Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.06.2018, Qupperneq 6

Víkurfréttir - 14.06.2018, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 14. júní 2018 // 24. tbl. // 39. árg. E-listinn í Sveitarfélaginu Vogum sendi öllum eldri borgurum í sveitar- félaginu ávísanir að upphæð 25.000 krónur í aðdraganda síðustu sveitar- stjórnarkosninga. Ávísunin er dagsett fram í tímann og er útgáfudagur hennar 1. janúar 2019 og útgefin af E-listanum. „Við viljum efla heilsubæinn Voga og færum því öllum eldri borgurum þessa ávísun fyrir heilsueflingar- styrk sem þú getur nýtt þegar þú kaupir þér hvers konar hreyfingu s.s. líkamsræktarkort, árgjald í golf, jóga eða annað í þeim dúr,“ segir í texta undir ávísuninni. „Heilsuávísuninni var dreift af fram- boði E-listans, og er því sveitarstjórn- inni alveg óviðkomandi. Ekkert hefur verið fjallað um málið á vettvangi bæjarstjórnar, enda ný bæjarstjórn ekki enn komið saman,“ segir Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum í skrif- legu svari við fyrirspurn Víkurfrétta um ávísunina. Það er óhætt að segja að E-listinn hafi tekið talsverða áhættu í kosn- ingabaráttunni með því að senda út 25.000 króna ávísanir fyrir heilsu- eflingarstyrk á alla eldri borgara í sveitarfélaginu. Samkvæmt ávísun- inni er ekki tekið fram að ávísunina þurfi að nota í sveitarfélaginu. Þeir sem taka við ávísuninni frá og með 1. janúar á næsta ári hafa ekki aðrar upplýsingar en að hún sé gefin út af E-listanum sem þá hljóti að endur- greiða þjónustusala upphæðina. Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri gerir hins vegar ráð fyrir að meirihlutinn, sem E-listinn skipar, muni hrinda þessu máli í framkvæmd, nú þegar ný bæjarstjórn tekur til starfa, án þess þó að vita nánar um það. Brekkustíg 42 // Reykjanesbæ // Sími 855-9595 Láttu okkur hugsa um bílinn þinn! Undanfarin misseri hafa landverðir verið starfandi í Reykjanes UNESCO Global Geopark og er það í fyrsta sinn sem landvarsla fer fram utan við Reykjanes fólkvang þar sem landvörður hefur starfað um árabil. Stöðugur straumur ferðamanna allt árið um kring hefur gert það að verkum að aukið álag er á viðkvæmum svæðum en Reykjanesfólkvangur er t.d á rauðum lista Umhverfisstofn- unar yfir ástand friðlýstra svæða en þar er utanvegaakstur mikið vanda- mál allt árið um kring. Stjórn Reykjanes Geopark hefur sett sér það markmið að efla landvörslu á Reykjanesskaga og hefur óskað eftir heimild í fjárlögum að ráða landvörð á Reykjanesskaga í heils árs stöðu. Þær Ásta Davíðsdóttir og Hanna Valdís Jóhannsdóttir voru ráðnar til starfa í september á síðasta ári á vegum Umhverfisstofnunar og höfðu þær aðsetur á skrifstofu Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja, en þar starfar jafnframt Reykjanes UNESCO Geopark. Ráðning þeirra er þó einungis tímabundin en góð byrjun að mati þeirra sem standa að Reykjanes Geopark. Hanna Valdís er ferðamálafræðingur og hefur starfað sem landvörður á há- lendinu í tvö ár og Ásta er garðyrkju-, umhverfis- og náttúrufræðingur og hefur starfað sem landvörður í 15 ár. Þeirra fyrsta verkefni var að vinna ástandsmat fyrir svæðið auk þess sem þær sinntu gestum og öðrum hefðbundnum störfum landvarða. En hver skyldu þau vera? Landverðir oft í miklum sam­ skiptum við gesti svæðisins „Störf landvarða eru svipuð en þó ólík frá einu svæði til annars. Marg- breytni starfsins ræðst meðal ann- ars af fjölbreyttri náttúru, ólíkum ferðamönnum sem koma