Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.06.2018, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 14.06.2018, Blaðsíða 12
12 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 14. júní 2018 // 24. tbl. // 39. árg. Í ár eru liðin þrjátíu ár síðan hafin var skógrækt við Rósaselstjarnir. Það er svæði sem er ofan byggðarinnar í Keflavík. Svæðið var innan sveitar- félagsmarka Sveitarfélagsins Garðs og tilheyrir nú sameinuðu sveitarfélagi Garðs og Sandgerðis. Svæðið hefur hins vegar í áratugi verið vinsælt úti- vistarsvæði hjá Keflvíkingum og verið leynd perla sem lengi var innan flugvallargirðingar. Fólk læddist yfir eða undir girðinguna til að fara á skauta á frosnum tjörnunum. Árið 1988 hóf Rotaryklúbbur Kefla- víkur að gróðursetja við Rósasel- stjarnir. Þá var svæðið enn innan girðingar og vaktað af Varnarliðinu og því þurfti leyfi frá Varnarliðinu til að fara á svæðið til gróðursetningar. Konráð Lúðvíksson læknir hefur tekið þátt í gróðursetningunni í öll þessi ár, enda með græna fingur og áhugasamur um uppgræðslu á svæðinu. Í samtali við Víkurfréttir sagði Konráð að fyrsta verkið fyrir 30 árum hafi verið að fara með vöru- bíl í Heiðmörk ofan Reykjavíkur og sækja þangað lúpínu sem hafi verð sett niður við Rósaselstjarnir. Hún hafi verið grunnurinn að því sem þarna er í dag og myndað bæði jarð- veg og skjól. Rotarymenn úr Keflavík hafa árlega gróðursett 300 trjáplöntur á svæðinu og því hafa verið sett niður 9000 tré af klúbbnum þessa þrjá áratugi. Fleiri hafa komið að gróðursetningu á svæðinu. Þannig hefur Oddfellow- reglan komið að gróðursetningu við tjarnirnar, einnig Vímulaus æska og Lionessur. Þá er Fjölbrautaskóli Suðurnesja með svæði við tjarnirnar í fóstri og Vigdís Finnbogadóttir, þá- verandi forseti, setti niður plöntur við Rósaselstjarnir og þar er lundur í hennar nafni. Eftir að malbikaður göngu- og hjól- reiðastígur var lagður frá Eyjabyggð- inni í Keflavík og að Flugstöð Leifs Eiríkssonar er útivistarsvæðið við Rósaselstjarnir orðið mun aðgengi- legra. Áður hafi þarna bara verið hálf- gerður jeppaslóði en nú sé auðveldara að koma aðföngum að svæðinu og hugmyndir eru uppi um frekari upp- byggingu við tjarnirnar. Áhugi sé fyrir því að leggja stíg kringum tjarnirnar. Eins og áður segir er svæðið innan sveitarfélagsmarka nýs sameinaðs sveitarfélags Garðs og Sandgerðis þó svo það liggi aðeins nokkuð hundruð metra frá efstu byggð í Keflavík. Konráð rifjar upp að þegar menn sýndu svæðinu fyrst áhuga til skóg- ræktar fyrir 30 árum, þá hafi heyrst áhyggjuraddir utan úr Garði að þarna væru Keflvíkingar hugsanlega að sölsa undir sig þetta svæði. Konráð segir af og frá að Rósaselstjarnir séu einka- mál Keflvíkinga, þetta sé áhugavert útivistarsvæði og náttúruperla fyrir alla. Rotaryfélagar hafi aðeins gert svæðið verðmætara sem útivistar- svæði með gróðursetningu síðustu þrjá áratugi. Konráð segir að gróðursetningin á svæðinu hafi tekist vel. Þar eru hæstu tré í dag á sjötta metra og svæðið hafi tekið miklum framförum á síðustu árum með breyttu veðurfari og betri vaxtarskilyrðum. Fyrstu trjáplönt- urnar á svæðinu hafi verið Tröllavíðir en nú sé meiri fjölbreytni. Í fyrstu gerðu menn ráð fyrir að 30% myndu lifa af á svæðinu. Árangurinn