Fréttablaðið - 28.08.2018, Síða 2
Veður
Norðan 8 til 13 metrar á sekúndu,
en hægari vindur sunnan- og austan-
lands. Búast má við skúrum nokkuð
víða. Hiti 7 til 14 stig. sjá síðu 16
Gríðarlegt tjón varð er sumarhús og annað minna þar hjá í Grafningi í landi Heiðarbæjar við Þingvallavatn gereyðilögðust í eldi í gær. Þegar slökkvi-
liðsmenn frá Brunavörnum Árnessýslu komu á staðinn upp úr hádegi voru bæði húsin alelda. Þeir voru síðan við störf fram á kvöld til að tryggja
svæðið. Ekki er talið að fólk hafi dvalist í húsunum er eldurinn kom upp og ekki var vitað í gær hvers vegna hann kviknaði. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
Óþekkt eldsupptök
dómsmál „Vettvangurinn benti ein-
dregið til þess að þarna hefði ég átt
hlut að máli,“ sagði Valur Lýðsson,
bóndi á Gýgjarhóli II í Biskupstung-
um, um það þegar hann vaknaði að
morgni 31. mars og kom að bróður
sínum, Ragnari Lýðssyni, látnum.
Þétt var setið í dómsal Héraðs-
dóms Suðurlands í gær á fyrri degi
aðalmeðferðar í máli Vals, sem
ákærður er fyrir að hafa banað
bróður sínum.
Fulltrúar fjölmiðla voru við-
staddir, auk fjölskyldumeðlima og
vina Ragnars og Vals, þegar sá síðar-
nefndi settist andspænis dómaran-
um og lýsti með yfirveguðum hætti
því sem hann ræki minni til.
Valur greindi frá því að bræður
hans, Ragnar og Örn, hefðu komið
í heimsókn á Gýgjarhól umrætt
kvöld, á föstudeginum langa, og að
sá fyrrnefndi hefði komið færandi
hendi, með tvær flöskur af sterku
áfengi.
Valur sagðist á þessum tíma ekki
hafa bragðað áfengi í þrjá mánuði.
eða allt frá þrettándanum í janúar.
Það hafi hann hins vegar gert í til-
efni heimsóknar bræðranna. Vel
hafi farið á með þeim. Um klukkan
tíu hafi Örn lagst til rekkju. Þeir
Ragnar hafi hins vegar setið áfram
að drykkju.
Valur sagðist hafa greint Ragnari
frá framtíðaráformum sínum með
bæinn. Í þeim fólst að færa bæjar-
stæðið og koma upp kaldavatns-
veitu. Sagði hann að þá hefði Ragnar
sýnt ólundarviðbrögð.
Að sögn Vals mundi hann ekki
eftir átökum. Það síðasta sem hann
hefði séð hefði verið andlit sem
svipaði til Ragnars. Hann væri þó
ekki viss í þeim efnum. Morguninn
eftir hefði hann rankað við sér og
komið að líki bróður síns í þvotta-
húsinu. Skömmu síðar var hann
handtekinn á vettvangi eftir að hafa
gert Neyðarlínu viðvart.
Valur kvaðst fyrir dómi ekki
kunna neinar skýringar á því hvers
vegna þeir Ragnar gætu hafa átt í
átökum. „Hvorki fyrr né síðar,“ sagði
Valur aðspurður hvort hann hefði
borið þungan hug til bróður síns.
„Hann tók mjög skýrt fram að
hann sæi verulega eftir öllu,“ sagði
Nanna Briem geðlæknir, sem átti
fimm viðtalstíma með Vali. Þar bar
hann allan tímann fyrir sig minnis-
leysi að sögn Nönnu sem metur Val
sakhæfan.
Sjálfur greindi Valur frá því fyrir
dómi að hann hefði tekið ákvörðun
í janúar um að hætta allri drykkju.
Hann hefði átt það til að drekka sig
til óminnis og þá hefði það gerst
oftar en einu sinni að hann yrði
ofbeldisfullur undir áhrifum.
