Víkurfréttir - 14.06.2018, Blaðsíða 10
10 VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM f immtudagur 14. júní 2018 // 24. tbl. // 39. árg.
„Lífið er oft ein tilviljun og má eflaust segja það
með mig þegar ég fór í gistihúsa- og hótelbrans-
ann,“ segir Keflvíkingurinn Bjarni Geir Bjarnason
sem nú rekur tvö gistiheimili í heimabænum og
svo hótel í Vestmannaeyjum.
Margir Keflvíkingar muna eftir Bjarna
Geir frá yngri árum í verslun og þjón-
ustu, m.a. sem meðeiganda í Stór-
markaði Keflavíkur og í afgreiðslu-
störfum í Fríhöfninni. Á þessum
stöðum kunni Bjarni Geir vel við sig
en hann er einn af þeim sem er þjón-
ustulund í blóð borin. Vill allt fyrir
alla gera og veit ekki hvað nei þýðir.
Bjarni Geir er léttur í lund og eitt af
því sem hann gerir til að viðhalda því
er að syngja með Sönghópi Suður-
nesja. „Þetta er frábær hópur undir
stjórn Magga okkar Kjartans. Þó allir
séu áhugasamir er hann líklega límið
sem heldur hópnum saman enda snill-
ingur á ferð,“ segir Bjarni aðspurður
út í tónlistarmanninn kunna.
Úr geymslu í gistiheimili
Fréttamaður VF hitti Bjarna Geir til
að spyrja hann út í þessi nýju ferða-
þjónustuævintýri hans en á tveimur
árum var hann orðinnn hóteleigandi
í Eyjum eftir að hafa fengið gistihúsa-
bakteríuna í Keflavík en þar rekur
hann tvö gistiheimili. Það liggur beint
við að spyrja Bjarna hvað hafi rekið
hann út í ferðaþjónustuna en eru ekki
peningarnir þar núna? Hann hlær en
því er hann ekki óvanur. Setur svo
á sig alvarlega svipinn þegar hann
byrjar að svara. „Ég hafði átt geymslu
í Keflavík í mörg ár og eins skrýtið og
það kann að hljóma þá var hún alltaf
full drasli sem aðrir en ég áttu. Svo ég
ákvað upp úr þurru að selja hana og
fékk pening sem ég gat notað í start
til að byrja í rekstri gistiheimilis við
Hafnargötu 58 í Keflavík. Auglýsti á
hótelsíðum og var allt í einu farinn
að skipta á rúmum og þrífa. Gera
eitthvað sem ég hef aldrei gert. Ég
er vel giftur sjáðu til og þetta eru
verkefni sem ég hef ekki séð um á
mínu heimili,“ sagði Bjarni Geir léttur
og hlær. Heldur svo áfram. „Þetta
byrjaði nú ekki með neinum látum
og ég greiddi með mér fyrstu þrjá
mánuðina en þetta fór vaxandi og
það nokkuð hratt. Þetta er mikil yfir-
lega, sólarhringsvinna. Þeir sem eru
í gistihúsabransanum þekkja það. En
ég var ekki ósáttur við og þetta gekk
vel. Betur en ég átti von á þegar leið
á. Þetta er mjög skemmtilegt og áður
en maður veit af er maður farinn að
lána útlendingum bílinn og ræða við
þá um heima og geima,“ segir Bjarni
Geir sem var farinn að þvo rúmföt og
skúra á fyrstu dögum ársins 2016.
Það kom fáum á óvart að ári síðar var
Bjarni Geir búinn að kaupa næsta hús,
eldra einbýlishús við Hafnargötu 56
í Keflavík. Ekkert hik á okkar manni
en í þessu gistiheimili þar sem meðal
annars hefur verið leigubílastöð og
efnagerð í viðbyggingunni sem nú
er horfin eru sjö herbergi en í hinu
húsinu eru einnig sjö. Bjarni Geir segir
að hann hafi notast mikið við þekktar
hótelvefsíður á borð við Booking en
hafi bætt Expedia fljótlega við og
þannig hafi eftirspurnin aukist, sér-
staklega hjá Bandaríkjamönnum. „Ég
er búinn að láta teikna fyrir mig við-
byggingu við húsið þar sem Efnagerð
Austurlands var í gamla daga, 15 til 18
íbúðir á þremur hæðum. Það myndi
styrkja reksturinn enn frekar og ég
er aðeins að sofa á þeirri hugmynd.“
Allt er þegar þrennt er
Allt er þegar þrennt er segir ein-
hvers staðar og vinir Bjarna Geirs
segja hann vera áhættufíkil. Hann
hlær þegar hann segir frá þessu en í
ársbyrjun 2017 lá leið hans til Vest-
mannaeyja. Og jú, honum var í ein-
hverju bríaríi boðið hótel á góðum
stað í Eyjum til kaups, Hótel Eyjar.
