Fréttablaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 15
Þorvaldur
Gylfason
Í dag Stokkhólmur – Svíar lögðu niður herskyldu 2010, svo friðvænlegt sýndist þeim ástandið í álfunni.
Sænski herinn varð þá atvinnuher,
þ.e. her sem enginn þurfti lengur að
ganga í gegn vilja sínum. Frelsi undan
herskyldu var og er enn megin-
reglan í Evrópu. Herir Breta og Frakka,
hryggjarstykkið í vörnum álfunnar,
eru atvinnuherir þar eð herskylda
var afnumin í Bretlandi 1963 og
Frakklandi 2001. Þjóðverjar afnámu
herskyldu 2011 þótt hún sé heimiluð
í stjórnarskrá landsins. Herir Dan-
merkur og Noregs eru atvinnuherir
að langmestu leyti. Finnland hefur
þá sérstöðu að finnskir karlmenn
18 ára og eldri þurfa að gegna her-
skyldu í næstum heilt ár og vera síðan
reiðubúnir til herþjónustu. Konur
eru velkomnar í finnska herinn þótt
herskyldan nái ekki til þeirra. Nábýlið
við Rússa, vetrarstríðið 1939-1940 og
framhaldsstríðið 1941-1944 bregða
birtu á þessa sérstöðu Finna.
Breytt viðhorf
Svíar tóku aftur upp herskyldu
2017. Það voru viðbrigði. Sænska
ríkisstjórnin gaf þá skýringu á
breytingunni að Rússar létu ófrið-
lega. Þeir höfðu innlimað Krímskaga
2014 – ólöglega segja Svíar, Nató,
Úkraínustjórn o.fl., löglega segja
Rússar. Nokkru áður hafði Viktor
Yanukovych, forseti landsins, horfið
skyndilega frá að staðfesta frágengið
samkomulag um viðskipti Úkraínu
við ESB, hrakizt úr embætti og flúið til
Rússlands þar sem hann hefur haldið
sig síðan. Hann bíður nú dóms fyrir
landráð í heimalandi sínu. Forseta-
bústað hans með einkadýragarði,
gullklósettum o.fl. hefur verið breytt
í safn. Úkraína er gerspillt. Forseti
landsins nú, Petro Poroshenko, var í
Panama-skjölunum, en þar fundust
að vísu mun færri Úkraínumenn en
Íslendingar.
Borgarastríð með aðild Rússa geisar
enn í austur-hluta Úkraínu. Áður
höfðu Rússar ráðizt á Georgíu 2008.
Rússneskar herþotur höfðu rofið
lofthelgi Svíþjóðar og flogið hættu-
lega nærri farþegaflugvélum SAS.
Sænska leyniþjónustan sagðist einnig
vita um árásir Rússa á tölvukerfi í
Svíþjóð, sams konar árásir og Eistar
höfðu orðið fyrir. Almenningur í Sví-
þjóð virtist líta málið sömu augum
og stjórnvöld. Meiri hluti sænskra
kjósenda 2014 var skv. skoðanakönn-
unum orðinn hlynntur inngöngu
Svíþjóðar í Nató.
Hver ber sökina?
Mönnum ber ekki saman um skýring-
una á þessum skyndilegu umskiptum.
Sumir kenna Rússum um eða réttara
sagt Pútín forseta og mönnum hans.
Aðrir skella skuldinni á Kanann.
Árin eftir 1991 þegar Kommúnista-
flokkurinn missti völdin í Sovétríkj-
unum og landið leystist upp í frum-
eindir sínar, 15 sjálfstæð ríki, þóttust
margir sjá hilla undir framfarir og
frið í stað kalds stríðs og stöðnunar
þar eystra. Margir töldu líklegt að
Rússar og aðrar þjóðir sem kommún-
isminn hafði haldið í fjötrum fátæktar
hlytu að fagna nýfengnu frelsi með
því að semja sig að háttum þeirra
þjóða – Bandaríkin, Kanada, Bretland,
Frakkland, Þýzkaland o.s.frv. – sem
höfðu náð miklu betri árangri með
markaðsbúskap og lýðræði. Hugsunin
var að nýfrjálsar þjóðir hlytu að neyta
lags. Til að flýta fyrir þeirri niðurstöðu
kölluðu sumir eftir nýrri Marshall-
aðstoð handa Rússum o.fl. í ljósi
reynslunnar af því hvernig Evrópa var
reist úr rústum heimsstyrjaldarinnar
síðari eftir 1945.
