Fréttablaðið - 23.06.2018, Qupperneq 41
Íþróttafræðingar
Starfsfólk í móttöku
Heilsuborg vill bæta við sig metnaðarfullum íþrótta-
fræðingum. Annars vegar er um að ræða tvær 100%
stöður, hins vegar leitum við að íþróttafræðingum til að
sinna hóp- og einstaklingsþjálfun sem verktakar.
Við leitum að jákvæðum, lausnamiðuðum og
samvinnufúsum íþróttafræðingum, því um er að ræða
þverfaglegt og fjölbreytt starf. Reynsla af hópþjálfun
er kostur. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf
1. september.
Nánari upplýsingar veitir Bára Sigurbjörg Ólafsdóttir
fagstjóri hreyfingar í Heilsuborg í síma 849-5453.
Umsóknir sendist á bara@heilsuborg.is fyrir 1. júlí.
Starfið felst í móttöku viðskiptavina sem sækja fjölbreytta
þjónustu Heilsuborgar og samskiptum við þá, símsvörun
og afgreiðslu símtala, ásamt öðrum tilfallandi verkefnum í
samráði við yfirmann. Í boði eru eftirfarandi vinnutímar:
· Morgunhanar vakt frá 5.45- 13.45
· Dagvakt 8-16 eða 9-17
· Kvöld- og helgarvaktir virk kvöld 16-21, laugard.
7-45-15.30, sunnud. 9.45-14.15
Við leitum að starfsfólki sem hefur reynslu af skrifstofu-
störfum og góða almenna tölvukunnáttu, býr yfir skipu-
lagshæfileikum og á auðvelt með að hafa yfirsýn yfir
verkefni sín. Sveigjanleiki, jákvæðni og vinnugleði eru
mikils metnir eiginleikar, sem og sjálfstæði og frumkvæði
í starfi, snyrtimennska og stundvísi. Það er kostur að
hafa reynslu af því að vinna með Navision, Sögukerfið
eða Gagna. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf eftir
verslunarmannahelgi.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Berglind Elva
Tryggvadóttir þjónustustjóri Heilsuborgar í síma 860-1199.
Umsóknir sendist á netfangið berglind@heilsuborg.is
fyrir 1. júlí.
Viltu starfa á einstökum vinnustað?
Bíldshöfði 9 / Höfðinn / 110 Reykjavík / Sími 560 1010 / heilsuborg@heilsuborg.is
Heilbrigð sál í
hraustum líkama
heilsuborg.is
Heilsuborg er sá staður sem fólk leitar til þegar
það vill koma í veg fyrir heilsubrest, öðlast aukna
vellíðan eða vinna með heilsuverkefni sem upp
koma. Fyrirtækið er einstakt, enginn á Íslandi býður
hliðstæða þjónustu.
Hjá Heilsuborg starfar samhentur hópur
starfsmanna að því markmiði að bæta heilsu
og lífsgæði viðskiptavinanna. Fagmennska og
virðing eru höfð að leiðarljósi í starfseminni.
Starfsumhverfið er frjótt og stöðugt er
leitað nýrra leiða til að þjóna viðskiptavinum
sem best. Allir sérfræðingar Heilsuborgar
eru með háskólamenntun í sínu fagi. Hjá
Heilsuborg starfa m.a. hjúkrunarfræðingar,
læknar, næringarfræðingar, félagsfræðingur,
íþróttafræðingar, sjúkraþjálfarar, sálfræðingar,
og ástríðukokkur.
Heilsuborg hefur nýlega komið sér fyrir í nýju
sérinnréttuðu húsnæði á Bíldshöfða 9. Starfsmenn
eru um 90 talsins.
