Fréttablaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 2
Veður Dálítil rigning eða skúrir um norðan- vert landið í dag en skýjað með köflum og úrkomulítið sunnan til. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Suðurlandi. sjá síðu 22 Skólar að fara á fullt Það styttist óðum í að börn landsins setjist á skólabekk á ný. Sem fyrr eru um tíu prósent nemenda að fara í skóla í fyrsta sinn og fyrir mörgum er stökkið úr leikskóla yfir í grunnskóla nokkuð stórt. Þessi mynd er frá skólasetningu í Laugarnesskóla en hún var í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Nýjar vörur frá geoSilica Kísill Íslenskt kísilsteinefni Recover Fyrir vöðva og taugar Renew Fyrir húð, hár og neglur Repair Fyrir bein og liði Fæst í öllum helstu apótekum, heilsuvöruverslunum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og vefverslun geoSilica. Nánari upplýsingar má fi nna á www.geosilica.is menning Alþjóðlega kvikmyndahá- tíðin RIFF verður haldin í 15. sinn dagana 27. september til 7. október. Þemað í ár eru Eystrasaltslöndin og verður heiðursgestur hátíðarinnar í ár leikstjórinn Jonas Mekas frá Lit- háen. „Eystrasaltslöndin halda upp á 100 ára sjálfstæðisafmæli sitt í ár og er það hluti af ástæðunni fyrir því að þau urðu fyrir valinu í ár, en þema hátíðarinnar er alltaf eitthvert land. Kvikmyndagerð á þessum slóðum hefur ef til vill ekki verið sinnt nóg en þau hafa þó verið að gera góða hluti,“ segir Börkur Gunnarsson, kynningarstjóri RIFF. „Við fáum til okkar þekktar kanónur úr kvikmyndagerð og þar á meðal Jonas Mekas sem hefur verið kallaður guðfaðir framúrstefnuk- vikmyndagerðar. Hann var aðal- töffarinn á sínum tíma og voru til dæmis bestu vinir hans Andy War- hol, John Lennon og Yoko Ono og einnig Salvador Dali. Hann var einn af þessum sem stunduðu Studio 54.“ Mekas flúði heimaland sitt í seinni heimsstyrjöldinni og eftir langt ferðalag endaði hann í Banda- ríkjunum, tæplega tvítugur. „Hann keypti sína fyrstu vél árið 1949, 16 mm vél. Það var enginn að gera neitt annað en línulega sögu á þessum tíma og reyna að komast í Holly- wood. Hann fór hins vegar að gera avant-garde myndir og heillaði meðal annars Warhol og fleiri. Hann verður svo ákveðin hetja í þessum hópi listamanna og fara þeir að drekka saman og skapa eitthvað á meðan,“ segir Börkur og hlær. „Það verður áhugavert að fá hann hingað til landsins.“ Mekas hefur marga fjöruna sopið enda  95 ára gamall á árinu. Ferill hans hefur verið viðburðaríkur og eru myndir hans margvíslegar. Hann er þó líklega þekktastur fyrir að gera svokallaðar „dagbókar- myndir“ sem samanstanda af mynd- skeiðum úr hversdagslífi hans. Þá gerði Mekas myndina Andvökunæt- ur sem kom út 2011 þar sem Björk Guðmundsdóttir fór með hlutverk en myndin er innblásin af sögunni um 1001 nótt. Einnig kemur  hingað ti l lands leikstjórinn og handritshöf- undurinn Laila Pakalnina. Hún er fædd í Lettlandi og hefur fyrst og fremst einblínt á heimildarmynda- formið. „Pakalnina er ofboðslega vandaður leikstjóri og hefur alveg sérstakt lag á að segja stórar og margræðar sögur.