Víkurfréttir - 14.06.2018, Blaðsíða 16
16 ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 14. júní 2018 // 24. tbl. // 39. árg.
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga
kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
GOLFSKÓLI
GOLFKLÚBBS SUÐURNESJA 2018
NÁMSKEIÐIN:
NÁMSKEIÐ 2: 11.–15. JÚNÍ KL. 13–16
NÁMSKEIÐ 3: 18.–21. JÚNÍ KL. 9–12
NÁMSKEIÐ 4: 25–28. JÚNÍ KL. 9–12
NÁMSKEIÐ 5: 9–13. JÚLÍ KL. 9–12
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á GS.IS
Óskum eftir kraftmiklu fólki
Leitum eftir að ráða í matreiðslu og fólk til af-
greiðslustarfa, ef þú villt vinna með kraftmiklu og
skemmtilegu fólki, hefur dugnað, heiðarleika og
hreinlæti sem aðalsmerki þá viljum við heyra frá þér.
Sendu upplýsingar á: sverrir@kryddhusid.is
Fullt nafn: Gunnar Þorsteinsson.
Íþrótt: Knattspyrna.
Félag: UMFG.
Hjúskaparstaða: Í sambandi.
Hvenær hófst þú að stunda þína
íþrótt? Fór á mína fyrstu fótbolta-
æfingu fimm ára í kjallaranum í Þórs-
heimilinu.
Hver var fyrsti þjálfarinn þinn?
Sigurlás Þorleifsson heitinn.
Hvað er framundan? Stefnan er sett
á að taka færri miðjur en við gerðum
í fyrra.
Eftirminnilegasti áfanginn á ferl-
inum? Fyrsti landsleikur rennur seint
úr minni.
Hvað vitum við ekki um þig? Legg
stund á nám í jarðeðlisfræði og starfa
hjá HS Orku.
Hvernig æfir þú til að ná árangri?
Mér finnst gott að skipta æfingum
í fernt: Liðsæfingar, einstaklings-
æfingar, líkamlega þjálfun og hug-
læga þjálfun. Séu allir fjórir þættirnir
ræktaðir fylgja framfarir og árangur
á endanum í kjölfarið.
Hver eru helstu markmið þín? Ég
kýs svona yfirleitt að halda mark-
miðum mínum út af fyrir mig. Fólk
hefur almennt ekki áhuga á tilætl-
unum manns, árangur talar sínu máli.
Skemmtilegasta sagan af ferlinum?
Spilaði með ÍBV í Evrópukeppni á
Maracana vellinum gegn Rauðu
stjörnunni. Vígbúnir hermenn stóðu
vörð um liðin á leiðinni út á völl og
nota þurfti táknmál til að koma skila-
boðum áleiðis, slík voru lætin. Ótrúleg
lífsreynsla
Skilaboð til upprennandi íþrótta-
manna: Æfið mest, æfið best. Ertu
viss um að þú sért að gera eins vel
og þú mögulega getur?
SPORTSPJALL
„Stefnum að því
að taka færi miðjur
en í fyrra.“
Gunnar Þorsteinsson,
fyrirliði Pepsi-deildar liðs
Grindavíkur í knattspyrnu
er í Sportspjalli Víkurfrétta
þessa vikuna. Grindvíkingar
hafa verið að gera það gott
í Pepsi-deildinni í sumar og
eru sem stendur í 2. sæti
deildarinnar. Gunnar svaraði
nokkrum laufléttum spurn-
ingum fyrir Víkurfréttir.
Uppáhalds...
...leikari: Terry Crews.
...bíómynd: The Lion King.
...bók: In Pursuit of Excellence.
...Alþingismaður: Amma mun húð-
skamma mig fyrir að nefna Sjálf-
stæðismann, en Palli Magg.
...staður á Íslandi: Herjólfsdalur.
Íslenska karlalandsliðið í knatt-
spyrnu fór utan til Rússlands til
að leika á heimsmeistaramótinu í
knattspyrnu sl. laugardag með þotu
Icelandair. Í Reykjanesbæ verður
sérstaklega fylgst með þeim Arnóri
Ingva Traustasyni og Samúel Kára
Friðjónssyni. Þeir eru „okkar menn“
á HM. Alfreð Finnbogason er einnig
í uppáhaldi hjá Grindvíkingum sem
telja sig eiga talsvert í stráknum.
Það var stemmning í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar þegar landsliðið kom
í flugstöðina á laugardagsmorgun
og fór um borð í Herðubreið, þotu
Icelandair, sem flutti landsliðið og
fylgdarlið til Rússlands.
Okkar menn eru í fínu standi og
báðir klárir til að takast á við Arg-
entínu á laugardaginn, 16. júní ef
Heimir Hallgrímsson þjálfari kýs
að kalla þá inn í liðið. Á vef Víkurf-
rétta, vf.is, má m.a. sjá viðtal við
landsliðsþjálfarann þar sem hann
lýsir kostum Arnórs og Samúels og
rökstyður hvers vegna hann valdi
þá til þátttöku á HM í Rússlandi.
Okkar menn farnir til Rússlands
❱❱ Stemmning og stuð í Flugstöð Leifs Eiríkssonar við brottför
Albert Finnbogason og Arnór Ingvi Traustason. Arnór Ingvi Traustason og Samúel Kári Friðjónsson. Tólfan kvaddi strákana okkar.