Fréttablaðið - 12.07.2018, Blaðsíða 19
Hann vann stundum lengi fram
eftir nema hann tæki vinnuna
með sér heim. Á einni slíkri vakt
þegar hann sat við vinnu sína
í Efnahagsstofnun eftir lokun
hringdi síminn, hann svaraði og
þar var þá kona í öngum sínum,
hún þurfti að láta hreinsa káp-
una sína fyrir morgundaginn og
var búin að hringja í allar hinar
efnalaugarnar.
Reykjavík – Þeir gátu verið skemmilegir kaffitímarnir í Fram-kvæmdastofnun ríkisins í gamla
daga. Þetta var á vinstristjórnarárunum
1971-1974, Ólafur Jóhannesson var
forsætisráðherra og Hannibal Valdi-
marsson og Lúðvík Jósepsson, gamlar
kempur að vestan og austan, sátu með
honum í ríkisstjórn ásamt öðrum.
Morgunblaðið hafði allt á hornum sér
og þá einnig þessa voðalegu stofnun við
Rauðarárstíginn í Reykjavík sem annað-
ist m.a. áætlanagerð og hagskýrslugerð
fyrir ríkisstjórnina. Þar var ég í tvígang
sumarmaður á námsárum mínum í
útlöndum eins og ég hafði áður verið í
Seðlabankanum til að læra á reipin eins
og enskir sjómenn myndu segja.
Þarna störfuðu margir ungir og vaskir
hagfræðingar sem of langt yrði upp að
telja hér og áttu eftir að verða hagstofu-
stjórar, ráðherrar, ráðuneytisstjórar
o.fl. Reyndastur í hópnum og geislandi
af glaðværð frá morgni til kvölds var
Bjarni Bragi Jónsson. Ég vissi að hann
var lífsglaður að lundarfari því eldri
sonur hans, Jón Bragi Bjarnason, efna-
fræðingur og síðar prófessor, var vinur
okkar Vilmundar bróður míns, glaðvær
alvörumaður í góðum hlutföllum. Þeir
feðgar, Bjarni Bragi og Jón Bragi, báru
hvor af öðrum.
Hvernig var það nú aftur þetta lag
eftir Schubert? átti Bjarni Bragi til
að spyrja yfir eftirmiðdagskaffinu
á Rauðarárstígnum og syngja síðan
lagið. Svona eiga hagfræðingar að
vera, hugsaði ég. Hann söng í Pólífón-
kórnum um langt árabil. Hann vann
stundum lengi fram eftir nema hann
tæki vinnuna með sér heim. Á einni
slíkri vakt þegar hann sat við vinnu
sína í Efnahagsstofnun eftir lokun
hringdi síminn, hann svaraði og þar var
þá kona í öngum sínum, hún þurfti að
láta hreinsa kápuna sína fyrir morgun-
daginn og var búin að hringja í allar
hinar efnalaugarnar.
Umbrot eftir 1960
Áður en ég kynntist honum fyrst í
Framkvæmdastofnun ríkisins hafði
Bjarni Bragi starfað í Framkvæmda-
banka Íslands með dr. Benjamín Eiríks-
syni, fyrsta íslenzka hagfræðingnum
sem lauk doktorsprófi utan Þýzkalands,
og í Efnahagsstofnun með Jónasi Haralz
og hafði verið forstjóri hennar um
skeið. Bjarni hafði stundað framhalds-
nám í hagfræði í Cambridge-háskóla
á Englandi og starfað hjá Efnahags- og
framfarastofnuninni (OCED) í París.
Hann var eftir því víðsýnn og lagði
margt gott og gagnlegt til þeirrar líflegu
umræðu sem fram fór fyrir opnum
tjöldum árin eftir myndun viðreisnar-
stjórnarinnar 1960. Umræðuefnið var
frekari frívæðing efnahagslífsins og
hugsanleg þátttaka Íslands í efnahags-
samvinnu Evrópuþjóða sem voru þá
smám saman að rífa sig upp úr rústum
heimsstyrjaldarinnar. Þarna voru lögð
frumdrög að inngöngu Íslands í EFTA
1970 og á Evrópska efnahagssvæðið
(EES) 1994.