“ RIFF fer alfarið fram í Bíói Paradís í ár. „Það er fínt því þarna erum við á sama stað allan tímann og margir salir í notkun í einu,“ segir Börkur. Miðasala á klippikortum og há- tíðar pössum er hafin á riff.is en form- leg miðasala hefst í byrjun septem- ber. gunnthorunn@frettabladid.is Heiðursgestur RIFF stundaði Studio 54 Litháíski leikstjórinn Jonas Mekas verður heiðursgestur RIFF í ár. Mekas er 95 ára gamall og talinn guðfaðir framúrstefnukvikmynda. Þemað á hátíðinni í ár eru Eystrasaltslöndin. Miðasala á hátíðina hefst formlega í byrjun september. Jonas Mekas leikstjóri mætir sprækur til leiks á RIFF í ár. NoRdIcPhoToS/GeTTY Það verður áhuga- vert að fá hann hingað til landsins. Börkur Gunnarsson, kynningarstjóri RIFF umHVeRFi Umhverfisstofnun hefur falið Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Suðurnesjum að rannsaka umfang örplastmengunar í kræk- lingi. Er þetta áfangi í því að leggja grunn að frekari rannsóknum á örplasti í hafinu og lífríki þess að því segir í frétt á heimasíðu Umhverfis- stofnunar. Sýnatökur hófust í sumar en þeim mun ljúka um miðjan næsta mánuð. Notast verður við greiningar- aðferðir úr norskri rannsókn sem gerð var á síðasta ári. Plastagnir verða flokkaðar eftir stærð í annars vegar örplast og hins vegar stærri plastagnir. Niðurstöður rannsóknarinnar eru væntanlegar fyrir árslok. Þær verða bornar saman við niður- stöður annarra landa sem beitt hafa sambærilegum aðferðum varðandi skelfisk. – sar Rannsaka örplastmengun í kræklingi HAFnARFjÖRðuR Læti urðu á bæjar- stjórnarfundi í Hafnarfirði í gær- kvöldi eftir að bæjarstjóri upplýsti að 100 milljónir hefðu þegar verið greiddar til efniskaupa fyrir nýtt knatthús FH. Fulltrúar minnihlutans segja að greiðslurnar hafi verið innt- ar af hendi í heimildarleysi en bæjar- stjórinn segir málið tilefnislaust. Guðlaug Svala Steinunnar Krist- jánsdóttir, fulltrúi Bæjarlistans, ritaði á Facebook í gær að hún hefði fengið staðfest að bæjarstjóri hafi greitt milljónirnar hundrað úr bæjarsjóði án þess að viðaukatillaga við fjárhagsáætlun hafi verið sam- þykkt. Adda María Jóhannsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, staðfesti frásögn Guðlaugar í sam- tali við Fréttablaðið í gær og sagði stöðuna vægast sagt sérstaka. Bæjarstjórinn, Rósa Guðbjarts- dóttir úr Sjálfstæðisflokki, segir hins vegar að útgjöldin hafi þegar verið samþykkt í fjárhagsáætlun fyrir árið 2018. Aðeins hafi verið breytt um aðferð, það er að farið hafi verið í eignaskipti á knatthúsum í stað þess að bærinn myndi byggja slíkt. Atvikið á fundinum í gær hafi verið uppþot og bendir Rósa á að Guðlaug hafi samþykkt áætlunina í fyrra. „Í fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar- bæjar fyrir árið 2018 voru 200 milljónir króna áætlaðar til upp- byggingar knattspyrnuaðstöðu á Kaplakrika,“ segir í bókun meiri- hlutans um málið. Afgreiðsla umrædds viðauka hefur verið kærð af minnihlutanum, sem telur pott brotinn í ferlinu, til samgöngu- og sveitarstjórnarráðu- neytisins. – jóe Telja greiðslur heimildarlausar Fyrsta skóflustungan var tekin um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/STeFÁN 2 3 . á g ú s t 2 0 1 8 F i m m t u D A g u R2 F R é t t i R ∙ F R é t t A B L A ð i ð 2 3 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :3 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 A 1 -0 2 C 4 2 0 A 1 -0 1 8 8 2 0 A 1 -0 0 4 C 2 0 A 0 -F F 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 5 6 s _ 2 2 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.