Fréttablaðið - 14.09.2018, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 14.09.2018, Blaðsíða 23
Barnavörur IKEA ganga í gegnum enn strangari prófanir en aðrar vörur fyrirtækisins og þurfa að stand­ ast strangari kröfur. Heimur þeirra snýst um leik, börn eru skapandi og finna alltaf nýjar leiðir til að nota hluti. Það er til dæmis ekki ólíklegt að barnið sjái trampólín þegar það lítur á rúm. IKEA hefur gefið út app sem hjálpar aðstandendum að vera skrefi á undan barninu.LEN gjafapúðinn er sérstaklega hannaður út frá öryggi þegar barni er gefið brjóst eða fær pela. Birna Magnea sölustjóri hefur umsjón með fræðslu um öryggi fyrir foreldra. Allar vörur IKEA ganga í gegnum öryggisprófanir og standast ströngustu kröfur hvers lands. Barnavörurnar ganga þó í gegnum enn strangari prófanir og þurfa að standast strangari kröfur. Til að mynda eru allar dýnur IKEA úr öruggu og sjálfbæru efni og lausar við skaðleg efni. Að auki eru nýju barnadýnurnar frá IKEA úr efni sem hleypir lofti auð- veldlega í gegn og skapar öruggara umhverfi fyrir barnið. Birna Magnea Bogadóttir, sölu- stjóri í IKEA, útskýrir öryggisferli fyrirtækisins: „Í prófunarferlinu er hugsað út í hvernig ætlast er til að varan sé notuð og líka hvernig mögulegt er að nota hana og þannig tekst að draga úr hættu á slysum. Hver einasta vara gengur í gegnum strangt prófanaferli og hún er ekki sett í sölu fyrr en hún er algjörlega örugg. Jafnvel eftir að vörurnar eru komnar í sölu er haldið áfram að meta þær og prófa reglulega og gerðar úrbætur ef þörf er á.“ Börn fara eigin leiðir Börn nota hluti ekki alltaf eins og ætlast er til og þau hafa ekki getu til að hugsa um öryggi þegar þau leika sér. IKEA styður því börn og foreldra þeirra með því að meta mögulega hættu við vörur meðan á hönnun og þróun þeirra stendur. Birna segir frá aðferðum IKEA: „Við hönnun á barnavörum Öryggi barna í fyrirrúmi Fallegar og vandaðar barnavörur sem hjálpa barninu að þroskast og þróa með sér líkamlega og félagslega hæfni eru mikilvægar. Þó eru flestir foreldrar sammála um að öryggi barna er það sem skiptir mestu máli. Því leggur IKEA mikla áherslu á alla þessa þætti með öryggi barna í fyrirrúmi. er litið á þær út frá sjónarhorni barna. Heimur þeirra snýst um leik, börn eru skapandi og finna alltaf nýjar leiðir til að nota hluti. Það er til dæmis ekki ólíklegt að barnið sjái trampólín þegar það lítur á rúm. Því er það óhjákvæmi- legt að stundum verði árekstrar, en alvarleg slys eru aldrei ásættanleg.“ Ný herferð IKEA fjallar um öryggi á heimilinu og er unnin í samstarfi við Herdísi Storgaard, stofnanda Miðstöðvar slysavarna barna. Þar er öryggi barna í fyrir- rúmi og boðið er upp á fræðslu fyrir nýbakaða sem og reynda foreldra, ömmur, afa og alla þá sem umgangast börn. Birna hefur umsjón með vinnustofunni sem er í boði í versluninni: „Með vinnustofunni viljum við deila þekkingu okkar á hvernig má skapa öruggara heimili. Flest slys verða inni á heimilinu og með aukinni fræðslu má koma í veg fyrir mörg þeirra.“ Í tengslum við verkefnið Örugg- ara heimili gaf IKEA út app sem hjálpar aðstandendum að vera skrefi á undan barninu. Þar er fullt af fróðleik og líka hægt að útbúa minnislista yfir öryggisráðstafanir sem eru byggðar á aldri barnsins. Appið er frítt og er á Google Play og Apple App Store. Vísindaleg en umfram allt mannleg nálgun IKEA fer ekki aðeins eftir vísinda- legum rannsóknum og prófunum heldur beitir einnig mannlegri nálgun þegar það kemur að vöru- þróun. Dæmi um þetta er nýi LEN gjafapúðinn sem er sérstaklega hannaður með öryggi í huga og mikil áhersla lögð á rétta og þægi- lega líkamsstellingu þegar barni er gefið brjóst eða það fær pela. IKEA fékk til sín nýbakaða foreldra til að hanna með sér púðann og fann þannig hentuga stærð og lögun sem gæfi þægilegan stuðning. „Þó að við tökum fulla ábyrgð á vörunum þá má segja að IKEA vörur séu unnar í miklu samstarfi við viðskiptavini okkar. Við hlust- um á það sem þeir hafa að segja og tökum mark á viðbrögðum þeirra. Við seljum aðeins vörur sem við gæfum eigin börnum,“ segir Birna að lokum. KYNNINGARBLAÐ 3 F Ö S T U DAG U R 1 4 . s E p t E m b E r 2 0 1 8 MóÐIR oG BARN 1 4 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 D 4 -F 9 A 0 2 0 D 4 -F 8 6 4 2 0 D 4 -F 7 2 8 2 0 D 4 -F 5 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 1 3 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.