Morgunblaðið - 11.05.2018, Síða 23

Morgunblaðið - 11.05.2018, Síða 23
sem við Gylfi áttum með þeim í sumarbústaðnum í Úthlíð. Þar stóð Gunnar við grillið og Sigga búin að leggja á borð af sinni al- kunnu smekkvísi enda vand- virknin henni í blóð borin. Fyrir utan gluggann blómstruðu fal- legu blómin hennar Siggu í öllum regnbogans litum. Við Sigga höfum átt ótal ánægjustundir saman á golfvell- inum. Hún hóf að spila golf nokkrum árum á eftir mér. Hún náði fljótt góðum tökum á íþrótt- inni og var fyrr en varði orðin mjög góð. En svona var Sigga. Allt sem hún tók sér fyrir hendur bar þess vott hve nákvæm hún var og líklega hefur ekki sakað að hún bjó yfir keppnisskapi sem hún fór vel með. Við Gylfi söknum góðrar vin- konu og vottum Gunnari og fjöl- skyldu samúð okkar við andlát hennar. Hildigunnur Halldórsdóttir. Enginn veit og enginn sér, hvar endirinn er né hvaðan að ber. Enginn vill víst vita það, hvenær tími er til að leggja af stað. (S. Pétursson.) Hún Sigga Einars vinkona okkar er látin. Þetta er einhver ótrúlegasta frétt sem hefur dunið á okkur vinkonunum. Þetta hlýt- ur að vera martröð sem við vökn- um bráðum af, en nei, þetta er blákaldur veruleikinn, svo níst- andi sár. Sigga gerði allt rétt; var í lík- amsrækt þrisvar í viku, stundaði golf og göngutúra og borðaði hollt. Sigga var í hópnum okkar 20 kvenna sem kynntust í líkams- rækt hjá Báru Magnúsdóttur. Það eru yfir 40 ár síðan og enn myndum við samrýndan hóp. Flestir klúbbar hittast einu sinni til tvisvar í mánuði en við hitt- umst þrisvar í viku. Eins og nærri má geta er margt rætt. Oftast er glatt á hjalla, við treystum hvor annarri og deilum gleði okkar og sorgum. Daginn eftir lát Siggu vorum við mættar í ræktina, allar í rusli. Áttum erfitt með að trúa þessu en svona er lífið, segir einhver. Á þessum langa tíma sem við höfum þekkst hefur margt verið gert annað en að vera í leikfimi. Einu sinni á sumri förum við sam- an í stelpuferð. Við höfum rútu og rútubílstjóra á okkar snærum. Við byrjum snemma morguns og endum seint að kvöldi. Þetta eru dýrðardagar. Við njótum samver- unnar og skoðum markverða staði. Sem dæmi get ég nefnt að við höfum skoðað Bessastaði, dýrasafn og draugasetur á Stokkseyri, Sólheima í Gríms- nesi, Njálusetrið á Hvolsvelli og ótal mörg listagallerí. Þessir dag- ar enda alltaf með mikilli matar- veislu, söng og dansi í sumarbú- stað sem einhver í hópnum á. Það hafa verið stofnuð nokkur systrafélög, svo sem prjóna- klúbbur og golfhópur. Sigga var ekki í prjónaklúbbnum en hún var fremst í flokki í golfhópnum. Í nokkur ár fórum við saman í borgarferðir á haustin. Þær ferð- ir eru eftirminnilegar. Áhuga- verðir staðir skoðaðir og menn- ingin krufin. Tvisvar deildum við nöfnurnar herbergi í þessum ferðum og áttum við gæðastundir sem ekki gleymast. Í einni ferð- inni fórum við Sigga saman í búð- arölt, þegar formlegri dagskrá lauk og keyptum okkur nokkra bráðnauðsynlega hluti. Mesta lukku gerðu svört náttföt með bleikri blúndu og pallíettum sem við skörtuðum að sjálfsögðu strax næstu nótt. Sigga var virk í öllu okkar brölti (nema prjónaklúbbnum). Við nutum gestrisni hennar bæði í sumarbústaðnum í Tungunum og á heimili hennar í Brúnaland- inu. Hún spilaði undir söng í af- mælisveislum, var glæsileg og skemmtileg kona. Hún var ómiss- andi. Hvernig förum við að án hennar? Við sendum Gunnari, börnum þeirra og fjölskyldunni allri okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd leikfimihópsins, Sigríður Auðunsdóttir. Liðnir eru nær sjö áratugir síðan vinátta okkar Siggu Einars hófst. Fjölskylda hennar átti sumarbústað á landareign í grennd við Grafarholt