Versnandi samskipti
Bandaríkjastjórn hlýddi ekki þessu
kalli. Sumir töldu að Kaninn kærði sig
ekki um að hjálpa Rússum, betra þætti
að hafa Rússland veikt. Rússar létu
þetta ekki á sig fá framan af en þeir
segja nú margir að þeir hafi smám
saman komizt að þeirri niðurstöðu að
Kaninn væri ósannfærandi samherji.
Rússar fordæmdu sprengjuárásir Nató
á Júgóslavíu 1999 og sögðu þær brjóta
gegn alþjóðalögum. Nató-ríkin sögðu
árásirnar löglegar og nauðsynlegar
til að stöðva þjóðarmorð. Rússum
mislíkaði einnig að Eystrasalts- og
Austur-Evrópuríkjum skyldi veitt inn-
ganga í Nató. Kaninn á einfalt svar við
því atriði: Allar þessar þjóðir óskuðu
eftir inngöngu. Það var ekki hægt að
hafna umsóknum þeirra eftir það sem
á undan var gengið.
Samband Bandaríkjanna og Rúss-
lands er að sumu leyti verra nú en
í kalda stríðinu. Afskipti Rússa af
bandarísku forsetakosningunum 2016
– nauðvörn, myndu margir Rússar
segja – spilla ástandinu og það gera
einnig morð á rússneskum blaða-
mönnum, stjórnarandstæðingum o.fl.
og meðfylgjandi efnahagsþvinganir
gegn Rússum í mótmælaskyni af hálfu
Bandaríkjastjórnar. Bandaríkjamenn
kalla Rússland þjófræðisríki og benda
á ríkidæmi Pútíns forseta, Medvedevs
forsætisráðherra o.fl. stjórnmála-
manna og vina þeirra. Æ fleiri Banda-
ríkjamenn orða einnig eigið land við
fáveldi (e. oligarchy) enda hefur lýð-
ræði í Bandaríkjunum hrakað undan-
gengin ár. Mörgum þykja horfurnar
ískyggilegar.
Það sést langar leiðir
Trump Bandaríkjaforseti sætir rann-
sókn fyrir samskipti sín við Rússa,
samskipti sem John Brennan fv. for-
stjóri leyniþjónustunnar CIA kallar
næsta bæ við landráð. Aðrir benda á
að Trump forseti hafi verið í slagtogi
með rússnesku mafíunni í meira en 30
ár. Enn aðrir segja: Hlustið og horfið á
manninn! Hann er eins og Berlusconi.
Það sést á honum langar leiðir að
hann er gangster.
Hvað gat Kaninn gert?
Samband Bandaríkjanna og
Rússlands er að sumu leyti verra
nú en í kalda stríðinu. Afskipti
Rússa af bandarísku forseta-
kosningunum 2016 – nauð-
vörn, myndu margir Rússar
segja – spilla ástandinu og það
gera einnig morð á rússneskum
blaðamönnum, stjórnarand-
stæðingum o.fl. og meðfylgjandi
efnahagsþvinganir gegn Rússum
í mótmælaskyni af hálfu Banda-
ríkjastjórnar.
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 15F i M M T u d a g u R 2 3 . á g ú S T 2 0 1 8
2
3
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
A
1
-0
7
B
4
2
0
A
1
-0
6
7
8
2
0
A
1
-0
5
3
C
2
0
A
1
-0
4
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
2
2
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K