Fréttablaðið - 12.07.2018, Blaðsíða 12
Herðubreið, oft nefnd drottning íslenskra fjalla, er eitt fegursta fjall á Íslandi. Fjallið sést víða að enda trónir 1.682 metra hár tindurinn upp úr auðninni í kring. Margir Íslendingar þekkja fjallið af
myndum, ekki síst á óteljandi verkum eftir Stefán frá
Möðrudal, sem jafnan kallaði sig Stórval.
Ekki eru allir sem vita að aðeins er ein fær
gönguleið upp fjallið, eða úr vestri. Auðveldast er
að komast að uppgöngustaðnum úr suðaustri frá
Herðubreiðartöglum. Er þá ekið eftir jeppaslóða
að frumstæðu bílastæði við jaðar Ódáðahrauns í
500 metra hæð. Þetta er krefjandi ganga en fá fjöll
er skemmtilegra að klífa enda stórkostlegt útsýni
af toppnum, meðal annars til Snæfells, Kverkfjalla,
Dyrfjalla, Holuhrauns, Dyngjufjalla, Trölladyngju og
Kollóttudyngju.
Flest vant göngufólk ætti að ráða við verkefnið
sem tekur um 5-6 klukkustundir. Gangan í gegnum
klettabeltið er þó ekki fyrir lofthrædda. Mesta
hættan stafar af grjóthruni, einkum á heitum dögum.
Því er nauðsynlegt að hafa hjálm á höfði og hafa
meðferðis mannbrodda, ísöxi, göngubelti og línu.
Skynsamlegt er að staðkunnugur sé með í för sem og
staðsetningartæki. Veður í þessari hæð getur breyst
skyndilega og þá getur orðið erfitt að finna niður-
leiðina. Kostur er að vera ekki of mörg á ferð til að
minnka hættu á grjótlosi á leiðinni upp klettabeltið.
Annað leyndarmál sem okkur langar til að ljóstra
upp um drottninguna er að á kolli hennar er sérlega
tilkomumikil gígskál. Síðari hluta sumars
skartar hún ísjökum sem mara í blágrænu
leysingavatni og minnir á abstrakt mál-
verk. Aðstæður til að ganga á Herðubreið
hafa sjaldan verið betri. Það var sannreynt
um liðna helgi. Haldi sólarleysið áfram
sunnanlands er því margt vitlausara
en að skála við Herðubreið – og af
hverju ekki á toppnum.
Skál fyrir
drottningunni
Vinskafið ský vakir yfir drottningunni. Herðubreiðartögl í forgrunni. frettablaðið/sigtryggur
Hópurinn kemur niður af fjallinu. frettablaðið/sigtryggur
ríflega tuttugu manna hópur gekk á fjallið um síðustu
helgi. Hér er hluti hópsins. Mynd/tóMas guðbjartsson
toppgíg Herðubreiðar er aðeins hægt að berja augum af
gígbarminum. Mynd/ólafur Már
Útsýnið af toppi fjallsins kemur mörgum á óvart, ekki síður ofan í gíg fjallsins en vítt og breitt yfir norðaustur-hálendið. frettablaðið/sigtryggur
Sjá nánar á
Fréttablaðið+
Lengri umfjöllun má
lesa á frettabladid.is.
Náttúrulega Ísland
tómas guð-
bjartsson
læknir og nátt-
úruunnandi og
sigtryggur ari
jóhannsson ljós-
myndari fjalla
um sérstæðar
perlur í íslenskri
náttúru.
Göngu á
Herðubreið
má líkja við
kennslu-
stund í
jarðfræði en
á leiðinni
upp sökkul-
inn og
klettabeltið
má sjá helstu
skrefin í
myndun
fjallsins, sem
er svokall-
aður stapi
sem verður
til við gos
undir jökli.
1 2 . j ú l í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R12 F R é T T I R ∙ F R é T T A B l A ð I ð
1
2
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:5
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
5
E
-C
D
9
0
2
0
5
E
-C
C
5
4
2
0
5
E
-C
B
1
8
2
0
5
E
-C
9
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K