Fréttablaðið - 12.07.2018, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 12.07.2018, Blaðsíða 19
Hann vann stundum lengi fram eftir nema hann tæki vinnuna með sér heim. Á einni slíkri vakt þegar hann sat við vinnu sína í Efnahagsstofnun eftir lokun hringdi síminn, hann svaraði og þar var þá kona í öngum sínum, hún þurfti að láta hreinsa káp- una sína fyrir morgundaginn og var búin að hringja í allar hinar efnalaugarnar. Reykjavík – Þeir gátu verið skemmilegir kaffitímarnir í Fram-kvæmdastofnun ríkisins í gamla daga. Þetta var á vinstristjórnarárunum 1971-1974, Ólafur Jóhannesson var forsætisráðherra og Hannibal Valdi- marsson og Lúðvík Jósepsson, gamlar kempur að vestan og austan, sátu með honum í ríkisstjórn ásamt öðrum. Morgunblaðið hafði allt á hornum sér og þá einnig þessa voðalegu stofnun við Rauðarárstíginn í Reykjavík sem annað- ist m.a. áætlanagerð og hagskýrslugerð fyrir ríkisstjórnina. Þar var ég í tvígang sumarmaður á námsárum mínum í útlöndum eins og ég hafði áður verið í Seðlabankanum til að læra á reipin eins og enskir sjómenn myndu segja. Þarna störfuðu margir ungir og vaskir hagfræðingar sem of langt yrði upp að telja hér og áttu eftir að verða hagstofu- stjórar, ráðherrar, ráðuneytisstjórar o.fl. Reyndastur í hópnum og geislandi af glaðværð frá morgni til kvölds var Bjarni Bragi Jónsson. Ég vissi að hann var lífsglaður að lundarfari því eldri sonur hans, Jón Bragi Bjarnason, efna- fræðingur og síðar prófessor, var vinur okkar Vilmundar bróður míns, glaðvær alvörumaður í góðum hlutföllum. Þeir feðgar, Bjarni Bragi og Jón Bragi, báru hvor af öðrum. Hvernig var það nú aftur þetta lag eftir Schubert? átti Bjarni Bragi til að spyrja yfir eftirmiðdagskaffinu á Rauðarárstígnum og syngja síðan lagið. Svona eiga hagfræðingar að vera, hugsaði ég. Hann söng í Pólífón- kórnum um langt árabil. Hann vann stundum lengi fram eftir nema hann tæki vinnuna með sér heim. Á einni slíkri vakt þegar hann sat við vinnu sína í Efnahagsstofnun eftir lokun hringdi síminn, hann svaraði og þar var þá kona í öngum sínum, hún þurfti að láta hreinsa kápuna sína fyrir morgun- daginn og var búin að hringja í allar hinar efnalaugarnar. Umbrot eftir 1960 Áður en ég kynntist honum fyrst í Framkvæmdastofnun ríkisins hafði Bjarni Bragi starfað í Framkvæmda- banka Íslands með dr. Benjamín Eiríks- syni, fyrsta íslenzka hagfræðingnum sem lauk doktorsprófi utan Þýzkalands, og í Efnahagsstofnun með Jónasi Haralz og hafði verið forstjóri hennar um skeið. Bjarni hafði stundað framhalds- nám í hagfræði í Cambridge-háskóla á Englandi og starfað hjá Efnahags- og framfarastofnuninni (OCED) í París. Hann var eftir því víðsýnn og lagði margt gott og gagnlegt til þeirrar líflegu umræðu sem fram fór fyrir opnum tjöldum árin eftir myndun viðreisnar- stjórnarinnar 1960. Umræðuefnið var frekari frívæðing efnahagslífsins og hugsanleg þátttaka Íslands í efnahags- samvinnu Evrópuþjóða sem voru þá smám saman að rífa sig upp úr rústum heimsstyrjaldarinnar. Þarna voru lögð frumdrög að inngöngu Íslands í EFTA 1970 og á Evrópska efnahagssvæðið (EES) 