Fréttablaðið - 28.08.2018, Side 10
Frá degi til dags
Halldór
Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
ritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is fréttablaðið.iS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttablaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarblað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Kjartan Hreinn
Njálsson
kjartanh@frettabladid.is
Ísland hefur
verið meðal
dyggustu
stuðnings-
ríkja dóm-
stólsins og
okkur ber að
berjast fyrir
því að þeir
sem bera
ábyrgð á
voðaverk-
unum í
Mjanmar
verði látnir
sæta ábyrgð.
Bætt staða
innflytjenda á
Íslandi og
stefnumótun
á þessu sviði
er brýnt
réttlætismál
en líka
mikilvægur
þáttur í
uppbyggingu
fjölmenn-
ingarlegs
samfélags.
Á Íslandi búa nú ríflega 36.000 innflytjendur og hafa aldrei verið fleiri. Fyrirsjáanlegt er að þeim mun enn fjölga hér eins og víðar í
nágrannalöndunum.
Fólksflutningar á milli landa eru í senn eitt helsta
tækifæri og samhliða mikil áskorun fyrir alþjóðasam-
félagið. Afstaða Íslendinga ætti að vera jákvæð í ljósi
eigin sögu og flutninga, bæði fyrr á tímum og á allra
síðustu árum. Reynsla innflytjenda um allan heim er
hins vegar sú að þeir mæta oftar en ekki andstöðu í
einhverri mynd í sínu nýja samfélagi.
Bætt staða innflytjenda á Íslandi og stefnumótun á
þessu sviði er brýnt réttlætismál en líka mikilvægur
þáttur í uppbyggingu fjölmenningarlegs samfélags
sem eflir mannauð og eykur fjölbreytni. Hvort tveggja
stuðlar að meiri sköpun, víðsýni og virkjun hugvits
samfélaginu til góðs. Jöfnuður, velferð og virk þátt-
taka allra eru aðalsmerki farsællar samfélagsgerðar og
forsenda samkeppnishæfs atvinnulífs.
Teikn eru um að ójöfnuður á Íslandi hafi aukist.
Stækkandi hópar fólks taka ekki nægilega virkan þátt
í samfélaginu, þótt möguleikarnir séu fyrir hendi og
þjóðfélagið þurfi á kröftum þeirra að halda. Þar eru
innflytjendur stór, fjölbreyttur og mikilvægur hópur.
Niðurstöður kosninga í mörgum Evrópuríkjum
síðustu misserin gefa til kynna að uppgangur og
útbreiðsla öfgaafla sem ala á þjóðernishyggju og
andúð á útlendingum og fjölmenningu er staðreynd.
Hér á landi hafa slík sjónarmið einnig fengið hljóm-
grunn. Í mörgum ríkjum hafa flokkar sem tala fyrir
útlendingaandúð komist í áhrifamiklar stöður – og í
sumum ríkjum jafnvel í forsetastól.
Ísland á að vera í forystu þegar kemur að því að
takast á við þessa þróun og byggja á sterkum grunn-
gildum réttlætis og mannúðar. Ísland er þegar orðið
fjölþjóðlegt samfélag sem á að virða frelsi hvers og
eins til þess að aðhyllast trúarbrögð, lífsskoðanir og
lífsgildi af ólíkum toga, án mismununar. Í slíku sam-
félagi er ekki rými fyrir rasisma, fordóma eða aðra
mismunun, hvort sem er vegna trúar, menningar eða
annarra þátta.
Heimurinn og við
Guðjón S.
Brjánsson
alþingismaður
www.nydogun. is • www.sorg. is • sorg@sorg. is
Þann 29. ágúst kl. 20:00 í safnaðarheimili Laugarneskirkju
flytur sr. Halldór Reynisson erindið „Þegar ástvinur deyr,
um sorg og sorgarviðbrögð“. Erindið er opið öllum sem
vilja leita sér stuðnings eftir andlát ástvinar.
Enginn aðgangseyrir.
Að fræðslunni standa Ný dögun, Birta landssamtök
Ljónshjarta og Gleym mér ei styrktarfélag.
- sorg og sorgarviðbrögð
Þegar ástvinur deyr
Við grétum þegar við flúðum. Afrakstur 25 ára erfiðisvinnu tapaðist. Tími minn er senn á enda, en hvað verður um börn mín og barnabörn?“ „Það hlupu allir eins og fætur toguðu til að sleppa á lífi. Ég gat ekki einu sinni borið börnin mín.“
„Ég var heppin. Það nauðguðu mér bara þrír menn.“
Þetta er aðeins brotabrot af þeim hörmungum sem
fórnarlömb þjóðernishreinsana mjanmarska hersins
lýstu fyrir rannsakendum á vegum Mannréttindaráðs
Sameinuðu þjóðanna. Skýrslan var birt í gær og fjallað
er um hana Fréttablaðinu í dag.
