Fréttablaðið - 15.09.2018, Qupperneq 10
Bandaríkin „Trúðu á eitthvað, jafn-
vel þótt það kosti þig allt.“ Þetta er
slagorð auglýsingaherferðar sem
íþróttavörurisinn Nike réðst í fyrr
í mánuðinum með NFL-leikstjórn-
andann Colin Kaepernick í farar-
broddi. Auglýsingin fór öfugt ofan
í bandaríska íhaldsmenn og hefur
hinn umdeildi Kaepernick aldrei
verið meira á milli tannanna á fólki.
En hvers vegna er Kaepernick,
leikstjórnandi sem vann aldrei
Ofurskálina svokölluðu, orðinn einn
þekktasti NFL-leikmaður heims?
Upphafið
Kaepernick var 36. valið í nýliða-
vali NFL-deildarinnar árið 2011 og
fór til San Francisco 49ers. Hann var
varaleikstjórnandi liðsins á fyrsta
tímabilinu en byrjaði að veita leik-
stjórnandanum Alex Smith hörku-
samkeppni á öðru tímabili sínu.
Leikstjórnandinn náði að festa
sig í sessi og hélt byrjunarstöðunni
þangað til 2015 þegar hann missti
hana til Blaines Gabbert, bæði
vegna lítillar trúar nýja þjálfarans
Jims Tomsula á honum sem og axlar-
meiðsla og gekk honum illa að vinna
stöðu sína aftur á ný.
Það voru þó ekki afrek Kaeper-
nicks inni á vellinum sem urðu til
þess að nafn hans varð ráðandi í
stjórnmálaumræðu Bandaríkjanna.
Sú saga hófst á undirbúningstíma-
bilinu 2016. Í þriðja leik þess sást
Kaepernick sitjandi á meðan þjóð-
söngurinn var fluttur en venju sam-
kvæmt standa þá leikmenn.
Fór á hnén
Þetta vakti athygli íþróttablaða-
manna sem spurðu Kaepernick út
í málið eftir leik. „Ég ætla ekki að
standa til þess að sýna virðingu mína
fyrir fána ríkis sem kúgar hörunds-
dökka. Fyrir mér er þetta mál stærra
en fótbolti og það væri sjálfselska
af minni hálfu að hundsa vandann.
Lík liggja á götum úti og hin ábyrgu
fá launað frí og komast upp með
morð,“ sagði Kaepernick þá.
Með þessum ummælum var
Kaepernick að vísa í atburðarás sem
leiddi til stofnunar hreyfingarinnar
Black Lives Matter. Hreyfingin berst
gegn lögregluofbeldi sem beinst
hefur að svörtum Bandaríkjamönn-
um og bendir á að fjöldi svartra og
óvopnaðra Bandaríkjamanna hafi
verið myrtur af lögreglumönnum
sem hafi fæstir þurft að svara fyrir
gjörðir sínar.
Þrátt fyrir hörð orð bandarískra
íhaldsmanna hélt Kaepernick striki
sínu. Reyndar hafði hann breytt lík-
amsstöðu sinni og var komin niður
á hné í næsta leik, sagði það gert til
þess að sýna bandaríska hernum
meiri virðingu en halda samt sem
áður áfram að mótmæla.
Umdeildur
Bandarískum íhaldsmönnum þykir
Kaepernick sýna bandaríska hern-
um og Bandaríkjunum sjálfum van-
virðingu með því að krjúpa. Þá er
vert að taka fram að Repúblikanar
hafa ekki stutt Black Lives Matter.
Kaepernick sagðist í septem-
ber 2016 hafa fengið líflátshótanir
vegna málsins. „Ef þeim hótunum
verður framfylgt myndi það sanna
málstað minn,“ sagði leikstjórn-
andinn á þeim tíma. Í desember
fjölluðu íþróttamiðlar svo um
minnkandi áhorf á NFL-deildina
þar sem fram kom að áhorfendur
og hinn nýkjörni forseti kenndu
Kaepernick um áhorfstapið.
Þann 3. mars 2017 lauk svo NFL-
ferli Kaepernicks, að minnsta kosti
í bili. Hann nýtti ákvæði í samningi
sínum við 49ers og losnaði þannig.
Stærri en Kaepernick
Hreyfingin sem Kaepernick hefur
hrint af stað er orðin stærri en hann
sjálfur. Fleiri og fleiri leikmenn
bætast í hópinn. Á meðal þeirra sem
Að fórna öllu fyrir málstaðinn
Auglýsing Nike með Colin Kaepernick í aðalhlutverki gnæfir yfir borgurum New York-borgar. NordiCphotoS/AFp
Colin Kaepernick,
leikstjórnandinn fyrr-
verandi, hefur enn á
ný vakið mikið umtal í
Bandaríkjunum. Aug-
lýsingaherferð hans
fyrir Nike kyndir undir
mótmælum hans gegn
kynþáttafordómum á ný
og fyrirtækið malar gull
á herferðinni.
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
jeppa og jepplinga í Heklu í dag milli
12 og 16.
Veglegur auka-
hlutapakki fylgir
nýjum jeppum
og jepplingum.
Jói P. og Króli
taka lagið
klukkan 14.
Fullt hús
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
1 5 . s e p t e m B e r 2 0 1 8 L a U G a r d a G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
1
5
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
D
6
-E
1
3
4
2
0
D
6
-D
F
F
8
2
0
D
6
-D
E
B
C
2
0
D
6
-D
D
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
0
4
s
_
1
4
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K