1994. Bjarni Bragi tók strax 1962 að lýsa þeirri skoðun að bezta leiðin til að stýra fiskveiðum við Ísland og stuðla að heilbrigðu sambýli sjávarútvegs og annarra atvinnuvega væri með veiði- gjaldi sem hann kallaði auðlindaskatt eins og þá tíðkaðist. Þetta voru þau ár þegar skattar þóttu eðlilegur fylgifiskur eða jafnvel forsenda nauðsynlegrar uppbyggingar eftir stríð, m.a. til að efla almannatryggingar og aðra innviði. Síðar var bent á að orðið „gjald“ á betur við hér en „skattur“ þar eð gjald er bein greiðsla fyrir veitta þjónustu, t.d. réttinn til að veiða lax eða þorsk, en skattur er greiddur óbeint fyrir opin- bera þjónustu. Eigandi laxveiðiár eða leiguíbúðar leggur ekki skatt heldur gjald á gesti sína. Bjarni Bragi flutti sögufrægt erindi um málið á 22. ársfundi norrænna hag- fræðinga í Reykjavík 1975. Seðlabanki Íslands birti ritgerð hans um málið í Fjármálatíðindum bæði á dönsku og íslenzku síðar sama ár ásamt lofsam- legum ummælum tveggja norrænna hagfræðinga, Norðmanns og Svía. Bjarni skildi að boðskap sem þennan flytur maður ekki einu sinni heldur aftur og aftur. Hann lét sitt ekki eftir liggja. Margir aðrir embættismenn og hagfræðingar utan stjórnsýslunnar tóku undir sjónarmið hans, sjónarmið sem yfirgnæfandi hluti (83%) kjósenda gerði að sínu sjónarmiði í þjóðarat- kvæðagreiðslunni 2012 með því að lýsa stuðningi við stjórnarskrárákvæði um auðlindir í þjóðareigu. Rödd hans mun óma áfram Að loknu verki í Framkvæmdastofnun flutti Bjarni Bragi starfsvettvang sinn í Seðlabankann þar sem hann var fyrst hagfræðingur bankans, síðan aðstoðar- bankastjóri og loks hagfræðilegur ráðu- nautur bankastjórnar. Seðlabankinn gerði sjónarmið Bjarna Braga og margra annarra hagfræðinga bankans í auð- lindamálinu ekki að sínu sjónarmiði, a.m.k. ekki opinskátt, enda þótt vel útfært veiðigjald hefði gert bankanum auðveldara fyrir í viðureigninni við þráláta verðbólgu með því að styrkja ríkisfjármálin. Stöðugt verðlag er annað tveggja lögbundinna markmiða Seðla- bankans; hitt er stöðugt fjármálakerfi. Seðlabankinn hefði náð betri árangri hefði hann fylgt ráðum Bjarna Braga Jónssonar í fiskveiðistjórnarmálinu. Rödd Bjarna Braga mun óma áfram þótt hann sé nú fallinn frá næstum níræður að aldri. Við sem yngri erum kunnum mörg að meta stuðning hans við baráttuna fyrir hagkvæmara, betra og réttlátara efnahagslífi um landið. Minning um Bjarna Braga Þorvaldur Gylfason Í dag Ertu til? 4G þjónusta í sérflokki Framtíðin er spennandi. Öflugt samband á ferðinni í sumar 4G háhraðanet Vodafone nær til helstu byggðakjarna og sumarhúsasvæða um land allt. Þú missir ekki af neinu í sumarhúsinu eða á ferðalögum innanlands. Kynntu þér málið í næstu verslun, á vodafone.is eða hjá umboðsaðilum okkar um land allt. S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 19F i M M T u d a g u R 1 2 . j ú L Í 2 0 1 8 1 2 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :5 3 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 5 E -D 7 7 0 2 0 5 E -D 6 3 4 2 0 5 E -D 4 F 8 2 0 5 E -D 3 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.