Morgunblaðið - 11.05.2018, Síða 31

Morgunblaðið - 11.05.2018, Síða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2018 „Simson var líka garðyrkjumaður og það er nokkuð af plöntum hér á sýningunni; þessar plöntur þarna eru í garðinum sem hann gróðursetti í Tungudal,“ segir Katrín um nokkur verkanna og stækkaða ljósmynd sem myndar svarthvítan bakgrunn bak við þau sum. „Svo standa þessar tvær styttur fyrir framan sundlaugina á Ísafirði.“ En verkin fjalla ekki um stytt- urnar sem slíkar heldur minningar og tilfinningar, ákveðna sýn. Tala inn í ákveðnar ljóðrænar, innhverfar stemningar. „Í nálguninni ákvað ég að nota að- allega ákveðna upphafningu, þar sem ungt fólkið í styttunum horfir fram á veginn. Ég fer að nota þau sem ákveðin tákn, í mörgum myndum á móti fjöllum og bláum himni. „Mér finnst þessi leikhústjöld í myndinni þarna tengjast styttunum á vissan hátt, sviðssetningu þeirra, og þau tengja líka hingað inn í innra rýmið,“ segir Katrín þegar við göng- um þangað inn. „Þessi verk hér eru meira í þeim anda sem ég hef verið að gera og sýna á undanförnum árum, en hafa þó flest ekki verið sýnd hér heima,“ segir hún. Katrín hefur á undan- förnum árum tekið þátt í ýmsum sýn- ingum erlendis og á árinu eru verk hennar á sýningum í Vínarborg, Seúl og Helsinki. Í Vín tók Katrín líka á móti viðurkenningu fyrir verk sín, svokölluðum EIKON-verðlaunum. Staðir sem hýstu drauma „Þetta eru allt staðir sem ég hef gist á,“ segir hún um óræð rýmin á myndunum. „Bæði í Kaliforníu og á Íslandi. Það eru persónulegar teng- ingar við alla þessa staði.“ Þeir hafa hýst drauma hennar um stund. „Ég hef haldið áfram að horfa inn og út í verkum mínum og þar sem ég á undanförnum árum hef dvalið um tíma, hvort sem það eru tveir dagar eða vika, hef ég tekið myndir sem þessar. En þetta er í fyrsta skipti sem ég hef blandað myndum sem þessum saman við eldri ljósmyndir, þær elstu frammi af styttunum.“ Morgunblaðið/Einar Falur Ljóðræn „Ég var á vissan hátt í leit að upprunanum og byrjaði að mynda stytturnar og hef haldið því áfram,“ segir Katrín Elvarsdóttir. Þrír listamenn frá Akureyri voru fulltrúar Íslendinga á vatnslitahátíðinni í Fabriano á Ítalíu sem fram fór um síðustu helgi. Jóna Bergdal og Ragnar Hólm Ragnarsson voru í Fabri- ano og áttu verk á sýningu há- tíðarinnar en að auki átti Guð- mundur Ármann þar eina mynd en hann átti ekki heimangengt. Vatnslitahátíðin í Fabriano var fyrst haldin fyrir átta árum og þá sóttu einvörðungu ítalskir málarar hana en Fabriano varð fyrir valinu þar sem bærinn er þekktur fyrir pappírsfram- leiðslu og vandaðan vatns- litapappír. Hratt og örugglega hefur há- tíðin stækkað og nú sýndu þar um 1.400 listamenn frá 70 lönd- um. Frá fimmtudegi til mánudags var boðið upp á allskyns nám- skeið, sýnikennslu, vörukynn- ingar, hverskonar uppákomur og „má segja að öll helgin hafi verið eitt risastórt karnival,“ eins og Ragnar Hólm orðar það. „Maður var úrvinda eftir allt umstangið hvern einasta dag þegar sólin hneig til viðar.