og Keld- ur, sem bar nafnið Pálsstykki, kennt við móðurafa Siggu, Pál Magnússon járnsmið, en börn hans Kristín, Einar og Magnús áttu þar sumarhús. Krakkarnir í Pálsstykki urðu þannig leik- félagar okkar krakkanna á Keld- um yfir sumartímann auk þess sem foreldrar mínir og Einar Baldvin og Kristin þekktust ágætlega og var vel til vina. Sigga og bræður hennar ólust upp á miklu menningar- og fyr- irmyndarheimili þar sem heil- brigt líferni, útivist, íþróttir og ekki sízt sígild tónlist var í há- vegum höfð. Sigga var hæfileikarík og kraftmikil ung kona og valdi sér að ganga menntaveginn og ganga auk þess á vit tónlistar- gyðjunnar og lagði fyrir sig menntun í píanóleik og kennslu á það hljóðfæri í beztu skólum sem finnast. Hún var vinmörg og oft- ar en ekki hrókur alls fagnaðar, hláturinn einlægur og smitandi og framkoman heillandi. Við skólafélagarnir úr Menntaskól- anum í Reykjavík eigum ekkert nema góðar endurminningar um þessa stúlku, sem nú skyndilega var hrifin á brott frá eiginmanni og fjölskyldu í blóma lífsins og án fyrirvara. Skemmst er að minnast þess að aðeins eru fáeinar vikur síðan átta manna hópur, sem útskrif- aðist frá læknadeild Háskóla Ís- lands fyrir 50 árum hittist, ásamt mökum, til að minnast þeirra tímamóta. Þar geislaði Sigga af gleði og bar þess engin merki að tíminn væri tekinn að styttast. Hún var í essinu sínu eins og ætíð þegar hún kom á vinafund. Þannig minnumst við hennar. Eiginmanni hennar, vini mín- um og kollega, Gunnari Sigurðs- syni, og fjölskyldunni allri send- um við Rakel innilegar samúðarkveðjur. Megi minning- in um einstaka eiginkonu og móður vera þeim huggun í sorg- inni. Fari hún í friði. Sigurður Björnsson. Kveðja frá saumaklúbbnum Hópur ungra stúlkna fann samhljóm um miðja síðustu öld og þær urðu vinkonur. Seinna varð þessi vinkvennahópur að saumaklúbbi ellefu ungra kvenna. Ekki var alltaf mikið saumað en hópurinn hefur hist reglulega í áratugi, borðað góðan mat, spjallað og hlegið mikið. Tvær eru horfnar úr hópnum, Vala fyrir 23 árum eftir lang- vinnt heilsuleysi og nú Sigga, lífsglaða, bjarta, hrausta Sigga. Sigríður Einarsdóttir, sem í okkar hópi var aldrei kölluð ann- að en Sigga, er nú skyndilega fallin frá. Andlátsfregn hennar kom okkur vinkonunum sannar- lega á óvart. Sigga var sú í vin- kvennahópnum sem hreyfði sig mest, stundaði reglulega leik- fimi, var góður golfari, grönn og kvik á fæti og sérlega ungleg. Hún bar ætíð með sér hressandi blæ inn í vinkvennahópinn, hún var einkar glaðvær og hlátur- mild, hafði góða kímnigáfu og átti því auðvelt með að sjá spaugilegu hliðar hlutanna. Sigga hafði mikinn áhuga á þjóð- málum, hún var skoðanaföst og báru skoðanir hennar því vitni hve góða dómgreind hún hafði og hvað hún var réttsýn og heiðar- leg. Henni var í blóð borin sterk réttlætiskennd og það fór ekki milli mála hve henni mislíkaði allur ójöfnuður og óheiðarleiki. Sigga var mikill fagurkeri og hafði til að bera sterka listræna taug. Ævistarfið sem hún valdi sér bar vott um að listir og menn- ing var henni í blóð borin. Það er göfugt ævistarf að kenna börnum og ungmennum tónlist og kenna þeim um leið að meta list sem auðgar lífið og opnar nýjar víddir í sálarlífi mannsins. Það er auð- velt að fullyrða að allir hljóti að búa ævilangt að slíku veganesti á einn eða annan hátt. Við, sem höfum notið vináttu hennar, væntumþykju og ómældrar gestrisni í gegnum ár- in, kveðjum hana með sárum söknuði og sorg í hjarta en minn- umst líka gleðistundanna. Sár- astur er missir Gunnars, barnanna og fjölskyldna þeirra. Við vottum þeim, svo og bræðr- um hennar og fjölskyldum þeirra, okkar innilegustu