Fréttablaðið - 15.09.2018, Síða 78
KOMDU
Í
– dásamleg deild samfélagsins
OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17
K
V
IK
A
Bókin um daginn þegar sólin stóð kyrr“ var auglýsingaslagorðið sem útgefandinn Mac-millan Press notaði á vordögum árið 1950
um glænýtt vísindarit. Verkið
nefndist Worlds in Collision eftir
rússneska höfundinn Immanuel
Velikovsky. Bókin skaust á topp
metsölulistans og vakti gríðarlegt
umtal og athygli.
Ekki var við öðru að búast, enda
setti höfundurinn fram æsilegar
kenningar í verki sínu, bæði á sviði
stjörnufræði og mannkynssögu.
Velikovsky áleit að reikistjarnan
Venus væri kornung og hefði brotn-
að frá Júpíter fyrir aðeins fáeinum
árþúsundum. Um 1.500 fyrir Krist
hefði plánetan svo farið fram hjá
Jörðinni á leiðinni á núverandi
sporbraut sína og hefði sá fundur
haft gríðarlegar afleiðingar í för með
sér – þannig hefði snúningur Jarðar
stöðvast um tíma og það leitt til
skelfilegra náttúruhamfara. Þessir
tilflutningar himintunglanna hefðu
haft afleiðingar á Jörðinni næstu
tvö þúsund árin eða svo áður en ró
komst á og núverandi skipan reiki-
stjarna festist í sessi.
Með þessari byltingarkenndu til-
gátu, taldi Velikovsky sig geta skýrt
ýmis atriði sem þóttu sérkennileg
varðandi Venus, en einnig mætti
með þessu varpa nýju ljósi á sögu
mannsins. Heimildir um ham-
farirnar miklu mætti finna í fjölda
fornra menningarsamfélaga og
þær hafi lifað áfram í goðsögum og
endursögnum mann fram af manni.
Skemmst er frá því að segja að
stjörnufræðiheimurinn hafnaði
kenningum Velikovskys algjörlega.
Hann var sakaður um að misskilja
og rangtúlka rannsóknir stjarnvís-
indamanna. Engin ástæða væri til að
ætla að Venus sé kornung pláneta,
auk þess sem atburðarás sú sem lýst
er í bókinni hefði aldrei gengið upp
af fjölmörgum ástæðum. Var bóka-
forlagið harðlega gagnrýnt fyrir að
gefa slíkar dellukenningar út eins og
um alvöru vísindarit væri að ræða
og gefa hugmyndunum þannig lög-
mæti í hugum fólks.
Svo fór líka að margir urðu til að
leggja trúnað á hina frumlegu kenn-
Saga
til næsta
bæjar
Stefán Pálsson skrifar
um magnaða sam-
særiskenningu.
ingu Rússans, þótt sérfræðingar
skelltu skollaeyrum við henni. Til-
gátur af þessu tagi, sem svipta
grundvellinum undan hefðbundn-
um skilningi fólks á fortíðinni, hafa
löngum átt greiða leið að eyrum
fjölda fólks. Má í því samhengi
minnast feykilegra vinsælda afar
fjarstæðukenndra hugmynda Sviss-
lendingsins Erichs von Däniken
um að helstu menningarsamfélög
fornaldar hafi verið sköpuð af geim-
verum. Áhrifa frá Velikovsky gætir
enn í dag, með óbeinum hætti þó.
Má þar nefna einhverja sérkenni-
legustu sagnfræðitilgátu seinni ára:
hugmyndina um upplognu árin 297
í mannkynssögunni!
Almanakið véfengt
Maður er nefndur Heribert Illig.
Hann er Þjóðverji, fæddur árið 1947
og lagði stund á fjölda ólíkra greina á
sviði hug- og félagsvísinda í háskóla.
Einkum var hann áhugasamur um
sögu og menningu Egyptalands hins
forna og það var á þeim vettvangi
sem hann kynntist kenningum
Velik ovskys.
