Fréttablaðið - 14.09.2018, Side 10
Framboðsfrestur
Ákveðið hefur verið að viðhafa
allsherjaratkvæðagreiðslu
í VR við kjör fulltrúa félagsins
á 43. þing Alþýðusambands
Íslands 2018.
Kjörnir verða 87 fulltrúar og 30 til vara.
Framboðslistar ásamt meðmælum 300
fullgildra félagsmanna þurfa að hafa
borist kjörstjórn á skrifstofu VR, Húsi
verslunarinnar, Kringlunni 7, fyrir
kl. 12.00 á hádegi, föstudaginn
21. september næstkomandi.
Kjörstjórn VR
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS
Bandaríski tæknirisinn Apple
kynnti á miðvikudag nýjar vörur,
líkt og fyrirtækið gerir venju sam-
kvæmt í september. Helstu nýjung-
arnar eru þrjár nýjar útgáfur hins
geysivinsæla iPhone-snjallsíma og
ný útgáfa snjallúrsins Apple Watch.
Eins og alltaf þegar Apple heldur
kynningarfundi fóru bandarískir
tæknimiðlar á yfirsnúning. Í gær
og á miðvikudag birtist því urmull
umfjallana um það nýjasta í Apple-
heiminum. Leiðarstefið virðist vera
það að hinar nýju vörur séu góðar
uppfærslur á eldri útgáfum þótt
hönnunin haldist sú sama. Lítil
breyting á hönnun þarf þó ekki
að koma á óvart. Undanfarin ár
hefur Apple haft þann sið að kynna
S-útgáfur iPhone-símanna á árum
sem enda á sléttri tölu. Þá er venju-
lega um að ræða uppfærslu á inn-
volsi símanna, ekki hönnun þeirra.
Fyrstan skal nefna iPhone XS.
Síminn er keimlíkur iPhone X sem
kom á markað í fyrra en er, líkt og
hinir tveir nýju símarnir, útbúinn
nýjum A12 örgjörva og á því að vera
hraðvirkari. TechCrunch komst
svo að orði að Apple væri ekkert að
finna upp hjólið. Blaðamaður Ars
Technica sagði að ef ekki væri fyrir
nýja gyllta litinn hefði hann varla
vitað að síminn væri nýr. Hann hafi
hins vegar, við nánari athugun, tekið
eftir hraðaaukningu. Þá sagði hann
skjá símans þann besta sem hann
hefði nokkurn tímann séð á snjall-
síma.
Bróðir XS er iPhone XS Max.
Tröllvaxinn sími með 6,5 tommu
OLED-skjá sem teygir sig yfir nærri
alla framhlið símans. Síminn er
útbúinn stærri skjá og rafhlöðu XS
en er að öðru leyti eins. Með öflugan
örgjörva og stóran skjá í huga má
vel sjá fyrir sér að síminn sé ágætis
leikjavél.
Mestu breytinguna frá iPhone X
má hins vegar sjá á hinum nýja XR. Í
staðinn fyrir ryðfrítt stál er komið ál
og í stað OLED-skjás er kominn síðri
LCD-skjár. Þá er síminn einungis
útbúinn einni myndavél á afturhlið-
inni í stað tveggja en Apple heldur
því fram að með hugbúnaði sé hægt
að ná næstum sömu niðurstöðu
þegar portrettmyndir eru teknar.
Þessi niðurfærsla á eiginleikum
XR, sem tækniblaðamenn segja þó
ekki mikla, skilar sér í mun lægra
verði. Í Bandaríkjunum mun ódýr-
asta útgáfa XR kosta 749 banda-
ríkjadali. Ódýrasti XS-síminn mun
kosta 1.000 dali og XS Max 1.100
dali. Dýrasta útgáfa XS Max mun
hins vegar kosta heila 1.500 dali.
Verð eldri síma, iPhone 7 og 8, hefur
verið lækkað á meðan framleiðslu
enn eldri síma verður hætt.
Útgáfudagur XS og XS Max verður
21. september en hægt verður að for-
panta þá viku fyrr. XR fer í forpönt-
un 19. október og verður sendur
kaupendum viku síðar.
Tuong Nguyen, greinandi hjá
fyrirtækinu Gartner, sagði í samtali
við CNET að Apple væri greinilega
að stuðla að verðhækkun á snjall-
símamarkaði. Þá er vert að taka fram
að tollastríð Bandaríkjanna við Kína
gæti orðið til frekari verðhækkunar
hjá Apple, eins og fyrirtækið varaði
sjálft við á dögunum.
Með verðhækkunina í huga virtist
það fara í taugarnar á blaðamanni
The Verge að Apple sé nú hætt
að láta millistykki fyrir venjuleg
heyrnar tólatengi fylgja með símum
sínum. Apple hætti að hafa slík tengi
á símunum sjálfum með útgáfu
iPhone 7 og hafa margir keppi-
nautar fylgt í kjölfarið, þó ekki allir.