samúð. Anna, Hildigunnur, Ingunn, Kristín Mjöll, Kristín Halla, Margrét, Ragnhildur, Sif og Sólveig. Glaðleg, broshýr, hláturmild og umfram allt áreiðanleg og traust. Alltaf jákvæð og skemmtileg og hafði sínar ákveðnu skoðanir og stóð með þeim. Við Sigga kynntumst best þegar við vorum, ásamt eigin- mönnum og börnum, í fram- haldsnámi í London á sjöunda og áttunda áratug aldarinnar sem leið. Vorum nágrannar, bjuggum hvor í sínu fjölbýlishúsinu í nota- legu úthverfi í Vestur-London. Margt var framandi og nýtt, ung hjón með lítil börn þurftu að spjara sig í námi og starfi. Þá var gott að eiga góða vini og ná- granna og það voru Sigga og Gunnar. Það voru líka ýmsir fleiri sem mynduðu traustan og góðan hóp Íslendinga sem oft hittust en nágrenni fjölskyldna okkar var ómetanlegt og við fylgdumst með börnunum vaxa úr grasi. Einhvern tíma fórum við Helgi á nokkurra daga námskeið til Wales með eldri börnin tvö og Sigga taldi ekki eftir sér að hugsa um yngsta barnið okkar á meðan, tæplega eins árs. Alltaf síðan hefur ríkt tryggð og vinátta milli okkar og oft höfum við og fleiri sem þá voru samtíða í London hist, sá hópur sem átti heima um svipað leyti á sömu slóðum. Við kynntumst og fylgd- umst með næstu kynslóð og þetta voru á vissan hátt eins og fjölskyldumeðlimir. Eftir að heim til Íslands kom höfum við ætíð haldið sambandi, eignuð- umst meira að segja sumarhús við sama veg og nutum þar sam- vista með öðrum vinum frá Lundúnaárunum. Alltaf var Sigga jafn glaðlynd, hress, hláturmild og drífandi. Skipulögð, atorkusöm, velviljuð og stóð sig vel í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Gunnar fór í golf og hún vildi gjarnan fylgja honum og ekki leið á löngu þar til hún var farin að skara fram úr og vinna bikara, naut þess að spila og standa sig vel. Metnaðarfull og kappsöm og vildi spjara sig eins og ævinlega. Píanóleikur og kennsla var hennar ævistarf og vettvangur og hún var mjög góð- ur kennari, hafði yndi af tónlist og sótti tónleika og söng í kór Fílharmóníu en þar sungu þau Helgi saman um tíma. Það er sjónarsviptir að dugmikilli, góðri og skemmtilegri konu og mikil raun og sorg fyrir fjölskyldu hennar þegar hún hverfur svo skyndilega úr daglegu lífi þeirra, lykilpersóna sem veitti Gunnari, börnum, barnabörnum og for- eldrum sínum stuðning og umönnun meðan þau lifðu. Við Helgi og börnin okkar munum sakna þess mjög að eiga ekki von á því að hitta Siggu framar. Mér finnst ennþá ótrúlegt að eiga ekki von á því að eiga hana vísa, lifandi og glaða eins og alltaf. Að henni er mikill missir og við Helgi og fjölskylda okkar vottum Gunnari, börnum, tengdabörn- um, barnabörnum, bræðrum og fjölskyldum þeirra innilega sam- úð. Blessuð veri minning Sigríð- ar Einarsdóttur. Guðrún Agnarsdóttir. Kveðja frá 6-Z í MR 1963 Skjótt hefur sól brugðið sumri, ... sofinn er nú söngurinn ljúfi. Þessar ljóðlínur listaskáldsins Jónasar koma upp í hugann við fráfall Sigríðar Einarsdóttur bekkjarsystur okkar. Hugurinn hvarflar fimmtíu og fimm ár aft- ur í tímann er við gengum út í sólina og sumarið með hvíta kolla að kveðja skólann okkar og hvert annað. Komið var að tímamótum. Við höfðum átt saman daglangar stundir í einni stofu í þrjá vetur. Við þekktum öll orðið vel hvað einkenndi hvern og einn. Kraft- ur, birta og gleði fylgdu Siggu Einars. Hún var drífandi og kraftmikil, kát og glöð, ljós yf- irlitum og glæsileg. Hún var góð- ur námsmaður, rösk og skipulögð þar sem hún stundaði námið í stærðfræðideild og tónlistarnám jöfnum höndum. Foreldrar Siggu, Einar B. Pálsson og Krist- ín Pálsdóttir, buðu Z-bekknum heim af rausn og gestrisni á sól- ríkum degi, 16. júní 