Ein forsenda þess að tilgáta þess
rússneska gengi upp var sú að for-
sögulegar frásagnir af stórkostlegum
náttúruhamförum frá ólíkum menn-
ingarsamfélögum væru allar frá sama
tíma. Í sumum tilvikum var auðvelt
að hnika atburðum fram og aftur í
sögunni, svo sem þegar kom að frá-
sögnum Gamla testamentisins af
syndaflóðinu, grískum arfsögnum
um eyðingu Atlantis og öðrum
viðlíka atvikum. Málið vandaðist
nokkuð þegar kom að samfélögum
með lengri skrásetta sögu – og þá sér-
staklega Egyptalandi.
Velikovsky greip til þess ráðs að
hafna viðteknum hugmyndum um
egypska sögu og tímarás atburða. Til
að kenningar hans gengju upp, hlutu
nákvæmar kóngaraðir með ártölum
sem náðu óralangt aftur í tímann að
vera uppspuni og tilbúningur. Hinn
ungi Illig sökkti sér ofan í þessi fræði
og varð furðulostinn yfir því hvað
margt í tímatalsútreikningum um
sögu Egypta virtist standa á veikum
fótum. Sáralitlar heimildir var að
finna um mörg hundruð ára tímabil,
þar sem treysta þurfti orðum örfárra
sagnaritara. Niðurstaða hans varð sú
að þegar kæmi að skilningi á fortíð-
inni værum við ofurseld frásögnum
fáeinna manna sem hæglega gætu
falsað söguna sjálfum sér í hag.
Illig freistaði þess að umrita sögu
Egyptalands með því að endurskoða
viðtekna tímaása. Skrif hans um
þessi efni vöktu nokkra athygli en
sannfærðu fáa. Hins vegar urðu þau
til þess að koma honum í samband
við aðra fræðimenn og sagnfræði-
grúskara sem rannsökuðu tímatal í
leit að villum eða samsæri.
Um miðjan níunda áratuginn hóf
Illig að kynna sér falsanir á miðalda-
skjölum, en vísbendingar virtust
um að fjöldi slíkra skjala væri miklu
eldri en atburðirnir sem þau áttu að
lýsa. Ef þær tilgátur reyndust réttar
var eitthvað verulega skrítið á seyði.
Hvernig gátu skrifarar miðalda sagt
svo nákvæmlega fyrir um óorðna
atburði og hvaða tilgangur gat verið
í því að falsa skjöl sem ekki kæmu að
gagni fyrr en mörgum öldum síðar?
Þótt Illig væri fráleitt neinn sér-
fræðingur um evrópska miðalda-
sögu, sannfærðist hann skjótt um
að fiskur lægi undir steini. Á sama
hátt og tímaás fornegypskrar sögu
væri seinni tíma tilbúningur, tók
hann að gruna að krukkað hefði
verið í tímatal miðaldamanna. Ef til
vill væri saga Evrópu öllu styttri en
flestir teldu?
Illig hóf að leita að vísbendingum
um stórkostlegasta samsæri allra
tíma og fljótlega virtust þær koma í
ljós ein af annarri. Árið 1582 hafði
gregoríanska dagatalið tekið gildi
í stað eldra dagatals sem kennt var
við Júlíus Sesar. Við þá breytingu var
tíu dögum sleppt úr almanakinu til
að leiðrétta skekkju miðað við gang
sólar. Samkvæmt útreikningum
Illigs hefðu dagarnir þó þurft að vera
fimmtán, sem væri skýr vísbending
um að maðkar væru í mysunni.
Langstærsta samsærið
Eftir því sem Illig kynnti sér betur
sögu miðalda, þeim mun augljósara
fannst honum misræmið milli þess
hversu ríkar heimildir og fornminjar
mætti finna frá fornöldinni annars
vegar og tímabilinu eftir árið 1000
hins vegar samanborið við fyrri
hluta miðalda. Lengi hafði verið
talað um hinar „myrku miðaldir“
sem langt tímabil stöðnunar og lít-
illa framfara á sviði lista og vís-
inda. Ýmsir höfðu reynt að skýra
hvernig á þessu viðburðasnauða
skeiði stæði, en nú taldi Illig sig
hafa fundið svarið: miðaldir hefðu í
raun verið miklu styttri en talið væri.
