Morgunblaðið - 11.05.2018, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2018
Velkomin í okkar hóp!
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 581 3730 og á jsb.is
Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt
fyrir konur og stelpur sem tekur mið
af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti,
hreysti og vellíðan.
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
Sumarkort og námskeið
á sérstöku vortilboði
Kynntu þér málið á jsb.is
FARÐU
FERSK
inn í sumarið!
Við hjónin erum á Benidorm í tilefni afmælisins. Við höfum veriðhérna áður og líkar mjög vel. Á afmælisdaginn ætlum við aðhafa það gott, borða góðan mat og njóta veðursins eins og aðra
daga hérna,“ segir Jóna Ósk Vignisdóttir sem á 60 ára afmæli í dag.
Hún rekur fyrirtækið PE Plastsuðu ásamt manninum sínum, Jóni
Gestssyni. „Við erum með allar plastviðgerðir, karaviðgerðir, lagnir
og annað slíkt. Kallinn er búinn að vinna við þetta í mörg ár og ég er
skrifstofublókin.“
Jóna hefur alið nær allan aldur sinn á Akureyri, fæddist reyndar í
Vestmannaeyjum, en fluttist til Akureyrar fjögurra ára gömul. „Svo
bjuggum við á Hauganesi á Árskógsströnd í 16 ár en fluttum aftur til
Akureyrar fyrir ári, ákváðum að minnka við okkur, en við vorum í
stóru einbýlishúsi á Hauganesi. Við áttum þar yndislegan tíma og vor-
um m.a. með veisluþjónustu þar í sex ár.“
Fyrirtækið PE Plastsuða er samt enn á Árskógsströnd, nánar til-
tekið á Árskógssandi. „Karaviðgerðirnar fara aðallega fram þar,
þetta eru aðallega leigukör og þeim er keyrt þangað og svo farið með
þau um allt land.“
Jónas vinnur einnig í Vínbúðinni á Akureyri í hlutastarfi, en var áð-
ur í Vínbúðinni á Dalvík. Hún var í Kór Stærra-Árskógskirkju og hef-
ur gaman af því að prjóna á barnabörnin.
Börn Jónu og Jóns eru Hlynur Már, Ásdís Ósk og Gestur Kristján.
Sonur Jónu frá því áður er Vignir Jóhann Þorsteinsson. Barnabörnin
eru orðin átta.
Slökun Hjónin Jóna Ósk og Jón fyrir tveimur dögum á Benidorm.
Nýtur lífsins á Beni-
dorm í tilefni dagsins
Jóna Ósk Vignisdóttir er sextug í dag
J
ónas Þór Guðmundsson
fæddist á Akureyri 11.5.
1968 og ólst þar upp.
„Ég bjó fyrstu sex árin í
Byggðavegi en síðan í
Reynilundi þar sem foreldrar mínir
byggðu sér hús og átti ég þar heima
þar til ég fór suður í Háskólann. Það
var gott að alast upp á Akureyri.
Lundarhverfið var að byggjast upp
og fjöldi krakka þar. Stutt var í golf-
völlinn, en fyrir austan hann voru þá
tún og mýrar og nokkur hesthús og
fjárhús. Þetta var ævintýraheimur
bernskunnar.“
Jónas gekk í Lundarskóla og síðar
Gagnfræðaskóla Akureyrar, varð
stúdent af viðskipta- og hagfræði-
braut VMA, lauk cand.jur.-prófi frá
HÍ og fékk síðar hdl.. og síðan hrl.-
réttindi.
„Ég var í sveit hjá Þóru Ottós-
dóttur og Erni Haukssyni á Stiklum
í Mývatnssveit. Einnig fór ég með
afa mínum, fósturföður mömmu,
Jónasi Thordarsyni, sem ég er
skírður í höfuðið á, á æskuheimili
hans að Ljósalandi í Vopnafirði og
dvaldi þar hluta úr sumrum. Kona
Jónas Þór Guðmundsson hæstaréttarlögmaður – 50 ára
Ljósmynd/Stína Terrazas
Á göngu við Hvaleyrarvatn Frá vinstri Guðmundur Már, afmælisbarnið, Ingibjörg, Stefán Árni og Lovísa Margrét.
Fjölskyldu- og veiðimaður
Með veiðifélögum Kátir félagar við Árhvamm við Hofsá í Vopnafirði.
Reykjavík Guð-
mundur Helgi Ara-
son fæddist 22. sept-
ember 2017 kl. 18.13.
Hann vó 2.765 g og
var 48 cm langur.
Foreldrar hans eru
Guðrún Arna
Jóhannsdóttir og Ari
Freyr Hermannsson
Ísfeld.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is