Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.06.2018, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 14.06.2018, Blaðsíða 10
10 VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM f immtudagur 14. júní 2018 // 24. tbl. // 39. árg. „Lífið er oft ein tilviljun og má eflaust segja það með mig þegar ég fór í gistihúsa- og hótelbrans- ann,“ segir Keflvíkingurinn Bjarni Geir Bjarnason sem nú rekur tvö gistiheimili í heimabænum og svo hótel í Vestmannaeyjum. Margir Keflvíkingar muna eftir Bjarna Geir frá yngri árum í verslun og þjón- ustu, m.a. sem meðeiganda í Stór- markaði Keflavíkur og í afgreiðslu- störfum í Fríhöfninni. Á þessum stöðum kunni Bjarni Geir vel við sig en hann er einn af þeim sem er þjón- ustulund í blóð borin. Vill allt fyrir alla gera og veit ekki hvað nei þýðir. Bjarni Geir er léttur í lund og eitt af því sem hann gerir til að viðhalda því er að syngja með Sönghópi Suður- nesja. „Þetta er frábær hópur undir stjórn Magga okkar Kjartans. Þó allir séu áhugasamir er hann líklega límið sem heldur hópnum saman enda snill- ingur á ferð,“ segir Bjarni aðspurður út í tónlistarmanninn kunna. Úr geymslu í gistiheimili Fréttamaður VF hitti Bjarna Geir til að spyrja hann út í þessi nýju ferða- þjónustuævintýri hans en á tveimur árum var hann orðinnn hóteleigandi í Eyjum eftir að hafa fengið gistihúsa- bakteríuna í Keflavík en þar rekur hann tvö gistiheimili. Það liggur beint við að spyrja Bjarna hvað hafi rekið hann út í ferðaþjónustuna en eru ekki peningarnir þar núna? Hann hlær en því er hann ekki óvanur. Setur svo á sig alvarlega svipinn þegar hann byrjar að svara. „Ég hafði átt geymslu í Keflavík í mörg ár og eins skrýtið og það kann að hljóma þá var hún alltaf full drasli sem aðrir en ég áttu. Svo ég ákvað upp úr þurru að selja hana og fékk pening sem ég gat notað í start til að byrja í rekstri gistiheimilis við Hafnargötu 58 í Keflavík. Auglýsti á hótelsíðum og var allt í einu farinn að skipta á rúmum og þrífa. Gera eitthvað sem ég hef aldrei gert. Ég er vel giftur sjáðu til og þetta eru verkefni sem ég hef ekki séð um á mínu heimili,“ sagði Bjarni Geir léttur og hlær. Heldur svo áfram. „Þetta byrjaði nú ekki með neinum látum og ég greiddi með mér fyrstu þrjá mánuðina en þetta fór vaxandi og það nokkuð hratt. Þetta er mikil yfir- lega, sólarhringsvinna. Þeir sem eru í gistihúsabransanum þekkja það. En ég var ekki ósáttur við og þetta gekk vel. Betur en ég átti von á þegar leið á. Þetta er mjög skemmtilegt og áður en maður veit af er maður farinn að lána útlendingum bílinn og ræða við þá um heima og geima,“ segir Bjarni Geir sem var farinn að þvo rúmföt og skúra á fyrstu dögum ársins 2016. Það kom fáum á óvart að ári síðar var Bjarni Geir búinn að kaupa næsta hús, eldra einbýlishús við Hafnargötu 56 í Keflavík. Ekkert hik á okkar manni en í þessu gistiheimili þar sem meðal annars hefur verið leigubílastöð og efnagerð í viðbyggingunni sem nú er horfin eru sjö herbergi en í hinu húsinu eru einnig sjö. Bjarni Geir segir að hann hafi notast mikið við þekktar hótelvefsíður á borð við Booking en hafi bætt Expedia fljótlega við og þannig hafi eftirspurnin aukist, sér- staklega hjá Bandaríkjamönnum. „Ég er búinn að láta teikna fyrir mig við- byggingu við húsið þar sem Efnagerð Austurlands var í gamla daga, 15 til 18 íbúðir á þremur hæðum. Það myndi styrkja reksturinn enn frekar og ég er aðeins að sofa á þeirri hugmynd.