Víkurfréttir - 14.06.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 14. júní 2018 // 24. tbl. // 39. árg.
E-listinn í Sveitarfélaginu Vogum sendi öllum eldri borgurum í sveitar-
félaginu ávísanir að upphæð 25.000 krónur í aðdraganda síðustu sveitar-
stjórnarkosninga. Ávísunin er dagsett fram í tímann og er útgáfudagur
hennar 1. janúar 2019 og útgefin af E-listanum. „Við viljum efla heilsubæinn
Voga og færum því öllum eldri borgurum þessa ávísun fyrir heilsueflingar-
styrk sem þú getur nýtt þegar þú kaupir þér hvers konar hreyfingu s.s.
líkamsræktarkort, árgjald í golf, jóga eða annað í þeim dúr,“ segir í texta
undir ávísuninni.
„Heilsuávísuninni var dreift af fram-
boði E-listans, og er því sveitarstjórn-
inni alveg óviðkomandi. Ekkert hefur
verið fjallað um málið á vettvangi
bæjarstjórnar, enda ný bæjarstjórn
ekki enn komið saman,“ segir Ásgeir
Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum í skrif-
legu svari við fyrirspurn Víkurfrétta
um ávísunina.
Það er óhætt að segja að E-listinn
hafi tekið talsverða áhættu í kosn-
ingabaráttunni með því að senda út
25.000 króna ávísanir fyrir heilsu-
eflingarstyrk á alla eldri borgara í
sveitarfélaginu. Samkvæmt ávísun-
inni er ekki tekið fram að ávísunina
þurfi að nota í sveitarfélaginu. Þeir
sem taka við ávísuninni frá og með
1. janúar á næsta ári hafa ekki aðrar
upplýsingar en að hún sé gefin út af
E-listanum sem þá hljóti að endur-
greiða þjónustusala upphæðina.
Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri gerir
hins vegar ráð fyrir að meirihlutinn,
sem E-listinn skipar, muni hrinda
þessu máli í framkvæmd, nú þegar ný
bæjarstjórn tekur til starfa, án þess
þó að vita nánar um það.
Brekkustíg 42 // Reykjanesbæ // Sími 855-9595
Láttu okkur hugsa
um bílinn þinn!
Undanfarin misseri hafa landverðir verið starfandi í Reykjanes UNESCO
Global Geopark og er það í fyrsta sinn sem landvarsla fer fram utan við
Reykjanes fólkvang þar sem landvörður hefur starfað um árabil.
Stöðugur straumur ferðamanna
allt árið um kring hefur gert það að
verkum að aukið álag er á viðkvæmum
svæðum en Reykjanesfólkvangur er
t.d á rauðum lista Umhverfisstofn-
unar yfir ástand friðlýstra svæða en
þar er utanvegaakstur mikið vanda-
mál allt árið um kring.
Stjórn Reykjanes Geopark hefur sett
sér það markmið að efla landvörslu á
Reykjanesskaga og hefur óskað eftir
heimild í fjárlögum að ráða landvörð
á Reykjanesskaga í heils árs stöðu.
Þær Ásta Davíðsdóttir og Hanna
Valdís Jóhannsdóttir voru ráðnar
til starfa í september á síðasta ári á
vegum Umhverfisstofnunar og höfðu
þær aðsetur á skrifstofu Heklunnar,
atvinnuþróunarfélags Suðurnesja,
en þar starfar jafnframt Reykjanes
UNESCO Geopark. Ráðning þeirra
er þó einungis tímabundin en góð
byrjun að mati þeirra sem standa að
Reykjanes Geopark.
Hanna Valdís er ferðamálafræðingur
og hefur starfað sem landvörður á há-
lendinu í tvö ár og Ásta er garðyrkju-,
umhverfis- og náttúrufræðingur og
hefur starfað sem landvörður í 15 ár.
Þeirra fyrsta verkefni var að vinna
ástandsmat fyrir svæðið auk þess
sem þær sinntu gestum og öðrum
hefðbundnum störfum landvarða.
En hver skyldu þau vera?
Landverðir oft í miklum sam
skiptum við gesti svæðisins
„Störf landvarða eru svipuð en þó
ólík frá einu svæði til annars. Marg-
breytni starfsins ræðst meðal ann-
ars af fjölbreyttri náttúru, ólíkum
ferðamönnum sem koma víðs vegar
að og mismunandi aðstæðum á
svæðunum,“ segir Ásta en land-
verðir vinna fyrst og fremst á nátt-
úruverndarsvæðum og svæðum á
náttúruverndarskrá.
