Fréttablaðið - 28.08.2018, Side 15
Í vörum Better
You er notað
Zechstein®
magnesíum sem
er eitt hreinasta
og náttúru-
legasta form af
magnesíum í
heiminum.
Magnesíum kemur
við sögu í yfir 300
mismunandi efnaskipta-
ferlum í líkamanum.
Hrönn Hjálmarsdóttir, heilsumark-
þjálfi hjá Artasan.
Magnesium Sleep Junior er sérstaklega samsett blanda fyrir börn frá tólf mánaða aldri. Magnesíum hjálpar þreyttum vöðvum að ná slökun fyrir svefninn.
Magnesíum er gríðarlega mikilvægt fyrir líkams-starfsemina. Það kemur
við sögu í yfir 300 mismunandi
efnaskiptaferlum í líkamanum og
getur magnesíumskortur haft mjög
alvarlegar afleiðingar í för með
sér,“ segir Hrönn Hjálmarsdóttir,
heilsumarkþjálfi hjá Artasan.
Þetta steinefni hefur til að
mynda áhrif á:
l Orkumyndun (ATP í frumunum)
l Vöðvastarfsemi
l Taugastarfsemi
l Myndun beina og tanna
l Meltingu
l Blóðflæði
l Kalkupptöku
l Húðheilsu
„Líkami okkar þarf magnesíum
til að ýta undir aukna orku, jafna
blóðflæði, auka kalkupptöku og
hjálpa vöðvastarfsemi líkamans.“
Húðmjólk með magnesíum
og ilmkjarnaolíum
Better You hefur nú sett á markað
nýja línu af húðmjólk sem auð-
velt er að bera á sig þar sem hún
smýgur auðveldlega inn í húðina
og áhrifin skila sér hratt og vel.
Tvær þeirra innihalda auk magn-
esíums, lavender og kamillu sem
róar og sefar og undirbýr líkamann
fyrir svefninn.
l Magnesium Sleep er hugsað
fyrir fullorðna einstaklinga og
5 ml (4 pumpur) af húðmjólkinni
gefa 150 mg af magnesíum sem
líkaminn tekur upp.
l Magnesium Sleep Junior er sér-
staklega hönnuð fyrir börn frá eins
árs aldri. Eins og fyrrnefnda varan
inniheldur hún magnesíum til að
hjálpa þreyttum vöðvum að ná
slökun, lavender og kamillu til að
róa og sefa og undirbúa líkamann
fyrir svefninn. 5 ml (4 pumpur)
af húðmjólk gefa 37 mg af magn-
esíum sem líkaminn tekur upp.
RDS af magnesíum fyrir börn
undir 14 ára aldri:
1–3 ára: 85 mg
4–6 ára: 120 mg
7–10 ára: 200 mg
11–14 ára: 280 mg
Bætt svefngæði
„Ilmkjarnaolíurnar lavender og
kamilla, ásamt magnesíum, hjálpa
líkamanum að ná endurnærandi
nætursvefni og sýna rannsóknir að
þessi vara bætir svefngæðin sem
gerir bæði börnum og fullorðnum
kleift að vakna endurnærð og
tilbúin í annasaman dag,“ segir
Hrönn. „Það tekur sjö daga að
meðaltali að ná hámarskvirkni
og best er að nota húðmjólkina
u.þ.b. 30 mín. fyrir svefn, á hreina
og þurra húð. Má bera á allan
líkamann og er sérstaklega gott
fyrir háls, herðar og fætur.“
Prófuð af húðsjúkdóma-
læknum
Þessar vörur hafa verði prófaðar
af húðsjúkdómalæknum og henta
fyrir viðkvæma húð. Innihalda
ekki parabena, gervi-, litar- eða
ilmefni.
Eitt hreinasta magnesíum á
jörðinni
„Í vörum Better You er notað
Zechstein® magnesíum sem er eitt
hreinasta og náttúrulegasta form
af magnesíum í heiminum. Zech-
stein-hafið var til fyrir u.þ.b. 250
milljón árum en nú er hafsbotn
þess staðsettur á u.þ.b. 1.600 metra
dýpi í NV-Evrópu þangað sem
borað er til að ná í hreint magn-
esíumklóríð.“
Sölustaðir: Flest apótek og Heilsu-
húsið og Fjarðarkaup.
Betri slökun og bættur svefn
Magnesium Sleep Lotion frá Better You er nýjung fyrir bæði börn og fullorðna sem getur virkað
róandi og aukið svefngæði. Húðmjólk frá Better You sem smýgur hratt og vel inn í húðina.
Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
Collagen Beauty
formula
Inniheldur 500 mg af kollageni ásamt náttúrulegri bætiefnablöndu
sem styður við kollagenframleiðslu húðarinnar.
Regluleg inntaka getur hægt á öldrunareinkennum og dregið úr
líkum á að fínar línur og hrukkur fari að myndast of snemma.
Minni hrukkur og frísklegri húð
3 mánaða skammtur
Natures Aid Collagen 5x10 copy.pdf 1 30/11/2017 15:16
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 8 . ág ú S t 2 0 1 8
2
8
-0
8
-2
0
1
8
0
5
:1
2
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
A
B
-1
7
D
8
2
0
A
B
-1
6
9
C
2
0
A
B
-1
5
6
0
2
0
A
B
-1
4
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
3
2
s
_
2
7
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K