“ Þrír Akureyringar á vatnslitahátíð Vatnslitir Ragnar Hólm við verk eftir sig á vatnslitahátíðinni í Fabriano. Ég er að reyna að leiða fólkinn í þessa tímabundnuveröld táknanna með að-stoð birtunnar. Birtan er það mikilvægasta í þessum myndum. Hún er sjálf tákn vonarinnar,“ sagði Arnar Herbertsson myndlistarmaður í samtali undir lok síðustu aldar. Þessi fallega stefnuskrá þessa merka en hljóðláta og lítt áberandi lista- manns er rifjuð upp í einni greinanna í góðri og vandaðri bók í stóru broti sem kom út í vetur um list og feril Arnars og er ein- faldlega nefnd eft- ir honum. Arnar vinnur enn að list sinni, löngum einfari þótt hann hafi tengst SÚM- hópnum í upphafi hans, og hefur, eins og glöggt má sjá í bókinni, skap- að mörg af sínum athyglisverðustu verkum á síðustu árum og áratugum en þess má geta að hann er 85 ára í dag, 11. maí. Það er því við hæfi að á sýningunni Ýmissa kvikinda líki – Ís- lensk grafík, sem verður opnuð í Listasafni Íslands í dag, á afmælis- degi Arnars, er stór röð grafíkmynda eftir hann. Í bókinni eru birtar myndir af á sjöunda tug verka eftir Arnar, þau elstu frá sjötta áratugnum og nýjustu máluð í fyrra. Æsa Sigurjónsdóttir ritar formála að bókinni og segir þar Arnar „birtast jafn skyndilega í ör- sögu SÚM og hann hvarf þaðan sem ungur hæfileikaríkur teiknari, graf- íklistamaður og málari, sem einnig setti saman nokkra sérstæða hluti (objekta) sem eiga sér fáa líka í ís- lenskri listasögu. Reynt verður að færa lesanda nær þessum dularfulla einyrkja í myndlistinni sem spinnur óragur frásagnarþráð sem nokkuð erfitt getur reynst að rekja upp“. (6) Ólafur Gíslason ritar fallega heim- spekilega grein um Arnar vin sinn og listsköpun hans þar sem hann kveðst sjá í hálfrar aldar glímu listamanns- ins við málverkið „endurtekna leit hans að upprunanum sem birtist okk- ur sem rökræn niðurstaða í nýjustu verkum hans sem er eins og taktur- inn í afrískum trumbuslætti. Ekki taktur vélvæðingarinnar eins og við sjáum hann í málverki fútúristanna […] heldur taktur þess hjartsláttar sem á sér dýpri rætur en vélvæð- ingin, sá taktur verunnar í ölduróti lífsins sem við getum rakið aftur til hjartsláttarins í móðurkviði …“ (13) Loks fjallar Ásdís Ólafsdóttir um list og feril Arnars, í góðri samantekt. Hann fæddist og ólst upp á Siglufirði og þegar hann var 24 ára gamall breytti það lífi hans þegar Hörður Ágústsson myndlistarmaður kom til bæjarins að gera veggmynd fyrir skóla og velja liti fyrir kirkjuna. Arn- ar sýndi Herði myndir eftir sig og Hörður hvatti hann til að fara til Reykjavíkur og leggja listina fyrir sig, sem Arnar gerði og hefur síðan unnið að henni, þó af mismiklum krafti samhliða brauðstritinu. En hann fann sína leið og hefur haldið sig á henni, hávaðalaust. Ásdís segir réttilega að ljóst megi vera að Arnar sé afar sérstæður listamaður og út- skýri persónuleiki hans langt og frumlegt ævistarfið. „Hlédrægni, hógværð og ómannblendni einkenndu þennan unga Siglfirðing frá upphafi og þessir persónueiginleikar ágerð- ust frekar en hitt. Arnar hefur sjálfur sagt, í tengslum við aðild sína að SÚM-hópnum: „Ég var utangarðs, eins og ég hef alltaf verið.