- anó. Hún var sú eina okkar sem sinnti enn einhverri kennslu síð- ustu árin enda bjó hún yfir ótrú- lega miklum eldmóði. Sigríður var glaðsinna, kvik á fæti og það var aldrei nein logn- molla í kringum hana. Hún hafði mörg járn í eldinum og tókst á við allt af skörungsskap. Hún var eiginkona, húsmóðir, móðir, amma, vinkona og kennari. Þá kunni hún að næra andann með þátttöku í tónlistarstarfi og sem njótandi menningar bæði hér á landi og erlendis. Þau hjónin sinntu eigin sælureit í Biskups- tungum, ferðuðust víða og þau léku saman golf. Satt að segja fannst manni „hún Sigga bara ekkert eldast“. Sigríður var höfðingi heim að sækja og minnti þar á foreldra sína, Kristínu Pálsdóttur og Ein- ar B. Pálsson. Æskuheimili hennar á Ægisíðu 44 stóð okkur vinum hennar opið. Þegar við út- skrifuðumst stúdentar var öllum Z-bekknum boðið þangað til veg- legrar veislu og nýstúdentar sem varla höfðu komið út fyrir land- steinana skynjuðu þar einhvern veginn í fyrsta sinn hvað það væri að vera heimsborgari. Sú góða stund er enn jafn fersk í minningunni og gerst hefði í gær. Í ljóðinu Fylgd eftir Guðmund Böðvarsson segir: Eina ævi og skamma eignast hver um sig, – stundum þröngan stig. Þetta minnir okkur á atvik fyr- ir nokkrum árum þegar við vor- um á ferðalagi vinkonurnar og flughræðsla greip eina okkar. Þá var það Sigríður sem sagði á sinn rólega og sannfærandi hátt, að færi allt á versta veg gætum við þó þakkað fyrir hvað við hefðum átt gott líf. Flughræðslan lét í minni pokann eins og hendi væri veifað. Við vottum Gunnari Sigurðs- syni eiginmanni Sigríðar, börn- um þeirra þremur, Kristínu Rögnu, Sigurði Bjarka og Ragn- heiði, tengdabörnum og barna- börnum okkar innilegustu sam- úð. Anna Eymundsdóttir og Kristín Halla Jónsdóttir. Sigga mágkona mín, eða „Sigga systir mín“, eins og ég heyrði hana oftast nefnda, var klettur og kerúbi en þó svo lif- andi, full af orku, og uppbyggi- legum lífsleik. Hún veitti skjól þeim sem hún elskaði og hún studdi þá og leiddi; fjölskyldu, vini og nemendur. Hún var mik- ilvæg stóra systir, eiginkona, móðir, amma, kennari, félagi og vinkona. Hún var full af æsku og lífsþrótti – og hún fór héðan þannig, snögglega, í blóma lífs- ins, tæplega 75 ára gömul. „Þeir sem guðirnir elska deyja ungir“, segir máltækið. Ég skil það þannig að það sé lífinu þókn- anlegt að því sé lifað lifandi og meðvitað til hinstu stundar, hver svo sem árin eru þegar við kveðj- um. Þannig lifði Sigga, stolt og ábyrg í leik og starfi, sjálfri sér og öðrum til ánægju alla tíð og samferðafólki til fyrirmyndar. Ég þakka Siggu samfylgdina sem mágkonu í 23 ár og kynni okkar miklu lengur eða frá því ég man fyrst eftir mér. Ég sé hana fyrir mér og heyri, unga stúlku þar sem þær spila saman fjór- hent á píanó af mikilli leikni, Sigga og Þóra, elsta systir mín, þá nemendur Hermínu Sigur- geirsdóttur í Tónlistarskólanum. Ég geymi myndir af henni, allar fallegar; þar sem við erum fjöl- skyldan í sumarbústað þeirra Gunnars og Siggu í Úthlíð, njót- um fegurðar náttúrunnar og elskusemi þeirra hjóna; þar sem við erum saman á Arnarstapa, í umhverfi okkar Baldvins að tína bláber og brosa við; þar sem við spilum og syngjum saman á hljómsveitaræfingum fjölskyld- unnar um jól, oft í Brúnalandi, hjá Siggu og Gunnari, þar sem ævinlega ríkti gleði, gestrisni og