„Við sinnum landvörslu sem felur í
sér eftirlit, fræðslu og viðhald. Eftir-
lit getur falið í sér að skoða svæði til
að sjá hvernig ástandi þau eru í og
hvort til einhverra aðgerða þurfi að
grípa til að vernda þau gegn frekari
skemmdum eða hvort þau eru bara
í góðu lagi og ekki þurfi að gera neitt
sérstakt annað en að fylgjast með
þeim,“ segir Hanna Valdís og bætir
við að landverðir séu oft í miklum
samskiptum við gesti svæðanna.
„Gestir geta leitað til landvarða með
ýmsar spurningar og hugleiðingar
um svæði og reyna landverðir að
svara þeim eftir bestu getu. Gestir
geta einnig verið að leita eftir svörum
við spurningum um færð, ástand vega,
veður, ferðahegðun t.d. á slæmum
vegum og ástand vaða.“
Þær segjast reyna að koma til skila
mikilvægi réttrar og öruggrar ferða-
hegðunar í náttúru Íslands sem bæði
tryggir öryggi gesta og kemur í veg
fyrir náttúruskemmdir.
Heimilisrusl og utanvega
akstur mikið vandamál
Reykjanesið hefur komið þeim á
óvart og segja þær svæðið fjölbreytt
en jafnframt víðfemt. Þá hafi komið
í ljós að umgengni um svæðið er ekki
alltaf góð.
„Reykjanes er víðfemt og fagurt og því
sækja það margir gestir allan ársins
hring. Þarna eru mikill fjölbreytileiki
allt frá stöðum sem tekur lítinn tíma
að skoða yfir í gönguleiðir sem taka
nokkra daga að ganga. Það sem okkur
fannst miður á þessu fallega svæði
var að fólk virðist hafa hent af rusli
af heimilum sínum út í náttúruna
og hvað utanvegaakstur fólks á vél-
knúnum hjólum er mikill á svæðinu.“
Landverðirnir segja það hafa gagnast
vel að hafa aðstöðu hjá Heklunni og
Reykjanes UNESCO Global Geopark
þar sem þær hafa fengið margar góðar
ábendingar og upplýsingar. Þá nýt-
ist vinna þeirra í stefnumótun fyrir
svæðið þær sem þær geta gefið upp-
lýsingar um brýn verkefni í tengslum
við verndun náttúru Reykjanessins.
„Eftir að hafa unnið á svæðinu finnst
okkur ekki vanþörf á að hafa fimm
landverði á háannatíma, tvo í Reykja-
nesfólkvangi og tvo utan hans og einn
í afleysingar. Gott væri að hafa tvo til
þrjá að vetri til þar sem einnig er mikil
umferð um svæðið í skammdeginu.
Það að fá tækifæri til að starfa á
Reykjanesinu hefur opnað augu
okkar fyrir fegurð og fjölbreytileika
svæðisins og höfum við notið þess
að kynnast nýju svæði og nýju fólki“.
Þar sem fengist hefur framlag til land-
vörslu á Reykjanesi árið 2018 mun
Ásta Davíðsdóttir halda áfram land-
vörslu á svæðinu en nýr starfsmaður
henni til aðstoðar mun bætast við í
sumar og gert er ráð fyrir landvörslu
á Reykjanesi eitthvað fram á vetur.
Ásta Davíðsdóttir og Hanna Valdís Jóhannsdóttir eru landverðir á Reykjanesi
Heimilissorp og utanvegaakstur vandamál
LANDVARSLA Á REYKJANESI
Ávísunin sem gefin er út af E-listanum.
Heilsuávísunin er sveitar
stjórninni alveg óviðkomandi
– Framboðslisti sendi eldri borgurum 25.000 króna ávísun á styrk til heilsueflingar
FRÉTTAVAKT
ALLAN SÓLARHRINGINN
898 2222
Vilja Ásgeir áfram sem
bæjarstjóra í Vogum
Rætt hefur verið við Ásgeir Eiríksson um
að hann starfi áfram sem bæjarstjóri í
Sveitarfélaginu Vogum næsta kjörtímabil.
Gert er ráð fyrir að sú ákvörðun verði stað-
fest á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar sem
verður nú í vikunni.