Morgunblaðið - 11.05.2018, Page 24

Morgunblaðið - 11.05.2018, Page 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2018 ✝ Axel Jóhann-esson hús- gagnasmíðameist- ari var fæddur 27. febrúar 1916 að Mó- bergi í Langadal, Austur-Húnavatns- sýslu. Hann lést á Dvalarheimilinu Hlíð Akureyri 23. apríl 2018. For- eldrar hans voru hjónin Jóhannes Halldórsson, bóndi á Móbergi, f. 1867, d. 1937, og Elísabet Þor- leifsdóttir, húsfreyja á Móbergi, f. 1874, d. 1961. Axel var yngstur níu systkina en þau voru: Óskar Þorleifur, Björg Sigurrós, Ingi- ríður Guðbjörg, Halldór Helgi, Guðmundur Jóhannes, Jón, Helga Kristín, Ottó Svavar og svo Axel. Axel kvæntist Birnu Björns- dóttur hinn 9. nóvember 1939. 4) Jóhannes og maki hans Sig- rún Arnsteinsdóttir sem búa á Akureyri. Börn þeirra eru Helgi, Arnsteinn Ingi, Lilja Dóra og Ás- dís. Axel fór ungur til náms við iðnskólann á Akureyri til að nema húsgagnasmíði. Hann naut þar góðs stuðnings sveitunga sinna sem áður höfðu flust til Ak- ureyrar og má þar nefna Guð- mund Frímann. Axel lauk prófi og fékk góða einkunn. Hann fór strax að vinna sjálfstætt að iðn sinni og starfrækti lítil hús- gagnaverkstæði ýmist einn eða með öðrum. Þannig gekk það þar til hann endaði með sitt eigið verkstæði við heimili sitt í Ægis- götu 15. Birna og Axel hófu búskap í leiguhúsnæði og bjuggu um tíma í Glerárgötu 5. Síðar festu þau kaup á litlu einbýlishúsi við Ægisgötu 15 og þar bjuggu þau alla sína tíð. Axel Jóhannesson verður jarð- sunginn frá Akureyrarkirkju í dag, 11. maí 2018, klukkan 13.30. Birna á ættir að rekja í Vopnafjörð en missti ung for- eldra sína og ólst því upp hjá móður- systur sinni Vigdísi Grímsdóttir og manni hennar Helga Einarssyni á Seyðis- firði. Börn Axels og Birnu eru: 1) Ásdís Elísabet og maki hennar Anker Colbe sem búa á Sjálandi í Danmörku. Börn þeirra eru Birna og Allan. 2) Björn Þröstur og maki hans Anna Halldóra Karlsdóttir sem búa í Garðabæ. Börn þeirra eru Halldór, Axel og Birna. 3) Steingerður og maki hennar Garðar Karlsson, d. 2001. Stein- gerður býr í Reykjavík. Börn þeirra eru Ólöf Birna, Hulda Björk, Vigdís og Stefán Elfar. Nú förum við pabbi ekki í fleiri bíltúra. Okkur þótti afar skemmti- legt að fara í styttri og lengri ferð- ir. Við fórum þær ófáar um Eyja- fjörð og fleiri staði í nágrenninu. Þegar hann varð hundrað ára var farið í heimsókn í Langadalinn, keyrt heim að Móbergi, stoppað við Fagranes og komið við í Holta- staðakirkjugarði þar sem foreldr- ar hans hvíla. Þarna var hann á sínum æskuslóðum sem hann mat mikils. Á seinni árum var fuglaskoðun fyrirferðarmikil. Nóg var af álft- um í Eyjafirðinum og var par sem verpti við suðurendann á flugvell- inum í uppáhaldi. Þannig háttaði til að hægt var að keyra nánast al- veg að því. Við fylgdumst með ungunum vaxa úr grasi og urðu álftirnar hinir bestu vinir okkar. Pabbi skírði þau Svandísi og Svan. Fuglalíf var fjölbreytt á þessum slóðum og flugsýningar algengar. Stundum