einstakur höfðingsskapur. Ég minnist síðasta samtals okkar Siggu ekki alls fyrir löngu. Ég var þá nokkuð heilsutæp aldrei þessu vant og líf mitt við það að taka nýja stefnu. Það var Sigga sem þá hringdi í mig til að heyra hvað amaði að. Hún var sú sterka og hrausta, heilbrigð og uppörvandi eins og ævinlega. Hún hlustaði og við ræddum lengi saman. Hún sagði mér skýrt og afdráttarlaust að ég ætti hana að hvenær sem væri. Ég væri henni og þeim mikils virði. Nú er hún farin en ég geymi orð hennar í hjarta mér sem dýr- mætan fjársjóð og veganesti og er ríkari fyrir það að hafa þekkt hana og tengst henni. Hún var mér mikils virði. Ég kveð Siggu mágkonu mína með ást og þakklæti. Sigrún Steingrímsdóttir. Fregnin um fráfall Sigríðar kom mér algjörlega í opna skjöldu. Ég hafði hitt hana í hléi á tónleikum ekki alls fyrir löngu, lífsglaða og áhugasama eins og venjulega. Í gamla daga man ég vel eftir Sigríði sem nemanda í Tónlistar- skólanum í Reykjavík, ungri og glæsilegri stúlku í píanókennara- deild skólans. Hún var í hópi fyrsta árgangs er deildin fór af stað undir ötulli forystu stofn- anda hennar, Hermínu S. Krist- jánsson. Ásamt henni voru þær Eygló Helga Haraldsdóttir og Kolbrún Sæmundsóttir sem urðu samferða henni í námi sínu við skólann, en þær útskrifuðust vorið 1964. Að námi loknu fór Sigríður til framhaldsnáms í London og síðar til Bandaríkj- anna. Mig minnir að ég hafi fyrst kynnst Sigríði er við tókum að okkur að leika fjórhent á píanó í hljóðfærahópi í óperum Þorkels Sigurbjörnssonar, Ljónatemjar- anum og Rabba rafmagnsheila. Er Hermína S. Kristjánsson bað mig að taka við píanókenn- aradeildinni 1976 fékk ég Sigríði til liðs við mig 1977 og störfuðum við saman við deildina allt til árs- ins 2003, er síðasti nemandinn út- skrifaðist frá henni. Af samvinnu okkar Sigríðar höfðu þá útskrif- ast frá árinu 1978 til 2003 74 pí- anókennarar. Er ég varð skólastjóri 1992 tók Sigríður við sem yfirkennari deildarinnar, en ég starfaði áfram með henni til 2003. Eftir það flutti kennaranámið yfir í tónlistardeild Listaháskólans. Sigríður hafði sérhæft sig í kennslu byrjenda og nemenda á yngri stigum, en kenndi einnig á efri stigum. Segja má að við höf- um mótað deildina saman, gerð- um breytingar þar sem við urð- um vör við veika hlekki eða bættum við nýjum hlutum sem við höfðum uppgötvað varðandi kennsluna, tilhögun hennar og uppbyggingu. Við áttum einstak- lega gott samstarf og allan þenn- an tíma bar aldrei skugga á. Sig- ríður var einstaklega vandaður kennari, lifði sig vel inn í eðlisein- kenni hvers nemanda svo hún gæti miðlað honum sem best því sem kæmi honum að notum. Það er að sjálfsögðu margs að minnast, t.d. er við mynduðum líklega eina stærstu prófnefnd á landinu í þjálfun verðandi kenn- ara í prófdæmingu. Námið í deildinni tók þrjú ár og í þessari prófnefnd voru allir árgangar. Þar sem hver nemandi fór í gegn- um svona reynslu að gefa ein- kunnir nokkuð oft öll þrjú árin hlaut hann mikla reynslu í mati á leik nemenda. Þannig lögðum við áherslu á hagnýta hlið kennsl- unnar. Í hita leiksins komu oft fyrir skemmtileg atvik af ýmsu tagi sem lífguðu upp á kennsluna. Þá fengum við stundum aðra kennara til koma í heimsókn sem skilaði oft góðum hugmyndum. Eitt sinn kom próf. Carola Grindea, yfirkennari píanókennaradeildar í