Bjarni Bragi tók strax 1962 að lýsa
þeirri skoðun að bezta leiðin til að
stýra fiskveiðum við Ísland og stuðla
að heilbrigðu sambýli sjávarútvegs og
annarra atvinnuvega væri með veiði-
gjaldi sem hann kallaði auðlindaskatt
eins og þá tíðkaðist. Þetta voru þau ár
þegar skattar þóttu eðlilegur fylgifiskur
eða jafnvel forsenda nauðsynlegrar
uppbyggingar eftir stríð, m.a. til að efla
almannatryggingar og aðra innviði.
Síðar var bent á að orðið „gjald“ á betur
við hér en „skattur“ þar eð gjald er
bein greiðsla fyrir veitta þjónustu, t.d.
réttinn til að veiða lax eða þorsk, en
skattur er greiddur óbeint fyrir opin-
bera þjónustu. Eigandi laxveiðiár eða
leiguíbúðar leggur ekki skatt heldur
gjald á gesti sína.
Bjarni Bragi flutti sögufrægt erindi
um málið á 22. ársfundi norrænna hag-
fræðinga í Reykjavík 1975. Seðlabanki
Íslands birti ritgerð hans um málið í
Fjármálatíðindum bæði á dönsku og
íslenzku síðar sama ár ásamt lofsam-
legum ummælum tveggja norrænna
hagfræðinga, Norðmanns og Svía.
Bjarni skildi að boðskap sem þennan
flytur maður ekki einu sinni heldur
aftur og aftur. Hann lét sitt ekki eftir
liggja. Margir aðrir embættismenn og
hagfræðingar utan stjórnsýslunnar
tóku undir sjónarmið hans, sjónarmið
sem yfirgnæfandi hluti (83%) kjósenda
gerði að sínu sjónarmiði í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni 2012 með því að lýsa
stuðningi við stjórnarskrárákvæði um
auðlindir í þjóðareigu.
Rödd hans mun óma áfram
Að loknu verki í Framkvæmdastofnun
flutti Bjarni Bragi starfsvettvang sinn í
Seðlabankann þar sem hann var fyrst
hagfræðingur bankans, síðan aðstoðar-
bankastjóri og loks hagfræðilegur ráðu-
nautur bankastjórnar. Seðlabankinn
gerði sjónarmið Bjarna Braga og margra
annarra hagfræðinga bankans í auð-
lindamálinu ekki að sínu sjónarmiði,
a.m.k. ekki opinskátt, enda þótt vel
útfært veiðigjald hefði gert bankanum
auðveldara fyrir í viðureigninni við
þráláta verðbólgu með því að styrkja
ríkisfjármálin. Stöðugt verðlag er annað
tveggja lögbundinna markmiða Seðla-
bankans; hitt er stöðugt fjármálakerfi.
Seðlabankinn hefði náð betri árangri
hefði hann fylgt ráðum Bjarna Braga
Jónssonar í fiskveiðistjórnarmálinu.
Rödd Bjarna Braga mun óma áfram
þótt hann sé nú fallinn frá næstum
níræður að aldri. Við sem yngri erum
kunnum mörg að meta stuðning hans
við baráttuna fyrir hagkvæmara, betra
og réttlátara efnahagslífi um landið.
Minning um Bjarna Braga
Þorvaldur
Gylfason
Í dag
Ertu til?
4G þjónusta í sérflokki Framtíðin er spennandi.
Öflugt samband
á ferðinni í sumar
4G háhraðanet Vodafone nær til helstu byggðakjarna og sumarhúsasvæða um
land allt. Þú missir ekki af neinu í sumarhúsinu eða á ferðalögum innanlands.
Kynntu þér málið í næstu verslun, á vodafone.is eða hjá umboðsaðilum
okkar um land allt.
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 19F i M M T u d a g u R 1 2 . j ú L Í 2 0 1 8
1
2
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:5
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
5
E
-D
7
7
0
2
0
5
E
-D
6
3
4
2
0
5
E
-D
4
F
8
2
0
5
E
-D
3
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K