Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.09.2018, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 14.09.2018, Qupperneq 6
Nýtt Strefen 16,2 mg/ml munnholsúði, lausn inniheldur flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga úr einkennum bráðra hálssærinda hjá fullorðnum. Einn skammtur (3 úðaskammtar) aftast í hálsinn á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, upp að hámarki 5 skammtar á 24 klst. tímabili. Ráðlagt er að nota lyfið að hámarki í þrjá daga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. ÖFLUG LAUSN VIÐ HÁLSBÓLGU! Bólgueyðandi og verkjastillandi munnúði við særindum í hálsi Strefen-sprey-Lyfja-5x10.indd 1 23/08/2018 10:54 ALÞINGI „Efnahagsuppbygging síðustu ára hefur skilað miklum árangri. Afgangur af viðskipta- jöfnuði og af afkomu hins opinbera endur speglast í auknum þjóðhags- legum sparnaði en auk þess sem skuldir ríkissjóðs hafa verið lækkað- ar hafa háar fjárhæðir verið greiddar inn á lífeyrisskuldbindingar,“ sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra sem mælti fyrir fjárlagafrum- varpi næsta árs á Alþingi í gær. Bjarni sagði til mikils að vinna með því að styrkja félagslegan og efnahagslegan stöðugleika. Þorsteinn Víglundsson, varafor- maður Viðreisnar, sagði alla skatt- stofna vera í hápunkti. „Það er ekki sérstaklega merki- legur árangur í íslensku sveiflunni að skila ríkissjóði með afgangi á þessum tímapunkti. Það er hins vegar alveg sérstaklega merkilegur árangur að ná að eyða öllum þeim peningum,“ sagði Þorsteinn sem spurði hvaða skatta ætti að hækka vegna 200 milljarða útgjaldaaukn- ingar á næstu fimm árum. Ráðherra sagðist ekki vera að huga að neinum skattahækkunum. Ágúst Ólafur Ágústsson, þing- maður Samfylkingarinnar, sagði að svigrúm til að bæta kjör hinna lægst launuðu væri ekki verið að nýta. „Við þurfum að fá nýja ríkisstjórn sem er með sanngjarnari forgangs- röðun, sem forgangsraðar í þágu venjulegs fólks í þessu landi. Þessi ríkisstjórn staðfestir með þessu frumvarpi að hún er ekki að gera það.“ Fyrstu umræðu um fjárlaga- frumvarpið lýkur í dag en þá munu fagráðherrar taka þátt í umræðum um einstaka málaflokka. – sar Ekki merkilegur árangur að skila afgangi Þorsteinn Víglundsson sagði alla skattstofna í hápunkti. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR DómsmáL „Ég vænti þess að þessi dómur verði þannig saminn að hann sendi skilaboð til dómstólanna í landinu, til ákæruvaldsins og til fram- tíðarinnar að þetta gerist ekki oftar í sakamálum,“ sagði Ragnar Aðal- steinsson, verjandi Guðjóns Skarp- héðinssonar, við munnlegan mál- flutning í Hæstarétti í gær. Mörg þung orð féllu í þessum lang- þráða málflutningi í Guðmundar- og Geirfinnsmálum fyrir Hæstarétti sem hófst í gær. Málið er nú flutt fyrir réttinum í annað sinn, eftir að endurupptökunefnd féllst á endur- upptökubeiðnir fimm af sex dóm- felldu í málinu. Verjendur Kristjáns Viðars Júlíus- sonar, Guðjóns Skarphéðinssonar og Sævars Marinós Ciesielski fluttu mál sinna skjólstæðinga í gær. Byggðu verjendur og reyndar saksóknari einnig á því að játningar sakborn- inga hefðu verið fengnar fram með ólögmætum hætti og löng einangr- unarvist leiki þar stærsta hlutverkið. Davíð Þór Björgvinsson saksóknari, sem fer fram á sýknu allra dómfelldu, komst þannig að orði að sterkar vís- bendingar væru um að gæsluvarð- haldi og einangrun hefði beinlínis verði beitt til að brjóta niður mót- stöðu sakborninga og knýja játningar fram. Þá hefði sakborningum verið refs- að í einangrunarvistinni þegar þeir reyndu að draga játningar til baka og umbunað þegar þeir drógust inn á þær aftur. Þetta komi með óyggjandi hætti í ljós þegar lögregluskýrslur séu metnar með hliðsjón af dagbók Síðu- múlafangelsis sem lögð hefur verið fram í málinu. „Þessar játningar urðu til við algjörlega óforsvaranlegar rannsóknaraðferðir, sem virtust alls ekki hafa það að markmiði að finna sannleikann heldur að laga þær að einhverri kenningu rannsóknarað- ila,“ sagði Jón Steinar Gunnlaugsson, verjandi Kristjáns Viðars Júlíussonar, í sinni ræðu. Eftir að hafa fjallað um málsmeð- ferð lögreglu, ákæruvalds og dóm- stóla og brot á helstu réttindum sakaðra manna, brýndi Ragnar réttinn til að sýna áræðni. „Ég geri mér grein fyrir því, virðu- legi Hæstiréttur, að þetta geti verið erfitt fyrir dómarana, af því að nú erum við að fjalla um dóm sem þessi sami dómstóll kvað upp árið 1980 og erum óbeint að fjalla um synjun hans á endurupptöku árið 1997 og einn af dómurum sem tóku þátt í þeirri synjun er enn dómari við réttinn. Ég geri mér grein fyrir því að það þarf áræðni til að fjalla um þetta mál svo viðunandi sé,“ sagði Ragnar. Hann fer fram á að Guðjón verði lýstur saklaus í for- sendum nýs dóms enda liggi fyrir að fyrri játningar hans séu falskar og ekkert að marka þær. Enginn dómfelldu var viðstaddur málflutninginn í gær, nema Erla Bolladóttir. Henni var synjað um endurupptöku síðastliðinn vetur. Málflutningi verður framhaldið í dag og munu verjendur Tryggva Rúnars Leifssonar og Alberts Klahn Skaftasonar flytja sínar ræður fyrir Hæstarétti. adalheidur@frettabladid.is Málin erfið fyrir dómara Hæstaréttar Verjendur sakborninganna í Guðmundar- og Geirfinnsmálum við upphaf munnlegs málflutnings í Hæstarétti í gær. Málið heldur áfram í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Munnlegur málflutning- ur hófst í Guðmundar- og Geirfinnsmálum í gær. Enginn dómfelldu var viðstaddur nema Erla. Verjendur brýndu dóm- ara til að leiðrétta mistök Hæstaréttar í málinu. Ég geri mér grein fyrir því, virðulegi Hæstiréttur, að þetta geti verið erfitt fyrir dómarana. Ragnar Aðalsteinsson verjandi Það er mikið velferðarmál fyrir réttarríkið á Íslandi að þetta verði, þótt seint sé, leiðrétt nú. Jón Steinar Gunnlaugsson verjandi 1 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 F Ö s t U D A G U r6 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A ð I ð 1 4 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 D 5 -1 7 4 0 2 0 D 5 -1 6 0 4 2 0 D 5 -1 4 C 8 2 0 D 5 -1 3 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 1 3 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.