Fréttablaðið - 23.08.2018, Page 10
Ford Focus er fimur bíll enda
þekktur fyrir frábæra aksturs-
eiginleika og framúrskarandi
gæði. Hann er ríkulega búinn,
með fimm stjörnu öryggi,
Bluetooth samskiptakerfi,
leiðsögukerfi með Íslands-
korti, nálægðarskynjurum,
8” snerti/litaskjá, My Key,
upphitanlegri framrúðu o.fl.
Aukabúnaður innifalinn:
Dökkar rúður í farþegarými
og málmlitur.
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar:
Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17
og laugardaga kl. 12-16
FORD FOCUS
FIMASTUR!
ford.is
Ford er frábær!
Komdu, reynsluaktu og upplifðu Ford Focus
FOCUS TREND EDITION
3.105.000 KR.
TILBOÐSVERÐ:
2.695.000 KR.
A F S L Á T T U R
-410.000 KR.
Ford_Focus_5x15_20180817_END.indd 1 17/08/2018 14:21
Fyrirtæki hafa gripið til uppsagna og
verðhækkana til að mæta auknum
kostnaði sem meðal annars kemur
til vegna hárra launa í alþjóðlegum
samanburði. Nú síðast upplýsti
Ölgerðin að hún muni hækka verð
á framleiðsluvörum um 2,9 prósent
um miðjan september vegna verð-
lagshækkana og launaþróunar. Það
verður í annað sinn á árinu sem
fyrirtækið hækkar verð en í byrjun
árs nam hækkunin 3,9 prósentum,
samanlagt er því hækkunin 6,8 pró-
sent. Coca-Cola á Íslandi hækkaði
verð á sínum framleiðsluvörum um
3,3 prósent 1. júlí síðastliðinn vegna
innlendra kostnaðarhækkana, eins
og það var orðað.
Ólafur Stephensen, framkvæmda-
stjóri Félags atvinnurekenda, segir að
alþjóðleg samkeppnisstaða íslenskra
framleiðslugreina fari versnandi
vegna hás launakostnaðar. „Laun
hafa hækkað skarpt á undanförnum
árum. Forsvarsmenn fyrirtækja hafa
beðið í lengstu lög með að velta
kostnaðarhækkunum út í verðlagið
og geta margir hverjir ekki beðið
lengur. Það getur hver sem er séð að
frekari launahækkanir sem ekki er
innistæða fyrir munu fara beint út í
verðlag,“ segir hann.
Iðnaður á undir högg að sækja
Ásgeir Jónsson, forseti hagfræði-
deildar Háskóla Íslands, segir að
almennt séð eigi iðnaður á Íslandi
undir högg að sækja vegna síhækk-
andi kostnaðar og samkeppni við
innfluttar vörur. „Þekkt iðnaðar-
fyrirtæki eins og Plastprent og Kassa-
Framleiðendur grípa til verðhækkana
Ölgerðin hefur
hækkað verð
um 6,8 prósent
í ár vegna verð-
lagshækkana og
launaþróunar.
FréttablaðIð/
anton brInk
Erlendir framleiðendur þurfa líka að hækka verð
Erlendis reyna framleiðendur
einnig að hækka vöruverð í kjölfar
hækkana á hrávörumörkuðum.
Procter & Gamble, sem ÍSAM er
með umboðið fyrir, hefur hækkað
verð á bleyjum, klósettpappír og
eldhúsrúllum í Bandaríkjunum
um fjögur til fimm prósent. Coca-
Cola hefur einnig hækkað verð
vegna ýmissa kostnaðarhækkana,
allt frá flutningi til áls. Whirlpool
mun einnig fleyta tollahækk-
unum á stáli og áli til neytenda.
Þetta kemur fram í frétt Financial
Times.
Fyrirtæki á neytendavöru-
markaði á borð við P&G, Unilever
og Colgate-Palmolive hafa lengi
átt erfitt með að fleyta auknum
kostnaði í vöruverð vegna aukinn-
ar samkeppni frá keppinautum á
netinu og vegna þess að smásalar
selja í auknum mæli ódýrari vörur
undir eigin vörumerki.
