Fréttablaðið - 15.09.2018, Síða 86
Listaverkið Sólveig Tinna Leifsdóttir, fjögurra ára, sendi okkur þessa mynd. Hún er í leikskólanum Hofi. Valdimar Kári er byrjaður að plana stórafmælið á mánudaginn. En
hvernig?
Við erum þrír strákar sem ætlum að
halda upp á afmælin okkar saman
og það er bíóafmæli. Við bjóðum
öllum strákunum í árganginum
okkar í Flataskóla.
Hvaða mynd ætlið þið að sjá? Hún
heitir The House with a Clock in
Its Walls og fjallar um strák sem er
nýorðinn munaðarlaus og fer þá til
frænda síns og konunnar hans. Þar
kemst hann að því að frændi hans
er seiðkarl.
Úúú … en spennandi. En hvað
finnst þér skemmtilegast að læra í
skólanum? Það er úr mörgu að velja
en ég mundi segja stærðfræði. Mér
finnst gaman í margföldun.
Ertu íþróttagaur líka? Já, ég er í
Stjörnunni og æfi fótbolta og hand-
bolta til skiptis.
En hvað um skíði? Ja, ég æfi nú ekki
á skíðum í Stjörnunni en fer oft að
renna mér á veturna, ef snjór er.
Hef farið til útlanda í skíðaferðir,
bæði Austurríkis og Ameríku. Mig
langar að læra á gönguskíði, eins og
mamma, og líka prófa fjallaskíði,
þá getur maður farið upp brekkur
á skíðunum.
Hefurðu ferðast eitthvað í sumar?
Já, ég fór til Majorka og er nýkominn
heim. Ég fékk fullt af fötum, meira
að segja afmælisgjöfina frá mömmu
minni, það er nýr æfingabúningur
Barselónaliðsins, hann er fjólu-
blár með grænum röndum niður
axlirnar og niður á olnboga. Ég má
ekki nota hann fyrr en eftir afmælið.
Við fórum að skoða tvo kastala og í
risa vatnagarð. Stærsta rennibrautin
er rosaleg, svona 125 metra há. Ég
var mjög stressaður, ég er sko pínu
lofthræddur. Hinrik, bróðir minn
er samt enn lofthræddari en ég dró
hann í hana. Svo var ótrúlegt útsýni
úr veitingastað sem við fórum á
síðasta kvöldið, snekkjur og skútur
og lítil eyja.
Ég þurfti að plata mömmu svolítið
í lokin til að við bræðurnir gætum
komið henni á óvart, því hún átti
afmæli. Ég bað hana að hjálpa mér
að leita að klósettinu og þá gat Hin-
rik pantað eftirrétt með stjörnu-
ljósum.
Langar að prófa
fjallaskíði
Valdimar Kári Örnólfsson er sprækur strák-
ur sem verður tíu ára eftir morgundaginn og
ætlar að halda upp á það með vinum sínum.
Valdimar Kári æfir fótbolta og handbolta til skiptis. FréTTabLaðið/Ernir
StærSta renni-
brautin er roSaLeg,
SVona 125 metra há. Ég Var
mjÖg StreSSaður, Ég er SKo
pínu Lofthræddur.
„Þetta er nú meira vegg-
skriflið,“ sagði Kata, þar
sem þau komu að hlaðinni
steingirðingu. „Hér vantar
nánast annan hvern stein,“
bætti hún við með fyrir-
litningu. „En hann er nú
bara orðinn gamall,“ sagði
Konráð
á ferð og flugi
og félagar 318
Getur þú
hjálpað þeim
að
telja hvað v
antar
marga stein
a í
vegginn?
?
?
?
Konráð. „Það gerir hann
ekki endilega að vondum
vegg, bara laslegum,“ bætti
hann við. „Það vantar til
dæmis ansi marga steina í
þetta gat hérna fyrir
framan okkur,“ sagði Kata
og hélt áfram að úthúða
veggnum. Konráð varð að
viðurkenna að það vantaði
jú ansi marga steina í þetta
gat. „En við verðum að
troða okkur í gegnum það
ef við ætlum að komast
eitthvað áfram,“ sagði Kata.
„Spurning hvort það vanti
það marga steina að við
komumst í gegnum gatið,“
bætti hún við glottandi.
Enda augljóst að auðvelt
væri að komast í gegnum
svona stórt gat án þess að
þurfa að troða sér.
Lausn á gátunni
Það vantar níutíu og fjóra steina?
1 5 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r42 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
krakkar
1
5
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
D
6
-C
3
9
4
2
0
D
6
-C
2
5
8
2
0
D
6
-C
1
1
C
2
0
D
6
-B
F
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
0
4
s
_
1
4
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K