“ Allt er þegar þrennt er Allt er þegar þrennt er segir ein- hvers staðar og vinir Bjarna Geirs segja hann vera áhættufíkil. Hann hlær þegar hann segir frá þessu en í ársbyrjun 2017 lá leið hans til Vest- mannaeyja. Og jú, honum var í ein- hverju bríaríi boðið hótel á góðum stað í Eyjum til kaups, Hótel Eyjar. „Mér fannst þetta nú nett galin hug- mynd en ég fór út í eyju og eftir að hafa skoðað þetta ákvað ég að slá til. Keypti hótelbyggingu sem hafði verið í rekstri í mörg ár með 15 her- bergjum, þar af sex tveggja manna stúdíóíbúðum. Ég fór í kjölfarið til Eyja um vorið og var langt fram á árið þar. Þetta er skemmtilegt hótel alveg niður í bæ þó svo að fjarlægðir séu yfirleitt ekki að angra Eyjamenn. En við erum bara rétt við höfnina. Fólk rambar inn til okkar úr Herjólfi. Það er bara þannig.“ Sumarið gekk vel en Bjarni Geir segir að þessi óvissa með Landeyjarhöfn og siglingar Herjólfs trufli vissulega reksturinn og hann sem og fleiri hafi tapað peningum á því. Hann lokaði hótelinu í lok árs og var með lokað í um tvo mánuði en í upphafi 2018 hefur reksturinn verið með ágætum. Japanskir loðnukaupendur hafi til dæmis gist hjá honum á meðan loðnu- vertíð var og svo séu bókanir mjög góðar langt fram yfir sumar. Bjarni segir að margar ráðstefnur í Eyjum hafi hjálpað til og svo er sumarið alltaf mjög sterkt og margir viðburðir í menningu og íþróttum dragi margt fólk á staðinn. Hann hefur í hyggju að byggja við hótelið, gera alvöru mót- töku og utanáliggjandi lyftu úr gleri þannig að hún verði nokkurs konar útsýnislyfta. Magnaður staður Við spyrjum hann út í reksturinn í Eyjum. „Ég sé um morgunmatinn,“ svarar hann að bragði og brosir. „Ég sameina frágang gesta á greiðslum og morgunmatinn. Það fer ágætlega saman. Það hefur verið mikil ánægja með morgunmatinn og við höfum fengið mjög góðar umsagnir. Þjón- ustulundin maður, hún skiptir miklu máli og ég á nóg af henni.“ Bjarni segir að ferðamennska sé öðru- vísi í Eyjum en á Suðurnesjum. Ferða- menn sem komi til Eyja og ætli sér bara að stoppa stutt ílengist iðulega og taki auka nótt eða tvær þegar þeir sjá og byrja að upplifa staðinn. „Þetta er náttúrulega magnaður staður og engum líkur en það er Reykjanesið líka. Við höfum fundið fyrir því að ferðamenn eru farnir í auknum mæli að gista þar lengur eða jafnvel alveg og keyra þaðan á þá ferðamanna- staði sem þeir vilja. Gistimöguleikar hafa aukist í og við Keflavík og hægt að velja úr góðri flóru. En almennt eru útlendingar mjög hrifnir af Ís- landi, sama hvaðan þeir koma. Það hefur verið aukning í komu Banda- ríkjamanna og ég fann það sérstak- GEYMSLAN VARÐ AÐ GISTIHEIMILI -Bjarni Geir Bjarnason rekur tvö gistiheimili í Keflavík og hótel í Vestmannaeyjum Útsýnið úr svölunum frá Hótel Eyjum. Bjarni Geir fyrir utan gistiheimilin tvö í Keflavík og hótelbíl úr Eyjum. VF-mynd/pket Suðurnesjamagasín fimmtudagskvöld kl. 20:00 á Hringbraut og vf.is ÞÚ GETUR LÍKA HORFT Á ÞÁTTINN Á VF.IS Í TÖLVUNNI EÐA SNJALLTÆKINU Viltu auglýsa í þættinum? Hafðu samband við auglýsingadeild í síma 421 0001                                  ­    €          ELDGOS OG FERSKIR VINDAR ‚ƒƒ„…†‡­ˆ‰†ˆŠ‹Œ‹‹Ž‚‘’‡…„“ ‚­

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.