vorum við svo áhuga- samir þegar fuglar sáust að ég átti það til að stoppa eins og erlendur ferðamaður nánast á miðjum veg- inum. Síðustu mánuði var sjónin ekki mikil og sá hann ekki alltaf það sem ég sá en samt var hann alltaf jafnkátur og hélt fjölda fugla til haga. Helgi sonur minn lærði af afa sínum að njóta náttúrunnar. Hann skýtur fugla og það þótti afa hans miður. Einu sinni var hann í heim- sókn hjá afa sínum í Hlíð og voru þeir að horfa á viðtal við Svandísi Svavarsdóttur í sjónvarpsfréttun- um. Allt í einu er sagt upp úr eins manns hljóði: „Helgi, þú mátt ekki skjóta Svandísi!“ Hann var greini- lega meira með hugann við uppá- haldsfuglinn sinn en pólitíkina. Pabbi var heilsuhraustur alla tíð og fór aldrei á sjúkrastofnun fyrr en hann fótbrotnaði heima í Ægisgötu. Að endurhæfingu lok- inni flutti hann á Dvalarheimilið Hlíð og bjó þar síðustu þrjú til fjögur árin. Honum líkaði fé- lagsstarfið og þjónustan á Hlíð vel en þegar heyrn og sjón varð verri hætti hann að mestu öllu félags- starfi. Honum leið þá best einum með sjálfum sér í herberginu sínu. Pabbi var ótrúlega nægjusam- ur og af þeirri kynslóð sem ekki var að biðja um aðstoð fyrr en ekki var hjá því komist. Þær eru þó ófá- ar starfsstúlkurnar sem urðu hans bestu vinir og gerðu honum lífið létt. Þær voru gjarnar á að kíkja til hans og spjalla um lífið og til- veruna. Honum þótti vænt um þær allar þó að sumar hefðu verið í meira uppáhaldi en aðrar. Það sem mér þótti einkenna starfs- fólkið á Hlíð var hversu fumlaust það gekk í öll verk. Það verður seint þakkað. Þegar íbúðin hans pabba var tæmd fannst bréf sem sýndi vel hvernig maður hann var. Það var handskrifað en var ekki stílað á neinn sérstakan. „Ég var þá 92 ára. Árið 2008. Ég fékk slæmt kvef, fór til Péturs læknis míns. Hann sendi mig í lungna- og hjartamyndatöku. Nið- urstaðan var: Engin lungnabólga, engin hjartabilun. Það voru mér gleðitíðindi. Þegar ég var spurður um heilsuna var svarið: Aldrei veikur, oftast glaður.“ Gleði hans og félagsskapur gaf mér mikið og verður hans sárt saknað. Jóhannes Axelsson. Elsku besti afi okkar. Við minnumst þín með söknuði og yljum okkur nú við hugljúfar minningar um fallegan og góðan mann. Þú varst listamaður, hag- leiksmaður og áhugasamur um náttúruna og svo ótrúlega margt annað. Þú varst og verður okkur fyrirmynd í lífinu og ef aldurinn fer jafn vel með okkur og hann fór með þig, þá erum við alveg til í að verða 102 ára. Takk fyrir allt og allt. Vængjum vildi’ eg berast í vinda léttum blæ. Djarft um fjöll og dali og djúpan regin sæ. Vængjum líða’ í lofti, við ljósbjart sólar hvel. Vængjum sælum svífa með sigri’ yfir lífi’ og hel. Vængi, vængi gef mér sem vin og æsku draum. Fagra, sterka og frjálsa að fljúga úr sollnum glaum. Vængi að fái eg flogið og fundið í sælu vist. Það allt sem ég þrái og það sem eg hef misst. (Steingrímur Thorsteinsson) Ólöf Birna, Hulda Björk, Vigdís, Stefán Elfar og Valdís Eva. Það