Fréttablaðið - 28.08.2018, Síða 32
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800
Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
BAkþAnkAR
Fjölskyldu-
tilboð
3799 kr.
Opið allan
sólarhringinn
í öllum verslunum
Að hrófla við hinum dauðu er ekki á allra færi. Jóhann beri fékk að kenna á því þegar
hann ætlaði að fá uppvakning til
að hrekja ástkonu sína út en vakti
móður sína sáluga í misgripum.
Var hún óhress með kvennamál Jóa
síns svo hún draugaðist í honum og
hrakti landshorna á milli.
Ekki á ég von á því að spænska
ríkisstjórnin þekki þessa sögu úr
Heimsljósi Laxness en hún stendur
einmitt í stórræðum við harðstjóra
að handan.
Í Dal hinna föllnu, Valle de los
caídos, er stærsta fjöldagröf Spánar.
Þar hvíla rúmlega þrjátíu þúsund
hermenn frá báðum sveitum sem
börðust í spænsku borgarastyrjöld-
inni. Yfir öllu gnæfir svo 150 metra
hár kross en í miðjum dalnum, í
kapellu einni, hvílir síðan Franco í
gröf sem Napóleón væri fullsæmdur
af. Hann var einræðisherra og
gantaðist eitt sinn með það að hann
skrifaði undir þúsund aftökuplögg
meðan hann fékk sér morgunkaffi.
Ríkisstjórnin telur lítinn sóma að
minnisvarða þessum í lýðræðisríki
og enn síður við hæfi að harðstjór-
inn hvíli innan um fórnarlömb sín
sem sumir segja, eins og Baltasar
Garzón lögmaður, að hvíli þar í
óþökk aðstandenda. Nú á því að
grafa karlinn upp og færa hann úr
dalnum.
Mig langar ekki að tala um upp-
vakningana sem ekki koma að
handan að þessu sinni heldur úr
röðum stjórnmálamanna á hægri
vængnum sem allt í einu er svo annt
um foringjann. Mér verður hins
vegar hugsað til jarðneskra leifa
skáldsins Federico García Lorca sem
liggja einhvers staðar í auðninni.
Andi hans situr hins vegar í
hásæti spænska hjartans. Hvíldar-
staðurinn, hversu mikilfenglegur
eða tilkomulítill sem hann er, getur
nefnilega engu breytt um það hver
þú varst og til hvers þú komst.
Hvað skal gera
við þá dauðu?
2
8
-0
8
-2
0
1
8
0
5
:1
2
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
A
B
-0
9
0
8
2
0
A
B
-0
7
C
C
2
0
A
B
-0
6
9
0
2
0
A
B
-0
5
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
3
2
s
_
2
7
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K