Raunir Róhingja í Mjanmar frá því að hreinsanirnar
miklu hófust í ágúst á síðasta ári eru nú þegar orðnar
að einhverjum mestu hörmungum samtímans. Á upp-
lýsingaöld, þegar við ættum með réttu að vera tengdari
hvert öðru, upplýstari um raunir annarra og full hlut-
tekningar í garð bræðra okkar og systra, hafa Róhingjar
af einhverjum ástæðum mætt afgangi.
Þetta agnarsmáa þjóðarbrot, í kringum 1,5 til 2 millj-
ónir manna í Mjanmar og Bangladess, er alvant því
að heimsbyggðin láti sér á sama standa. Undanfarna
áratugi hafa Róhingjar þurft að þola útskúfun, ofbeldi,
skert mannréttindi og svikin loforð. Róhingjar börðust
við hlið Breta í seinna stríði, en fengu hvorki uppfyllt
loforðið um sjálfstæði né viðurkenningu alþjóðasam-
félagsins.
Hörmungarnar nú eiga rætur að rekja til atburða
í ágúst á síðasta ári þegar herskáir Róhingjar gerðu
mannskæðar árásir á herstöðvar í Mjanmar. Svar mjan-
marskra yfirvalda var þjóðernishreinsun. Í kringum sjö
hundruð þúsund Róhingjar flúðu hreinsanirnar yfir
landamærin að Bangladess.
Hershöfðingjar og leiðtogar Mjanmar, þar á meðal
Aung San Suu Kyi, handhafi friðarverðlauna Nóbels,
hafna því að þjóðernishreinsanir eigi sér stað. Þau hafa
hótað að fangelsa blaðamenn sem freista þess að varpa
ljósi á stöðu mála.
Niðurstaða skýrslu rannsóknarnefndar Mannrétt-
indaráðs Sameinuðu þjóðanna staðfestir það sem
margir hafa haldið fram, en fáir viljað segja upphátt.
Yfirvöld í Mjanmar hafa orðið uppvís að einhverjum
skelfilegustu glæpum gegn mannlegri reisn og tilvist
sem um getur. Hópnauðganir á konum, barnsmorð,
fjöldamorð og tortíming heilu þorpanna – allt eru
þetta gjaldgengar aðferðir mjanmarskra yfirvalda til að
ná markmiði sínu um útrýmingu Róhingja.
Alþjóðasakamáladómstóllinn var stofnaður til að
draga þá til ábyrgðar sem brotið hafa gegn mannkyni.
Ísland hefur verið meðal dyggustu stuðningsríkja dóm-
stólsins og okkur ber að berjast fyrir því að þeir sem
bera ábyrgð á voðaverkunum í Mjanmar verði látnir
sæta ábyrgð, á sama tíma og við réttum fámennri þjóð
Róhingja hjálparhönd.
Glæpur gegn
mannkyni
lágkúruleg skrif
John McCain, öldungadeildar-
þingmaður Repúblíkana, lést
um helgina eftir snarpa baráttu
við heilaæxli. Satt best að segja
hefur undirritaður ekki haft
neina skoðun á hinum látna
eða hans verkum. Í gær birtist
skoðanapistill á vefsíðu Stund-
arinnar eftir varaþingmann
Pírata. Þar segir meðal annars
„[um McCain] hef ég fátt annað
að segja en að mín tilnefning til
friðarverðlauna nóbels (sic) er
æxlið sem dró hann til dauða.“
Afgangur pistilsins er heldur
ekki skárri. Innihald pistilsins
segir mögulega meira um
höfund hans heldur en hinn
nýlátna McCain.
bubbi fallinn
Björgólfur Jóhannsson, for-
stjóri Icelandair Group til
tíu ára, lét af störfum í gær í
kjölfar þess að afkomuspá
félagsins var birt. Hún er ekki
jákvæð frekar en aðrar fréttir
af afkomu íslenskra flugfélaga
undanfarnar vikur. Flestar bera
þær merki þess að Icelandair sé
að lækka flugið æði hratt. Það
er ekki langt síðan Björgólfur,
eða Bubbi líkt og hann er oft
kallaður, var valinn viðskipta-
maður ársins af blaði þessu.
Mögulega er tilefni til að rifja
upp rúmlega tíu ára gamla for-
síðufyrirsögn í þessu samhengi,
Bubbi fallinn.
joli@frettabladid.is
2 8 . á g ú s t 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D A g U R10 s k o Ð U n ∙ F R É t t A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
2
8
-0
8
-2
0
1
8
0
5
:1
2
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
A
B
-1
7
D
8
2
0
A
B
-1
6
9
C
2
0
A
B
-1
5
6
0
2
0
A
B
-1
4
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
3
2
s
_
2
7
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K