eru ljúfsárar tilfinningar sem gera vart við sig þegar afi í Ægisgötu er kvaddur. Forréttind- in sem fylgja því að hafa vináttu afa og hlýju umlykjandi svo ára- tugum skiptir eru mikil. Afi lifði tímana tvenna og var þakklátur fyrir langa ævi þó honum hafi fundist þetta vera komið gott, kominn vel yfir 100 ára aldurinn. Þakklæti er orð sem lýsir afa vel. Gleðin og hlýjan sem streymdi frá afa við eitt stutt símtal eða innlit var ávallt áminning um hve lífið er fagurt og að litlu hlutirnir skipta máli. Afi sýndi fólki áhuga og vildi að öllum liði vel. Hann var jákvæð- ur, notaði ekki styggðaryrði og sú virðing og kærleikur sem hann sýndi okkur var einstakur. Hann snerti marga einstaklinga á lífs- leiðinni sem nutu mannkosta hans. Hann var gefandi og fyrir- mynd af bestu gerð. Það var auðvelt að finna til sín í samræðum við hann. Hann valdi frekar að gefa en þiggja og krafð- ist lítils frá öðrum og skammtaði sjálfum sér lítið af veraldlegum gæðum. Þess þurfti hann ekki til að vera glaður og er minnisstætt þegar hann sagði með ánægju í augum að lífið sem ungur drengur án þeirra veraldlegu gæða sem við þekkjum í dag hefði verið einfald- ara og ánægjulegra. Afi var listrænn og fróðleiksfús. Áhugi hans á fuglum birtist oft í vönduðum blýantsteikningum sem okkur þótti mikið til koma. Hann var húsgagnasmiður og vandaður sem slíkur. Verkstæðið var í okkar æsku við heimili hans og ömmu og voru ófá skiptin sem maður stóð með honum við vélarn- ar og fylgdist með honum búa til leikföng úr afgangsvið svo maður hefði eitthvað við að vera. Tíminn var nýttur vel með okkur þegar dagsverkinu var lokið og ósjaldan spilað á spil eða yatzy með ten- ingum sem við smíðuðum. Oft sat hann bara í stólnum sínum og fylgdist með okkur í kyrrðinni þar sem einungis tikkið í veggklukk- unni hljómaði. Slíkar stundir eru minnisstæðar og tákn núvitundar sem afi virðist hafa haft góð tök á. Ekki ferðaðist afi mikið á sinni löngu ævi en veiðitúrarnir voru þó ófáir enda það skemmtilegasta sem hann gerði. Þá var skrölt á Lödunni og farið svo hægt yfir að við unglingarnir ýmist brostum eða skömmuðumst okkar fyrir að tefja umferðina. Afi þurfti bara ekkert að flýta sér, hann naut ávallt líðandi stundar. Afi átti góðan vin í pabba sem stóð honum ávallt þétt við hlið. Þeir brölluðu ýmislegt saman og voru ófáir bíltúrarnir þar sem þeir nutu náttúrunnar, fuglanna og kyrrðarinnar saman. Í seinni tíð voru pabbi okkar og mamma hon- um stoð og stytta og þó hann vildi síður að aðrir gerðu hlutina fyrir hann hafði hann margoft á orði hve ríkur hann væri að eiga þau að. Sæti afa verður vandfyllt en eft- ir sitja ljúfar minningar og lær- dómur. Hann var þakklátur og sáttur við það líf sem Guð gaf hon- um. Hann hvílir í friði og án vafa margir hoppandi glaðir að fá hann yfir til sín. Takk, elsku afi. Helgi, Arnsteinn Ingi, Lilja Dóra og Ásdís Jóhannesbörn. Sæll er sá, er situr í skjóli hins hæsta, sá er gistir í skugga hins almáttuga, sá er segir við drottin, hæli mitt og háborg, guð minn er ég trúi á. (Sálmur 91 1.