víðs vegar að og mismunandi aðstæðum á svæðunum,“ segir Ásta en land- verðir vinna fyrst og fremst á nátt- úruverndarsvæðum og svæðum á náttúruverndarskrá. „Við sinnum landvörslu sem felur í sér eftirlit, fræðslu og viðhald. Eftir- lit getur falið í sér að skoða svæði til að sjá hvernig ástandi þau eru í og hvort til einhverra aðgerða þurfi að grípa til að vernda þau gegn frekari skemmdum eða hvort þau eru bara í góðu lagi og ekki þurfi að gera neitt sérstakt annað en að fylgjast með þeim,“ segir Hanna Valdís og bætir við að landverðir séu oft í miklum samskiptum við gesti svæðanna. „Gestir geta leitað til landvarða með ýmsar spurningar og hugleiðingar um svæði og reyna landverðir að svara þeim eftir bestu getu. Gestir geta einnig verið að leita eftir svörum við spurningum um færð, ástand vega, veður, ferðahegðun t.d. á slæmum vegum og ástand vaða.“ Þær segjast reyna að koma til skila mikilvægi réttrar og öruggrar ferða- hegðunar í náttúru Íslands sem bæði tryggir öryggi gesta og kemur í veg fyrir náttúruskemmdir. Heimilisrusl og utanvega­ akstur mikið vandamál Reykjanesið hefur komið þeim á óvart og segja þær svæðið fjölbreytt en jafnframt víðfemt. Þá hafi komið í ljós að umgengni um svæðið er ekki alltaf góð. „Reykjanes er víðfemt og fagurt og því sækja það margir gestir allan ársins hring. Þarna eru mikill fjölbreytileiki allt frá stöðum sem tekur lítinn tíma að skoða yfir í gönguleiðir sem taka nokkra daga að ganga. Það sem okkur fannst miður á þessu fallega svæði var að fólk virðist hafa hent af rusli af heimilum sínum út í náttúruna og hvað utanvegaakstur fólks á vél- knúnum hjólum er mikill á svæðinu.“ Landverðirnir segja það hafa gagnast vel að hafa aðstöðu hjá Heklunni og Reykjanes UNESCO Global Geopark þar sem þær hafa fengið margar góðar ábendingar og upplýsingar. Þá nýt- ist vinna þeirra í stefnumótun fyrir svæðið þær sem þær geta gefið upp- lýsingar um brýn verkefni í tengslum við verndun náttúru Reykjanessins. „Eftir að hafa unnið á svæðinu finnst okkur ekki vanþörf á að hafa fimm landverði á háannatíma, tvo í Reykja- nesfólkvangi og tvo utan hans og einn í afleysingar. Gott væri að hafa tvo til þrjá að vetri til þar sem einnig er mikil umferð um svæðið í skammdeginu. Það að fá tækifæri til að starfa á Reykjanesinu hefur opnað augu okkar fyrir fegurð og fjölbreytileika svæðisins og höfum við notið þess að kynnast nýju svæði og nýju fólki“. Þar sem fengist hefur framlag til land- vörslu á Reykjanesi árið 2018 mun Ásta Davíðsdóttir halda áfram land- vörslu á svæðinu en nýr starfsmaður henni til aðstoðar mun bætast við í sumar og gert er ráð fyrir landvörslu á Reykjanesi eitthvað fram á vetur. Ásta Davíðsdóttir og Hanna Valdís Jóhannsdóttir eru landverðir á Reykjanesi Heimilissorp og utanvegaakstur vandamál LANDVARSLA Á REYKJANESI Ávísunin sem gefin er út af E-listanum. Heilsuávísunin er sveitar­ stjórninni alveg óviðkomandi – Framboðslisti sendi eldri borgurum 25.000 króna ávísun á styrk til heilsueflingar FRÉTTAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN 898 2222 Vilja Ásgeir áfram sem bæjarstjóra í Vogum Rætt hefur verið við Ásgeir Eiríksson um að hann starfi áfram sem bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Vogum næsta kjörtímabil. Gert er ráð fyrir að sú ákvörðun verði stað- fest á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar sem verður nú í vikunni.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.