1963. Það var yndisleg stund á fögru heimili og síðasta samvera hópsins að sinni. Svo svifum við út í lífið á vængj- um sjálfstrausts og bjartsýni. Sigga varð píanókennari og kenndi verðandi píanókennurum. Hún lét sér mjög annt um nem- endur sína og fylgdist grannt með ferli þeirra eftir að kennsl- unni lauk. Sigga var einstaklega glað- sinna og fagnaði bekkjarfélögum á förnum vegi af hlýju og alúð. Hún lék við hvern sinn fingur og ljómaði í hækkandi vorsólinni þegar hópurinn hittist nýlega á mánaðarlegum bekkjarfundi. Hún var fjölskyldumanneskja, oft upptekin við að gæta barna- barna og hún sinnti foreldrum sínum til hárrar elli. Ekki var við öðru búist en að hún erfði langlífi foreldra sinna, Sigga sem virtist hreystin uppmáluð. Hún stund- aði líkamsrækt alla tíð og var að koma úr golfi þegar kallið kom. Þau hjónin voru búin að afla sér heimilda og farin að búa sig undir fyrirhugaða ferð útskriftarhóps- ins til Grikklands síðar í maí. En Sigga fór í ferðina miklu sem bíð- ur okkar allra en við verðum seint búin undir. Fari hún vel, vinkonan okkar. Megi minningin um góða konu sefa sáran missi fjölskyldu hennar. F. h. 6-Z 1963, Kristín Bjarnadóttir. Fallin er frá kær vinkona okk- ar og samkennari til margra ára, Sigríður Einarsdóttir. Við gamlir kennarar úr Tón- menntaskólanum höfum hist mánaðarlega í mörg ár. Seinast hittumst við í byrjun apríl og þá hafði Sigga orð á því að næst skyldum við hittast á Nauthól því það væri farið að vora. Skjótt skipast veður í lofti og hópurinn okkar sem hittist nú í byrjun maí var harmi sleginn því Sigga var ekki lengur á meðal okkar.Við eigum einungis bjartar minning- ar um Siggu, sumar okkar voru samnemendur hennar í Tónlist- arskólanum, aðrar nemendur hennar í píanókennaradeild en allar urðum við síðar samkenn- arar í Tónmenntaskóla Reykja- víkur. Sigga var kraftmikil, jákvæð kona sem hafði mikil áhrif á um- hverfi sitt. Hún var vel menntuð og vandvirk og afskaplega lagin í mannlegum samskiptum. Það var ekki að undra að hún yrði eft- irsóttur kennari og var eins og hún væri æviráðin í það verkefni. Hún fylgdi sínum nemendum vel eftir alla tíð og áttu þau trygga vináttu hennar ávallt vísa. Sigga kenndi við píanókennaradeild Tónlistarskólans í mörg ár og átti þátt í að móta þá deild og var alla tíð virk í að kynna nýtt náms- efni og nýjar aðferðir. Sigga var í okkar huga ímynd hreystinnar, virk í öllu starfi og boðin og búin að hjálpa vinum og stórfjölskyldu. Það eru ekki mörg ár síðan hún var að aðstoða aldraða foreldra sína og við vor- um þess fullvissar að hún yrði langlíf eins og þau. Við vinkonurnar og samkenn- arar til margra ára erum þakk- látar fyrir góða og dýrmæta vin- áttu. Við sendum Gunnari, börnum, tengdabörnum, barnabörnum og stórfjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur. Ágústa, Áslaug, Brynhildur, Dagný, Gígja, Hrönn, Laufey, Sigríður Ása, Sigríður Sveins. MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2018 ✝ Ágúst Ingi-mundarson prentari fæddist 11. júlí 1927 í Reykja- vík. Hann lést 19. apríl 2018. Hann var ókvæntur og barnlaus. Móðir hans var Petrína Kristín Kristjánsdóttir, f. 15.3. 1896, og faðir Ingimundur Guð- mundsson, fisksali, f. 26.3. 1903, d. 11.10. 1964. Petrína og Ingi- mundur voru ekki gift en voru um skeið í sambúð. Sammæðra var Har- aldur Egilsson, f. 15. júní 1921, d. 18. apr- íl 2003, fv. verkstjóri hjá Reykjavíkur- borg, var í fóstri á Snæfellsnesi. Maki hans Hekla Sæ- mundsdóttur og eignuðust þau þrjá syni, 1) Sævar, f. 1950. 2) Sæmundur, f. 1953. 