Morgunblaðið - 04.05.2018, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2018
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
H
já Heklu eykst sala raf-
magnsbíla jafnt og þétt
og segir Jóhann Ingi
Magnússon vörumerkja-
stjóri að nýr e-Golf hafi
vakið mikla lukku. „Við frum-
sýndum e-Golf fyrst árið 2015 en ný
og endurbætt kynslóð kom á mark-
að síðasta sumar með allt að 300
km drægni. Með aukinni drægni
jókst áhuginn töluvert enda þýðir
hún að fólk getur treyst á rafmagn-
ið til að komast leiðar sinnar án
vandræða.“
Frá því í júní í fyrra hefur e-Golf
selst hraðar en tekst að flytja nýja
bíla til landsins. „Við afhentum um
100 e-Golf á síðasta ári og það sem
af er þessu ári höfum við afhent
tæplega 70 bíla. Þá eru nærri 80
bílar til viðbótar á leið til nýrra eig-
enda og getum við í dag boðið upp
á stuttan afhendingartíma. Við er-
um, núna í byrjun maí, búin að selja
fleiri eintök af e-Golf en við seldum
allt síðasta ár.“
Jóhann segir marga þætti geta
skýrt vinsældir e-Golf. „Það hefur
loðað við rafmagnsbílana að þeir
hafi mjög framúrstefnulegt útlit.
Aftur á móti er e-Golf ósköp
„venjulegur“ á að líta, með þær
hefðbundnu og fallegu línur sem
einkenna Volkswagen Golf og á
sama verði og sambærilegur bens-
ínbíll. Þetta er útlit sem margir
halda upp á og ekki að ástæðulausu
að Golf hefur um áraraðir verið
einn vinsælasti bíll Evrópu.“
Jóhann bendir á að ágæti rafbíla
sjáist kannski best á því hvað kaup-
endur þeirra eru lukkulegir. „Okk-
ur finnst mjög skemmtilegt að sjá
hvað rafbílaeigendurnir eru ánægð-
ir með kaupin. Ég veit til þess að á
sumum heimilum var rafmagnsbíll
keyptur sem aukabíll en þegar á
reynir kjósa heimilismeðlimir frek-
ar rafmagnsbílinn vegna þess hvað
hann er þægilegur í akstri.“
Vistvænir bílar í meirihluta
Auk rafmagnsbíla selur Hekla einn-
ig tengiltvinnbíla og metanbíla og
segir Jóhann að áhuginn á vistvæn-
um bílum sé mikill. „Nú þegar höf-
um við selt 577 vistvæna bíla það
sem af er árinu, eða 57% af öllum
afhentum bílum. Þar er fremstur í
flokki Mitsubishi Outlander sem er
í dag mest seldi bíllinn á Íslandi.“
Mitsubishi Outlander PHEV er
fjórhjóladrifinn tengiltvinnbíll og
miðað við meðalkeyrslu höfuðborg-
arbúa ætti rafhlaðan að duga flest-
um til að komast sinna daglegu
ferða á rafmagninu einu saman. Í
lengri ferðum tekur síðan bens-
ínvélin við. „Tengiltvinnbílarnir
Volkswagen Passat GTE og Golf
GTE, Audi A3 e-tron og Q7 e-tron
hafa einnig selst mjög vel enda um
að ræða einstaklega skemmtilega
bíla sem gefa fólki kost á að nýta
rafmagnið sem daglegan aflgjafa.“
Gaman hvað
rafbílaeigendur
eru ánægðir
með kaupin
Tengiltvinnbíllinn Mitsubishi Outlander PHEV er í
dag mest seldi bíllinn á Íslandi. Í fyrra seldust 100
e-Golf og salan komin yfir 150 bíla á þessu ári.
Mitsubishi Outlander PHEV tengiltvinnbíllinn hefur selst eins og heitar lummur. Hann er ýmsum kostum búinn.
Morgunblaðið/Valli
Jóhann Ingi Magnússon segir vinsældir e-Golf mögulega skýrast af því að útlitið er ekki of framúrstefnulegt.
Spennandi rafbílar eru væntanlegir á mark-
aðinn á næstu misserum og nefnir Jóhann
sérstaklega Audi e-tron quattro-jepplinginn
sem fer í forsölu í sumar og í framleiðslu í lok
árs. „Audi e-tron quattro er stærri en Audi
Q5-sportjeppinn en eingöngu rafdrifinn og á
að hafa allt að 500 km drægni. Hann er al-
vörujeppi á alla vegu, með fjórhjóladrif og
hátt undir hann, og ætti að falla mjög vel að
þörfum kröfuharðra Íslendinga.“
Jóhann bendir á að 500 km séu ákveðin
töfratala, enda fæstir sem kæra sig um að
aka svo mikið lengri vegalengd á einum degi,
þó að þeir gætu. „Jafnvel ef við gefum okkur
að drægnin verði eitthvað minni við íslensk
veður- og hitaskilyrði væri hægt að aka Audi
e-tron alveg áhyggjulaust frá Reykjavík til
Akureyrar.“
Á næsta ári kemur einnig á markað fyrsti
bíllinn í I.D. línu Volkswagen. „Til að byrja
með mun Volkswagen framleiða sex bíla sem
byggjast á I.D. grunnhönnuninni og koma
þeir á markað á árunum 2019 til 2025. Allir
verða þeir rafdrifnir en um er að ræða fyrstu
bílana sem Volkswagen smíðar sem rafbíla
frá grunni.“
I.D. bílarnir verða fjölbreyttir að stærð.
„Volkswagen „rúgbrauðið“ mun til dæmis
ganga í endurnýjun lífdaga sem I.D. Buzz og
einnig von á nýjum jeppa. I.D. Cross,“ segir
Jóhann. „Volkswagen mun halda áfram á
sömu braut og hefur gefið það út að fram til
ársins 2025 séu yfir 30 nýir rafmagns- og
tengiltvinnbílar væntanlegir og ætla þeir að
framleiða 150 þúsund.
Tölvuteikning frá Audi af e-tron quattro. Er þar á
ferðinni rafmagnsbíll sem virðist eins og hann-
aður fyrir þarfir hins dæmigerða Íslendings.
Audi e-tron með 500 km drægni