“ Þetta veldur honum sjálfum engum vand- kvæðum, hann vill bara „þögn og frið og jákvæða tilfinningu“,“ skrifar Ás- dís. Bókin um Arnar er vandað verk og gott. Í bókarlok er farið yfir helstu æviatriði og birtur listi yfir sýningar Arnars. Hann hefur haldið 12 mis- viðamiklar sérsýningar og margir samherja hans hafa sýnt mun meira og örar – 23 ár liðu milli fyrstu tveggja sýninganna. En með bókinni fá áhugamenn um myndlist kærkom- ið yfirlit yfir listsköpun þessa athygl- isverða og merka myndlistarmanns. Táknheimur Arnars Myndlist Arnar Herbertsson bbbbm Umsjón með útgáfu: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, Ásdís Ólafsdóttir og Knút- ur Bruun. Formáli og greinar: Æsa Sig- urjónsdóttir, Ólafur Gíslason og Ásdís Ólafsdóttir. Ensk þýðing: Anna Yates. Dimma, 2017. Innbundin í stóru broti, 100 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson Arnar Herbertsson „Ég hef aldrei haft fyrir málverkinu,“ segir hann. Heimur forma Ónefnt málverk eftir Arnar frá 2016, 100 x 80 cm. Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Fös 11/5 kl. 20:00 33. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Lau 2/6 kl. 20:00 47. s Lau 12/5 kl. 16:00 34. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Sun 3/6 kl. 20:00 48. s Þri 15/5 kl. 20:00 aukas. Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Mið 6/6 kl. 20:00 49. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Fim 7/6 kl. 20:00 50. s Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas. Fös 8/6 kl. 20:00 51. s Lau 19/5 kl. 20:00 37. s Fim 31/5 kl. 20:00 41. s Lau 9/6 kl. 20:00 52. s Mið 23/5 kl. 20:00 aukas. Fös 1/6 kl. 20:00 46. s Sun 10/6 kl. 20:00 53. s Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa. Elly (Stóra sviðið) Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s Sýningar haustið 2018 komnar í sölu. Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið) Fös 11/5 kl. 20:00 30. s Fös 18/5 kl. 20:00 32. s Fös 25/5 kl. 20:00 34. s Fim 17/5 kl. 20:00 31. s Lau 19/5 kl. 20:00 33. s Sun 27/5 kl. 20:00 35. s Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis! Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Fös 11/5 kl. 20:30 16. s Fim 17/5 kl. 20:30 23. s Fim 24/5 kl. 20:30 aukas. Sun 13/5 kl. 20:30 22. s Fös 18/5 kl. 20:30 24. s Fös 25/5 kl. 20:30 aukas. Mið 16/5 kl. 20:30 aukas. Lau 19/5 kl. 20:30 aukas. Lau 26/5 kl. 20:30 aukas. Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi? Hin lánsömu (Stóra sviðið) Sun 13/5 kl. 20:00 3. s Mið 16/5 kl. 20:00 4. s Kraftmikil og kómísk saga 8 systkina sem lifa velmegunarlífi Slá í gegn (Stóra sviðið) Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn Fim 14/6 kl. 19:30 35.sýn Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn Sun 10/6 kl. 19:30 34.sýn Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Svartalogn (Stóra sviðið) Fös 11/5 kl. 19:30 5.sýn Fös 25/5 kl. 19:30 7.sýn Fim 31/5 kl. 19:30 9.sýn Lau 12/5 kl. 19:30 6.sýn Lau 26/5 kl. 19:30 8.sýn Fös 8/6 kl. 19:30 10.sýn Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu Stríð (Stóra sviðið) Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l Faðirinn (Kassinn) Sun 13/5 kl. 19:30 50.sýn Síðustu sýningar komnar í sölu Aðfaranótt (Kassinn) Fös 11/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 4.sýn Fim 24/5 kl. 19:30 8.sýn Lau 12/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 5.sýn Fös 25/5 kl. 19:30 9.sýn Mið 16/5 kl. 19:30 3.sýn Mið 23/5 kl. 19:30 7.sýn Lokaverkefni leikarabrautar sviðslistadeildar LHÍ Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 16/5 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Oddur og Siggi (Á flakki um landið) Þri 15/5 kl. 11:00 Vestm.eyjar Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.