Laus er til umsóknar staða hjúkrunarfræðings við
Sjúkrahúsið Vog að Stórhöfða 45. Starfshlutfall er
samkomulagsatriði. Um er að ræða þrískiptar vaktir og
unnið aðra til þriðju hverja helgi. Næturvaktir eru hluti af
starnu en einnig kemur til greina að ráða hjúkrunar-
fræðing sem vinnur eingöngu næturvaktir. Staðan er laus
frá 1. ágúst 2018.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hjúkrun sjúklinga í afeitrun
Þátttaka í teymisvinnu ásamt sjúkraliðum, áfengis- og
vímuefnaráðgjöfum, sálfræðingum og læknum
Menntun og hæfniskröfur
Kjör fara eftir kjarasamningi SFV og Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga. Umsóknum ásamt upplýsingum um
menntun og starfsferil skal skilað á Sjúkrahúsið Vog,
Stórhöfða 45, 110 Reykjavík, merkt: Hjúkrunarfræðingur
eða í tölvupósti á netfangið thora@saa.is eigi síðar en
1. ágúst 2018.
Nánari upplýsingar veitir
Þóra Björnsdóttir, framkvæmdastjóri
hjúkrunar á Sjúkrahúsinu Vogi í síma
530 7600, netfang: thora@saa.is
Hjúkrunarfræðingar
Réttindi til að starfa sem hjúkrunarfræðingur á Íslandi
Áhugi á hjúkrun áfengis- og vímuefnasjúklinga
Góð færni í mannlegum samskiptum og skipulögð
vinnubrögð
Starf verkefnastjóra gæðamála í Kjaradeild
Fjármálaskrifstofa/Kjaradeild
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og
að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Kjaradeild sinnir launavinnslu Reykjavíkurborgar og hefur eftirlit með framkvæmd kjarasamninga. Deildin ber ábyrgð á túlkun kjarasamninga
og fer með fyrirsvar þeirra mála gagnvart viðsemjendum og aðilum vinnumarkaðar. Deildin sinnir auk þess ráðgjöf á sviði kjarasamninga
innan Reykjavíkurborgar og hefur umsjón með og ber ábyrgð á launa- og mannauðsupplýsingakerfi borgarinnar og þróun þess.
Hjá Kjaradeild starfa 29 starfsmenn og hefur deildin aðsetur að Borgartúni 12.
Óskað er eftir öflugum starfsmanni til starfa við gæðamál í tengslum við launavinnslu Reykjavíkurborgar.
Um er að ræða verkefni við gerð gæðahandbókar, viðhaldi hennar, innleiðingu, eftirfylgni ásamt innri úttektum og umbótaverkefnum
tengdum gæðamálum kjaradeildar. Starfið felur einnig í sér verkefnastjórn í verkefnum á vegum deildarinnar.
Þátttaka í starfshópum, þróunarverkefnum og samstarfshópum fyrir hönd deildarinnar.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir mikilli samskiptahæfni, sýnir frumkvæði og hefur tileinkað sér sjálfstæð vinnubrögð.
Helstu verkefni:
• Mótun og uppbygging gæðamála launavinnslu kjaradeildar
• Umsjón með gerð, viðhaldi og þróun gæðakerfis innan
launavinnslu
• Umsjón með gerð, viðhaldi og þróun vinnuhandbókar
vegna launavinnslu
• Innleiðing gæðaskjala og verkferla
• Eftirfylgni og úrlausn ábendinga
• Innleiðing innri úttekta
• Fræðsla og þjálfun vegna gæðamála
• Upplýsingagjöf og skýrslugerð
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla af verkefnastjórnun og gæðastjórnun
• Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Góðir samskiptahæfileikar, þjónustulund og lipurð í
mannlegum samskiptum
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um
starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf
Umsóknarfrestur er til og með 9. júlí 2018.
Nánari upplýsingar veitir Atli Atlason, deildarstjóri kjaradeildar í netfangi atli.atlason@reykjavik.is
ATVINNUAUGLÝSINGAR 13 L AU G A R DAG U R 2 3 . J Ú N Í 2 0 1 8
2
3
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
3
6
-F
2
3
8
2
0
3
6
-F
0
F
C
2
0
3
6
-E
F
C
0
2
0
3
6
-E
E
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
8
0
s
_
2
2
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K