Fréttablaðið - 14.09.2018, Page 40

Fréttablaðið - 14.09.2018, Page 40
Hvað? Hvenær? Hvar? Föstudagur hvar@frettabladid.is 14. september 2018 Tónlist Hvað? Mitt bláa hjarta – Karl Olgeirs Hvenær? 21.00 Hvar? Hannesarholti, Grundarstíg Þann 14. september sendir Karl Olgeirsson frá sér nótnabókina Mitt bláa hjarta með 14 nýjum djasssöngvum. Af því tilefni telur hann í útgáfutónleika í Hannesar­ holti. Höfundurinn mun sitja við flygilinn, segja frá lögunum og flytja þau beint upp úr bókinni. Þetta eru hlýleg og fjölbreytt lög sem fjalla um margvíslega hluti, t.d. ást, söknuð, gleði og veðrið. Einnig eru nátthrafnar, háska­ kvendi, draumóramenn, rifrildi og óljóst atvik sem á sér stað við Klambratún til umræðu. Hvað? Apparat Organ Quartet, Vök, Nelson Can, Felines – Freedom Rokk Hvenær? 21.00 Hvar? Húrra, Tryggvagötu Í tilefni af aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands er fjölbreytt dagskrá bæði á Íslandi og í Dan­ mörku. En það hefur vantað rokk og indí og hér með ráðum við bót á því með Freedom Rock tón­ leikum sem verða haldnir bæði í Reykjavík og Kaupmannahöfn. Að baki stendur danska hljómplötu­ fyrirtækið Crunchy Frog (þekkt fyrir m.a. Junior Senior, Powersolo, The Raveonettes …) sem hefur sterka tengingu við Ísland og gefur meðal annars út Apparat Organ Quartet utan landsteinanna. Á þessum tónleikum má finna góða blöndu af óreyndum og þraut­ reyndum, konum og körlum, þekktum og óþekktum, grípandi og tilraunakenndum hljóm­ sveitum. Hvað? Kexpakk #2 Hvenær? 20.00 Hvar? Kex hosteli, Skúlagötu Kexpakk­tónleikaserían heldur áfram á Kexi hosteli föstudags­ kvöldið 14. september. Seinast var poppið í fyrirrúmi en í þetta skipt­ ið færum við okkur á sækadelísk­ ari slóðir. Fram koma: Skrattar, Konsulat og Árni Vil. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega vel­ komnir! Hvað? Útgáfutónleikar JAK í Bæjarbíói Hvenær? 20.30 Hvar? Bæjarbíói, Hafnarfirði Söngvarinn Stefán Jakobsson hefur fyrir löngu getið sér gott orð með hljómsveitinni Dimmu og víðar. Undanfarin misseri hefur hann unnið að sinni fyrstu sólóplötu og er loksins kominn tími til að opin­ bera afraksturinn. Viðburðir Hvað? Tangó praktika og milonga Tangófélagsins Hvenær? 21.00 Hvar? Kramhúsinu, Skólavörðustíg Argentínskur tangó dunar í Kram­ húsinu, praktika kl. 21­22 og í kjöl­ farið kemur milongan. Gestgjafi er Svanhildur Óskarsdóttir, dj er Svana Vals og heldur uppi stuðinu með gullaldartangótónlist í bland við nýja. Allir velkomnir, ekki þarf að mæta með dansfélaga. Við bjóðum upp á frábært dansgólf í hlýlegu umhverfi. Aðgangseyrir kr. 1000 en frítt er fyrir 30 ára og yngri Hvað? Sigurðar Nordals fyrirlestur Hvenær? 17.00 Hvar? Norræna húsið Á fæðingardegi dr. Sigurðar Nor­ dals 14. september gengst stofn­ unin fyrir svokölluðum Sigurðar Nordals fyrirlestri. Að þessu sinni flytur Anna Agnarsdóttir prófessor fyrirlestur sem nefnist „L’Islande est très peu connue“: Stórveldin sækja Ísland heim. Samskipti Frakka og Breta við Ísland á 18. öld. Sýningar Hvað? Opnun – Ný verk í Listasal Mosfellsbæjar Hvenær? 16.00 Hvar? Listasal Mosfellsbæjar Listamennirnir Guðni Gunnarsson og Ingirafn Steinarsson opna sam­ sýningu í Listasal Mosfellsbæjar föstudaginn 14. september. Til sýnis verða ný verk en undanfarin misseri hafa báðir listamennirnir unnið tvívítt, annars vegar sam­ klipp og hins vegar teikningar. Í verkum Guðna getur að líta marg­ breytilegar súrrealískar fígúrur samsettar úr fundnu myndefni, tímaritum og dagblöðum. Verk Ingarafns eru samhverfar teikn­ ingar, unnar með trélitum, álíkar sprengingum sem minna sam­ tímis á fljótandi síkadelísk form og svífandi geimstöðvar. Hvað? Sugar Wounds – No. 04 – Stein- unn & Sunneva Ása Hvenær? 18.00 Hvar? Ármúla 7 Verið velkomin á fjórðu sýningar­ opnun Sugar Wounds í Ármúla 7 föstudaginn 14. september kl. 18.00­21.00. Steinunn Gunnlaugs­ dóttir fremur gjörninginn Perlur, framfarir og hamfarir. Sunneva Ása Weisshappel fremur gjörninginn Innöndun – Útöndun: Þjöppun. Kexpakk fer fram á Kexi og má búast við svona stemningu. Fréttablaðið/Ernir Rússneskir Kvikmyndadagar! frítt/free* *Good Boy (eng sub) .............................. 18:00 Whitney ............................. 17:45 & 22:00 Söngur Kanemu (eng sub) ......... 18:00 FÖSTUDAGSPARTÍSÝNING! 10 Things I Hate About You .. 20:00 Sorry to Bother You 20:00 & 22:10 Útey 22. júlí ...................... 20:00 & 22:10 HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 NÁNAR Á BIOPARADIS.IS BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 * V ið m ið un ar tö lu r f ra m le ið an da u m e ld sn ey tis no tk un í bl ön du ðu m a ks tri . E N N E M M / S ÍA / N M 8 9 8 4 3 N is s a n J u k e 5 x 2 0 T il b o ð s e p t TÖFFARINN Í FJÖLSKYLDUNNI ALMENNT VERÐ: 4.290.000 KR. TILBOÐSVERÐ: 3.890.000 KR. NISSAN JUKE ACENTA+ BENSÍN / FJÓRHJÓLADRIFINN / SJÁLFSKIPTUR 190 HESTÖFL / EYÐSLA 6,5 L/100 KM* NISSAN hlaut viðurkenningu bílasöluritsins AutoTrader sem BEST BÚNI BÍLLINN 2018. Viðurkenningin er byggð á könnun meðal rúmlega 40 þúsund bíleigenda á því hvaða framleiðandi uppfylli best þarfir um staðalbúnað í nýjum bifreiðum. 1 4 . S e p T e m b e r 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U r24 m e n n i n G ∙ F r É T T A b L A ð i ð 1 4 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 D 5 -0 3 8 0 2 0 D 5 -0 2 4 4 2 0 D 5 -0 1 0 8 2 0 D 4 -F F C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 1 3 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.