-2. vers) Okkur langar að minnast ná- granna okkar Axels og þeirrar blessunar sem það var okkur að hafa þau hjón í nær 40 ár í næsta húsi. Aldrei féll styggðaryrði á milli og alltaf voru þau tilbúin að gefa góð ráð. Kærleikurinn sem þau sýndu okkur og börnum okkar verður seint þakkaður. Það er ekki hægt að minnast Axels án Birnu. Þau hjón voru svo samstiga og ávallt glöð og góð við alla og þó Birna sé farin þá eru þau svo sam- ofin í hug okkar. Þau elskuðu bæði fallega tónlist og fallega náttúru og umgengust alla af virðingu og hógværð. Kæri Axel, ég trúi að nú séuð þið sameinuð á ný og sitjið í fal- legum hvammi við lækjarnið og hlustið á söng vorsins. Minningin um yndislegar stundir lifa í hugum okkar. Þökk fyrir að auðga líf okk- ar og gefa okkur allar fallegu minningarnar. Fjölskyldu Axels sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi ykkur öll. Kveðja frá fjölskyldunni Eyrar- vegi 35 Vilborg Elídóttir. Axel Jóhannesson ✝ Þórhallur Gísla-son skipstjóri fæddist 14. maí 1916 í Syðstakoti og ólst upp á Setbergi sunnan við Sand- gerði í Miðnes- hreppi. Hann lést á Hlévangi í Keflavík 25. apríl 2018. Foreldrar Þór- halls voru hjónin Gísli Jónatan Ein- arsson, bóndi á Setbergi, f. 5. sept. 1896, d. 27.2. 1977, og Ólafía Kristín Guðjónsdóttir hús- freyja, f. 12.8. 1896, d. 1.4. 1931. Systkini Þórhalls í aldursröð voru: Kristín Viktoría Gísladótt- ir, f. 6.11. 1917, d. 20.9. 1981. Guðjón Þorkelsson Gíslason, f. 16.1. 1921, d. 24.8. 1988, Gísli Ólafur Gíslason, f. 6.7. 1922, d. 24.1. 2000, Einar Sigurður Gísla- son, f. 25.6. 1924, d. 4.3. 2014, Benóný Gíslason, f. 5.11. 1926, d. 21.3. 1947. Hálfsystkini Þórhalls, samfeðra: Þóra Bryndís Gísla- dóttir, f. 31.8. 1951, Karítas Jóna Gísladóttir, f. 30.5. 1953, Páll Gíslason, f. 7.8. 1955 og Svan- fríður Guðrún Gísladóttir, f. 17.11. 1961. Móðir þeirra var Elvar, Vilhjálmur og Ástþór. 4) Jónas Karl Þórhallsson, f. 18.9. 1956, maki Dröfn Vilmundar- dóttir, búsett í Grindavík. Börn þeirra: Ástrún, Gerður Björg og Vilmundur Þór. 5) Gísli Þór Þór- hallsson, f. 6.6. 1962, maki Helga Bylgja Gísladóttir, búsett í Sand- gerði. Börn þeirra: Gunnlaug Erna, Þórhallur, Telma Mjöll og Karen Mist. Áður átti Þórhallur dóttur, Þorgerði Þórhallsdóttur, f. 14.1. 1946, sem lést af slysför- um 11.7. 1960. Í uppvextinum kynntist Þór- hallur sjónum og byrjaði ungur að róa með Guðjóni Þorkelssyni afa sínum og síðar Gísla föður sínum. Hann var elstur systkina sinna og var tæplega 15 ára gamall þegar móðir hans lést af barnsförum árið 1931. Á Set- bergi var búskapur og útræði og var fiskurinn verkaður í verstöð neðan við Setberg þegar komið var í land. Þórhallur var rúm 40 ár á sjó lengst af sem skipstjóri og vélstjóri. Þórhallur gekk í barnaskólann við Tjörnina í Sandgerði, skólaskyldan var 4 ár, frá 10 til 14 ára. Hann lauk námi í vélskólanum í