Lögreglufulltrúar sem mættu fyrir
dóminn lýstu vettvangi í þvottahús-
inu og áverkum á Ragnari. Hann
hefði fengið högg og síðan hefði
verið sparkað ítrekað í hægri síðu
hans er hann var liggjandi.
daniel@frettabladid.is
Gýgjarhólsbóndinn sér
mikið eftir öllu saman
Valur Lýðsson, sem ákærður er fyrir að hafa banað Ragnari bróður sínum á föstu-
daginn langa, kveðst aldrei hafa borið þungan hug til hans. Geðlæknir segir Val
sakhæfan. Ragnari var banað í þvottahúsinu heima hjá Vali á Gýgjarhóli.
Valur lýðsson til hægri með lögmanni sínum í dómsal. Fréttablaðið/Eyþór
Hann tók mjög
skýrt fram að hann
sæi verulega eftir öllu.
Nanna Briem, geðlæknir
dómsmál Júlíus Vífill Ingvarsson,
fyrrverandi borgarfulltrúi, neitar að
upplýsa hvaðan hann fékk fjárhæð á
bilinu 131 til 146 milljónir króna og
geymdi á bankareikningi á Ermar-
sundseyjunni Jersey. Þetta kemur
fram í ákæru héraðssaksóknara á
hendur Júlíusi fyrir peningaþvætti.
Í ákærunni segir að féð hafi að
hluta verið tekjur sem ekki voru
taldar fram til skatts. „Fjárhæð hins
ólögmæta ávinnings, það er þeir
skattar sem ákærði kom sér undan að
greiða og vextir af því fé, sem ákærði
þvættaði með þessum hætti, var á
bilinu 49 tll 57 milljónir króna,“ segir
í ákærunni. „Ákærði viðurkenndi við
rannsókn málsins að um væri að ræða
tekjur sem hann hefði ekki gefið upp
til skatts og því ekki greitt tekjuskatt
eða útsvar af þeim. Hann hefur hins
vegar ekki viljað segja nákvæmlega
til um það hvenær umræddra tekna
var aflað.“ – gar
Neitar að skýra
146 milljónir
Stór hluti þjóðarinnar hefur óskað
eftir upplýsingum í gengum arfgerd.is.
Fréttablaðið/VilhElm
heilbrigðismál Tvö hundruð og
fimmtíu einstaklingar hafa fengið
staðfest að þeir bera stökkbreyt-
ingu í BRCA2-erfðavísi sem stórlega
eykur áhættu á arfgengu brjósta-
krabbameini, krabbameini í eggja-
stokkum og í blöðruhálskirtli.
Í gær höfðu 39.408 einstaklingar
óskað eftir því að fá upplýsingar
um það hvort stökkbreyting sé til
staðar í erfðavísinum, í gegnum vef-
svæðið arfgerd.is sem Íslensk erfða-
greining opnaði í maí síðastliðnum.
Fyrirtækið á dulkóðuð gögn um
rúmlega 1.000 einstaklinga sem
bera hina alíslensku stökkbreyt-
ingu 999del5 í BRCA2. Samkvæmt
upplýsingum frá Íslenskri erfða-
greiningu á enn eftir að taka sýni
úr 10.000 einstaklingum sem óskað
hafa eftir upplýsingum í gegnum
vefsíðuna. Þetta eru sýni sem ýmist
voru ekki til hjá fyrirtækinu eða
þurfti að gefa aftur. – khn
Upplýst 250 um
stökkbreytingu
í BRCA2-geni
Íslensk erfðagreining á
dulkóðuð gögn um rúmlega
1.000 einstaklinga sem bera
hina alíslensku stökkbreyt-
ingu 999del5 í BRCA2.
2 8 . á g ú s t 2 0 1 8 Þ r i ð j u d A g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð
2
8
-0
8
-2
0
1
8
0
5
:1
2
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
A
B
-0
D
F
8
2
0
A
B
-0
C
B
C
2
0
A
B
-0
B
8
0
2
0
A
B
-0
A
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
3
2
s
_
2
7
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K