„Það eitt að þurfa millistykki er
pirrandi. En að þurfa líka að borga
fyrir það er hreinlega móðgun,“
sagði í umfjöllun The Verge. Sagði
þar enn fremur að jafnvel þótt það
væri rétt að fæstir notuðu milli-
stykkin, og Apple hefði hætt að láta
millistykki fylgja með í umhverfis-
verndarskyni, myndi sá rökstuðn-
ingur ekki halda vatni þar sem hægt
væri að setja gjafabréf fyrir milli-
stykki í kassann. Einnig hefur verið
gagnrýnt að enn á ný fylgi ekki hrað-
hleðslutæki með símunum.
Útgáfudagur iOS 12, nýjustu upp-
færslu stýrikerfis snjalltækja Apple,
var einnig kynntur á fundinum og
kemur stýrikerfið út 17. september.
Með í för eru Memoji, eins konar
sjálftjámyndir, hóptilkynningar og
á stýrikerfið einnig að bæta frammi-
stöðu eldri síma. Hins vegar hefur
útgáfu hópspjalls í gegnum Face-
Time verið frestað, trúlega fram í
október að því er Techradar greindi
frá. thorgnyr@frettabladid.is
Nýjum Apple-vörum almennt vel tekið
Phil Schiller, varaforseti Apple, kynnir nýja iPhone-síma, þar á meðal hinn tröllvaxna iPhone XS Max. NordicPhotoS/AFP
Tækni
Allt frá útgáfu Windows 10 hefur
bandaríski tæknirisinn Microsoft
hvatt neytendur til þess að prófa
nýja vafrann sinn, Microsoft Edge.
Vafrinn var gefinn út eftir að fyrri
vafri fyrirtækisins, Internet Explorer,
missti nærri alla markaðshlutdeild.
Fyrst að hluta til Mozilla Firefox
og svo að nær öllu leyti til Google
Chrome, ráðandi vafra á markaði í
dag.
Sem dæmi um þessa hvatningu
Microsoft til Edge-notkunar má
nefna það að stillingar um sjálfgefinn
vafra hafa átt það til að endurstillast
yfir á Edge eftir stýrikerfisuppfærsl-
ur, auglýsingar á lásskjám og í möpp-
um og svo venjulegar auglýsingaher-
ferðir á netinu og í fjölmiðlum.
Tækniáhugamönnum hefur þótt
þessi mikla hvatning eiga meira skylt
við þrýsting eða einfaldlega ýtni.
Tæknisíðan Thurrott greindi svo frá
því í gær að nú sé Microsoft einfald-
lega farið að vara við notkun ann-
arra vafra. Þegar blaðamaður Thurr-
ott reyndi að hlaða niður Google
Chrome spratt gluggi upp sem í stóð:
„Þú ert nú þegar með Microsoft Edge,
hraðari og öruggari vafra fyrir Wind-
ows 10.“
Blaðamanninum var þá boðið upp
á annaðhvort að opna Edge eða að
hlaða niður Chrome sem og upp á að
„sleppa frekari viðvörunum í fram-
tíðinni“.
„Chrome er ekki vírus. Það er
engin gild ástæða fyrir því að Micro-
soft VARI mig við því að hlaða
Chrome niður. Og þessi notkun
orðanna „að vara við“ kemur frá
Microsoft en ekki mér.“ – þea
Óánægja með ýtni Edge
Surface-tölva frá Microsoft, líklega með innbyggðan Edge-vafra. MyNd/MicroSoFt
Hjartarafrit og stærri skjár
Apple kynnti sömuleiðis Apple
Watch Series 4, nýjustu
útgáfu snjallúrs síns.
Úrið er útbúið stærri
skjá, hraðari örgjörva
og nýjum heilsueigin
leikum.
Eftirtektarverðustu
eiginleikarnir eru
einmitt þeir sem eru
á heilsusviðinu. Til
að mynda nýta nýju
úrin, sem fást í tveimur
skjástærðum, hreyfi
skynjara til þess að skynja
það þegar notandi dettur.
Hægt er að virkja stillingu
sem býður notanda upp á að
hringja neyðarsímtal með einum
smelli eftir slæma byltu. Þá mun
úrið einnig vara notanda við
þegar hjartsláttur er óreglu
legur, of hægur eða of
hraður. Sömuleiðis
verður í fyrsta skipti
hægt að taka hjarta
rafrit. Sá eiginleiki býðst
þó eingöngu í Banda
ríkjunum, að minnsta
kosti í bili.
Helst er fundið að
hinu nýja snjallúri að
rafhlöðuendingin er sú
sama og áður. „Óbreytt
rafhlöðuending veldur
mestum vonbrigðum. Ég
vonaðist eftir framför á því sviði,“
sagði blaðamaður Ars Technica.
Þrír nýir iPhone-símar,
ný snjallúr og ný upp-
færsla iOS-stýrikerfisins
er á meðal þess sem
kynnt var á fundi Apple
í vikunni. Tækniblaða-
menn í góðum gír.
Flestum líst vel á nýju
vörurnar við fyrstu sýn.
1 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 F Ö s t U D A G U r10 F r é t t i r ∙ F r é t t A b L A ð i ð
1
4
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
D
4
-F
E
9
0
2
0
D
4
-F
D
5
4
2
0
D
4
-F
C
1
8
2
0
D
4
-F
A
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
3
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K