Reykjavík 1938-1939 og starfaði í 8 ár sem vélstjóri áður en hann tók skip- stjóraréttindi 1946. Átján ára gamall fór Þórhallur á síldar- vertíð á Geir Goða, og var alls í 34 síldarvertíðir á ýmsum bát- um. Fyrsti báturinn sem Þórhall- ur var skipstjóri á var litli Mun- inn GK-342, 22 tonna bátur. Hann var farsæll skipstjóri alla tíð, en varð fyrir miklu áfalli fyrstu vertíðina sína sem skip- stjóri 1947. Þá missti hann yngsta bróður sinn, Benóný, í sjóinn og hann drukknaði. Hann hélt áfram á sjó og var síðan með Hrönn GK-240 og Svan KE-6. Í félagi við fjóra aðra lét Þórhall- ur smíða Hamar GK-32 í Esbjerg í Danmörku 1956. Síðar réði hann sig til Miðness hf. sem skip- stjóri á Sæunni GK-343 og Mun- inn GK-342 og var aflakóngur á vetrarvertíð í Sandgerði 1961 til 1965. Í félagi við bræður sína, Guðjón og Einar átti hann Ála- borg GK-175, 1968 til 1971. 1971 fór Þórhallur í land og réði sig sem hafnarvörður og lóðs og starfaði hjá Sandgerð- isbæ í 20 ár og lauk starfsferli sínum 1991, þá 75 ára gamall. Þórhallur var heiðraður af Sjómannadagsráði Sandgerðis 1995 og 1996 var Þórhallur var gerður að heiðursfélaga í Vísi, félagi skipstjórnarmanna á Suð- urnesjum. Útför Þórhalls verður gerð frá Safnaðarheimilinu í Sand- gerði í dag, 11. maí 2018, og hefst athöfnin kl. 13.00. seinni eiginkona Gísla Jónatans, Guðmunda Jón- asdóttir frá Tröð í Súðavík, f. 29.1. 1919, d. 23.7. 1996. Fóstursystir Þór- halls, dóttir Guð- mundu, er Sigríður Burny, f. 15.8. 1945, og uppeldis- bróðir Kjartan Helgi Björnsson, f. 14.10. 1934. Þórhallur kvæntist hinn 20.12. 1949 Ástrúnu Jónasdóttur frá Tröð í Súðavík, f. 29.7. 1928, d. 30.11. 1982. Hófu þau búskap á Setbergi og síðar í Baldurshaga, Suðurgötu 1, Sandgerði. Börn þeirra eru 1) Þóra Þórhalls- dóttir, f. 5.9. 1949, maki Sigur- björn Björnsson, búsett í Kefla- vík. Börn þeirra: Sigurjóna, Ástrún, Björn og Þorgerður. 2) Benóný Þórhallsson, f. 24.1. 1952, maki Svava Jónsdóttir, bú- sett í Grindavík. Börn þeirra: Þórhallur, Sigríður Fjóla og Berglind. 3) Sigríður Þórhalls- dóttir, f. 2.5. 1953, d. 9.3. 2012, maki Sigurður Sveinsson, bú- settur í Sandgerði. Börn þeirra: Árin á milli 1960 og 1970 eru mér efst í huga þegar ég rifja upp æskuárin og ævistarf föður míns. Allt snérist um hetjur hafsins og Kalla á Keflavíkurra- díó eða Karl Guðjónsson sem var röddin í útvarpinu. Mamma var ávallt með stillt á bátarásina og beið eftir því að röddin hans pabba heyrðist þegar hann til- kynnti aflatölur og las pöntun á veiðarfærum og kosti. Pabbi var fengsæll skipstjóri og sótti stíft, var yfirleitt með aflahæstu skip- um á Suðurnesjum og aflakóng- ur í Sandgerði. Hann fór sínar leiðir og er mér minnisstætt þegar ég ræddi við einn besta sjómann og vin sem pabbi hafði í áhöfn sinni, Strandamanninn Pál Jósteinsson. Palli sagði að pabbi hefði sjaldan eða aldrei farið austur fyrir Reykjanesið á vetrarvertíð, þrátt fyrir að bátar hafi mokfiskað á Selvogsbanka. Hann