3) Egill, f. 1959. Útför Ágústs fór fram í kyrr- þey að ósk hins látna. Gústi frændi ólst upp hjá móð- ur sinni á Fossagötunni í Skerja- firði og síðar á Lindargötu 32, en þau mæðgin, Peta og Gústi, dvöldu engu að síður oft hjá Ástu (Kristjánssínu Sigurást Krist- jánsdóttur) móðursystur hans og manni hennar, Pétri Hraunfjörð, en amma Ásta hjálpaði litlu syst- ur sinni mikið. Gústi frændi ólst þannig upp með frænkum sínum í Sogamýrinni, þeim Huldu, Unni, Guðlaugu og Ólöfu, og reyndar leit hann alltaf svo á að þær væru hans fjölskylda. Hann fór ungur að vinna hjá Morgunblaðinu, fyrst sem sendi- sveinn en lærði prentiðn og starfaði þar samtals í 44 ár og var dyggur stuðningsmaður blaðsins. Gústi var góður skák- maður og keppti á skákmótum. Hann hafði gaman af fótbolta og spennumyndum og fylgdist með því þegar hann var hjá okkur í Holtagerðinu eða fyrir framan sjónvarpsbúðina sem var lengi á Laugaveginum. Ég kom oft á Lindargötuna sem barn, ein og með mömmu. Gústi bjó hjá móður sinni sem sá um heimilishaldið. Heima hjá þeim var oft einkennileg lykt, lík- lega af því að mjólkin var ekki geymd í kæli, svokölluð Petulykt. Svo voru staflar af Morgunblöð- um sem ekki mátti hrófla við. Gústi var stoð og stytta mömmu sinnar. Hann bauð henni meira að segja til Ameríku, þar sem þau fóru á heimssýninguna í Montreal í Kanada 1967. Þetta var hópferð sem var skipulögð af Morgunblaðinu. Gústi var heimagangur hjá okkur fjölskyldunni Ólöfu og Karli, mömmu og pabba í Holta- gerðinu, en þau töldu aldrei eftir sér að aðstoða aðra. Gústi og Peta komu oft um jólin, stórhá- tíðir og um helgar til okkar og tóku þá hraustlega til matar síns. Stundum kom Gústi líka með ís og malt handa okkur krökkun- um. Gústi var sérvitur á mat en vildi umfram allt halda sér grönnum. Hann var grúskari af guðs náð og fann upp á ýmsu. Hann lærði að dansa eftir bók- um, las orðabækur og kynnti sér ótrúlegustu málefni. Hann ferð- aðist um alla Evrópu bara með tannbursta og svaf í næturlest- um til að spara sér gistikostnað. Hann sagði síðar að í Grikklandi hefði hann passað sig á að taka ekki myndir svo enginn uppgötv- aði að hann væri túristi. Hann keypti lager af skyrtum og henti þeim svo án þess að þvo þær. Hann vann eitt af þessum happ- drættishúsum hjá DAS, sem hann skoðaði þegar hann fór framhjá í strætó og seldi síðan án þess að fara inn í það. Hann fann aðferð til að lækna sig af gláku með því að þvo augun með sápu. Einn daginn rúmlega 20 árum eftir andlát Petu kom hann með arfinn eftir nöfnu mína sem voru tveir rauðir eldhússtólar, forláta ensk kommóða og margfrægi pelsinn hennar. Þetta var það sem Peta hafði sagt að ég ætti að fá. Hann seldi húsið við Lind- argötuna löngu síðar sem þá var í mikilli niðurníðslu og var það flutt austur í Flóa. Ég hitti Gústa oft á vappi í bænum eða í strætó þegar hann búsettur á Fossagötunni og ég í miðbænum, þá spurði ég hann iðulega frétta og um líðan til að færa svo foreldrum mínum sem var umhugað um hann. Hann var mjög dulur um eigin hagi og ekki allra. Ég minnist Gústa frænda með hlýju og kærleik. Hvíl í friði. Petrína Rós Karlsdóttir. Ágúst Ingimundarson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN Þ. SIGURÐARDÓTTIR frá Slitvindastöðum í Staðarsveit, lengst af til heimilis í Ólafsvík, lést á Hrafnistu, Sólteigi, miðvikudaginn 18. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu, Vífilsstaða og Landakots fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Gigtarfélagið. Una Jóna Sigurðardóttir Guðlaugur Kr. Sigurðsson Anna María Jónsdóttir Kristín G. Sigurðardóttir Bjarni Arnarson Valdimar G. Sigurðsson Rannveig H. Kristinsdóttir Níels P. Sigurðsson Hrefna G. Kristmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.