Fréttablaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 10
Ford Focus er fimur bíll enda þekktur fyrir frábæra aksturs- eiginleika og framúrskarandi gæði. Hann er ríkulega búinn, með fimm stjörnu öryggi, Bluetooth samskiptakerfi, leiðsögukerfi með Íslands- korti, nálægðarskynjurum, 8” snerti/litaskjá, My Key, upphitanlegri framrúðu o.fl. Aukabúnaður innifalinn: Dökkar rúður í farþegarými og málmlitur. Brimborg Reykjavík Bíldshöfða 6 Sími 515 7000 Brimborg Akureyri Tryggvabraut 5 Sími 515 7050 Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 FORD FOCUS FIMASTUR! ford.is Ford er frábær! Komdu, reynsluaktu og upplifðu Ford Focus FOCUS TREND EDITION 3.105.000 KR. TILBOÐSVERÐ: 2.695.000 KR. A F S L Á T T U R -410.000 KR. Ford_Focus_5x15_20180817_END.indd 1 17/08/2018 14:21 Fyrirtæki hafa gripið til uppsagna og verðhækkana til að mæta auknum kostnaði sem meðal annars kemur til vegna hárra launa í alþjóðlegum samanburði. Nú síðast upplýsti Ölgerðin að hún muni hækka verð á framleiðsluvörum um 2,9 prósent um miðjan september vegna verð- lagshækkana og launaþróunar. Það verður í annað sinn á árinu sem fyrirtækið hækkar verð en í byrjun árs nam hækkunin 3,9 prósentum, samanlagt er því hækkunin 6,8 pró- sent. Coca-Cola á Íslandi hækkaði verð á sínum framleiðsluvörum um 3,3 prósent 1. júlí síðastliðinn vegna innlendra kostnaðarhækkana, eins og það var orðað. Ólafur Stephensen, framkvæmda- stjóri Félags atvinnurekenda, segir að alþjóðleg samkeppnisstaða íslenskra framleiðslugreina fari versnandi vegna hás launakostnaðar. „Laun hafa hækkað skarpt á undanförnum árum. Forsvarsmenn fyrirtækja hafa beðið í lengstu lög með að velta kostnaðarhækkunum út í verðlagið og geta margir hverjir ekki beðið lengur. Það getur hver sem er séð að frekari launahækkanir sem ekki er innistæða fyrir munu fara beint út í verðlag,“ segir hann. Iðnaður á undir högg að sækja Ásgeir Jónsson, forseti hagfræði- deildar Háskóla Íslands, segir að almennt séð eigi iðnaður á Íslandi undir högg að sækja vegna síhækk- andi kostnaðar og samkeppni við innfluttar vörur. „Þekkt iðnaðar- fyrirtæki eins og Plastprent og Kassa- Framleiðendur grípa til verðhækkana Ölgerðin hefur hækkað verð um 6,8 prósent í ár vegna verð- lagshækkana og launaþróunar. FréttablaðIð/ anton brInk Erlendir framleiðendur þurfa líka að hækka verð Erlendis reyna framleiðendur einnig að hækka vöruverð í kjölfar hækkana á hrávörumörkuðum. Procter & Gamble, sem ÍSAM er með umboðið fyrir, hefur hækkað verð á bleyjum, klósettpappír og eldhúsrúllum í Bandaríkjunum um fjögur til fimm prósent. Coca- Cola hefur einnig hækkað verð vegna ýmissa kostnaðarhækkana, allt frá flutningi til áls. Whirlpool mun einnig fleyta tollahækk- unum á stáli og áli til neytenda. Þetta kemur fram í frétt Financial Times. Fyrirtæki á neytendavöru- markaði á borð við P&G, Unilever og Colgate-Palmolive hafa lengi átt erfitt með að fleyta auknum kostnaði í vöruverð vegna aukinn- ar samkeppni frá keppinautum á netinu og vegna þess að smásalar selja í auknum mæli ódýrari vörur undir eigin vörumerki. Ölgerðin og Coca Cola á Íslandi hafa nýverið hækkað verð. Forseti hagfræðideildar Há- skóla Íslands segir að almennt séð eigi iðnaður á Íslandi undir högg að sækja vegna síhækkandi kostnaðar. gerðin hafa horfið. Hátt gengi krónu og miklar launahækkanir á undan- förnum árum eru Þrándur í Götu þeirra.