Árin 614 til 911 hefðu aldrei átt sér
stað!
Samkvæmt kenningunni höfðu
páfinn í Róm, keisari hins heilaga
rómverska ríkis og páfi austróm-
versku kikjunnar í Býsans gert með
sér samsæri seint á sjöundu öld um
að breyta almanakinu og færa það
fram um nærri 300 ár. Það hafi í raun
ekki verið eins flókið og ætla mætti,
þar sem nær allir menntamenn
þeirrar tíðar hafi verið í þjónustu
þeirra. Allir munkar og aðrir kirkj-
unnar þjónar hafi fengið fyrirmæli
um að láta eins og 297 ár hefðu liðið
í raun og veru og taka mið af því í
öllum sínum skrifum.
En hver væri ávinningurinn með
slíku samsæri? Jú, frá upphafi höfðu
Kristnir menn beðið endurkomu
Krists og dómsdags í kjölfarið. Þau
ragnarök höfðu látið eftir sér bíða, en
ýmsir bundu vonir við að til tíðinda
drægi á þúsund ára afmæli Jesú. Til
marks um þá trú má nefna að tals-
verður kippur hljóp í kristniboð
þegar líða tók að árinu 1000, eins og
kristnitaka á Íslandi og í Rússlandi
eru til marks um. Tilgáta Illigs er því
sú að kirkjuhöfðingjarnir hafi viljað
tryggja að þeir yrðu á valdastóli þegar
hið örlagaríka ár 1000 rynni í garð.
Það að bæta þremur öldum við
mannkynssöguna fól einnig í sér
margháttuð tækifæri fyrir valdhafa,
sem gætu þar með spunnið í eyð-
urnar að eigin hentugleika. Og þar
komum við einmitt að hinu aðal-
atriðinu í kenningunni: tilvist Karla-
magnúsar, fyrsta keisara hins heilaga
rómverska ríkis.
Illig leit svo á að frá því um 614 til
valdatöku Karlamagnúsar árið 768
ríkti nær ærandi þögn í sögunni. Þá
tæki við nærri hálfrar aldar tímabil
stórtíðinda allt til dauða keisarans
og því næst væri hálfgerð ördeyða
næstu öldina. Samkvæmt samsæris-
kenningunni væri þetta afskaplega
ósennileg framvinda. Sögurnar af
Karlamagnúsi væru svo stórkost-
legar og lýstu slíkum afrekum að þær
hlytu að vera upplognar með það að
markmiði að styrkja valdakröfur
hinna meintu afkomenda stríðs-
höfðingjans.
Áhugavert er að sjá hvernig Illig
túlkaði skort á heimildum og ofgnótt
þeirra jöfnum höndum sem rök
fyrir tilgátum sínum. Er það raunar
almennt einkenni á höfundum sam-
særiskenninga.
Gloppurnar í kenningunni um
almanakssamsærið mikla eru marg-
ar og stórar. Þannig hefur verið bent
á að tilgátan haldi varla vatni þótt
aðeins sé horft til sögu Vestur-Evr-
ópu, líkt og Illig gerði að mestu. Séu
önnur svæði tekin með í reikninginn
komi enn betur í ljós hversu fráleitt
sé að tala um þriggja alda eyðu í
mannkynssögunni.
Sagnfræðingar hafa almennt ekki
talið hugmyndina svaraverða og líta
frekar á hana sem tilbúning ætlaða
fyrir æsifréttablöð en alvöru innlegg
í fræðilega umræðu. Sjálfur telur Illig
þetta afskiptaleysi þó bara sönnun
þess að sérfræðingarnir treysti sér
ekki til að hrekja rök hans og stað-
festingu á ágæti tilgátunnar. Það er
nánast ómögulegt að kveða niður
góða samsæriskenningu.
Er árið
1721
núna?
… krukkað hefði
verið í tímatal
miðaldamanna.
1 5 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r34 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
1
5
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
D
6
-D
C
4
4
2
0
D
6
-D
B
0
8
2
0
D
6
-D
9
C
C
2
0
D
6
-D
8
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
0
4
s
_
1
4
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K