Morgunblaðið - 11.05.2018, Page 36

Morgunblaðið - 11.05.2018, Page 36
FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 131. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Allt að 50% færri bókanir en … 2. 500 lítra fiskabúr sprakk 3. Hugsi yfir viðbrögðum … 4. Grýtt til dauða fyrir að eiga … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Drekinn innra með mér á tónleikum  Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur tónlistarævintýrið Drekinn innra með mér eftir Elínu Gunnlaugsdóttur á tónleikum í Eldborg Hörpu á morgun, laugardag, kl. 14. Hljómsveitarstjóri er Bernharður Wilkinson og sögu- maður Þórunn Arna Kristjánsdóttir.  Sinfóníu- hljómsveit áhuga- manna í samvinnu við Kór Neskirkju, Drengjakór Reykjavíkur og Listaháskóla Íslands heldur tónleika í Nes- kirkju á sunnudag kl. 17. Fluttur verður Fiðlukonsert í D- dúr eftir Beethoven og frumflutt verkið Hulda eftir Steingrím Þórhalls- son. Einleikari er Hulda Jónsdóttir og einsöngvari Hallveig Rúnarsdóttir. Kórverk og fiðlu- konsert í Neskirkju  Þórunn Björnsdóttir kórstjóri stjórnar söngstund í Hannesarholti á mæðradaginn, 13. maí, kl. 14, ásamt Þóru Marteinsdóttur, dóttur sinni, sem einnig er kórstjóri og tónskáld. Aðgang- ur er ókeypis fyrir börn í fylgd með fullorðnum sem greiða 1.000 kr. Söngtextar birtast á tjaldi svo allir geti tekið undir. Syngjum saman á mæðradaginn Á laugardag Austlæg eða breytileg átt 3-10 m/s. Dálítil rigning SA-til, annars skýjað með köflum og úrkomulítið. Hiti 8 til 14 stig. Á sunnudag Austlæg eða breytileg átt 3-8 m/s, skýjað á köflum og þurrt að mestu. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast SV-til. SPÁ KL. 12.00 Í DAG A-læg átt, 5-13, rigning um landið sunn- anvert, einkum á Suðausturlandi, en yfirleitt þurrt annars staðar. VEÐUR KR byrjaði vel í Pepsi- deild kvenna í knatt- spyrnu í gær en Vestur- bæjarkonur lögðu Selfyss- inga á útivelli, 1:0. Breiðablik er komið með sex stig eftir tvo leiki og hefur skorað í þeim tíu mörk og Stjarnan sneri heldur betur blaðinu við eftir skell í fyrstu um- ferð og lagði Val á útivelli. » 2 Góð byrjun KR gegn Selfossi „Íslandsmeistaratitillinn er það sem mig hefur alltaf dreymt um og er markmið sem ég hef ekki ennþá náð með FH. Þetta er minn heitasti draumur og það væri mér eitt og allt að taka þann stóra áður en ég kveð,“ segir Gísli Þorgeir Kristjánsson en FH-ingar lögðu Selfoss að velli í fyrrakvöld og mæta ÍBV í úrslita- einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í hand- knattleik sem hefst á morgun. »4 Íslandsmeistaratitill heitasti draumurinn „Það er ótrúlega mikið afrek fyrir lið- ið að vinna fjögur ár í röð, ekki síst í ljósi þess að á hverju ári hefur liðið tekið breytingum, leikmenn komið og farið,“ segir Ólafur A. Guðmundsson, fyrirliði Kristianstad, sem varð sænskur meistari í handknattleik í gær. Með liðinu leika einnig Íslend- ingarnir Arnar Freyr Arnarsson og Gunnar Steinn Jónsson. »1 Mikið afrek að vinna fjögur ár í röð ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Starfið er bæði fjölbreytt og ögr- andi en þetta er alltaf mjög skemmtilegt,“ segir Ingibjörg Elfa Sigurðardóttir, umsjónarmaður nytjamarkaðarins Búkollu á Akra- nesi. Búkolla var opnuð árið 2009 þegar landsmenn voru enn í sjokki eftir efnahagshrunið og vinsælt var að endurnýta gamla muni. Reksturinn hefur gengið vel frá upphafi að sögn Ingibjargar sem tók við rekstrinum árið 2010. „Þetta sannaði sig strax á fyrsta degi og salan hefur aukist með hverju ári.“ Fötin alltaf vinsælust Í Búkollu má finna fjölbreytt úrval notaðra muna. Þeir eru sótt- ir í nytjagáma á endurvinnslustöð- inni en fyrir utan húsnæði versl- unarinnar eru fatagámar og fólk getur skilað af sér munum á staðnum. „Fötin eru alltaf vinsælust hjá okkur. Ég myndi halda að þau væru svona 80-85 prósent af söl- unni. Þau eru aðalmálið. Bæk- urnar eru líka alveg nauðsynlegar þó að það fari engin ósköp af þeim. Það er mikið til sama fólkið sem kemur og grúskar í þeim. Eins með plöturnar; það er ákveð- inn hópur sem þekkir þetta,“ segir Ingibjörg. Verðið ætti ekki að standa í kúnnunum því hægt er að fá bækur allt niður í 50 krónur og plöturnar fara margar á 250 krón- ur. Safnarar mæta gjarnan í leit að sjaldgæfum myndasögum og hljómplötum. Fólk hætt að hvítta Búkolla selur líka húsgögn en sala á þeim hefur minnkað að und- anförnu. „Á tímabili var rosalega mikið verið að kaupa gömul hús- gögn og gera þau upp. Það voru allir að hvítta en það er ekki leng- ur. Ég skynja það vel núna eftir áramótin. Það hafa margir verið að tala um það lengi að það sé aft- ur komið 2007, ég er rétt að skynja það núna. Er góðærið kom- ið á Skagann? Já, mér finnst það.“ Kúnnar koma víða að Búkollu er að finna á Vestur- götu 62 á Akranesi. Markaðurinn er opinn fimmtudaga, föstudaga og laugardaga frá klukkan 12-15. „Þetta er vinsælt hjá bæjarbúum en á laugardögum kemur fólk víð- ar að. Þá kemur gjarnan fólk úr bænum en líka margt af fólki ofan úr Borgarfirði og úr Borgarnesi,“ segir Ingibjörg Elfa. Góðærið komið á Skagann  Fólk virðist hætt að gera upp gömul húsgögn Morgunblaðið/Hari Búkolla Ingibjörg Elfa Sigurðardóttir hefur staðið vaktina á nytjamarkaðinum Búkollu á Akranesi síðan 2010. Búkolla er rekin af bæjaryfir- völdum á Akranesi en reksturinn er nokkurn veginn sjálfbær, að sögn Ingibjargar. „Bærinn leggur til húsnæðið en við borgum af því hita og raf- magn. Það er ekki mikill afgang- ur,“ segir hún. Starfsemin lífgar svo sannar- lega upp á bæinn, bæði fyrir við- skiptavini og ekki síður þá sem fá tækifæri til að vinna þar. „Við erum með fimm örorkuvinnu- samninga, fólk sem er í 25 pró- sent vinnu. Svo eru alltaf ein- hverjir sjálfboðaliðar. Við höfum líka verið að taka fólk í sam- félagsþjónustu og eins ein- staklinga sem koma úr Fjöl- iðjunni, fatlaða einstaklinga. Þetta er mjög fjölbreyttur og skemmtilegur vinnustaður. Hér er mikið líf og fjör,“ segir Ingi- björg. Hér er mikið líf og fjör BÚKOLLA LÍFGAR UPP Á BÆINN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.