“ Að hans sögn eiga þau fyrirtæki sem framleiða þekkt vörumerk er njóta neytendatryggðar hægara um vik að fleyta kostnaðarhækk- unum í verðlag. „Þau fyrirtæki sem ekki framleiða vörur sem studd eru af þekktum vörumerkjum eiga í mestum erfiðleikum með að hækka verð. Þau fyrirtæki standa því veikar. Það kæmi mér ekki á óvart að í þessu árferði reyni fyrirtæki sem hafa markaðsvald í krafti þekktra vöru- merkja með neytendatryggð, eins og Ölgerðin og Vífilfell, að vinna með það,“ segir Ásgeir. Uppsagnir fyrirtækja Sigurður Hannesson, framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins, segir að mörg fyrirtæki hafi gripið til hag- ræðingaraðgerða og sagt upp starfs- fólki síðastliðið ár. Oddi sagði 86 starfsmönnum upp við upphaf árs þegar  fyrirtækið hætti innlendri framleiðslu á plast- og bylgjuum- búðum, CCP sagði upp 30 starfs- mönnum veturinn 2017 og Ölgerðin sagði upp 15 starfsmönnum fyrir um ári. „Um þessar mundir er gerð enn ríkari krafa um hagræðingu en áður. Hættan er sú að framleiðsla og störf fari úr landi ef þessi þróun heldur áfram, “ segir hann. Sigurður bendir á að íslensk framleiðslufyrirtæki eigi yfirleitt í erlendri samkeppni. Hvort sem það er í útflutningi eða í samkeppni við erlendar vörur hérlendis. Efnahags- legur óstöðugleiki og sveiflur í gengi krónu geri fyrirtækjum erfitt fyrir að skipuleggja reksturinn til lengri tíma. „Samspil launahækkana og gengisþróunar á undanförnum árum hafa gert það að verkum að kostn- Þekkt iðnaðarfyrir- tæki eins og Plast- prent og Kassagerðin hafa horfið. Ásgeir Jónsson, forseti Hagfræði- deildar Háskóla Íslands Forsvarsmenn fyrirtækja hafa beðið í lengstu lög með að velta kostnaðarhækkunum út í verðlagið og geta margir hverjir ekki beðið lengur með. Ólafur Stehensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnu- rekenda. Hættan er sú að framleiðsla og störf fari úr landi ef þessi þróun heldur áfram. Sigurður Hannesson, framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins aður hefur hækkað mikið. Laun mæld í erlendri mynt hafa hækkað gríðarlega og eru há í alþjóðlegum samanburði. Við bætist að skattar á fyrirtæki hérlendis eru háir í alþjóð- legum samanburði. Þar munar mestu um tryggingagjaldið sem er skattur á laun. Auk þess skapaði lágt raforkuverð hérlendis landinu sam- keppnisforskot en nú hefur dregið úr þeim mun. Þegar þetta leggst saman er myndin nokkuð skýr. Fyrirtæki verða að bregðast við með því að hækka verð eða fækka starfs- mönnum eins og kom raunar fram í könnun sem við gerðum meðal okkar félagsmanna.“ Það styttist í kjaraviðræður á milli launþegahreyfinga og atvinnulífs- ins. „Staðan er sú að það er lítið sem ekkert til atvinnurekenda að sækja,“ segir hann. Hækkaði um 65 prósent Raungengi krónu miðað við hlut- fallslegan launakostnað hækkaði um 65 prósent á árunum 2011 til 2017, samkvæmt gögnum frá Seðlabank- anum. Launakostnaður á framleidda einingu hækkaði um 33 prósent hér á landi á sama tímabili samanborið við níu prósent í OECD-ríkjunum. helgivifill@frettabladid.is marKaðurinn 2 3 . á g ú s t 2 0 1 8 F I M M t U D A g U R10 F R é t t I R ∙ F R é t t A B L A ð I ð 2 3 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :3 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 A 1 -3 9 1 4 2 0 A 1 -3 7 D 8 2 0 A 1 -3 6 9 C 2 0 A 1 -3 5 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 2 2 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.