Fréttablaðið - 14.09.2018, Qupperneq 30
Ég held að það hafi
varla verið gefinn
út áður á Íslandi svona
pakki með nótnabók, CD
og vínylplötu. Mér finnst
geggjað að lögin séu að
koma út í nótnabók fyrst,
það er svo retró.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
100% Black
60% Magenta
100% Yello
RITLISTARNÁMSKEIÐ Á HAUSTÖNN 2018
Hægt er að fá ritlistarnámskeið sérsniðin fyrir hópa og vinnustaði.
Ráðgjöf um ritun og útgáfu
Endurminningaskrif. Reykjavík, 24. september – 15. október
Endurminningaskrif. Félagsmiðstöðin Vesturreitir, 25. september – 16. október
Skapandi skrif. Helgarnámskeið, Reykjavík, 12. -14. október
Skapandi skrif fyrir háskólafólk. El Tobosco, Spáni, 20. -27. október
Skoðanaskrif. Reykjavík, 29. október – 19. nóvember
Skapandi skrif. Berlín, 25. – 28. nóvember
Skapandi skrif. Helgarnámskeið á Ísafirði, 11. – 13. janúar 2019
,,Ótrúlega, endalaust
skemmtilegt!”
Ósk Elísdóttir Björg Árnadóttir,
rithöfundur, blaðamaður
og ritlistarkennari
www.stilvopnid.is
Lambakótelettur eru alltaf góðar. Hér eru þær mariner-aðar og síðan grillaðar. Þær eru
góðar með blómkálsgratíni og grill-
uðu grænmeti. Í eftirrétt eru síðan
þessar æðislegu bláberjamúffur.
Þetta þarf ekki að vera flókið til að
vera gott.
Marineraðar kótelettur
Fyrst er það uppskrift að mariner-
ingunni. Best er að láta kjötið liggja
í henni í sólarhring en minnst tvær
klukkustundir.
6 tvöfaldar kótilettur, tvær á mann
Kryddolía
200 ml ólífuolía
200 ml ferskar kryddjurtir,
óreganó, timían, steinselja, basil,
rósmarín, salvía og fleira eftir
smekk.
5 hvítlauksrif
1 tsk. börkur af sítrónu
Safi úr einum sítrónubát
½ chilli-pipar
Það er gott að grilla grænmeti eins
og …
Matur úr íslensku hráefni
Nýtt lambakjöt, nýupptekið grænmeti og bláber úr íslenskri sveit. Kvöldmaturinn að þessu sinni
er svolítið þjóðlegur en jafnframt bæði hollur og góður. Ekta föstudagsmatur fyrir fjölskylduna.
Grillaðar kótelettur eru æðislegar og ekki er verra að hafa gott meðlæti með.
1 gul paprika
1 græn paprika
1 rauð paprika
Salt og pipar
Setjið allt sem á að fara í mariner-
inguna í matvinnsluvél. Smakkið og
bætið við chilli ef þarf. Kóteletturn-
ar eru settar í poka og helmingnum
af kryddblöndunni hellt yfir. Öllu
blandað vel saman. Geymið.
Áður en þú grillar kóteletturnar
er grænmetið sett á grillið. Penslið
paprikurnar með kryddblöndunni.
Skerið til helminga og grillið í 15
mínútur. Snúið af og til. Setjið í skál
og breiðið álpappír yfir. Grillið kóte-
letturnar á meðalhita í 8 mínútur á
hvorri hlið. Bragðbætið með salti og
pipar og meiri kryddblöndu ef þarf.
Berið kóteletturnar fram með blóm-
kálsgratíni og grillaðri papriku.
Gratínerað blómkál
Blómkál í ostasósu er ákaflega
hollur og góður réttur. Hægt er að
hafa blómkálið sem stakan rétt
með salati og brauði eða með kjöti í
staðinn fyrir kartöflur.
1 blómkálshöfuð, tekið í sundur
2 msk. smjör
2 hvítlauksrif, rifin niður
3 msk. hveiti
5 dl mjólk
150 g rifinn ostur
100 g grænkál, skolað og skorið
niður
Salt, pipar og smávegis múskat
Hitið ofninn í 200°C. Sjóðið blóm-
kálið í fimm mínútur og takið síðan
til hliðar. Búið til ostasósu. Bræðið
smjör í potti og steikið hvítlaukinn.
