Morgunblaðið - 04.05.2018, Page 6

Morgunblaðið - 04.05.2018, Page 6
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Þ að er ekki að ástæðulausu að mörgum þykir Porsche gera bestu bíla í heimi. Þessi þýski bílaframleið- andi hefur löngum verið leiðandi í tækninýjungum og ekki hikað við að fara óhefðbundnar leið- ir til að smíða bíla sem eru í senn fallegir, hraðskreiðir og með fram- úrskarandi aksturseiginleika. Ætti því ekki að koma á óvart að Porsche hefur líka verið í fremstu röð í þróun tvinn- og rafmagnsbíla en tæknina hefur Porsche notað til að gera bílana sína bæði hrað- skreiðari og mun sparneytnari. Benedikt Eyjólfsson segir fram- farirnar svo miklar að verulegur verðmunur geti verið á sama Porsche-bílnum eftir því hvort hann er með hefðbundna bensínvél eða noti tvinntækni, enda fara innflutn- ingsgjöldin lækkandi með minni koltvísýringslosun. „Taka má Cay- enne-jeppann sem dæmi: í tvinn- útgáfu kostar hann frá 10,9 millj- ónum en frá 15,2 milljónum með bensínvél.“ Benedikt er forstjóri Bílabúðar Benna og segir hann tvinnbíla hafa marga kosti umfram bíla með hefð- bundinn bensín- eða díselmótor. „Fyrir alla almenna notendur eru tvinnbílar yfirleitt betri kosturinn.“ Panamera kemst 50 km á rafhlöðunni einni saman Tveir mjög áhugaverðir tengil- tvinnbílar eru nýlentir í Bílabúðinni: „Við fengum á dögunum nýjan Panamera-tengiltvinnbíl. Fyrri kyn- slóð Panamerunnar var fáanleg í tvinnútgáfu en var þá ekki með drifi á öllum fjórum hjólum. Nýja tengil- tvinn-Panameran er með aldrifi og að auki með rafmagnstengli svo að hlaða má stórar rafhlöðurnar í bíl- skúrnum heima, og á að vera hægt að aka fyrstu 50 km á rafmagni ein- göngu. „Vélin framleiðir 462 hestöfl og er bíllinn 4,6 sekúndur í hundr- aðið. Þá er Panameran með leiftur- snöggri tvöfaldri kúplingu, loftpúða- fjöðrun og ríkulega búin að innan,“ segir Benedikt. Einnig er tengiltvinn-Cayenne nýkomin til landsins og verður formlega frumsýnd næstkomandi laugardag. „Þessi nýjasta kynslóð Cayenne er breiðari og lengri en stækkunin skilar sér öll í betra rými fyrir farþega og farangur. Þrátt fyr- ir að vera stærri en síðasta kynslóð er hinn nýi Cayenne 100 kg léttari því rétt eins og á Panamerunni er öll yfirbyggingin úr áli. Þá er drægnin á raforkunni einni saman orðin 50% meiri, eða 32 km áður en bensínvélin þarf að hjálpa til.“ Benedikt bendir á að Cayenne noti tvinntæknina ekki bara til að spara bensín heldur líka til að auka hraðann þegar þess er þörf. „Undir húddinu er 462 hestafla vél og ef bensíngjöfin er stigin í botn svo að 100% af afli vélarinnar eru notuð bætist raforkan við og eykur aflið um allt að 15%. Þýðir þetta að tvinn-Cayenne er fimm sekúndur í hundraðið en til samanburðar var fyrsta kynslóð Cayenne í túrbóút- gáfu 5,6 sekúndur í hundraðið og þóttu það undur og stórmerki fyrir jeppa.“ Verður nýr konungur rafbílanna krýndur? Árið 2019 er síðan von á bíl sem á eftir að marka tímamót í sögu Porsche, en það er rafbíllinn Mis- sion E. Á blaði hefur Mission E alla burði til að tróna yfir rafbílamark- aðinum enda með ólíkindum hrað- skreiður, með mikið drægi og búinn tækni sem gerir það kleift að hlaða rafhlöðurnar mjög hratt. Benedikt segir Mission E vera yfirlýsingu um það sem koma skal hjá Porsche: „Rafmagnsvélin fram- leiðir 600 hestöfl og kemur bílnum upp í 100 km/klst á aðeins 3,5 sek- úndum. Þá er uppgefin drægni 500 km á einni hleðslu,“ útskýrir hann. „Porsche hefur þróað nýja gerð hraðhleðslustöðva sem skila 320 kW straumi í rafhlöðurnar og gera það að verkum að á aðeins 15 mínútum er komin næg hleðsla í bílinn til að aka 400 km. Er það rétt nægur tími til að skjótast inn á bensínstöð og fá sér eina pulsu og kók. Verður Mis- sion E einnig með búnaði fyrir þráðlausa hleðslu og getur sótt til sín 11 kW af raforku án þess að vera stungið í samband.“ Mission E er fernra dyra, minnir á Panameruna í útliti, og segir Benedikt að erfitt verði fyrir fram- leiðendur eins og Tesla að keppa við þennan undrabíl. „Ef við berum Mission E saman við drossíuna frá Tesla þá er Teslan dýrari. Ekki nóg með það heldur verður allur frá- gangur á Misson E eins og fólk á að venjast frá Porsche; hönnunin ein- staklega vönduð bæði að utan og innan og innréttingin í hæsta gæða- flokki.“ Einnig er von á Mission E Cross Turismo sem má best lýsa sem raf- drifnum sportjeppa. „Sá bíll var frumsýndur á bílasýningunni í Genf fyrr á þessu ári og kom bílaheim- inum skemmtilega á óvart. Hann er dálítið upphækkaður og kjörinn fyr- ir akstur við meira krefjandi að- stæður,“ segir Benedikt. Sparneytnari og hraðskreiðari Nýr tengiltvinn-Cayenne er aðeins fimm sekúndur í hundraðið og getur ekið fyrstu 32 kílómetrana á rafmagnshleðslunni einni. Seint á næsta ári er von á 600 hestafla rafmagnsbíl frá Porsche og á hann eftir að hrista rækilega upp í markaðinum. Útlit Mission E er ögn framúrstefnu- legra en á öðrum bílum Porsche. Porsche Mission E minnir á Panameruna í útliti. Með 600 hestafla rafmagnsvél verður hröðunin hreint svakaleg. Farþegarými Mission E Cross Turismo er ekkert slor. Morgunblaðið/RAX Benedikt við nýja tengiltvinn Cayenne. Hann er töluvert skjótari og notar mun minna bensín en fyrstu Cayenne jepparnir. 6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2018

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.