Guildhall School of Music, til að kynnast deildinni. Urðum við að vonum ánægð er hún lýsti yfir aðdáun sinni á tilhögun námsins. Sagði hún að hér í fámennari skóla væri unnt að gera hluti sem ekki væri möguleiki á í stærri skóla eins og Guildhall. Auk starfa Sigríðar við píanó- kennaradeildina tók hún við af Hólmfríði Sigurjónsdóttur sem yfirkennari skólans ásamt Guð- mundi Hafsteinssyni árin 1994- 1996, er Rut Magnússon tók við. Þáttur Sigríðar í kennara- deildinni og ekki síst í starfi hennar sem kennara hefur ekki skilað litlu. Öll sú alúð, fróðleikur og færni sem hún lagði jafnan í starf sitt hefur haldið áfram í starfi nemenda hennar. Þetta er raunhæfur skerfur sem mun lifa áfram í lífi nemenda hennar um ókomna framtíð. Við samkennar- ar og fyrrverandi nemendur Sig- ríðar eigum eftir að sakna henn- ar sárt. Ég vil votta eftirlifandi eigin- manni Sigríðar, Gunnari, og fjöl- skyldu innilega samúð. Halldór Haraldsson. Vinkona mín, Sigga, er fallin frá án nokkurs aðdraganda. Hún sem var ímynd hreystinnar, stundaði líkamsrækt, göngur og golf. Hún sem hafði svo margt að lifa fyrir. Ég kynntist Siggu þegar ég var 14 ára og flutti til Reykjavík- ur. Við fylgdumst að gegnum gagnfræðaskóla og vorum þrjá vetur sessunautar í menntaskóla. Þetta var upphafið að ævilangri vináttu okkar. Að loknu stúd- entsprófi sigldum við nýstúdín- urnar með Gullfossi til Kaup- mannahafnar. Við höfðum ráðið okkur til garðyrkjustarfa á Sjá- landi. Sigga undi sér vel innan um rósirnar sem þar voru rækt- aðar. Oft rifjuðum við upp þessa sumardvöl og hlógum að ýmsum uppátækjum okkar. Sigga var glöð, hláturmild og jákvæð og lífgaði upp á umhverf- ið hvar sem hún kom. Hún var ákaflega samviskusöm og með afbrigðum trygglynd og ræktar- söm. En fyrst og síðast var hún góð manneskja. Sigga var alin upp á menningarheimili þar sem tónlist var í hávegum höfð. Öll systkinin voru í tónlistarnámi sem ekki var algengt á þeim tíma. Tónlist skipaði stóran sess í hennar lífi allt frá barnæsku. Foreldrarnir sóttu tónleika og það gerði Sigga líka. Eins og þá var algengast vann Kristín, mamma hennar, ekki úti fyrr en börnin voru vaxin úr grasi. Krist- ín var einskaklega ljúf mann- eskja og gott var að koma á Æg- isíðuna og þiggja hjá henni veitingar við eldhúsborðið. Sigga menntaði sig sem píanó- kennari. Kenndi börnum í Tón- menntaskólanum og verðandi pí- anókennurum í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Hún þótti afburða píanókennari, var afskaplega barngóð og átti gott með að tala við börn. Hún hafði lag á að hrósa þeim á upp- byggilegan hátt. Á menntaskólaárunum kynnt- ist Sigga Gunnari sínum. Ekki fannst mér verra að hann var gamall leikfélagi minn úr Hafn- arfirði. Ég held að það sé leitun að samhentari hjónum. Mikill er hans missir. Þau Gunnar bjuggu í útlöndum í fjölda ára en aldrei slitnaði strengurinn. Þegar þau voru flutt heim vildi svo skemmtilega til að við fluttum í sama hverfi. Þar höfum við búið í nær fjörutíu ár. Börnin okkar gengu í sömu skóla og með þeim yngri tókst vinskapur sem enn stendur. Það þótti okkur vænt um. Sigga fylgdist vel með hvað á daga barna minna dreif, mundi eftir afmælisdögum og færði þeim sængurgjafir þegar börn þeirra komu í heiminn. Ógleymanlegar eru stundir Sigríður Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.