Morgunblaðið - 04.05.2018, Page 18

Morgunblaðið - 04.05.2018, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2018 Stefán Einar Stefánsson ses@mbl.is Þ að má með góðum rökum halda því fram að tvær tegundir rafbíla hafi breytt bílamarkaðnum til fram- búðar. Annars vegar er það Model S- bíllinn sem Tesla og Elon Musk kynntu fyrir heiminum fyrir sex árum og hins vegar Nissan Leaf sem runnið hefur hljóðlaust um götur heimsins frá árinu 2010. Fyrrnefndi bíllinn hefur haft gríðarleg áhrif á alla umræðu um rafbílaþróunina og hefur þótt skara fram úr á flestum sviðum, bæði hvað hönnun varðar, fegurð, afl og aðrar tækninýj- ungar. Segja má að Elon og félagar hans hjá Tesla hafi farið í þveröfuga átt við flest aðra framleiðendur rafbíla og ákveðið að gera bílinn eftirsóknarverðan af mörgum öðrum ástæðum en þeim sem snúa að umhverfisvernd og hag- kvæmni. Tesla hefur fyrir löngu orðið stöðu- tákn meðal hinna ríku og frægu. Þannig hefur tegundin komið rafbílaframleiðslunni á kortið hjá flestum og þannig rutt brautina fyrir hinni nýju tækni meðal almennings. Almenningur kemst að borðinu En á sama tíma og Teslan hefur valdið hug- hrifum meðal bílaáhugafólks hefur Nissan rutt brautina gagnvart þeim sem dreymt hefur um að stíga skrefið og eignast tæki sem aðeins er knúið hreinu rafmagni. Verðmiðinn á bílunum frá Elon Musk hefur ekki verið á hvers manns færi, svo vægt sé til orða tekið, en Nissan hefur lagt upp með að verðleggja framleiðslu sína í efri mörkum þess sem almenningur hefur haft ráð á. Það hefur þeim tekist, án þess að veita afslátt af gæðum, sem reynst hefur helsta vopnið í þeirri baráttu að sannfæra fólk um að rafbílar séu raunhæfur kostur. Þegar Nissan kynnti fyrstu kynslóðina af Leaf árið 2010 voru margir úrtölumenn sem sögðu að rafhlöðurnar myndu ekki endast og að vandamálin sem fylgdu nýrri tækni af þessu tagi yrðu svo yfirgripsmikil að eigendur Laufs- ins yrðu að eiga tvö eintök, annað til notkunar og hitt til að geyma á verkstæði. Það er skemmst frá því að segja að hinar neikvæðu raddir eru flestar þagnaðar með öllu. Raunar afsannaði framleiðandinn þá spádóma að raf- hlöðurnar myndu ekki endast þannig að undr- um sætir. Sú saga hefur verið sögð af forsvars- mönnum BL á Íslandi að þeir hafi sent menn utan til að læra inn á hvernig best væri staðið að því að gera við gallaðar rafhlöður í bílunum. Kostnaður sem fylgdi þeirri utanför var all- nokkur. Sú námsför reyndist fyrirtækinu hins vegar dýr, ekki vegna dagpeninga eða óvæntra fjárútláta, heldur vegna þess að lítið sem ekk- ert hefur þurft að grípa til þeirrar þekkingar sem þar var sótt til framleiðandans. Nýtt og „venjulegra“ útlit Þegar reynsla er komin á nýja tækni hefur hún annað tveggja, sannað sig eða brugðist. Tækn- in sem Nissan kynnti með Laufinu árið 2010 hefur staðist skoðun. En um smekk má deila endalaust og margir hafa deilt á sérstætt útlit bílsins sem sker sig alls staðar úr. Hefur Niss- an, fram til þessa, fallið í þá gryfju eins og fleiri framleiðendur rafbíla, að undirstrika hina tæknilegu sérstöðu með útliti sem menn tengja helst við geimferðir eða önnur skringilegheit. En nú hefur Nissan komið á óvart og kynnt á markaðinn nýtt Lauf sem sver sig mun meira í ætt við hina hefðbundnu línu sem m.a. stend- ur saman af X-Trail, Qashqai, MIcra og Pulsar, en fyrstu kynslóðinni sem enn um sinn mun þó vera mjög fyrirferðarmikil á götunum. Með því færir framleiðandinn sig inn á stærra svið og höfðar til mun fleiri mögulegra kaupenda en fyrsta kynslóðin gerði. Nú kunna áhugasamir kaupendur að kaupa bílinn, beinlínis vegna út- litsins, meðan flestir létu sér lynda við útlitið áður sökum þeirrar tækni og þeirra eiginleika sem bíllinn bauð upp á, þrátt fyrir hið sér- kennilega útlit sitt. Það eru góð tíðindi fyrir alla þá sem vilja hlutdeild rafbíla á götunum sem mesta. Drægnin er áfram helsta áskorunin Þegar Nissan kynnti Laufið fyrst til sögunnar var bíllinn búinn 24 kWh rafhlöðu og var sagt að raundrægni bílsins væri allt að 175 kíló- metrar. Drægnin var þó, ekki síst á norð- lægum slóðum nær 100-110 km. Framfarir við framleiðslu rafhlaða hafa aukið nokkuð drægni fyrrnefndrar rafhlöðu en framleiðandinn tók annað og mikilvægara skref árið 2016 þegar hann kynnti til sögunnar 30 kWh rafhlöðu sem jók raundrægnina í u.þ.b. 150 km. Stóra Morgunblaðið/Valli Nýtt útlit Nissan Leaf hefur komið mörgum skemmtilega á óvart enda sker bíllinn sig ekki lengur jafn mikið úr í umferðinni. Þykir hann nú rennilegri og höfða til stærri hóps væntanlegra kaupenda en fyrri kynslóð. Bíllinn sem breytti heiminum Ný kynslóð Nissan Leaf er nú farin að sjást á götunum og hefur hún vakið mikla hrifn- ingu víða, rétt eins og fyrsta kynslóðin sem einfaldlega breytti því hvernig fólk hugsar um rafbíla. Hlið við hlið má finna „ECO“-hnappinn og þann sem virkjar E-pedalann. Hvor um sig hefur að geyma leið til að spara orku og einfalda aksturinn nokkuð. Dálítinn tíma tekur að venjast síðarnefnda búnaðinum. Afturhluti Laufsins þykir afar vel heppnaður og er hann gjörbreyttur frá fyrri kynslóð sömu tegundar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.