vissi að fiskurinn kæmi á slóðina sem hann var mest á. Það kom fyrir að pabbi dró fyrstu trossuna tvisvar í tregu fiskiríi áður en hann fór í land. Það fór ekki vel í mannskapinn, en 11. maí var dagurinn sem áhöfnin gladdist þegar ljóst var að Dúddi Gísla var aflahæstur á vertíðinni. Það var ekki algengt að pabbi kæmi heim á kvöldin á vertíðinni nema í brælum. Hann svaf ávallt um borð og var það mikil tilhlökkun hjá mér að fá að fara niður á bryggju og um borð með Morgunblaðið og koma heim aftur með tvö ýsubönd fyr- ir mömmu. Pabbi var mikið snyrtimenni og nýtinn og í bræl- um fór ég oft með honum niður á bryggju og um borð til að dytta að ýmsu, t.d. mála inni í stýr- ishúsi. Á sumrin fór pabbi norð- ur á síld og mér er minnisstætt eitt sinn þegar hann tók okkur systkinin og mömmu með og setti okkur í land í Súðavík þar sem mamma var fædd og uppal- in. Þar vorum við hjá Kæju ömmu okkar og frændfólki og geymum þaðan góðar minning- ar. Pabbi hætti á sjó 1971. Hann vildi fara í land þrátt fyrir að vera eftirsóttur skipstjóri. Ólaf- ur Jónsson, eigandi Miðness hf., bauð honum eignarhlut í fyrir- tækinu en pabbi afþakkaði það, vildi vera frjáls og ráða sinni för sjálfur sem hann gerði allt sitt líf. Nú siglir hann öruggur og sáttur í friðarhöfn, þar sem þau bíða sem þrá hann mest. Einn ég stend nú við stýrið og vaki. Stjörnubjartur nú himinninn er. Allt er hljótt og minn hugur, hann sí- fellt fer heim til hennar sem kærust er mér. Ó, hve hugljúft er hennar að minnast, heitra faðmlaga’ og hamingjugnótt. Eftirvænting um æðarnar seytlar. Ég sný áleiðis heim nú í nótt. Því sem sjómaður sigli’ ég um hafið og af sjónum ég heim aftur sný. Ég uni ei lengi í landi, hafið lokkar og laðar á ný. Og ég veit að þú skilur mig vina, ég verð að hlíta því kalli er mér ber, því hafið sífellt ólgar og iðar og ólgar líka í blóðinu í mér. Því sem sjómaður sigli’ ég um hafið og af sjónum ég heim aftur sný. Ég uni ei lengi í landi, hafið lokkar og laðar á ný. (Jóhanna G. Erlingsson) Hafðu þökk fyrir allt, elsku pabbi, þinn sonur Jónas Karl. Elsku afi okkar, Þórhallur Gíslason (Dúddi), lést þann 25. apríl síðastliðinn. Margt er að segja um hans ævi þar sem hann var tæplega 102 ára gamall. Dáðumst við að þreki hans og vilja þó yfir 100 árin væri hann kominn. Loksins ertu kominn til ömmu Öddu sem tekur á móti þér ásamt okkar yndislegu frænku, Siggu, með hlýjum faðmi. Elsku afi það er komið að kveðjustund, við kveðjum þig með söknuði og hlýjum hug. Ég geng til skips í Jesú nafn, Jesú hjá mér blífi. Herra guðs engla heilagt safn hræðslu og sorg burt drífi. (Úr Sjóferðasálmi e. Hallgrím Pétursson) Þín barnabörn, Ástrún, Gerður Björg og Vilmundur Þór Jónasarbörn Þórhallur Gíslason ÚTFARARÞJÓNUSTA Vönduð og persónuleg þjónusta athofn@athofn.is - www.athofn.is ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - s: 551 7080 & 691 0919 Inger Steinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.