Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.09.2018, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 14.09.2018, Qupperneq 2
Veður Ákveðinn norðanvindur og rigning norðan til í dag, en hægara bjartviðri syðra. sjá síðu 20 Kosta Ríka Áramótaferð | 28.desember – 10. janúar Verð frá: 569.900 kr. VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 | VITA.IS og 12.500 Vildarpunktar. Á mann m.v. 2 í herbergi Verð án Vildarpunkta: 579.900 kr. Fararstjóri er Héðinn Svarfdal Björnsson Heima er best Pylsuvagn hinna sögufrægu Bæjarins beztu var í gær hífður á sinn stað eftir að hafa tímabundið verið færður yfir götuna við Pósthússtræti vegna framkvæmda á svæðinu. Vagninn var upprunalega opnaður árið 1937 og hefur fyrir löngu unnið sér sess sem ómissandi hluti í flóru miðbæjarins. Þá flykkjast þangað ferðamenn daglega sem heyrt hafa sögur af því sérstaka lostæti sem mörgum þykir íslensku pylsurnar vera. Fréttablaðið/Ernir REYKjAVíKuRBORG Kolbrún Baldurs- dóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, lagði fram tillögu þess efnis í borgar- ráði í gær að dýrahald skuli leyft í félagslegu húsnæði í eigu borgar- innar. Kolbrún er áheyrnarfulltrúi í ráðinu. Í rökstuðningi með tillögunni kemur fram að rannsóknir hafi sýnt fram á góð áhrif af umgengni manna við dýr. Slíkt geti aukið tilfinninga- lega og líkamlega vellíðan og sjálfs- traust. „Ekkert getur komið í stað tengsla við aðra manneskju en gæludýr geta uppfyllt þörf fyrir vináttu og snert- ingu,“ segir í greinargerðinni. Þar segir jafnframt að það sé átakanlegt að fólk hafi þurft að láta frá sér gælu- dýr vegna þess að þau eru ekki leyfð í íbúðunum. „Að banna gæludýr eins og hunda og ketti í félagslegu húsnæði borgar- innar er ómanneskjulegt og ástæðu- laust.“ – khn Leyfi gæludýr í borgaríbúðum ORKuVEitAn Bjarni Már Júlíusson, sem rekinn var í gær sem fram- kvæmdastjóri Orku náttúrunnar, dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur, fyrir óviðeigandi hegðun, fær laun í sex mánuði. Samkvæmt ársreikningi Orku- veitu Reykjavíkur (OR) nema mán- aðarlaun framkvæmdastjóra þriggja dótturfélaga rúmum 2,4 milljónum á mánuði. Áætla má að kostnaður OR vegna starfslokanna nemi 14,6 millj- ónum króna. Eiríkur Hjálmarsson, upplýsinga- fulltrúi OR, staðfestir að Bjarni Már sé með sex mánaða uppsagnarfrest en líkt og Fréttablaðið greindi frá í fyrra hafði forveri hans í starfi níu mánaða uppsagnarfrest. Undanfari starfsloka Bjarna Más var Facebook- færsla frá Einari Bárðar- syni þar sem hann talaði um framkvæmdastjóra stórfyrirtækis sem „sendi klámfengna tölvupósta á kven-undirmenn sína á laugardags- kvöldum, kalli þær járnfrúr, frekjur, pempíur, grýlur, segi að konur geti blikkað sig upp í launum og í opnu starfsrými fyrir framan samstarfsfólk að ein þeirra gangi ekki út vegna þess að hún sú sé bara alls ekki nógu gröð.“ Síðar kom í ljós að framkvæmda- stjórinn var Bjarni Már og að færslan hafði birst eftir fund Einars með for- stjóra OR, Bjarna Bjarnasyni. Eigin- kona Einars, Áslaug Thelma Einars- dóttir, er fyrrverandi forstöðumaður einstaklingsmarkaðs hjá ON. Af færslu Einars að dæma virðast þau upplifa það sem svo að Áslaugu hafi verið sagt upp eftir að hafa ítrek- að kvartað undan Bjarna Má. Ekki náðist í Áslaugu Thelmu. Einar segir að þau muni ekki tjá sig í bili. Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, segir að sér hafi brugðið er hann fékk póst frá Einari á þriðju- dag með upplýsingum um ósæmilega framkomu Bjarna Más. Hann hafi óskað eftir fundi með hjónunum á mið- vikudagsmorgun. Byggt á því sem þar kom fram hafi hann svo boðað til stjórnarfundar eftir hádegi á mið- vikudag þar sem niðurstaðan varð að láta Bjarna Má fara. Hann vísar því á bug að hafa tekið erindi Einars fálega. „Mér var mjög brugðið að sjá póst- inn frá Einari, hann var þess eðlis. Á fundi okkar var það alveg skýrt að ég sagði þeim að ég gæfi engan afslátt af þeirri kröfu að stjórnendur í Orku- veitunni kæmu alltaf fram af virðingu við sitt fólk. Ég sagði líka að það væri ekki á minni hendi að ákveða hvað gerðist. Ég myndi leggja þetta fyrir stjórn sem ég gerði eftir hádegi sam- dægurs. Ég brást við tafarlaust.“ Bjarni Már vildi ekki ræða við Fréttablaðið en vísaði í samtöl sín við aðra miðla. Þar sagðist hann hafa gert mistök en ekki vera „dónakall“. mikael@frettabladid.is Rekinn með skömm en fær laun í sex mánuði Einar bárðarson opnaði á málið með Facebook- færslu á mið- vikudag. bjarni Már Júlíusson hefur verið rekinn úr starfi sem framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar fyrir óviðeigandi framkomu í garð samstarfsfólks. Mynd/gusk EhF. Framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar rekinn fyrir óviðeigandi hegðun gagnvart samstarfsfólki. Forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur brugðið. Segist hafa brugðist tafar- laust við eftir að Einar Bárðarson sendi honum sláandi póst. Mér var brugðið. Bjarni Bjarnason, for- stjóri Orkuveitu Reykjavíkur MEnninG Vísindamenn við Bord- eaux-háskóla í Frakklandi telja sig hafa fundið elstu teikningu heims. Teikningin, eða að minnsta kosti hluti hennar, fannst á steini í Suð- ur-Afríku og einkennist af krossa- mynstri. Teikningin er talin vera í kringum 73 þúsund ára gömul. Vísindamönnunum hefur ekki tekist að ráða í merkingu línanna, en þær virðast tilheyra stærri teikn- ingu. Undanfarin sjö ár hafa vísinda- mennirnir freistað þess að greina uppruna steinsins en hann fannst þegar fornleifafræðingar rannsök- uðu ævaforna örvarodda í helli um 300 kílómetra austur af Höfðaborg. „Þetta er elsta teikning mann- kynssögunnar,“ segir Francesco d’Erruco, einn rannsakenda. Þar til nú hafa fornleifafræðingar talið að elstu teikningar mannskepn- unnar sé að finna í hellum á Spáni og í Indónesíu. Þær teikningar eru aðeins 40 þúsund ára gamlar. – khn Elsta teikning sögunnar fundin Ekki hefur tekist að ráða í merkingu 73 þúsund ára teikningar. Mynd/naturE 1 4 . s E p t E M B E R 2 0 1 8 F Ö s t u D A G u R2 F R é t t i R ∙ F R é t t A B L A ð i ð 1 4 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 D 4 -E F C 0 2 0 D 4 -E E 8 4 2 0 D 4 -E D 4 8 2 0 D 4 -E C 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 3 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.