„Mér fannst þetta nú nett galin hug-
mynd en ég fór út í eyju og eftir að
hafa skoðað þetta ákvað ég að slá
til. Keypti hótelbyggingu sem hafði
verið í rekstri í mörg ár með 15 her-
bergjum, þar af sex tveggja manna
stúdíóíbúðum. Ég fór í kjölfarið til
Eyja um vorið og var langt fram á árið
þar. Þetta er skemmtilegt hótel alveg
niður í bæ þó svo að fjarlægðir séu
yfirleitt ekki að angra Eyjamenn. En
við erum bara rétt við höfnina. Fólk
rambar inn til okkar úr Herjólfi. Það
er bara þannig.“
Sumarið gekk vel en Bjarni Geir segir
að þessi óvissa með Landeyjarhöfn
og siglingar Herjólfs trufli vissulega
reksturinn og hann sem og fleiri hafi
tapað peningum á því. Hann lokaði
hótelinu í lok árs og var með lokað
í um tvo mánuði en í upphafi 2018
hefur reksturinn verið með ágætum.
Japanskir loðnukaupendur hafi til
dæmis gist hjá honum á meðan loðnu-
vertíð var og svo séu bókanir mjög
góðar langt fram yfir sumar. Bjarni
segir að margar ráðstefnur í Eyjum
hafi hjálpað til og svo er sumarið alltaf
mjög sterkt og margir viðburðir í
menningu og íþróttum dragi margt
fólk á staðinn. Hann hefur í hyggju að
byggja við hótelið, gera alvöru mót-
töku og utanáliggjandi lyftu úr gleri
þannig að hún verði nokkurs konar
útsýnislyfta.
Magnaður staður
Við spyrjum hann út í reksturinn í
Eyjum. „Ég sé um morgunmatinn,“
svarar hann að bragði og brosir. „Ég
sameina frágang gesta á greiðslum
og morgunmatinn. Það fer ágætlega
saman. Það hefur verið mikil ánægja
með morgunmatinn og við höfum
fengið mjög góðar umsagnir. Þjón-
ustulundin maður, hún skiptir miklu
máli og ég á nóg af henni.“
Bjarni segir að ferðamennska sé öðru-
vísi í Eyjum en á Suðurnesjum. Ferða-
menn sem komi til Eyja og ætli sér
bara að stoppa stutt ílengist iðulega
og taki auka nótt eða tvær þegar þeir
sjá og byrja að upplifa staðinn. „Þetta
er náttúrulega magnaður staður og
engum líkur en það er Reykjanesið
líka. Við höfum fundið fyrir því að
ferðamenn eru farnir í auknum mæli
að gista þar lengur eða jafnvel alveg
og keyra þaðan á þá ferðamanna-
staði sem þeir vilja. Gistimöguleikar
hafa aukist í og við Keflavík og hægt
að velja úr góðri flóru. En almennt
eru útlendingar mjög hrifnir af Ís-
landi, sama hvaðan þeir koma. Það
hefur verið aukning í komu Banda-
ríkjamanna og ég fann það sérstak-
GEYMSLAN VARÐ
AÐ GISTIHEIMILI
-Bjarni Geir Bjarnason rekur tvö gistiheimili
í Keflavík og hótel í Vestmannaeyjum
Útsýnið úr svölunum frá Hótel Eyjum.
Bjarni Geir fyrir utan
gistiheimilin tvö í Keflavík og
hótelbíl úr Eyjum. VF-mynd/pket
Suðurnesjamagasín
fimmtudagskvöld kl. 20:00 á Hringbraut og vf.is
ÞÚ GETUR LÍKA HORFT
Á ÞÁTTINN Á VF.IS Í
TÖLVUNNI EÐA
SNJALLTÆKINU
Viltu auglýsa í þættinum?
Hafðu samband við auglýsingadeild í síma 421 0001
ELDGOS OG FERSKIR VINDAR