Ölgerðin og Coca Cola
á Íslandi hafa nýverið
hækkað verð. Forseti
hagfræðideildar Há-
skóla Íslands segir að
almennt séð eigi iðnaður
á Íslandi undir högg að
sækja vegna síhækkandi
kostnaðar.
gerðin hafa horfið. Hátt gengi krónu
og miklar launahækkanir á undan-
förnum árum eru Þrándur í Götu
þeirra.“
Að hans sögn eiga þau fyrirtæki
sem framleiða þekkt vörumerk er
njóta neytendatryggðar hægara
um vik að fleyta kostnaðarhækk-
unum í verðlag. „Þau fyrirtæki sem
ekki framleiða vörur sem studd eru
af þekktum vörumerkjum eiga í
mestum erfiðleikum með að hækka
verð. Þau fyrirtæki standa því veikar.
Það kæmi mér ekki á óvart að í þessu
árferði reyni fyrirtæki sem hafa
markaðsvald í krafti þekktra vöru-
merkja með neytendatryggð, eins
og Ölgerðin og Vífilfell, að vinna með
það,“ segir Ásgeir.
Uppsagnir fyrirtækja
Sigurður Hannesson, framkvæmda-
stjóri Samtaka iðnaðarins, segir að
mörg fyrirtæki hafi gripið til hag-
ræðingaraðgerða og sagt upp starfs-
fólki síðastliðið ár. Oddi sagði 86
starfsmönnum upp við upphaf árs
þegar fyrirtækið hætti innlendri
framleiðslu á plast- og bylgjuum-
búðum, CCP sagði upp 30 starfs-
mönnum veturinn 2017 og Ölgerðin
sagði upp 15 starfsmönnum fyrir um
ári. „Um þessar mundir er gerð enn
ríkari krafa um hagræðingu en áður.
Hættan er sú að framleiðsla og störf
fari úr landi ef þessi þróun heldur
áfram, “ segir hann.
Sigurður bendir á að íslensk
framleiðslufyrirtæki eigi yfirleitt í
erlendri samkeppni. Hvort sem það
er í útflutningi eða í samkeppni við
erlendar vörur hérlendis. Efnahags-
legur óstöðugleiki og sveiflur í gengi
krónu geri fyrirtækjum erfitt fyrir
að skipuleggja reksturinn til lengri
tíma. „Samspil launahækkana og
gengisþróunar á undanförnum árum
hafa gert það að verkum að kostn-
Þekkt iðnaðarfyrir-
tæki eins og Plast-
prent og Kassagerðin hafa
horfið.
Ásgeir Jónsson,
forseti Hagfræði-
deildar Háskóla
Íslands
Forsvarsmenn
fyrirtækja hafa
beðið í lengstu lög með að
velta kostnaðarhækkunum
út í verðlagið og geta margir
hverjir ekki beðið lengur
með.
Ólafur Stehensen,
framkvæmdastjóri
Félags atvinnu-
rekenda.
Hættan er sú að
framleiðsla og störf
fari úr landi ef þessi þróun
heldur áfram.
Sigurður
Hannesson,
framkvæmda-
stjóri Samtaka
iðnaðarins
aður hefur hækkað mikið. Laun
mæld í erlendri mynt hafa hækkað
gríðarlega og eru há í alþjóðlegum
samanburði. Við bætist að skattar á
fyrirtæki hérlendis eru háir í alþjóð-
legum samanburði. Þar munar
mestu um tryggingagjaldið sem er
skattur á laun. Auk þess skapaði lágt
raforkuverð hérlendis landinu sam-
keppnisforskot en nú hefur dregið
úr þeim mun. Þegar þetta leggst
saman er myndin nokkuð skýr.
Fyrirtæki verða að bregðast við með
því að hækka verð eða fækka starfs-
mönnum eins og kom raunar fram
í könnun sem við gerðum meðal
okkar félagsmanna.“
Það styttist í kjaraviðræður á milli
launþegahreyfinga og atvinnulífs-
ins. „Staðan er sú að það er lítið sem
ekkert til atvinnurekenda að sækja,“
segir hann.
Hækkaði um 65 prósent
Raungengi krónu miðað við hlut-
fallslegan launakostnað hækkaði um
65 prósent á árunum 2011 til 2017,
samkvæmt gögnum frá Seðlabank-
anum. Launakostnaður á framleidda
einingu hækkaði um 33 prósent hér
á landi á sama tímabili samanborið
við níu prósent í OECD-ríkjunum.
helgivifill@frettabladid.is
marKaðurinn
2 3 . á g ú s t 2 0 1 8 F I M M t U D A g U R10 F R é t t I R ∙ F R é t t A B L A ð I ð
2
3
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
A
1
-3
9
1
4
2
0
A
1
-3
7
D
8
2
0
A
1
-3
6
9
C
2
0
A
1
-3
5
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
2
2
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K