sé mun betri en það í dag. Sprettan sé hins vegar misjöfn, enda sé landið erfitt til að grjóðursetja í. Þar sé mikið af grjóti og jarðvegurinn tæpur en vöxturinn bara fínn, segir Konráð. Þá séu plönturnar mun betri í dag en fyrir 30 árum. Í gróðursetningu Rotaryklúbbs Keflavíkur sl. fimmtu- dag hafi t.a.m. verið gróðursettar 300 plöntur sem séu þriggja ára gamlar. Það skipti miklu máli, því rótarkerfi svo gamalla trjáa sé betra en á þeim yngri. Trén á svæðinu dafna ekki bara vel. Fuglalífið hefur einnig aukist, enda margir fuglar sem sækja í skjólið frá trjánum og nálægðina við tjarnirnar. Eins og kemur fram hér að framan þá eru Rotaryklúbbur Keflavíkur og Fjöl- brautaskóli Suðurnesja einu aðilarnir sem séu að setja niður trjáplöntur við Rósaselstjarnir. Konráð hvetur fleiri aðila til að koma að verkefninu og taka svæði við tjarnirnar í fóstur ef svo má segja. Það sé skemmtileg dag- stund að taka þátt í gróðursetningu og gera sér svo glaðan dag á eftir. Þann- ig hafi Rotaryfólk gefið sér góðan klukkutíma í að gróðursetja og svo var slegið upp grillveislu og fólk gerði sér glaðan dag. Myndirnar með fréttinni tók Hilmar Bragi með flygildi yfir Rósasel- stjörnum sl. fimmtudag þegar Rot- aryklúbbur Keflavíkur var þar við gróðursetningu. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma ÓLÖF BJÖRK BJÖRNSDÓTTIR garðyrkjufræðingur Drangavöllum 6, Keflavík lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 25. maí. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 14. júní kl. 13:00 Unnur Sturlaugsdóttir Margrét Sturlaugsdóttir Falur Jóhann Harðarson Davíð Eldur Baldursson Guðbjörg Huld Árnadóttir barnabörn og barnabarnabörn Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is VIÐTAL – hæstu tré á sjötta metra Þrjátíu ára skógrækt við Rósaselstjarnir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma RAGNHEIÐUR INGIBJÖRG HALLDÓRSDÓTTIR Stapavöllum 10, Reykjanesbæ lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn 11. júní. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 21. júní kl. 11. Halldór Reinhardtsson Þóranna Andrésdóttir Anna Bjarnadóttir Ted Wahoske Eiríkur Bjarnason ömmubörn og langömmubörn HEIMILISFRÆÐIKENNSLA VIÐ GRUNNSKÓLANN Í SANDGERÐI Grunnskólinn í Sandgerði óskar eftir að ráða heimilisfræðikennara Grunnskólinn er Heilsueflandi grunnskóli og vinnur eftir hugmyndafræði Uppbyggingarstefnunnar. Leiðar- ljós skólans eru vöxtur, virðing, vilji og vinátta og endurspeglast þau í daglegu starfi skólans. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að setja sig inn í starfshætti skólans og vinna með hópnum að því að mæta ólíkum einstaklingum með fjölbreyttum hætti. • Óskað er eftir fjölhæfum, áhugasömum og skapandi grunnskólakennara með hæfni í mannlegum samskiptum. Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um störf við Grunnskólann í Sandgerði. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans www.sandgerdisskoli.is. Umsóknarfrestur er til og með 25. júní 2018. Umsóknir og ferilskrár skal senda á netfang skólastjóra: holmfridur@sandgerdisskoli.is Nánari upplýsingar veita: Hólmfríður Árnadóttir, skólastjóri holmfridur@sandgerdisskoli.is

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.