Passið að hann brenni ekki.
Hrærið hveiti saman við smjörið.
Hellið mjólkinni varlega saman
við á meðan þið hrærið vel og
vandlega svo sósan verði laus við
kekki. Bætið ostinum saman við og
hrærið varlega allt saman. Bragð-
bætið með salti, pipar og múskati.
Setjið blómkálið saman við og látið
suðuna koma upp aftur. Bætið þá
grænkálinu saman við. Það má nota
spergilkál í staðinn fyrir grænkál.
Setjið blönduna í eldfast mót og
lokið með álpappír. Bakið í 10
mínútur. Takið þá álpappírinn og
bakið áfram í 10 mínútur eða þar til
gratínið fær smá lit.
Í lokin er smávegis steinselju dreift
yfir og pipar. Berið strax fram.
Bláberjamúffur
Þeir sem eru búnir að fara í berja-
mó luma trúlega á fallegum og
góðum bláberjum. Það er um að
gera að nota smávegis af þeim í
þessar góðu múffur sem er einfalt
að útbúa.
200 g hveiti
150 g sykur
1 tsk. lyftiduft
200 g smjör, mjúkt og skorið í bita
2 egg
Safi og börkur af einni sítrónu
1 dl mjólk
250 g bláber
Hitið ofninn í 200°C. Setjið allt hrá-
efni nema bláberin í matvinnsluvél.
Hrærið þar til úr verður fallegt
deig. (Ef þú átt ekki matvinnsluvél
má nota hrærivél en þá er betra að
bræða smjörið). Hrærið bláberjun-
um varlega í deigið með sleif. Setjið
deigið í 12 múffuform. Fallegt er að
setja bláber ofan á kökurnar. Bakið
í um það bil 15 mínútur eða þar
til kökurnar eru fallega bakaðar.
Kælið og skreytið með glassúr ef
þið viljið.
Karl Olgeirsson er einn af okkar ástsælustu tónlistar-mönnum en hann hefur
verið viðloðandi íslenskt tón-
listarlíf frá því hann var við nám
í Menntaskólanum í Hamrahlíð
seint á síðustu öld. Upp á síðkastið
hefur djassinn gripið hann æ
fastari tökum og nú er svo komið
að plata var óumflýjanleg og ekki
bara plata heldur líka nótnabók
undir heitinu Mitt bláa hjarta.
„Ég er búinn að verja meiri hluta
ársins í að semja lög og
ljóð fyrir nótnabók
og plötu, bæði CD
og tvöfaldan vínyl,
sem að koma út í
haust.“ Á plötunni
eru 12 söngvarar,
þar á meðal Sigga
Eyrún, Ragga Grön-
dal, KK, Bogomil Font,
Unnur Sara og Kristjana
Stefáns ásamt úrvali hljóð-
færaleikara. „Ég held að það hafi
varla verið gefinn út áður á Íslandi
svona pakki með nótnabók, CD og
vínylplötu. Mér finnst geggjað að
lögin séu að koma út í nótnabók
fyrst, það er svo retró! Svo kemur
platan Mitt bláa
hjarta út 22. október
og það er enn hægt
að tryggja sér hana á
Karolina Fund.“ Í tilefni
af útkomu bókarinnar
mun Karl halda litla tónleika
í Hannesarholti í kvöld þar sem
hann situr við flygilinn, segir frá
tilurð laganna og flytur lögin upp
úr bókinni.
Tónleikarnir hefjast kl. 21 og miða-
sala er á tix,is og við innganginn.
Bláa hjartað hans Kalla
Karl Olgeirsson hefur verið einn eftirsóttasti og önnum kafnasti tónlistar-
maður landsins undanfarin ár en djassinn kallaði svo ekki varð undan komist.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . S e p t e M B e R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R
1
4
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
D
5
-2
1
2
0
2
0
D
5
-1
F
E
4
2
0
D
5
-1
E
A
8
2
0
D
5
-1
D
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
1
3
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K